Alþýðublaðið - 21.04.1988, Qupperneq 3
Fimmtudagur 21. apríl 1988
3
FRÉTTIR
. ' ' .. 1 1 .—i ■—■■■■■■■.
Viðrœður eru í gangi um að Póstur og sími taki að sér að bera út stefnur í dómsmálum.
Nú eru i gangi viðræður
milli dómsmálaráðuneytisins
og Pósts og sima um að
pósturinn taki að sér að flytja
stefnur í dómsmálum til við-
takenda. Breytingin ef af
verður, felur í sér að starf
stefnuvotta verður aflagt. Ef
samningar nást þarf að
breyta lögum og yrði þá
frumvarp lagt fram á næsta
þingi-
Nú eru stefnuvottar í öllum
215 sveitarfélögum landsins
sem hafa haft af þessu
nokkrar aukatekjur og í
Reykjavík eru 4 stefnuvottar i
fullu starfi og tveir til vara.
Einfalt gjald fyrir aö bera út
dómsstefnu er í dag kr. 750
og lendir sá kostnaður yfir-
leitt á þeim sem tapar í
dómsmáli með öðrum kostn-
aðj.
í breytingunni felst ódýrara
og einfaldara fyrirkomulag ef
póstburðarkerfið í landinu
mun taka þetta að sér. Ef allt
er talið mun kostnaðurinn
vegna stefnuvotta vera tals-
vert mikill.
,ÞETTA
ER
SVIPAÐ
OG
VORIÐ
á5V
segir Páll Bergþórs-
son, veðurfrœðingur
um tíðarfarið á
norður- og austan-
verðu landinu.
hjá ungum sem öldnum. A-mynd/Þorlákur Helgi.
VSI með verkbann:
TIL AÐ SPARA LAUN
ií
„Þetta er ákaflega likt
núna eins og var voriö 1951,
fyrir 37 árum. Þá var svona
feiknalega kalt fram undir 20.
apríl, svo fór að hlýna og
mánuðurinn varð ekkert sér-
staklega kaldur, þegar upp
var staðið og sumarið ágætt“
sagði Páll Bergþórsson,
veðurfræðingur hjá Veður-
stofu íslands í samtali við Al-
þýðublaðið en að undanförnu
hefur verið mikill snjór og
kuldi á norðan- og austan-
verðu landinu.
Páll sagði að þessir kuldar
myndu að öllum líkindum
ekki hafa nein veruleg áhrif á
gróður á norðan- og austan-
verðu landinu þar sem ekki
lengra væri liðið fram á vorið.
„Snjórinn hlífir jörðinni fyrir
frosti og svo þegar þaö koma
hlýindi getur þetta orðið
nokkuð gott“ sagði Páll.
Á Suður- og Vesturlandi er
hins vegar auð jörð og mikið
frost í jörðu. Sagði Páll frost
allt aö 50 cm. dýpi. „Næstu
daga og fram yfir helgi, eru
hins vegar líkur til að fari
hlýnandi, einkum á Suður- og
Vesturlandi, svo það er engin
ástæða til svartsýni.“
Med komu sumars eykst isneysla
..EKKI
Sambandsstjórn Vinnu-
veitendasambands íslands
hefur veitt framkvæmda-
stjórn heimild til að leggja
verkbann á félög verslunar-
manna sem boðað hafa verk-
fall. Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri VSÍ segir
að það sé gert til að hafa
jafna stjórn og verslunar-
menn á verkfallinu, t.d. vegna
undanþágó. Ekki sé um að
ræða aðgerðir til að létta
launagreiðslum af fyrirtækj-
um.
I tilkynningu sem sam-
bandsstjórn VSÍ hefur sent
frá sér, segir að sú 30% upp-
hafshækkun launa sem 11 fé-
lög verslunarmanna hafa
boðað verkfall til að knýja á
um, muni óhjákvæmilega
leiða til breytinga á samning-
segir Þórarinn
um við þau nær 80 stéttarfé-
lög sem þegar hefur verið
samið við. Verðbólguáhrifin
verði tilsvarandi og lækkandi
þjóðartekjum gæti ekki fylgt
aukinn kaupmáttur, þótt krón-
um verði fjölgað. Hún lítur
svo á að vinnudeilur við
verslunarmenn snúist í reynd
um efnahags- og verðlags-
þróun, því nái kaupkröfur
þeirra fram að ganga, verði
almenn áhrif þau að verð-
bólga eykst en kjör batni
ekki.
