Alþýðublaðið - 24.06.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 24.06.1988, Blaðsíða 8
uinnuni Föstudagur 24. júní 1988 f f TRE I Áætlanir meirihluta borgar- stjórnar Reykjavíkur um að leggja hraðbraut eftir Foss- vogsdal endilöngum eru i fréttum enn á ný. Nú vegna aðgerða þeirra sem vilja vernda dalinn fyrir bílaum- ferö, og hófu i gær að gróð- ursetja tré í landi Kópavogs sem Reykjavikurborg hafði hugsað sér að færi undir brautina. Bæjarstjórn Kópavogs hefur lagst algjörlega gegn hugmyndum um Fossvogs- braut, og hefur veriö sam- staöa fulltrúa allra flokka í bæjarstjórninni um málið. Forsaga Frá því er greint í Alþýöu- blaöi Kópavogs sem nýkomið er út, aö deilur þessar megi aö öllum líkindum rekja aftur til ársins 1966, en þá hafi borgaryfirvöld í Reykjavík fyrst sýnt á skipulagskorti hraðbraut um Fossvogsdal innan bæjarmarka Kópavogs, og átti hlutverk brautarinna aö vera að flytja Breiðhylt- inga milli Breiöholts og miö- borgarinnar. Hins vegar sé til kort frá árinu 1948 þar sem sjá megi braut um Fossvogs- dal, en þá í miöri íbúðabyggð Reykjavikurmegin. Samningur frá 1973 Ljóst hefur veriö um nokk- urt skeiö aö ekki næðist samkomulag milli yfirvalda i Reykjavík og Kópavogi um máliö, og i lok marsmánaöar sendi Skipulagsstjórn ríkis- ins deiluaöilum bréf, þar sem greint var frá tillögu aö lausn á framtíðarskipulagi Foss- vogsdals. Tillagan fólst í því, aö nefnd á vegum beggja sveitarfélaga kæmist að sam- eiginlegri nióurstöðu um framtiðarskipulag dalsins innan þriggja mánaöa, aö öðrum kosti myndi skipu- lagsstjórn leita álits erlends hlutlauss sérfræðings á sviði umferðarmála um vægi Foss- vogsbrautar fyrir umferö á öllu höfuöborgarsvæöinu. FRÉTTASKÝRING Haukur Holm skrifar Fossvogur STAÐ DAVÍÐSBRAUTAR? Fær tréð sem hér er verið að gróðursetja i Fossvogi að stækka og dafna, eða verður það malbikinu að bráð? A-mynd/Róbert Báöir aðilar höfnuðu tillög- unni. í Morgunblaðinu 29. mars s.l. segir Davíö Oddsson borgarstjóri aö skv. sam- komulagi sem gert hafi veriö viö Kópavogsbæ áriö 1973 skuli brautin lögð nema báðir aðilar séu sammála um aö hún veröi þaö ekki. Einnig segir hann aö Reykjavík hafi þegar greitt Kópavogi fyrir landið sem fara ætti undir brautina með landinu sem iðnaöarhverfiö stendur viö Smiöjuveg í Kópavogi. Rannveig Guómundsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópa- vogs svaraði þessu i Alþýöu- blaðinu 31. mars s.l. og segir hún að borgarstjóri fari með rangt mál þegar hann segi að í samkomulaginu frá 1973 segi, aö brautin skuli lögö nema báöir aðilar séu sam- mála um aö hún skuli ekki lögö. Varðandi það að borgin hafi greitt fyrir landið segir Rannveig aö þaö sé ekki rétt. Þaö sem gerst hafi, var aö þegar Seljahverfið var skipu- lagt, hafi þaö verið skipulagt inn í Fífuhvammslandið i Kópavogi sem Reykjavík síðan keypti. En meö því var borgin komin inn í lögsögu Kópavogs og því hafi hún af- salað sér jafnstóru landi I staöinn, og þaö sé landið þar sem Smiöjuhverfiö er. í samkomulaginu frá 9. október 1973 segir orörétt i 6. grein; „Leiöi endurskoöun á umferðarkerfi höfuðborgar- innar í Ijós, aö nauðsynlegt reynist aó ráöast I gerð Foss- vogsbrautar, aó dómi beggja aðila, skulu eftirfarandi ákvæöi gilda,“ síöan kemur lýsing