Alþýðublaðið - 11.06.1988, Qupperneq 18

Alþýðublaðið - 11.06.1988, Qupperneq 18
18 t^g^dádiSr'VI'llínl'l^a SMÁFRÉTTIR Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri og fyrrverandi ritstjóri Al- þýðublaðsins, hafði i nógu að snúast á 80 ára kaupstaðarafmæli Hafnar- fjarðarbæjar. Hann þurfti oft að rifja upp sögunaog þá var auðvitað nær- tækast að fletta i gömlum Alþýðublöðum. Hér er hann i Siggubæ og sýnir gestum hálfa öld aftur i timann. Opið hús á Reykjavíkur- flugvelli í tilefni af Norrænu tækni- ári 1988, verða Landhelgis- gæslan, Flugmálastjórn og Flugbjörgunarsveitin með Opið hús á Reykjavíkurflug- velli á morgun, sunnudaginn 12. júní, klukkan 13-17. Öllum er boðið að koma, skoða starfsemina og þiggja veit- ingar. Þarna verður m.a. til sýnis: Fokkerflugvél og þyrlur Landhelgisgæslunnar, allur björgunarútbúnaður flugvél- anna, flugvél Flugmálastjórn- ar, einkavélar og flugvélar frá flugskólanum, sjómælinga- bátur, afþrýstihylki fyrir kaf- ara, fallbyssur og tundurdufl, líkön af varöskipum, nýr snjó- blll með öllum fylgihlutum, búnaður til að leita að fólki í snjóflóðum, slökkvistöð flug- vallarins. Einnig verður sýnt: Fallhlífarstökk yfir Reykja- víkurflugvelli, björgunarbún- aði kastað úr vörufallhlífum og björgunarsig utan á flug- turninum. 20 vinsælustu SÍM- myndböndin Vikuna 1.6.-8.6. skipuðu eft- irtalin myndbönd 20 efstu sæti á vinsældarlista Sam- taka íslenskra myndbanda- leiga. 1. ( 1) Dirty Dancing (J.B. Heildsala) 2. (20) Innerspace (Steinar) 3. ( 3) Raising Arizona (Steinar) 4. ( 2) No Mercy (Steinar) 5. ( -) Something Wild (Skífan) 6. ( -) Otto (2 (Myndbox) 7. (3/4) Roxanne (Skífan) 8. (3/4) Beverly Hills Cops t2 (Háskólabíó) 9. ( 6) Rent a Cop (J.B. Heildsala) 10. ( 17) The Jerk (Laugarás- bíó) 11. (10) Ishtar (Skífan) 12. (17) Eureka (Steinar) 13. ( -) Mind over Murder (Háskólabíó) 14. ( 9) Jumping Jack Flash (Steinar) 15. ( 7) Critical Condition (Háskólabíó) 16. ( -) Dogs of War (Steinar) 17. (15) Woo Woo Kid (J.B. Heildsala) 18. (11/12) Assasination (Myndbox) 19. (16) Big Shots (J.B. Heild- sala) 20. ( ) Night of the Creeps (Steinar) Vaxandi að- sókn að Þjóð- veldisbænum Nú hefur Þjóðveldisbærinn f Þjórsárdal verið opinn I tfu sumur. Aðsókn hefur sffellt farið vaxandi og mun óhætt að fullyrða, að hann hafi vak- ið mikla athygli hér heima og erlendis. Hörður Ágústsson sér- fræöingur í húsagerð á ís- landi hannaði og mælti fyrir um gerð bæjarins. Fyrir- myndin er sótt i niðurstöður fornleifarannsókna og má þar helst nefna rústina að Stöng í Þjórsárdal, sem grafinn var upp árið 1939. Sömuleiðis var stuðst við fornar heimildir um húsagerð og úttektir á ís- lenskum bæjum og stórbýl- um frá fyrri tfmum. Bærinn er eign íslenska ríkisins undir yfirumsjá for- sætisráðuneytisins. Daglegur rekstur hans er í höndum þriggja manna stjórnar, sem í eiga sæti samkvæmt reglu- gerð einn fulltrúi frá Þjóð- minjasafni íslands, annar frá Landsvirkjun og sá þriðji frá Gnúpverjahreppi. Nú í sumar er bærinn op- inn alla daga vikunnar kl. 10- 12 og 13-17. Bæjarvörður er Ásólfur Pálsson fyrrum bóndi á Ásólfsstöðum. Bæklingur er fáanlegur á íslensku, ensku og þýsku. Stofnuð ferða- málasamtök höfuðborgar- svæðisins Á