Alþýðublaðið - 24.06.1988, Síða 2

Alþýðublaðið - 24.06.1988, Síða 2
2 Föstudagur 24. júní1988 fmiiiiiímiiii Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarsón Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgarblaös: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir og Ómar Friöriksson. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaöaprent hf., Síóumúla 12. Áskriftarsiminn er 681866. Áskriftargjald 700 kr. á mánuöi. í lausasölu 50 kr. eintakiö virka daga, 60 kr. um helgar. FORSETAKOSNINGAR A morgun, laugardaginn 25. júní, gengur íslenska þjóöin til forsetakosninga. Þaöer í fyrstasinn átíma íslenskalýð- veldisins sem kosiö er um sitjandi forseta. Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur gegnt embætti forseta íslands undanfarin 8 ár með miklum sóma fyrir land og þjóð. Að öllum forsetum lýðveldisins ólöstuðum hefur engum for- seta öðrum tekist að vekja áhuga og athygli erlendra þjóðaá íslandi og íslenskri menningu og sögu í jafn ríkum mæli og frú Vigdís. Það hefur því vakið að vonum mikla athygli að fram hafi komið mótframboð gegn jafn farsælum forseta. Sigrún Þorsteinsdóttir, húsmóðir frá Vestmannaeyjum, hefur gefió kost á sér til embættis forseta íslands. Hún og stuðningsmenn hennar fullyrða, að framboðinu sé ekki beint gegn frú Vigdísi Finnboga- dóttur, heldur snúist kosningarnar um sjálft forseta- embættið; hlutverk og virkni forsetans í lýðveldinu. Stuðningsmenn Sigrúnar halda því fram, að forsetinn eigi að beita neitunarvaldi sínu í tíma og ótíma, þannig að flestum lögum verði beint til þjóðaratkvæðagreiðslu. Með því móti verði lýðræði eflt í landinu og fólkið myndi ráða sjálft í öllum mikilvægum málum. Hætt er við að stuðn- ingsmenn Sigrúnar Þorsteinsdóttur hafi ekki hugsað þennan leik til enda. Ef forseti beitir sífellt neitunarvaldi sínu, yrði hlutverk Alþingis í raun lítilvægt, mál myndu hrannast upp í enn meiri mæli en nú erog í stað lýðræðis skylli á glundroði og stöðvun í afgreiðslu lagafrumvarpa. Það er mikill barnaskapur að leggja af stað í forseta- kosningar með jafn vanhugsaða stefnuskrá. En svo er lýðræðinu fyrir að þakka og stjórnarskránni, að Sigrún Þorsteinsdóttir hefur þau réttindi sem islenskur þegn að bjóða sig gegn sitjandi forseta, hafi hún nægar stuðn- ingsundirskriftir að baki. Og það er ennfremur lýðræðinu og stjórnarskránni fyrirað þakkaað við höfum þau réttindi að mæta á kjörstað og kjósa milli frambjóðenda til æðsta embættis þjóðarinnar. Þau réttindi eigum við að nýta okkur. DEILT UM FOSSVOGSDAL Endurskoðuð útgáfa á aðalskipulagi Reykjavíkur hefur meðal annars að geyma áætlanir um hraðbraut um Foss- vogsdal, Kópavogsmegin. Deila Reykjavíkurog Kópavogs um Fossvogsdal er ekki ný af nálinni. Fossvogsdalur hefur í áratugi verið bitbein sveitarfélaganna beggja en borgaryfirvöld sýndu áskipulagskorti hraðbraut um Foss- vogsdal fyrst árið 1966. Hugmyndin með hraðbraut um Fossvogsdal er að opna fyrir umferð úr Breiðholti til mið- borgar Reykjavíkur. Þessu hafa Kópavogsbúar að sjálf- sögðu unað illa, enda ráðgert að höggva þar með illilega í útivistarsvæði þeirra í Fossvogsdalnum. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa vitnað mikið til samnings frá 1973 og telja sig skuldbundin honum samkvæmt að ráðast í gerð Foss- vogsbrautar. Hins vegar er það æði frjálsleg túlkun, því í samningnum umrædda kemur skýrt fram, að bæði sveitarfélögin verða að vera sammála um lagningu brautarinnar. Skipulagsstjórn ríkisins hefur ennfremur blandað sér í málið með undarlegum hætti og boðist til að ráða „erlendan umferðarsérfræðing" til að fá botn í deiluna um Fossvogsbraut. Þessu boði hefur að sjálf- sögðu verið hafnað. í fyrsta lagi þarf ekki erlendan „umferðarsérfræðing" í málið; hér er um að ræða miklu stærra mál en sem snýr að umferðinni einni, umferðarmál og umhverfismál