Seðlabankinn hefur reikn-
að út lánskjaravisitölu fyrir
maí og er hún nú 2020 stig.
Hefur vísitalan hækkað um
V. Þórarinsson
Segir að samtökin séu
skuldbundin tugum þúsunda
launþega og öllum sinum fé-
lagsmönnum um að halda
fast um þau markmið sem
þegar hefur tekist víðtæk
sátt um. Þau geti ekki látið
einstaka hópa brjóta niður þá
stefnumörkun sem þegar
liggur fyrir.
Til varnar stefnumörkun-
inni og til að tryggja jafnræði
deiluaðila samjáykkti sam-
bandsstjórnin að veita fram-
kvæmdastjórn VSÍ heimild til
1,56% á milli mánaða. Um-
reiknað til árshækkunar hef-
ur breytingin verið 20,4% síð-
asta mánuð. Miðað við síð-
að leggja verkbann á þau fé-
lög verslunarmanna sem boð-
að hafa verkfall. „í sjálfu sér
felst verkbann, ef þvi verður
beitt, í fyrsta lagi í því að
hafa jafna stjórn á verkfallinu
eins og verslunarmenn, i
sambandi við undanþágurog
fleira. Þetta eru ekki varnar-
aðgerðir í því skyni aó létta
launagreiðslum af fyrirtækj-
um“, sagði Þórarinn V. Þórar-
insson framkvæmdastjóri
VSÍ í samtali við Alþýðublað-
ið.
ustu 6 mánuði er um 20,4%
hækkun að ræða og á einu
ári 21,5%
LÁNSKJARAVÍSITALA HÆKKAR UIR 1,56%
P0UTISK MISNOTKUN A FELAGASKRA SINE
I ályktun stjórnar Sambands ísl. námsmanna erlendis er mótmœlt pólitískum
afskiptum ungra sjálfstœðismanna af kosningum innan sambandsins
Stjórn Sambands íslenskra
námsmanna erlendis hefur
sent frá sér ályktun þar sem
gagnrýnd eru harðlega vinnu-
brögð sem fimm frambjóð-
enda til stjórnar SÍNE eru
sagðir hafa viðhaft í yfir-
standandi kosningum.
í ályktuninni segir m.a.:
„Skv. bréfi sem stjórn SÍNE
héfur komist yfir, þá hafa þau
Belinda Theriault, Birgir Þór
Runólfsson, Guðrún Kr.
Guðfinnsdóttir, Jónas Egils-
son og Óskar Borg, hvatt út-
valinn hóp SÍNE-félaga til
þess að kjósa sig sem einn
iista með sameiginlega
stefnuskrá. Þetta samráð hef-
ur átt sér stað án vitundar
stjórnar SÍNE og án vitundar
annarra frambjóðenda. Á
þennan hátt hafa fimmmenn-
ingarnir reynt að tryggja sér
kosningu með leynilegri
kosningabaráttu, án þess að
gefa mótframbjóðendum sín-
um tækifæri til að skýra
sjónarmið sín.“
Þá segir jafnframt í álykt-
uninni að stjórn SÍNE telji
sér skylt að gefnu tilefni að
mótmæla harðlega öllum af-
skiptum stjórnmálaflokka af
innri málefnum SINE. Stjórn-
in telur sig hafa vissu fyrir
þvi að framboð fimmmenn-
inganna sé skipulagt af
nokkrum forsvarsmönnum
Sambands ungra sjálfstæöis-
manna. Þá heldur stjórnin því
fram að öruggt sé að bréf
þaó sem fimmmenningarnir
sendu til útvalins hóps SÍNE-
félaga, hafi einungis verið
sent til þeirra sem þeir telja
hliðholla stefnu S.U.S.
Að sögn Kristjáns Ara Ara-
sonar formanns SÍNE fékk
S.U.S. léða félagaskrá SÍNE
fyrir nokkru og með því for-
orði að ekki mætti nota hana
á neinn hátt nema að höfðu
samráði við stjórn SÍNE. Tel-
ur stjórn SÍNE að hér sé um
pólitiska misnotkun að ræða
á félagaskránni. í ályktun
stjórnarinnar er þessum
meintu afskiptum S.U.S. af
málefnum SINE mótmælt
harðlega og segja stjórnar-
mennirnir. „...styrkur SÍNE í
þeirri hagsmunabaráttu sem
námsmenn heyja byggist á
sem víðtækastri samstöðu.
Og slik samstaöa næst ein-
ungis ef opin og lýðræðisleg
skoðanaskipti eiga sér stað.“