Alþýðublaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 10
10 Laugardagur 16. apríl 1988 MmilBUDIII Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaóur helgadslaös: Þorlákur Helgason Blaöamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Ómar Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síöumúla 12. Áskriftarsiminn er 681866. Dreifingarsími um helgar: 18490 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. BYLTING í HÚSNÆÐISMÁLUM Segja má aö lífsstarf heillar þjóöar sé bundið í íbúöar- húsnæöi. Mest hefur þetta átt sér staö á sömu nótum og fjárfestingar almennt gerast í þessu landi. Fyrirhyggja af skornum skammti. Einstaka sinnum hefur þó verið form- legt samkomulag að gera eitthvað á einhverjum öðrum nótum en þeim aö ota hverjum og einum út á íbúðar- markaöinn annaö hvort meö nýbyggingu eöa að kaupa „gamalt". Upphaf bygginga íbúöarhúsnæöis í Breiöholti í Reykjavík má rekja til samninga verkalýöshreyfingar og viðsemjenda á sínum tíma, og fyrir tveimur árum runnu samningar um stórfellda fjármögnun lífeyrissjóða á hús- næóiskerfinu í kjölfar samninga á vinnumarkaönum. Þaö kerfi var meö þeim endemum gert aö þeim sem áttu íbúðir í kippum fyrir og eignalausum var gert jafn hátt undir höföi. Þó aö sett hafi verið undir þann augljósa leka, er Ijóst aö það kerfi er sþrungið og engan veginn fyrirmynd aö húsnæóiskerfi sem tryggir jöfnuó meöal landsmanna. Á síðustu árum hafa ýmis áhugasamtök litiö dagsins Ijós, sem hafa aö markmiði aö leita nýrra leiða í byggingar- málum. Búseti, er eitt þeirra. Búsetakerfi byggist á því aö einstaklingareignast íbúðarrétt meö því aögreiöa hlutaaf íbúðarkostnaöi og meö föstum mánaðargreiðslum erséö fyrir greiðslu rekstrarkostnaöar, en eigandi eru samtök, sem tryggja viðhald fasteigna. Meö slíku fyrirkomulagi er komið í veg fyrir að einstaklingar þurfi aö stefna sér í stór- skuldir við flutninga milli landshluta. Þetta kerfi er reist á félagslegum grunni og brýtur ugp hefð um að þaö sé nauðsynlegt aö allir „eigi“ eitthvað. Allir vita aö búsetu- röskunin hefur fært landsbyggðinni skuldir á silfurfari. Verð á íbúðarhúsnæði á landsbyggðinni er langtum lægra en á Reykjavíkursvæðinu. Á sama tíma og skuldir „eig- enda“ húsnæöis úti á landi eru aö éta húsnæöiö upp vegna þess að hækkun lánskjaravísitölu sem lán til íbúð- arkaupa miðast við er langtum meiri en virði eignanna, heldur húsnæðiö sínu verðgildi í Reykjavík og eykur stór- lega á misvægi lífskjara í landinu. Alþýöublaöiö greindi um síðustu helgi frá nýstárlegri lausn á húsnæðisvandanum sem Sunnuhlíöarsamtökin í Kópavogi hafa fundið. Svo gæti verið aö hér sé ekkert minna en bylting í húsnæöismálum. Eldra fólki er tryggt húsnæði á réttum tíma. Vitaö er aö fjöldi fólks sem er komið á lífeyrisaldur kýs aö skipta um húsnæöi. Þaö býr margt hvert í of stóru húsnæði og hefur ekki í nánasta umhverfi þá þjónustu sem því er nauðsynleg, auk þess sem eingangrun plagar marga í nægtarþjóðfélaginu. Samtökin í Kóþavogi virðast slá margar flugur í einu höggi. ístuttu máli erkerfið þannig: Fólkselursínareignir og eignast íbúöarrétt í 1-3 herbergja rúmgóöum íbúðum hjá Sunnuhlíðarsamtökunum. Meö íbúöarréttarsamning- inn í höndunum öólast viökomandi tryggingu í Búnaðar- bankanum fyrir endurgreiöslu sambærilegrar íbúðar og það hefur greitt í húsnæði samtakanna. Bankinn tryggir að greiðslur séu inntar af hendi til byggingaraðila. Sam- tökin sjá algjörlega um viðhald fasteigna og íbúar greiða húsaleigu sem svarar til alls kostnaðar á mánuði þar með talins viðhalds. Óski íbúar að flytja út úr húsnæðinu eða falli frá, ábyrgist bankinn verðtryggðar greiðslur til við- komandi eða afkomenda. Gagnvart samfélaginu er aug- Ijóslega um góða lausn að ræða. „Garnla" fólkið flytur úr grónum hverfum þarsem skólar, dagvistarstofnaniro.fi. er þegar byggt. Sparnaður þjóðfélagsins liggur í augum uppi. Sunnuhlíðarsamtökin byrjuðu