mánudag, 13. júní, verður haldinn stofnfundur Ferða- málasamtaka höfuðborgar- svæðisins. Fundurinn verður á Hótel Sögu og hefst klukk- an 12 á hádegi. í fréttatiIkynningu frá Sam- tökum sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu segir að slík samtök geti haft frumkvæði að stefnumótun í ferðamál- um svæðisins, sérstaklega I samgöngu- og umhverfismál- um, fjárfestingum, þjónustu- tíma og opnunartíma þjón- ustuaðila. Fundurinn hefst með há- degisverði í Skála Hótel Sögu. Á fundinum mun Jóna Gróa Sigurðardóttir, form. At- vinnumálanefndar höfuðborg- arsvæðisins, gera grein fyrir starfi undirbúningsnefndar. Einnig verða kynntar hug- myndir að starfsáætlun. Þá mun Matthías Á. Mathieseh samgönguráðherra flytja ávarp. Kostnaður vegna há- degisverðar er kr. 1.050.00. Á aðalfundi Samtaka sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæð- inu sl. haust var ákveðið að boða til stofnfundar ferða- málasamtaka á höfuðborgar- svæðinu. í framhaldi af þess- ari samþykkt var komiö á laggirnar sérstakri undirbún- ingsnefnd til að hrinda þess- ari hugmynd í framkvæmd. í þessari nefnd eiga sæti níu manns. Kjörin á aðalfundi SSH: Jóna Gróa Sigurðardóttir, borgarfulltr. Reykjavík, Valþór Hlöðversson, bæjarfulltr. Kópavogi og Lilja Hallgrims- dóttir, forseti bæjarstjórnar, Garðabæ. Kjörin á alm. fundi á Hótel Borg: Bjarni Sigtryggsson, Hótel Saga, Fanney Gísla- dóttir, Ferðaskrifstofan Rat- vis, Friðrik Haraldsson, Félag leiðsögumanna, Gunnar Sveinsson, BSÍ, Páll Guð- jónsson, bæjarstj. Mosfells- bæjar og Þórarinn Jón Magn- ússon, ferðamálanefnd Hafn- arfjarðar. Ályktun aðalfundar Fiskiðnar Aðalfundur Fiskiðnar — fagfélag fiskiðnaðarins, hald- inn 21. maí 1988 ályktar eftir- farandi: „Aðalfundur Fiskiðnar lýsir yfir áhyggjum sínum vegna ótryggrar stöðu sjávarútvegs í landinu. Fundurinn telurað sjávarútvegurinn sé nú á mjög viðkvæmum punkti eftir uppgangstima undanfarin ár. Uppgangstímar er skilaö hafa þjóðinni betri lífskjörum en áður hafa þekkst. Fundurinn leggur áherslu á að viö mun- um enn um ókomna tíð þurfa aö byggja lifsafkomu okkar og frekari framfarir á sjávar- útveginum. Ein helsta forsenda fram- fara er aukin menntun og almenn þekking á sviöi fisk- veiða og fiskvinnslu. Fundur- inn telur að ekki hafi veriö nægilega vel staðið að almennri fræðslu og mennt- un á sviði sjávarútvegs. Hér er nauðsynlegt að gera bragabót á. Sem lið í því, hef- ur Fiskiðn ákveðið, á sinu 10. starfsári, að hafa forgöngu um gerð og útgáfu fræðslu- efnis fyrir yngri kynslóðir þjóðarinnar. Aðalfundurinn skorar á alla þá er láta sig þessi mál ein- hverju skipta að taka nú sam- an höndum og láta verkin tala og hefja sókn til aukinn- ar fræðslu og menntunar.“ Aðalfundur Félags íslenskra rithöfunda Aðalfundur Félags ís- lenskra rithöfunda var hald- inn 26. mai s.l. Áður en geng- ið var til dagskrár minntist formaður látins félaga, Stefáns Ágústs Kristjánsson- ar skálds. Fundarstjóri var Indriði G. Þorsteinsson og fundarritari var Snjólaug Bragadóttir. Á fundinum var samþykkt að halda áfram baráttu fyrir bættum kjörum rithöfunda, að vinna gegn misrétti og pólitískri mismunun og að framfylgja þeim markmiðum sem stofnendur félagsins settu þvf í öndverðu. Hagur