Alþýðublaðið - 11.06.1988, Page 22

Alþýðublaðið - 11.06.1988, Page 22
22 Laugardagur 11. júnl 1988 IÞROTTIR Umsjón: Þorlákur Helgason Hestamenn: Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum 30. júní-3. júlí 7 hestamannafélög á Vest- urlandi og Vestfjöröum standa aö fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum 30. júní - 3. júli n.k. Mótið hefst á fimmtudegi meö kyn- bótadómum. Þorkell Bjarna- son og hans menn hafa frá því um miðjan maí ferðast um svæðið og valið kynbóta- hross á mótið. 35 hryssur og 11 stóðhestar áunnu sér rétt til þátttöku á mótinu sem einstaklingar. Einnig verða tveir stóðhestar sýndir með afkvæmum. Eru það Fjölnir 941 frá Sigmundarstöðum og Eiðfaxi 958 frá Stykkishólmi. 7 hryssur verða afkvæma- sýndar og 6 hrossabú sýna framleiðslu sína. Á fyrri mót- um hafa verið sýndir ræktun- arhópar út af einhverju ákv. hrossi en nú koma fram hóp- ar sem eru fæddir á sama bæ. Félögin hafa rétt á þvi að senda alls 32 hesta í hvorn flokk til keppni í A og B flokki gæðinga og 35 ungl- inga í hvorn flokk. Búið er að velja hesta og unglinga til keppninnar en úrtökumótum var lokið 5. júni. Er ekki vafa- mál aö hart verður barist til verðlauna. Einnig verður keppt í 150 og 250 m skeiði, 250, 350 og 800 m stökki og 300 m brokki. Verðlaun eru hæst í 250 m skeiði, 26.000.- kr. fyrir 1. sæti. Miklar framkvæmdir eru nú I gangi á Kaldármelum. Verið er að gera nýjan hringvöll og sett verða upp tvö hús, ann- að fyrir skrifstofu en hitt fyrir I Kópal Dýrótex er útimálning sem dugar vel Kópal Dýrótex er hefðbundin plastmálning sem hefur dugað sérlega vel við okkar aðstæður. • Ver sig vel gegn óhreinindum. • Hleypir raka vel í gegnum sig. • Sérlega létt og auðveld í notkun. • Sé grunnað með Vatnsvara næst mun betri vatnsheldni. Vandaðu valið og veldu útimálningu við hæfi. MM, málning'f mótið Búist er við fjölda erlenda gesta á dómpall. Einnig hefurverið ákveðið að setja upp dans- pall á svæðinu þannig að gestir mótsins þurfa ekki að fara af svæðinu til að komast á dansleik. Þess má geta að aðgangur að danspalli er innifalinn í miðaverði. Á mótsstað verður öll almenn veitingasala og á kvöldin verður hægt að kaupa mat af útigrilli, sem Gunnar Páll Ingólfsson sér um. Á svæð- inu eru næg tjaldstæði. Alla gæslu á svæðinu annast björgunarsveitirnar á Vestur- landi sameiginlega. Aðstaða fyrir ferðahross verður í landi Snorrastaða gengt mótsvæð- inu og er þar hægt að taka á móti miklum fjölda ferða- hrossa. Verða hrossin rekin i aðhald tvisvar á dag þannig að fólk hefur möguleika á þvi að stunda útreiðar þá daga sem mótið stendur. Formað- ur framkvæmdanefndar er Tryggvi Gunnarsson á Brim- ilsvöllum og framkvæmda- stjóri er Erna Bjarnadóttir Stakkhamri. Það er ætlun framkvæmda- nefndar mótsins að búa sem allra best að þeim sem mótið sækja, en búist ervið mikl- um fjölda við Kaldármela Aldrei of seint!! Ratleikur aldraðra Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra efnir til rat- leiks á Miklatún miövikudag- inn 15. júnf kl. 14.00 Umsjón með leiknum hefur Anton Bjarnason, (þrótta- kennari. Kaffiveitingar að leik lokn- um. Tilkynnið þátttöku i Fé- lagsmiðstöðvum aldraðra. Þátttakendur eru hvattir til að huga vel að skófatnaði og skjólklæönaði. Nánari upplýsingar gefur formaður félagsins Guðrún Nielsen I síma 30418. þessa helgi bæði manna og hesta. Reiðleiðir að mótstað eru margar og verða leiðir vestan Hvítár merktar sér- staklegafyrir þá sem koma að sunnan. Ur Dölum er hægt að fara Fossaleið, er þá farið upp hjá bænum Dunk i Hörðudal, en þar er þjónusta fyrir hestamenn, og komið niður fyrir framan Hallkels- staðahlíð. Eins er hægt að fara af vegi hjá Gunnarsstöð- um og koma á veg hjá Svína- vatni. Síðan er álitleg leið fyr- ir þá sem ekki vilja ríða I alfaraleið að ríða frá Hóli I Hörðudal og ríða suður Burstadal niður I Hítardal og þaðan fyrir múla að Kaldár- melum. Þeir sem koma við I Dölum á leiðinni að eða frá mótinu, sem er alveg upp- lagt, geta fengið aðstöðu fyr- ir hestana sína á jörð Hmf. Glaðs, Svarfhóli I Miðdölum. Það er von framkvæmda- nefndar að fólk fjölmenni á staðinn og menn og hestar komi til með að eiga saman skemmtilegar stundir þessa helgi. Ráðherrar íþróttamála á fundi Dagana 31. mai - 2. júnl sl. komu fþróttamálaráðherrar Evrópuráðslanda saman til óformlegs fundar f Aþenu i Grikklandi. Fundurinn var m.a. haldinn til þess að und- irbúa næsta formlega fund íþróttamálaráðherra Evrópu- ráðslanda sem haldinn verö- ur í Reykjavík I lok mai 1989. Verður það fyrsti ráðherra- fundur Evrópuráðslanda sem haldinn er hér á íslandi. Önnur efni sem rætt var um og búast má við frekari ákvörðunum um á Reykjavík- urfundinum voru m.a. eftirfar- andi: Átök og ofbeldi í tengslum við knattspyrnu- kappleiki, lyfjanotkun Iþrótta- manna, íþróttir í skólum, kyn- þáttamisrétti í íþróttum, auk- in íþróttasamskipti við Austur-Evrópulönd. Auk þess var rætt á fundínum um tengsl íþrótta og menningar og flutti menningar- og iþróttamálaráðherra Grikk- lands, Melina Mercouri, sér- staka ræðu um það mál. 'Frá íslandi sóttu fundinn Birgir ísl. Gunnarsson, menntamálaráðherra og Reynir Karlsson, fþróttafull- trúi ríkisins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.