líka á byrjuninni í framkvæmdum sem er heldur óvanalegt hér á landi. For- svarsmenn samtakanna ákváðu fyrirfram hvað íbúðirnar mættu kosta til að koma í veg fyrir að bakreikningar bærust og miðuðu við að kostnaður næmi ekki hærri upp- hæð en þeirri sem meðalhúsnæði þessa eldra fólks væri í dag. Samkvæmt könnunum býr 9 af hverjum 10 sem er eldri en 60 ára í skuldlitlu eða skuldlausu húsnæði. Yfir 150 milljarðar króna eru bundnar í íbúðum í landinu í dag og ekki ósennilegt að helmingur þessarar uþphæðar skrifist á reikning fólks eldra en sextugt. Með því að fylgja for- dæmi Sunnuhlíðarsamtakanna og losna m.a. undan grillunni um „eignarrétt“ náum við áreiðanlega langt á leið með að losa um húsnæðishnútinn í samfélaginu. Berglind Ásgeirsdóttir sendi- ráöunautur í Stokkhólmi. „í sendiráðinu erum viö i sambandi viö íslendinga á hverjum einasta # degi.“ EG HEF SERSTAKAN ÁHUGA Á JAFNRÉTTISMÁLUM segir Berglind Asgeirsdóttir nýskipuð ráðuneytisstjóri í félagsmála- ráðuneytinu. Samkvæmt tillögu félags- málaráöherra hefur forseti ís- lands skipað Berglindi Ás- geirsdóttur í embætti ráðu- neytisstjóra í féfagsmála- ráðuneytinu. Karlavígin falla hvert af öðru og nú er röðin komin að ráðuneytunum þvi Berglind er fyrsta konan sem skipuð er til að stýra ráðu- neyti á íslandi. Berglind mun einnig, samkvæmt bestu heimildum, vera næstyngsti ráöuneytisstjóri sem skipað- ur hefur verið en hún er 33 ára gömul. Þórhaliur Ásgeirs- son ráðuneytisstjóri í við- skiptaráðuneytinu var 29 ára þegar hann tók við skipun i embætti ráðuneytisstjóra. í samtali við Alþýðublaðið segist Berglind hafa útskrif- ast úr lagadeild Háskóla ís- lands 1978. „Árið eftir hóf ég störf í utanrlkisráðuneytinu og var í tæplega 3 ár í ráðu- neytinu hér í Reykjavík I upp- lýsinga- og menntadeild. Annaðist þar uppýsingastarf- semi fyrir ráðuneytið, menn- ingarsamskipti, aðstoðaði er- lenda blaðamenn og annað í þeim dúr,“ segir Berglind. „Þvi næst lá leiðin I sendi- ráðið í Bonn þar sem ég var sendiráðsritari og var vara- fulltrúi hjá Evrópuráðinu í Strassburg. Frá 1984 hef ég svo verið sendiráðunautur í sendiráði okkar í Stokk- hólmi.“ — Þú ert ekki alveg ókunnug blaðamennskunni... „Það ér rétt. Ég var í blaða- mennsku með námi og fyrst eftir að ég útskrifaðist úr lagadeild. Var til skiptis á Vísi og Dagblaðinu og var líka með nokkra þætti í sjón- varpinu.“ Auk sendiráðsstarfans hef- ur Berglind stundað fram- haldsnám í Bandaríkjunum og hlaut mastersgráðu í alþjóðasamskiptum frá há- skólanum í Boston árið 1985. Hvernig líst henni á að snúa sér frá milliríkjamálunum að félags- og sveitarstjórnarmál- um hér heima á íslandi? „Mér líst mjög vel á nýja starfið. Þetta eru ákaflega áhugaverðir máiaflokkar sem heyra undir ráðuenytið. Þetta eru mikilvæg mál, húsnæðis- mál, sveitarstjórnarmál og skipulagsmál, að ógleymdum jafnréttismálunum sem ég hef sérstakan áhuga á. í sjálfu sér eru þetta ekki svo mikil viðbrigði fyrir mig. I sendiráðunum erum við í hagsmunagæslu fyrir ísland og sinnum erindum sem koma frá ráðuneytum hér heima og jafnframt sinnum við íslendinganýlendunni á staðnum. í Svíþjóð er mestur fjöldi íslendinga á erlendri grund og þess vegna erum við í sambandi við íslendinga á hverjum einasta degi. Þá er ég heldurekki óvön stjórnun því sem sendiráðunautur er ég staðgengill sendiherra og hef þurft að vera mikið við stjórnunarstörf. Það er lika stór hluti starfans að koma fram fyrir hönd íslands." Berglind tekur við starfinu í félagsmálaráðuneytinu 1. september. Hún var stödd hér á landi i nokkra daga þegar Alþýðublaðið náði tali af henni en segir að fjöl- skyldan muni taka sig upp í sumar og flytja heim til ís- lands. Eiginmaður hennar er Gísli Ágúst Gunnlaugsson, sagnfræðingur, og eiga þau eitt barn. „Ég hlakka ákaflega til að takast á við þetta nýja starf,“ segir Berglind að lok- um. ’

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.