á mörkum brautarinn- ar. í 3. grein segir; „Reykjavík lætur Kópavogi I té, kvaöa- laust og án endurgjalds, land þaö sem lendir vestan Reykjanesbrautar“ (Smiöju- hverfi innsk. blm.), og þeirri 4.; „Reykjavík sér sjálf um kaup á landi á Selhrygg, en þaö tilheyrir Fífuhvammi" (Seljahverfi innsk. blm.) Einn- ig segir aö veröi síðan aðilar sammála aö leggja brautina, skuli Kópavogur láta Reykja- vík I té, án kvaöa og endur- gjalds, land þaö sem hann á í Fossvogsdal og lendir undir brautinni. Tré í stað brautar? Ein leiö sem bent hefur verið á til lausnar á umferðar- málum borgarinnar og geti komið í staö brautar í gegn- um Fossvoginn er að vegur sem talað hefur veriö um að leggja frá Reykjanesbraut í suður að Arnarnesi, veröi breikkaöur og hann notaður sem hraðbraut. Samtök áhugamanna um líf í Fossvogsdal eru nú í buröarliðnum, og síðustu helgi var auglýst eftir ein- staklingum i undirbúnings- nefnd að stofnun samtak- anna. Á tveimur klukkustund- um skráöu sig hátt á annað hundraö manns. Tilgangur samtakanna er tvíþættur. Annars vegar að vinna meö markvissu andófi og upplýs- ingadreifingu gegn lagningu hraöbrautar um dalinn, og hins vegar aö stefna aö því aö beita sér fyrir öflugri upp- byggingu hvers kyns útivist- arsvæöa í Fossvogsdal. í gær gekkst síðan undir- búningsnefndin fyrir gróöur- setningu fjölda trjáa í daln- um, og var stefnan aö setja niður hátt í 1000 tré. Þaö er því ekki annað aö sjá en núna þegar hugsan- Iegt er aó ráöhúsmáliö veröi til lykta leitt, aö Davið Odds- son borgarstjóri og meirihluti Sjálfstæðisflokksins f borgar- stjórn Reykjavíkur, séu komnir í annaö stríö viö vilja fólks sem metur ósnortiö umvherfið meira en mann- virkin. Samkvæmt skoðana- könnun Neytendablaösins um hug Reykvíkinga til Foss- vogsbrautar, voru 70% þeirra sem afstööu tóku á móti lagningu hennar. ■ □ 1 2 3 P 4 5 6 □ 7 S 9 10 □ i - 11 □ 12 i 13 J _ Krossgátan Lárétt: 1 berjir, 5 þvottaefni, 6 skolla, 7 skáld, 8 velmegun, 10 hreyfing, 11 sefi, 12 pípan, 13 umhyggjusöm. Lóðrétt: 1 koröi, 2 hróss, 3 málm- ur, 4 kanturinn, 5 karlmanns- nafn, 7 nöglin, 9 tryllti, 12 borö- andi. Lausn á síöustu krossgátu. Lárétt: 1 grobb, 5 gróp, 6 jól, 7 ál, 8 óöasti, 10 Si, 11 man, 12 láku, 13 aumri. Lóðrétt: 1 gróði, 2 róla, 3 op, 4 bálinu, 5 gjóska, 7 átaki, 9 smár, 12 Im. Oengið Gengisskráning 116 - 23. júní 1988 Kaup Sala Bandaríkjadollar 44,950 45,070 Sterlingspund 79,258 79,470 Kanadadollar 37,257 37,356 Dönsk króna 6,6040 6,6216 Norsk króna 6,9717 6,9903 Sænsk króna 7,2764 7,2958 Finnskt mark 10,6391 10,6675 Franskur franki 7,4649 7,4848 Belgiskur franki 1,2013 1.2045 Svissn. franki 30,4333 30,5146 Holl. gyllini 22,3299 22,3895 Vesturþýskt mark 25,1616 25,2288 itölsk lira 0,03392 0,03401 Austurr. sch. 3,5774 3,5869 Portug. escudo 0,3088 0,3097 Spanskur peseti 0,3805 0,3815 Japanskt yen 0,34872 0,34965 Ljósvakapunktar • Stöí 2 Sijaman 16.00 Mannlegur þáttur Arna Magnússonar. •RUV 21.00 Jörundur og Saga í sumarskapi. Áhorfendur á Hótel íslandi brosa út aö eyr- um framan viö kvikmynda- tökuvélarnar. 20.35 Basl er bókaútgáfa. Breskur Gamanmyndaflokk- ur. • Rás 1 18.03 Hringtorgið. Siguröur Helgason hringsnýr tung- unni um umferðamál.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.