Alþýðublaðið - 11.06.1988, Síða 11

Alþýðublaðið - 11.06.1988, Síða 11
Laugardagur 11. júní 1988 11 FRÉTTASKÝRING Kristján Þorvaldsson skrifar Stjórn og framkvœmdastjórn SIS hefur mikið verk að vinna eftir aðalfundinn í Bifröst. Myndin er úr ársskýrslu Sambandsins. FÁTT UM SVÖR HJÁ SÍS Aðalfundurinn hreinsaði ekki loftið og gaf ekki tóninn um aðgerðir til að rétta við reksturinn. Á aðalfundi Sambandsins hreinsuöu menn ekki loftið, eins og margir bjuggust við. Uppgjörið stendur því enn um menn og málefni, og heldur áfram bak við tjöldin. Eftir fundinn rikir jafnvel meiri óvissa en áður um framtíðina, þvi fulltrúar á aðalfundinum fengu engin svör. Engar tillögur lágu á borðinu um róttækar breyt- ingar í þá átt að rétta við reksturinn. Tapþulur Þaó var ekki beint uppörv- andi skýrsluflutningur sem fulltrúar á aöalfundinum máttu hlusta á í upphafi fundar frá þeim Vali Arnþórs- syni stjórnarformanni og Guöjóni B. Ólafssyni for- stjóra. Þuldar voru tölur um mesta taprekstur í sögu SÍS. Skammtímaskuldir Sam- bandsins jukust um 1 mill- jarö á síöasta ári og námu samtals 4.6 milljörðum. Sam- bandiö velti um 17.5 milljörð- um, sem var um 13% aukn- ing frá árinu á undan. Reikn- ingar voru gerðir upp með 49 milljóna króna halla, en þegar frá er dreginn sölu- hagnaöur eigna, Sambands- hússins, er hallareksturinn yfir 200 milljónir króna og fjármunamyndun neikvæð um næstum 100 milljónir króna. Skuldasöfnun Starfandi kaupfélög á slð- asta ári voru 36. Flest þeirra skiluöu taþi, sem samtals nemur um 358 milljónum króna. Samantekið rekstrar- tap SÍS og kaupfélaganna er því hátt í 600 milljónir króna. Kaupfélögin veltu um 24.6 milljöröum sem var um 24% aukning frá árinu áöur, en þá var veltan um 19.9 milljarðar. Ef til vill sýnir best margum- talaöan fjármagnsvanda, aö rekstrarhagnaöur fyrir fjár- magnskostnaö var 356 mill- jónir hjá kaupfélögunum, en fjármagnskostnaðurinn hækkaöi á milli ára um 56%. Nam tæpum 1.9 milljörðum. Fjármunatekjurnar hækkuöu aftur á móti um 39%, voru 600 milljónir. Þannig hækk- aöi fjármagnskostnaöurinn um 600 milljónir á meöan fjármagnstekjur hækkuöu um 170 milljónir. Þarna munar 430 milljónum og lái engin sambandsmönnum fyrir að segja aö þaö sé fyrst og fremst fjármagnskostnað- urinn sem sé aö sliga þá. Þaö kom því ekki á óvart að Guöjón og Valur skyldu a.m.k. geta veriö sammála um aðalorsakavaldinn, þó glögglega séu þeir á önd- verðum meiöi um leiðirnar út úr vandanum. Óarðbœrir eignahlutar í skýrslu Guöjóns kom fram aö hann er ekki beint sátturviö arösemi eignar- hluta Sambandsins, í hinum ýmsu fyrirtækjum. Ekki minntist hann þó á íslenska aöalverktaka eða önnur fyrir- tæki í því sambandi. Hann greindi frá aö eignarhlutarnir (fyrirtækjum næmu um 2.5 milljörðum króna og sagöi ekki óeðlilegt aö gera 10% ávöxtunarkröfu á þessa eign- arhluta, eöa kröfu um 250 milljónir á síðasta ári. Hann upplýsti hins vegar aö arður- inn sem greiddur var af þess- um 2.5 milljörðum heföi ekki numið nema um 18 milljón- um. Þarna viröist því vanta um 230 milljónir, svo kalla megi aö ávöxtun sé eðlileg aö mati Guöjóns. SÍS á SÍS Eigið fé Sambandsins er samkvæmt efnahagsreikningi um 2.8 milljarðar. í stofnsjóöi eru 74.6 milljónir ( séreigna- sjóöum 251.3 milljónir. Sam- tals eru eigið fé og sjóöir því um 3.1 milljarður. En þegar komiö er aö spurningunni um hver eigi SÍS, þá vilja for- svarsmennirnir aöeins kann- ast við aö kaupfélögin eigi það sem er í stofnsjóði og