Alþýðublaðið - 21.04.1988, Side 5
Fimmtudagur 21. apríl 1988
5
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friöriksson og Haukur Holm skrifa
Frumvarpið um aðskilnað dóms- og umboðsvalds:
EITT STÆRSTA UMBÓTA-
MÁL STJÓRNARINNAR
„Ég ætla ad koma málinu hratt og örugglega í gegn,“ segir Jón Sigurds-
son dómsmálaráðherra, sem mælt hefur fyrir frumvarpinu i neðri deild
Alþingis. Frumvarpið er eitt stærsta umbótamál rikisstjórnarinnar og
þýðir markveröa valddreifingu frá Reykjavik út i héruðin. Hart er sótt aö
ráöherra af sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum i Kópavogi.
Islenskir lögfræðingar hafa
oft sagt frá því að starfs-
bræður þeirra erlendir reki í
rogastans þegar þeir sækja
okkur heim til aö kynna sér
skipan dómskerfis á íslandi.
Hvernig má það vera, spyrja
þeir, að sami embættis-
maðurinn fyrirskipi handtöku
afbrotamanns, stjórni rann-
sókn í málinu og kveði síðan
upp dóm? Hér er aö sjálf-
sögðu tekið dæmi af þeim
sambræðingi á dómsvaldi og
umsvifamiklum umboðsstörf-
um sem hefur viðgengist því
i grundvallaratriðum sameina
sýslumenn og bæjarfógetar
lögreglustjórn og dómgæslu
i opinberum málum og inn-
heimtu og hugsanlega dóm-
störf um réttmæti þeirrar inn-
heimtu.
Þrátt fyrir að vestrænu lýð-
ræðisrikin hafi mjög mis-
munandi skörp skii á milli
valdþátta ríkisins er hvar-
vetna viðurkennt að tryggja
beri sjálfstæði dómstóla
gagnvart framkvæmdavald-
inu. Það er höfuðatriði fyrir
réttaröryggi fólks og grund-
vallarregla í skipulagi lýð-
ræðisins að dómarar séu
óháðir framkvæmdavaldinu
og fari ekki jafnframt með
stjórnsýsluverkefni.
í starfsáætlun ríkisstjórn-
arinnar frá siðasta sumri er
gert ráð fyrir heildarendur-
skoðun dómsmálaskipunar
sem feli í sér aðskilnað dóm-
starfa og stjórnsýslustarfa.
Jón Sigurðsson dómsmála-
ráðherra hefur nú látið vinna
viðamikið lagafrumvarp um
málið, rikisstjórnin samþykkt
að það verði lagt fyrir Alþingi
og s.l. þriðjudag mælti
dómsmálaráðherra fyrir frum-
varpinu í neðri deild þings-
ins.
Enginn vafi leikur á því að
hér er á feröinni eitt stærsta
umbótamál stjórnarinnar
sem i hnotskurn felur i sér
bæði skjótari og öruggari
málsmeðferð dómsmála og
skilvirkari framkvæmd í
stjórnsýslu auk markverðrar
valddreifingar frá miöstjórn-
arvaldinu i Reykjavík út í hér-
uðin.
„Enginn er dómari í eigin
sök, ekki einu sinni sýslu-
menn,“ sagði Jón Sigurðs-
son dómsmálaráðherra er
hann kynnti fyrir frétta-
mönnum frumvarp sitt um
aðskilnað dómsvalds og um-
boðsvalds í héraði. Sagði
hann að hér væri ekkert
dægurmál á ferð, heldur
langvarandi hagsmunamál,
og væri það fyrirkomulag
sem nú er á þessum málum
^ólíkt því sem er í öllum þeim
löndum sem við viljum bera
okkur saman viö.
Skipti ráðherra þeirri gagn-
rýni sem frumvarpið hefur
fengið í þrjá flokka: lögfræði-
lega, landfræðilega og átt-
hagaást og síðan gagnrýni
vegna kostpáðar.
