Alþýðublaðið - 24.06.1988, Side 7

Alþýðublaðið - 24.06.1988, Side 7
Töstúdágúr 24.júní 1988 7 ÚTLÖND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir ■X;Xv.v.; Vegna þess að ríkisstjórnin í Eþiópíu hefur kveðið á um, að starfsfólk hjálp- arstofnana fari úr landinu, ógn- ar hungursneyð- in að minnsta kosti 2,5 milljónum íbúa í landinu. r Astandið virðist versna dag frá degi. Aó minnsta kosti 3,2 milljónum sveltandi Eþiópíubúa, eru þaö aðeins um 780.000 sem geta fengið nauðsynleg- ustu neyðarhjálp. HUNGURSNEYÐ ÓGNAR MILLJÓNUM MANNA Um það bil 2,5 milljónir manna i hinni hungurhrjáðu Eþíópiu geta ekki notið al- þjóðlegrar hjálpar, vegna þess að ríkisstjórnin í land- inu, hefur skipað svo fyrir, aö starfsfólk hjálparstofnana fari á brott frá þeim svæðum í norðurhluta landsins, þar sem stríð hefur geisað. Þessar upplýsingar koma frá Frederick Machmer, sem er stjórnandi bandarískrar neyðarhjálpar í Eþíópíu. Eftir þvi sem Machmer segir, nær hjálpin aöeins tii um 780.000 manns, af þeim 3,2 milljónum manns, sem þurfa á hjálp aö halda I héruöunum Eritreu og Tigray. „Viö fáum yfirleitt ekki nema slæmar fréttir, og allt bendir til þess, að ástandið fari versnandi dag frá degi,“ segir Machmer. Kommúnistaríkisstjórnin I Eþíópíu gaf i apríl út fyrir- skipun um aö starfsmenn neyöarhjálpar í Eritreu og Tigray hyrfu á brott. Þetta var eftir aö bardagar milli her- manna ríkisstjórnarinnar og uppreisnarmanna fóru harðn- andi á þessum svæöum en uppreisnarmenn fara með völd á stórum hluta þessara héraöa. Ríkisstjórn Eþíópíu segir að um 5,2 milljónir íbúa búi nú viö ógn hungursneyðar- innar, en bandarlskar og vestur-evrópskar hjálparstofn- anir segja, aö talan sé tölu- vert hærri. Frederick Machmer telur aö fólkið í þessum héruðum hafi haldið I sér lífinu meö matvælabirgðum sem voru skammtaöar áöur en starfs- fólki hjálparstofnana var vís- aö á brott í lok aprílmánaöar. „Ég á ekki von á því aö þessar birgðir endist fólkinu öllu lengur. Samkvæmt okkar útreikningum, heföu þessar birgöir átt aö vera uppurnar strax í byrjun maímánaöar," segir Machmer. Satelite-myndir frá síöustu vikum sýna, aö þaö er ekki stór hópur fólks ennþá, sem er farinn frá heimkynnum sínum í leit að matvælum og það þykir benda til þess aö ástandið sé enn ekki þaö slæmt, aö stórir hópar flosni upp frá heimkynnum sínum, eins og áöur hefur komið fyrir. „Þegar síöasta hugurs- neyðin geisaöi á árunum 1984-85, sýndi það sig aö þetta hörmungum hrjáöa fólk, yfirgaf ekki heimkynni sin á hungursvæöunum fyrr en allar bjargir voru bannað- ar,“ segir Machmer. „Ríkisstjórn Eþíópíu hefur gert hjálparstofnunum þaó Ijóst, aö sigur yfir uppreisnar- mönnunum hafi algjöran for- gangsrétt, allt annað veröi aö hafa sinn gang. Þaö ríkir hernaöarástand, og þeirra sjónarmið viröast vera að neyðarhjálp til hungraðs fólks veröi ekki forgangsverk- efni,“ segir Machmer og bæt- ir viö: „Vió stöndum frammi fyrir þeim mótsagnarkenndu aö- stæöum, aö ríkisstjórnin í Eþíópíu hefur í fórum sinum meiri matarbirgóir en hún hefur möguleika á eöa vilja til aö koma til sveltandi fjöld- ans. Sem dæmi má nefna aö fyrir hendi eru 250.000 tonn af hveiti, sem Sovétmenn sendu til Eþíópíu fyrr á ár- inu.“ Allt útlit er fyrir þvi, að enn ein hörmungin sé aö hvolfast yfir þessa hrjáöu þjóö. (Det fri Aktuelt.)

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.