Alþýðublaðið - 11.06.1988, Side 17

Alþýðublaðið - 11.06.1988, Side 17
Laugardagur 11. júní 1988 17 TÓNLIST Rikharður H. Friðriksson skrifar Listahátíð ISLAND I OPERUNNI, FINNLAND I HASKOLADIOI Sinfónían með forsýningu á nýjum stjórnanda Listahátíð helfur áfram. Fyrr í vikunni voru haldnir tónleikar fyrir kór og ballett eftir tvö íslensk tónskáld í ís- lensku óperunni. Þá söng Finninn Jorma Hynninen með Sin- fóníuhljómsveit íslands s.l. fimmtudagskvöld við góðar undirtektir. Tónlistargagnrýnandi Alþýðublaðsins fjallar hér um þessa tvo við- burði á Listahátíð. Kór og ballet í Óper- unni Á þriðjudags- og miðviku- dagskvöld voru haldnar í ís- lensku óperunni tónleikar með verkum eftir tvö íslensk tónskáld af „eldri kynslóð- inni“, þá Jón Ásgeirsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Það var Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdótt- ur sem flutti kórverk sem Jón hafði samið við Ijóðabálk Steins Steinarr, „Tíminn og vatnið“. Jón er sjálfum sér sam- kvæmur sem endranær. Hann blandar saman nítjándu aldar rómantík, ís- lenskum fimmundum, dálitlu af sjálfum sér og fær út blöndu sem heitir „Jón Ás- geirsson". Óhætt er að segja að tónsetning þessa torræða Ijóðabálks hafi farist honum smekklega úr hendi. Að sjálfsögðu stóö Hamra- hlíðarkórinn fyrir sínu eins og endranær, en einu þarf þó að kippa f lag. Einn tenórinn í fremstu röð yfirsöng aðra kollega sína í tenórnum svo oft heyrðist aðeins f honum einum en ekkert í félögum hans. Þessu hlýtur að vera auðvelt að kippa f lag. Þorkell Sigurbjörnsson og Hlff Svavarsdóttir lögðu til ballettinn „Af mönnum", fluttan af Iftilli kabarettsveit og íslenska dansflokknum. Notuð var sama hljóðfæra- skipan og I verki IgorStrav- inskys, „Sagan af dátanum" og bar tónlistin vissan keim af þvf líka. Hún var í svo- nefndum nýklasslskum stfl sem mest var f tfsku á milli- stríðsárunum en Þorkell virð- ist hafa rifjað upp sem eins- konar hyllingu til Stravinskys. Tónlistin var skemmtileg f orðsins besta skilningi, hún virtist liggja mjög vel fyrir hljóðfærin og var full af lauf- léttum húmor a la Þorkell Sigurbjörnsson, sérstaklega kom skrumskældi tangókafl- inn vel út. Það fór vel á aö hafa hljómsveitina uppi á hliðarsvölunum. Þetta fyrir- Baritonsöngvarinn Jorma Hynninen söng með Sinfóníuhljómsveit íslands á fimmtudagskvöld við góðar undirtektir. komulag byggði upp létta kabarettstemmningu sem féll vel að tónlistinni. Jóhann G. Jóhannsson stjórnaði hljóm- sveitinni rösklega og Óskar Ingólfsson kann svo sannar- lega að láta klarinettið væla. Dansararnir stóðu sig vel og áheyrendur kunnu greini- lega vel að meta bæði verkin á þessum tónleikum. Finnskt kvöld hjá Sin- fóníunni Á fimmtudagskvöldið lagði Sinfónfuhljómsveit íslands fram sinn skerf til Listahátíö- ar með „finnskum“ tónleikum og gaf okkur um leið smjör- þefinn af væntanlegum stjórnanda sínum næsta vet- ur, Finnanum Petri Sakari. Fyrri hluti tónleikanna var tileinkaður finnska tónskáld- inu Jean Sibelius; flutt var eftir hann sinfóníska Ijóðið „En Saga“ og fimm sönglög fyrir bariton og hljómsveit. Einsöngvari var Finninn Jorma Hynninen. Eftir hlé bætti hann svo við þremur ítölskum óperuaríum eftir Leoncavallo og Verdi. Hynn- inen hefur mikla rödd og fallega, ef svo má segja um karlmann. Textaframburður hans var framúrskarandi. Það er ekki svo oft sem maður getur skilið hvert orð sem frá söngvara kemur en svo var í þetta skiptið. Þarna hefur móðurmálið, finnskan, ef- laust verið honum góður undirbúningur. Áheyrendur kunnu greinilega vel að meta Hynninen og klöppuðu hann upp nokkrum sinnum. Að lokum flutti hljómsveit- in „Fontani dei Roma“ (Gos- brunnar Rómarborgar) sem ítalinn Ottarino Respighi samdi árið 1916, eitt af lit- skrúðugari hljómsveitarverk- um tónlistarsögunnar. Hann er einn af fáum ítölum slns tíma sem komust á eitthvað flug í öðru formi en óperu og samdi alls kyns tónlist, en hljómsveitarverkin hans skara þó fram úr. Tilfinning hans fyrir blæbrigðum og litum hljómsveitarinnar skipa honum tvfmælalaust á bekk helstu tónskálda sögunnar. Verkið kom glæsilega út I flutningi Sinfónluhljómsveit- arinnar og var það ekki síst aö þakka stjórnandanum, Petri Sakari sem var bæði yfirvegaöur og afslappaður á meðan hann stjórnaði af miklu öryggi og geislaði frá sér spilagleði. Það er sjald- gæft að sjá stjórnanda sem er kominn svona langt I list- inni, aðeins þrítugur að aldri. Hann mun verða fastur stjórnandi Sinfónluhljóm- sveitar íslands næsta vetur og ef marka má þessa byrjun, er ekki að efast um að hann á eftir að gera stóra hluti hér næsta vetur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.