eru einnig snar þáttur í þessari umræðu. í öðru lagi hefur Skipulagsstjórn ríkisins farið útfyrir verksviðsitt, þareð hún áað vera ráðgefandi aðili ráðherra í skipulagsmálum en ekki að taka afstöðu til deilunnar með ofangreindu móti. Það ríkir mikill einhugur hjá íbúum Kópavogs um Fossvogsdal: Þeir vilja enga reyk- víska hraðbraut um sitt land. Þeir vilja gera Fossvogs- dalinn að heilnæmu útivistarsvæði. Þann vilja á að virða. ÖNNUR SJÓNARMIÐ ÞJÓÐIN talar mikið um forsetakosningarnar fram- undan eins og við má búast. Nýstárleg sjónarmið er aö finna varðandi forsetakosn- ingarnar í nýjasta tölublaði af Vogum, blaði Sjálfstæðis- manna í Kópavogi. Leiðara- höfundur, sem merkturer upphafsstöfunum HJ og giskum við á að þar sé Halldór Jónsson ábyrgða- maður blaðsins á ferð, sting- ur upp á því að frambjóðand- inn Sigrún Stefánsdóttir dragi framboð sitt til baka en þjóðin láti útgjöld þau sem forsetakosningunum eru samfara, renna til öryggis- mála sjómanna. Stöldrum aðeins viö þessi frumlegu sjónarmið: „Hinn 25. júní n.k. ætlar ís- lenska þjóðin að eyöa 30 milljónum króna í það, að kjósa um það hvort Vigdis Finnbogadóttir eða Sigrún Þorsteinsdóttir eigi að vera forseti íslands. Skoðanakann- anir virðast benda til þes að Vigdís hafi 98% forskot á andstæöing sinn. I Ijósi ríkidæmis þjóðarinn- ar er þetta ef til vill ekki há fjárhæð, aðeins rúmar hundr- að krónur á mann. En það væri fróðlegt að spyrja þyrlu- deild Landhelgisgæslunnar aö því, hvað hún gæti gert fyrir þetta fé. í Ijósi þess, að Sigrún Þorsteinsdóttir er sjó- mannsdóttir, ætti hún að spara þjóðinni þessi útgjöld með því að draga framboð sitt til baka. Það er borin von til þess að hún muni hljóta kosningu. Peningana, sem þarna sparast, skulum við leggja til þess að efla örygg- ismál sjómanna.11 ÓLAFUR G. Einarsson þingmaður og þingflokksfor- maður Sjálfstæðisflokksins skrifar athyglisverða grein í sömu Voga, málgagn Sjálf- stæðismanna í Kóþavogi. Ólafur fjallar í grein sinni vitt og breitt um fyrsta þing kjör- tímabilsins og koma þar fram mörg áhugaverð sjónarmið. Um ríkisstjórnarsamstarfiö segir Ólafur: „Þaö hefur auðvitaö ekki farið fram hjá neinum, að heilindi í stjórnarsamstarfinu hafa ekki verið sem skyldi. Uppákomur i tima og ótima, þennan daginn hjá Fram- sókn, hinn hjá Alþýðuflokki, hafa rýrt tiltrú manna á stjórninni. Þó er það svo, að samstarf innan ríkisstjórnar- innar hefur veriö gott, en þegar komið er út af ríkis- stjórnarfundum byrja yfirlýs- ingar frá einstökum ráðherr- um, þess efnis, að þeir og þeirra flokkur hefði nú viljað ná þessu eða hinu fram, en ekki tekist vegna samstarfs- flokkanna. Slíkar yfirlýsingar valda trúnaðarbresti milli manna og flokka og gera þar af leiðandi allt samstarf erf- iöara.“ Um það að vinna saman í þriggja flokka stjórn segir Ólafur G. Einarsson: „Raunar hefur það komið mjög skýrt í Ijós hversu miklu erfiðara er að vinna í Ólafur: Um þinglausnir var stjórn- in nær sprungin. Gestur: Stefnan i Alþýðubanda- laginu í rúst eins og allt annaö. þriggja flokka stjórn en tveggja. Fyrir kosningar í fyrra vöruðum við sjálfstæð- ismenn viö því, að ef flokkur- inn fengi ekki svipað fylgi og áður þýddi það myndun þriggja flokka stjórnar. Og sú varð raunin.“ Og Ólafi finnst stundum að stjórnarþingmenn og ráð- herrar hafi verið full yfirlýs- ingaglaðir og tungan oft ærið laus í skoltum þeirra. Ólafur skrifar: „En það eru ekki aðeins einstakir ráðherrar samstarfs- flokka okkar, sem hefur verið laus tungan. Sumir óbreyttir þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt sig fram um að sýna sjálfstæði sitt með þvi að setja sig upp á móti ein- staka ákvörðunum. Auðvitað verður enginn þvingaður til að gera eitthvað gegn sann- færingu sinni. En þegar oft- ast er um að ræða sömu mennina, sem ekki geta fellt sig við ákvarðanir meirihlut- ans, er eitthvað annað á bak við. Þar kann annað af tvennu aö ráða: Þeir sætta sig ekki við samstarf þessara flokka, eða, þeir eru sjálfir í röngum flokki.