Alþýðublaðið - 26.08.1988, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 26.08.1988, Qupperneq 3
Föstudagur 26. ágúst 1988 3' FRÉTTIR Salan á Granda r w OLIUSTRIÐI? Aö baki 500 milljón króna tilboöi Sjóvár, Hampiðjunnar, Hvals og Venusar í 78% hlut borgarinnar í Granda glittir í vaxandi hörku í stríöi olíufé- laganna um markaöshlut- deild. Allt frá því Óli Kr. Sig- urðsson keypti yfirgnæfandi meirihluta í OLIS hafa Skelj- ungur og ESSO, olíufélag samvinnuhreyfingarinnar, sameinast um aö yfirtaka viö- skipti OLÍS og stundum meö góöum árangri. Sterk tengsl eru á milli ákveöinna hluthafa og stjórnarmanna í fyrirtækj- unum fjórum og síðan Skelj- ungs og ESSO. OLÍS Á 7,5% í Granda og fjölskylda Ingvars Vilhjálms- sonar á 14,5%. Fyrir kaup Óla Kr. Sigurðssonar á 70% hlutafjár í OLÍS var fjölskylda Ingvars Vilhjálmssonar einn stærsti eignaraðilinn í OLIS með tvo menn í stjórn. Eign- arhlut sinn í Granda fékk OLÍS siðar upp i skuldir. Grandi er enn einhver stærsti viðskiptavinur OLÍS og er út- gerðarfyrirtækið samkvæmt heimildum blaðsins stór- skuldugt olíufélaginu. Hvalur hf. og um leið dótt- urfyrirtæki þess, Venus, eru stórir hluthafar í ESSO. Vara- formaður stjórnar ESSO er Kristján Loftsson, forstjóri Hvals og Venusar og stjórn- armaður í báðum fyrirtækjun- um. Stjórnarmenn í Sjóvá til skamms tíma voru Ingvar Vil- hjálmsson og Björn H'all- grímsson, en sá síðarnefndi er stjórnarformaður Skelj- ungs, og í stjórn Sjóvár situr nú sonur hans, Kristinn Björnsson. Þar situr einnig téður Kristján Loftsson. í stjórn Skeljungs situr enn- fremur Gunnar J. Friðriksson, sem einnig á sæti í stjórn Hampiðjunnar. Stjórnarfor- maður ESSO til skamms tíma, Hjörtur Hjartar, situr í stjórn Hvals. Með hliðsjón af þessum augljósu og sterku tengslum er ekki óeðlilegt að álykta að ný meirihlutasamsteypa í Granda kysi að beina við- skiptum sínum tii ESSO og Skeljungs og bola OLÍS út úr Granda, sinum stærsta við- skiptavini. Auk þess sem búast má við að staða Granda fari batnandi á næstu árum má búast við því að þetta skýri áhuga fyrirtækjanna fjögurra á því að fara í útgerð á þess- ari stundu. Hvað Hval hf. varðar má einnig greina alvar- lega leit fyrirtækisins að öðr- um atvinnurekstri i stað hval- veiðanna. Að menn hafi gef- ist upp í þeim slag og hyggi á önnur mið. Aðalfundur sauðfjárbœnda MARKAÐS- OG GREIÐSLUMÁL í ALGJÖRUM ÓLESTRI Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda verður hald- inn á Flúðum í dag og á morgun. Að sögn Björns Birkissonar, stjórnarmanns í LS, má búast við að stærstu mál aðalfundarins verði markaðsmálin og greiöslur til sauðfjárbænda, mál sem mjög hafa þróast til verri veg- ar aö undanförnu. „Markaðsmálin hafa stór- lega versnað undanfarin ár. Markaðir ytra hafa þrengst og hér heima hefur salan dregist saman með tilheyrandi aukn- um birgöum. Það er greini- legt samband á milli verðsins og neyslunnar og hafa ýmsar stjórnvaldsaðgerðir leitt af sér mun hærra vöruverð. Erlendis hafa okkar bestu markaðslönd siöan verið að vernda sinn eigin landbúnað og þá hefur þrengst um út- flutninginn. Greiðslumálin eru siðan í ólestri og það tengist meðal annars slæmri stöóu sláturhúsanna. Þegar slíkir aðilar lenda í erfiðleik- um og jafnvel gjaldþroti erum við álíka réttlausir og svartir menn í Afríku," sagði Björn. . Hann bætti því við að verk- efni aöalfundarins væru að öðru leyti mörg og margvis- leg. Páll Þorsteinsson útvarpsstjóri Bylgjunnar afhenti Jóni Hjaltalín