Félags fsl. rithöf- unda er góður, starf s.l. árs þróttmikið með fundum, bók- menntakynningum og upp- lestrarkvöldum. í apríl s.l. kaus stjórn fé- lagsins nýjan heiðursfélaga, Indriða Indriðason rithöfund og ættfræðing, sem á að baki langt og farsælt starf í þágu rithöfunda. Nýir félagar voru sam- þykktir og boðnir velkomnir. Inntökuskilyrði í Félag ís- lenskra rithöfunda eru ströng, — einn hinna nýju fé- laga lét svo um mælt að það væri honum mikill heiður að vera nú orðinn fullgildur fé- lagi í þessu virðulega félagi. Stjórn Félags íslenskra rit- höfunda skipa: Sveinn Sæmundsson formaður, Páll Líndal varaformaður, Snjó- laug Bragadóttir ritari, Indriði Indriðason féhirðirog með- stjórnendur Indriði G. Þor- steinsson, Vilhjálumur Hjálmarssona og Gunnar Dal. Varastjórn Jón Björnsson og Ævar R. Kvaran. Endurskoð- endur Magni Guðmundsson og Ármann Kr. Einarsson. Rútudagar ’88 íslenska rútan og ferðalög um ísland verða í brennidepli i dag, laugardaginn 11. júní. Þá efnir Félag sérleyfishafa í samvinnu við 30 aðila sem starfa að ferðamálum á ís- landi til fjölbreyttrar inn- lendrar ferðakynningar í Um- ferðarmiðstöðinni í Reykjavík undir heitinu „Rútudagur ’88 — Ferðumst um ísland“. Þetta er I þriðja sinn sem Rútudagurinn er haldinn, en síðast komu hátt áellefta þúsund manns í Umferðar- miðstöðina til að taka þátt í þessari kynningu á sögu og ferðamöguleikum rútunnar ásamt öllum þeim óteljandi ferðamöguleikum, sem okkur íslendingum stendur til boða að ferðast um okkar eigið land. Sýningin verður opnuð af samgönguráðherra Matthías Á. Mathiesen við hátíðlega athöfn kl. 10.00 á laugardag- inn. Gamlar og nýjar rútur af öllum stærðum og gerðum munu setja svip sinn á svæð- ið í kringum Umferðarmið- stöðina og verða um 40 bif- reiðar á þeirri sýningu. Inni í Umferðarmiðstöðinni verður svo fjölbreytt kynning á ótelj- andi ferðamöguleikum um landið á vegum hinna ýmsu aðila sem að ferðamálum vinna og m.a. kynnt þau ódýru sérfargjöld með rútum sem nefnast Hring- og tíma- miöar. Meðal fjölmargra skemmtiatriða sem gestum Rútudagsins verður boðið upp á eru ókeypis skoðunar- ferðir um Reykjavík, sterkasti maður heims Jón Páll Sig- marsson kemur og dregur rútu f tilefni dagsins, sérstakt barnaefni með ýmsum uppá- komum, hestaferðir fyrir börnin, sýnt verður fallhlifa- stökk yfir Umferðarmiöstöð- inni, lúðrasveitin Svanur leik- ur, sívinsælir rútusöngvar verða kyrjaðir, hljómsveitin Tríó ’87 spila og syngja, efnt verður til getrauna með marg- víslegum vinningum og fleira. Mjólkursamsalan, Nói og Síríus og Gevalia kaffi verða með kynningar á vörum sínum og gefa gestum að smakka og rúsínan í pyslu- endanum eru tónleikar Sykur- molanna áður en þeir halda til Bandaríkjanna. Tæplega hálf milljón far- þega ferðaðist með sérleyfis- bílum í fyrra. Rútan heldur velli sem elsta og eitt helsta almenningssamgöngutækið í landinu þrátt fyrir harðnandi samkeppni einkabíls og flugs. Ferðalag með rútu veit- ir ekki aðeins nánari kynni af landi og þjóð. Það er líka ódýrara en flesta gruna. Gestir Rútudags munu kom- ast að raun um það og margt fleira í Umferðarmiðstöðinni milli 10 og 18 á laugardaginn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.