“ Og getur nú hver hirt sitt. En einna athyglisverðast er að lesa þá skoðun Ólafs G. Einarssonar að stjórnarsam- starfinu hafi, að hans mati, verið næstum því lokið nú í vor. Ólafur orðar þessi sjónar- mið eftirfarandi: „Um þinglausnir urðu þeir atburðir, sem nær því höfðu gengið frá þessu samstarfi. Enn var það yfirlýsingagleði einstakra ráðherra, sem réö ferð. Einn vildi 15% gengis- fellingu, annar 9%, og svo komu öll hin atriðin, sem átti aö ræða. Forsætisráðherra gerði samstarfsflokkunum grein fyrir þvi, að hér væru ekki að hefjast viðræður um myndun nýrrar rikisstjórnar, heldur væri verið að taka ákvarðanir um nauösynlegar hliðarráðstafanir vegna geng- isfellingar, ráðstafanir til að tryggja kaupmátt launa hinna verst settu og að koma í veg fyrir nýja verðbólguskriðu. Þegar mönnum var þetta orðið Ijóst var komið í veg fyrir stjórnarslit." Ekki útskýrir Ólafur nánar hvernig komið var í veg fyrir stjórnarslitin. En hverju spáir Ólafur G. Einarsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins um framtíð stjórn- arsamstarfsins? „Ég ætla að spara mér að spá i áframhaldandi samstarf stjórnarflokkanna. Veilurnar i samstarfinu eru Ijósar. Engu að siður er það skoðun mín aö þessi ríkisstjórn eigi eftir að sitja áfram. Kosningar nú eru engum til góðs. En þetta segi ég auðvitað i trausti þess að sæmileg samstaða verði um framgang hinna nauðsynlegustu mála.“ GESTUR Guðmundsson félagsfræðingur og lausa- penni hóf fyrir nokkru nafla- skoðunarskrif í Þjóðviljann og hafa greinar hans birst reglulega á þriðjudögum. Naflaskoðunun felst aðallega í að rannsaka hinn fjólubláa nafla á líki Alþýðubandalags- ins og pæla i vinsældum Kvennalistans. Af hverju vor- um við svona stórir einu sinni og áttum góða penna og skörunga í pólitík? Spyr Gestur þrálátlega í greinum sínum og bætir einatt við líkt og skáldið: Hvar, ó, hvar hafa dagar lifs mfns lit sínum glat- að? í gær birtist enn ein mærð- arskilgreiningin og er þar blandað saman þessu tvennu: Fall Alþýðubanda- lagsins og upprisa Kvenna- listans. Um hernaðarkænsku Kvennalistans segir Gestur: „Það reyndist sterkur og nauðsynlegur leikur hjá Kvennalistanum að taka sér fyrst stöðu utan við megin- hringiðu stjórnmálanna. Þar hafði hann reyndar ágætt fordæmi hjá jafnaðarmanna- flokkunum, sem lýstu því hvervetna yfir um áratuga skeið að þeir færu ekki i rik- isstjórn fyrr en þeir fengju hreinan meirihluta á þingi. Kvennalistinn hefur þó engan veginn takmarkað sig við almenna pólitiska stefnumót- un, heldur hafa þingkonur hans flutt ítarlegar tillögur í einstökum málaflokkum, svo sem i menntamálum og fé- lagsmálum, og í borgarstjórn Reykjavikur hefur Kvennalist- inn jafnvel staðið fremst í slíkri tillögugerð. Hins vegar er það hverjum manni aug- Ijóst að Kvennalistinn ræður ekki yfir neinni heildarstefnu um umsköpun islensks þjóð- félags. Slíka heildarstefnu er að vísu ekki að finna hjá öðr- um flokkum, enda er slik um- sköpun ekki á dagskrá hjá þeim, nema Alþýðubandalag- inu, og þar er stefnan eins og annaö í rúst um þessar rnundir." Þetta verða þó að teljast heiðarlegar játningar! Einn me8 kaffinu Fóstra ein fór einu sinni í bæjarferð meö krakkahópinn af leikskólanum. Hópurinn tók strætisvagn niður í gamla miðbæ. Fóstra settist við hlið manns í vagninum og þóttist kannast við hann. Hún brosti vingjarnlega til mannsins og kastáði á hann kveðju. En maðurinn kann- aðist greinilega ekkert við fóstruna. Fóstran uppgötvaði þá að hún hafði farið mannavillt og afsakaði sig með eftirfarandi orðum: — Fyrirgefðu, ég hélt að þú værir pabbi þriggja barna minna? Maðurinn fór úr vagninum á næstu stoppistöð.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.