Magnússyni formanni Handknattleikssambands íslands stóra og veglega ávisun í hálfleik á landsleik íslendinga og Sovétmanna á miövikudaginn. Bylgjan stóð fyrir fjársöfnun til styrktar landsliðinu með þvi að gefa áheyrendum sínum kost á að greiða fyrir að leikiö var þeirra uppáhaldslag. Ríkisstjómin og verkalýðshreyfingin SAMRÁÐIÐ KOSTAR SITT Á ríkissfjórnarfundi í gær- morgun kom hver flokksfor- maöur meö veganestiö sitt, skilyröin fyrir stuöningi viö niöurfærsluleiöina. Forsætis- ráðherrann skýröi formlega frá því að hans flokkur væri reiöubúinn, en miklu máli skipti afstaöa Alþýðusam- bandsins. Að því búnu félist ríkisstjórnin á samráö, eöa tilraun til þjóðarsáttar. Eftir að farið var að tala um niðurfærsluna og sýnt hvað fælist i tillögum for- stjóranefndarinnar hafa skilin orðið greinilegri um vilja stjórnarflokkanna. Sýnt þykir að bæði Fram- sókn og kratar vilji láta reyna á niðurfærsluna í stað hefð- bundinna úrræða, en Sjálf- stæðisflokkurinn hefurorðið fráhverfari eftir að í Ijós kom Kristján Þorvaldsson skrifar hvað raunverulega er innifalið i pakkanum. í Morgunblaðinu i vikunni mátti sjá að Þorsteinn Páls- son og hans menn treystu sér ekki til að ganga alla leið. Flokkurinn sýnist raunarklof- inn í afstöðu sinni. Þannig virðist Ijóst að útgerðarmenn og fiskvinnslan vilji feta nýju brautina, en heildsalagengið og fjármagnsmangararnir af- neita henni gersamlega. Leikur ÞorsteinsJ stöðunni var að höfða til ASÍ-raddanna, um að ekki kæmi til greina umrædd hækkun húsnæðis- vaxta á meðan rætt væri um lækkun vaxta almennt. Siðan kom sendingin frá Akureyri um að skilyrði Sjálfstæðis- flokksins fyrir stuðningi við niðurfærsluna fælist í vilja Ásmundar. Það átti því að verða hlutskipti ASÍ-for- mannsins að kaffæra niður- Jærsluna fyrir Sjálfstæðis- 'flokknum — vegna hræðslu Þorsteins við hagsmunahóp- ana sem mega ekki heyra minnst á lögbundna niður- færslu verðlagsins. Framsókn og kratar verða því að finna ásættanlega leið fyrir forsvarsmenn verkalýðs- félaganna til inngöngu, ekki síst vegna þeirra orða sem forseti Alþýðusambandsins hefur látið falla. Tilboö um samráð verður að vera það girnilegt, að ekki líti svo út, að menn éti allt ofan í sig sem þeir hafa sagt á undan- förnum vikum. Tilboðið hlýtur að fela í sér nokkurs konar biðleik. Spurn- ingin verður því fyrst um það hvort verkalýðsforystan sé til- búin að fresta umsömdum launahækkunum, 2,5%, sem eiga aó verða fyrsta sept- ember, gegn því að rikis- stjórnin geri eitthvað bita- stætt á móti. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins hefur m.a. verið rætt um aö „tilboðið" feli í sér, að gegn frestun á launa- hækkunum verði allsherjar veróstöðvun sem komi í veg fyrir tilhneigingu til hækkana almennt, þ.e. þýöi raunveru- lega verðlækkun. Verkalýðs- hreyfingin fái tryggingu fyrir því, að umtalsverð búvöru- verðshækkun verði fryst. Ið- gjaldshækkanir tryggingafé- laga frystar, en talið er að þær geti annars orðið yfir 10%. Síðast en ekki sist: vaxtalækkun. Ríkisstjórnin biður þvi um frest til að ganga úr skugga um hvort erfiðleikarnir við framkvæmd niðurfærslunnar séu óieysanlegir. Ef biðleikur- inn verður samþykktur feli það jafnframt i sér samráð um framhaldið. Hinn kosturinn fyrir ríkis- stjórnina, í bakhöndinni, er • að verði þessu hafnað komi til sígildu leiðarinnar, gengis- fellingar, kjaraskerðingar og kaupmáttarrýrnunar, án nokk- urs á móti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.