séreignasjóðum. Spurning- unni um hver eigi megin- hlutann er því ósvaraö og breytti aöalfundurinn engu þar um, frekar en öðru. Varað við sameiningar- stefnu Guöjón B. Ólafsson sagði við Alþýðublaöið s.l. haust aö kaupfélögunum myndi fækka á næstunni. Hann bætti við aö hann vonaðist til að þau sæju sér frekar ( hag í því aö sameinast en veröa gjald- þrota. I samræmi viö þessi sjónarmið forstjórans hafa staðið yfir viöræöur um sam- einingu kaupfélaga á Suður- landi og á Norðurlandi-eystra. Engu aö síður varö stefna forstjórans undir á aðalfund- inum og hefur raunar ekki gengiö eftir í reyndinni. Undir lok aöalfundarins var samþykkt ályktun, sem felur í sér hvatningu til forystu- manna Sambandsins um aö sýna varfærni viö sameiningu kaupfélaga. Eina sem komið hefur fram um líkur á sam- einingu er á Suðurlandi, Kaupfélag Árnesinga og Vestmanneyinga. í fyrstu var rætt um sameiningu fjögurra kaupfélaga á svæöinu. A Norðurlandi-eystra virðist algjörlega horfiö frá samein- ingu Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík, Noröur-Þingeyinga á Kópaskeri og Langnesinga á Þórshöfn. Minni kaupfélög- in, þau hin tvö síðarnefndu, hafa hins vegar fariö fram á viðræcfur viö KEA. Eina áþreifanlega aðgeröin til hagræöingar sem rædd var í tengslum viö aðalfund- inn var nýtt fyrirkomulag verslunardeildar. En verslun- ardeildin var sú deild er allra lökustu afkomu hafði á síð- asta ári, meö tap yfir 200 milljónir. Nýja fyrirkomulagiö miöar aö þvi aö auka viö- skipti kaupfélaganna sem mest má verða. Deildin veröur nú rekin sem nokkurs konar þjónustustofnun í lík- ingu viö sjávarafuröadeild, sem tekur sér umboöslaun. Þá voru í umræðum reif- aöar hugmyndir um breytta skipan á samvinnuhreyfing- unni, jafnvel aukna deilda- skiptingu og jafnvel „Lítil SÍS“ á landsbyggðinni. Þá sagði Valur Arnþórsson f samtali viö blaöið aö uppi væru hugmyndir um aö opna farvegi fyrir aukiö fjármagn frá félagsmönnum, og í því sambandi veltu menn m.a. fyrir sér hlutafélagsforminu. Valur rauf þögnina Fyrri dag aðalfundarins einkenndust umræður í Bif- röst aö mestu af áhyggjum manna yfir bágri stööu. Aö sögn fundarmanna sem Al- þýðublaðið ræddi viö var þaö fyrst og fremst ræöa Þrastar Olafssonar í upphafi um- ræöna um skýrslur sem gerði útslagiö að ekki var rætt um hitamál, svo sem launamál Guöjóns. Þröstur baö menn að ræöa þaö sem skipti máli, stööuna og framtíðina. Þaó kom því á óvart aö undir lok umræöna skyldi Valur Arn- þórsson „minna á sig“ og beina þeim tilmælum til for- stjóra og framkvæmdastjórn- ar aö koma sem fyrst fram meö tillögur til úrlausnar á rekstrarvandanum. Fundar- menn sem blaðið ræddi við sögöu viöbrögö stjórnarfor- mannsins þó eðlileg þar sem spurningin sem brynni á mönnum væri nákvæmlega: „Hvaó ætliði aö gera?“ Ouppgert Þeirri spurningu var reyndar aldrei svarað heldur enduöu menn fundinn með sígildu ópi um aöstoö frá rík- inu. Síöasta verk aðalfundar- ins var aö samþykkja ályktun um aö Byggöastofnun veröi veitt stóraukiö fjármagn til þess aö lána framleiðslufyrir- tækjum sem standa höllum fæti. Ef ekki, þá veröi komið á fót kreppulánasjóði sem að markmiði hafi, að útvega hag- kvæmt lánsfé. Þetta var upp- skera aðalfundar sem margir bjuggust við að myndi leiða til þess aö samvinnumenn kryfu mál sín til mergjar, ef til vill meó meiri sjálfsgagnrýni en oft áður. Átökin i SIS eiga því líklega eftir aö halda áfram, en samkvæmt venju bak viö tjöldin.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.