Sýslumannafélag íslands
hefur gagnrýnt frumvarpið,
og sagði ráðherra að sú
gagnrýni virtist byggjast á
misskilningi að mörgu leyti.
Ekki stæði til að fækka
sýslumönnum, heldur yrði
fjöldi þeirra nákvæmlega
sami og áður, en bætt yrði
við átta héraðsdómum.
Sýslumenn munu eftir sem
áður hafa með höndum
stjórnsýslu ríkisins, s.s. lög-
reglustjórn, tollstjórn og inn-
heimtu opinberra gjalda, að
því leyti sem hún er ekki falin
öðrum, sbr. Reykjavik. Stefnt
er að því að sýslumannsem-
bættin verði alhliða þjón-
ustumiðstöðvar fram-
kvæmdavaldsins í hverju
héraði.
Reiknað er með að heildar-
rekstrarkostnaður dómskerf-
isins muni aukast um 35
milljónir króna á ári við þessr
breytingar, en dómsmálaráð-
herra lét þess getið að vel
væri hægt að koma þessum
kerfisbreytingum á án
kostnaðarauka ef menn vildu.
Sýslumenn hafaeinnig gagn-
rýnt að með frumvarpinu sé
verið að skerða þá lögfræði-
þjónustu sem veitt er í hér-
aði. Sagði Jón Sigurðsson að
sums staðar í héruðum væri-
sýslumaðurinn sá eini sem
væri lögfræðimenntaður,
hann ætti því með nýja fyrir-
komulaginu, að vera betur í
stakk búinn til að veita ráð-
leggingar, þurfi hann ekki
síðan að dæma í málinu
sjálfur.
Sagði ráðherra að einn
megintilgangur frumvarpsins
væri að efla veg dómstóla,
og að hann ætlaði að koma
málinu hratt og örugglega í
gegn.
Það var níu manna nefnd
sem vann að gerð frumvarps-
ins og hefur Björn Friðfinns-
son formaður hennar sagt að
full samstaða heföi verið í
nefndinni meö það fyrir-
komulag sem frumvarpið
gerir ráð fyrir. Eins og Al-
þýðublaðið hefur greint frá er
gert ráð fyrir að settir verði á
stofn átta héraðsdómstólar í
landinu sem mannaðir verða
með tilfærslum frá núverandi
embættum sýslumanna,
bæjarfógeta og héraðsdóm-
ara. Er ennfremur gert ráð
fyrir þeirri mikilvægu réttar-
bót að í framtíðinni verði um-
sóknir um héraðsdómara
lagðar fyrir sérstaka nefnd,
sem metur hæfni umsækj-
enda.
Landið mun skiptast áfram
í 26 stjórnsýsluembætti, auk
Reykjavíkurumdæmis.
Harkaleg andstaða í
Kópavogi
Er gert ráð fyrir að dóms-
málaráðherra geti skipt lög-
sagnarumdæmum héraðs-
dómstóla í einstakar þinghár
með reglugerð, en fastur
þingstaður verði í hverri dóm-
þinghá.
Flestir sem fengiö hafa
frumvarpið til umsagnar hafa
gefið því jáyrði sitt að sýslu-
mannafélaginu undanskildu
sem hefur gagnrýnt ýmis
atriði sem lúta að breytingum
á starfssviði þeirra. Afstaða
sýslumannanna varð til þess
að framsóknar- og s álf-
stæðisþingmenn hata sumir
hverjir haft uppi andstöðu við
frumvarpið og er því óvíst að
þá fái afgreiðslu sem lög á
yfirstandandi þingi. Mjög
hörð gagnrýni hefur líka
komið frá Framsóknar- og
Sjálfstæðismönnum i Kópa-
vogi sem hafa snúið bökum
saman til að koma i veg fyrir
að bærinn verði svipturvarn-
arþingi sínu eins og það er
orðað, þegar Héraðsdómstóll
Reykjaness verður stofnsett-
ur en hann hefur aðsetur í
Hafnarfirði skv. frumvarpinu. í
Vogum, blaði sjálfstæðis-
manna i Kópavogi, hefur
mjög harkalega verið ráðist
gegn frumvarpi dómsmála-
ráðherra og þvi haldið fram
að verið sé að skerða verk-
svið bæjarfógetaembætt-
anna en kostnaður við hið
nýja kerfi verði himinhár.
