Alþýðublaðið - 11.06.1988, Síða 20
20
3í36i' 'mui ii lU'tinb i.yi.
• - LairgsrittegijrTt. ■júnT 1988'
fs;
TONLIST
Gunnar H. Ársælsson
og Þorlákur Helgason
skrifa
Mandela
allan daginn
Tónleikar í tilefni 70 ára afmœlis
mannréttindasinnans. Bein
útsending í sjónvarpi
frá Wembley.
Tónleikar til heiðurs Nel-
sons Mandela verða á dag-
skrá Sjónvarpsins frá klukkan
11.30 í dag og með látum
langt fram á nótt. Mandela
sjálfur er víðs fjarri beinu
útsendingunni. Hann heldur
upp á 70 ára afmælið bak við
lás og slá ógnarskaparins í
Suður-Afríku. En vinir hans
og stjórstjörnur leika og
syngja til stuðnings mann-
réttindasamtökum á laugar-
daginn i beinni útsndingu til
fjölmargra sjónvarpsstöðva.
Allur ágóði „afmælistónleik-
anna“ rennur til góðgerðar.
Heimurinn fylgist spenntur
meö — aðeins Suður-Afriku-
sjónvarpið sá ekki ástæðu til
að senda efnið!
Tónleikarnir fara fram á
Wembleyleikvanginum í
Lundúnum og er talið að
80.000 miðar verði seldir.
Miðaverð er um 3500 kr is-
lenskar og munu tekjur af
leikunum þvi nema tæplega
300 milljónum króna sem
renna óskiptar til félaga-
samtakanna. Þar að auki eru
tekjur af sendingum um sjón-
varpshnetti. Nevilt Bolt fram-
leiðandi sem stjórnar útsend-
ingu segir að til standi að
senda út til allra frjálsra
þjóða og gera 11. júní i fram-
tiðinni að „Degi Nelsons
Mandela."
Af listamönnum sem koma
fram eru tilnefndir: Whitney
Houston, George Michael,
Dire Straits, Phil Collins,
Keith Richards, Bill Wyman,
Little Steven, Chrissie Hynde
ásamt Pretenders, UB40,
Hugh Masakela, Simple
Minds, Eurythmics, Roberta
Flack, Bee Gees, Chubby
Checker, Sly & Robbie, Ash-
ford & Simpson, Miriram
Makeba, Midge Ure, Paul
Carrack, Al Green, Bryan
Adams, Joe Cocker, Paul
Young, Joan Armatrading,
Peter Gabriel, Bon Jovi, Sade
og Ry Cooder. Auk þeirra er
búst við að óvæntir gestir
komi fram m.a. Mick Jagger,
George Harrison, Deep
Purple, Talking Heads o.fl.
Kynnir verður m.a. Harry
Belafonte.
Kristín Björg Þorsteins-
dóttir þýðir og kynnir í beinni
útsendingu íslenska sjón-
varpsins í dag, en áhuga-
sömum er bent á sjónvarps-
dagskrána í blaðinu.
Nelson Mandela verö-
ur 70 ára i sumar. Tón-
leikar til heiðurs hon-
um veröa í beinni sjón-
varpssendingu um all-
an heim.
The Christians koma fram á Listahátið 16. júní.
Poppveislan mikla
UR • PLÖTUR • PLÖTUR
Stórtónleikar í Laugardalshöll
Sú fyrrnefnda leikur þann 16.
júní og Blow Monkeys kvöld-
ið eftir, á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn. Með báðum hljóm-
sveitunum leika islenskir
flytjendur og er vitað fyrir
víst að Bjarni Arason, „bark-
inn okkar allra“, Kátir piltar úr
„(afmælis)firðinum“ og Strax
munu spila með fulltrúum
Bretaveldis. Strax verða fyrir
víst með rosalegt „session-
band“ með sér eins og einn
skipuleggjandi tónleikanna
komst að orði. Þá er komið
að útlendingunum.
Fjórmenningarnir í THE
CHRISTIANS koma frá Liver-
pool og hafa starfað saman í
þónokkur ár. Þeir hafa sent
frá sér eina breiðskífu, þræl-
góða, sem ber heiti hljóm-
sveitarinnar. Tónlist THE
CHRISTIANS er einskonar
blanda af soultónlist, fönki
og poppi. Hljómsveit á hraðri
uppleið.
BLOW MONKEYS voru þó-
nokkuð vinsælir fyrir eins og
tveimur til þremur árum síð-
an en minna ber á þeim nú.
Aðalmaður hljómsveitarinnar
er furðufuglinn Dr. Robert
sem er án efa með þeim
skrýtnari i bransanum, mjög
sérstæður persónuleiki.
BLOW MONKEYS hafa sent
frá sér 3 breiðskifur: Limping
for a Generation, She was
only a Grocer’s daughter
(titillinn vísar til Margrétar
Tadsjér forsætisráðherra
Bretanna) og Animal Magic.
Hljómsveitin leikur þýða
popptónlist og ekki eru soul-
áhrifin langt undan.
Sem sagt, tvær prýðisgóð-
ar hljómsveitir á boðstólum
og málið er að hver sem
vettlingi getur valdið verður
nánast að mæta þvl samein-
aðir stöndum en sundraöir
föllum vér. Og það er aldrei
að vita nema það verði köku-
basar í hléi!!!
Þá fer að styttast í, aö öll-
um líkindum, stærstu popp-
veislu ársins og er eins og
flestir vita veisla þessi í
tengslum við Listahátíð. Sú
venja hefur skapast að bjóða
uppá tvö þekkt nöfn úr tón-
listarbransanum sitthvort
kvöldið ásamt íslenskum
flytjendum. Arið 1986 komu
hingað Madness og Simply
Red og komust báöar vel frá
sínu. Fulltrúar „útlandsins"
að þessu sinni eru bresku
hljómsveitirnar THE CHRIST-
IANS og BLOW MONKEYS.
Hljómsveitin er eins og húsbóndahollur rakki.
Morrisey
Viva Hate
Fyrsta sólóplata þessa
meistara bölsýninnar sem
getur varla með góðu móti
samið jákvæðan texta. En
textarnir hans eru margir
hverjir helv... góðir eins og
t.d. Suedhead sem er smell-
urinn af plötunni og Every
day is like Sunday, eitt besta
lag Viva Hate. Morrisey mun
ávallt líða fyrir það að hafa
verið söngvari The Smiths,
einnar elskuðust/hötuðustu
hljómsveitar Bretlands um
langt árabil. FyrirSmiths-
aðdáendur er „Lifi Hatrið’-
kærkomin sárabót því hún er
hin ágætasta í alla staði og
Morrisey fer sífellt fram sem
söngvara. Hann er engum lik-
ur.
The Smitereens
Green Thoughts
Önnur breiðskífa þessarar
mjög svo ágætu New York
sveitar. Hljómsveitin er eins
og húsbóndahollur rakki,
hvergi er hvikað frá gamla
rokkinu en þó er nútímalegur
blær með líka. Hrárri og jafn-
betri plata en „Especially for
you“ frá sveit i góðu formi.
Best lögin að mínu mati eru;
Deep black, Only a me,mory
og Especially for you.