Á brennheitum borgara-
fundi sem þessir aðilar stóðu
fyrir i Kópavogi s.l. þriðju-
dagskvöld var hart sótt aö
dómsmálaráðherra vegna
þeirrar umbreytingar sem i
frumvarpinu felst. Varðist
ráðherra fimlega og benti
m.a. á að með breytingunni
verði sýslumannsembætti
Kópavogs i mun nánari
tengslum við fólkið í bænum,
og þjónustan við þegnana
stórbætt. Þá vegur þungt í
rökum ráðherra að skv. hinni
nýju skiþan verða sýslumenn
mun betur í stakk búnir en
áður til þess að veita fólki
lögfræðilega ráðgjöf og að-
stoð enda eiga þeir þá ekki á
hættu að verða vanhæfir við
dómsmeðferð síðar eins og
hætt er við i því samkrulli
dóms- og stjórnsýslustarfa
sem gamla kerfið felur í sér.
Hagsmunir embœtta
eða þjóðar?
Framhald fyrstu umræðu
um frumvarpið fór fram í
neóri déild Alþingis í gær.
Þrátt fyrir andstöðu nokkurra
stjórnarþingmanna þykir
ótrúlegt aö framsóknar- og
siálfstæðismenn muni taka
embættahagsmuni í fógeta-
og sýsluumdæmum landsins
fram yfir þá ríkulegu þjóðar-
hagsmuni sem felast i þess-
ari umfangsmiklu dóms-
kerfisbreytingu og komi í veg
fyrir eðlilega afgreiðslu frum-
varpsins. Allt frá árinu 1916
hefur aðgreining stjórnsýslu
og dómsvalds verið á dao-
skrá og fjölmörg frurm'örp
verið samin um efnið PeUa
sinn hefur tekist að undirbúa
mjög vandaða stjórnkerfis-
breytingu og er beinlfnis ve.ið
að framfylgja samþyktum al-
þjóðlegra mannréttindasátt-
mála sem segja það grund-
vallar mannréttindi að fólk geti
treyst því að mál verði útkljáð
af óháðum dómstólum.
FORVAL
Ætlunin er aó bjóöa ú_t byggingu síöari áfanga Hug-
vísindahúss Háskóla íslands, Odda, viö Sturlugötu.
Húsiö er um 300 m2 að grunnfleti, kjallari og 3 hæöir.
í verkáfanga þeim sem út veröur boðinn skal steypa
upp húsiö og ganga frá því aö utan, leggja hita-,
hreinlætis- og raflagnir, múra húsiö aö innan og full-
gera það undir tréverk. Einnig skal leggja loftræsti-
lagnir og fullganga frá lóö undir trjágróöur. Áætlaó-
ur verktími er um 1 ár.
Til undirbúnings útboöi erákveðið aö fram fari könn-
un á hæfni þeirra verktaka sem bjóöa vildu í verkið,
áöur en útboð fer fram. Er því þeim, sem áhuga hafa,
boðiö aö taka þátt í forvali og munu 4-5 verktakar fá
aö taka þátt í lokuðu útboði, ef hæfir þykja.
Forvalsgögn verða afhent í Innkaupastofnun ríkis-
ins, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 1.000,- kl. skila-
tryggingu. Otfylltum gögnum skal skilað á sama
staö eigi síöar en föstudaginn 29. apríl kl. 15.00
33X
á'kntí*.
m
. . |Jlfr«W . . '
x i viku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þig-
: 2png
% % 30
Á ....