Alþýðublaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 4
4
Föstudagur26. ágúst 1988
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra svarar
efnahagsnefnd Alþýðubandalagsins varðandi starfsemi nýrra fjármálafyrirtœkja:
Frumvörp um „gráa markaöinn" lögð fyrir Alþingi í þingbyrjun
Efnahagsnefnd Alþýðu-
bandalagsins sendi Jóni Sig-
urðssyni viðskiptaráðherra
bréf dagsett þ. 22. þ.m. með
fyrirspurnum um starfsemi
nýrra fjármálafyrirtækja og
kröfum til viðskiptaráðherra
og rikisstjórnarinnar um ráð-
stafanir sem miða að skoðun
á starfsemi allra fjármálafyrir-
tækja á hinum svonefnda
„gráa markaði". Undir bréfið
rita fyrir hönd efnahags-
nefndar Alþýðubandalagins
Ólafur Ragnar Grímsson,
Steingrimur J. Sigfússon,
Svavar Gestsson og Svanfrið-
ur Jónasdóttir.
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra svaraði bréfi nefnd-
arinnar þ. 24. ágúst sl. og
birtist svar ráðherrans hér í
heild.
24. ágúst 1988.
Alþýðubandalagið —
efnahagsnefnd
Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík.
Vísað er til bréfs yðar
dags. 22. þ.m. varðandi starf-
semi nýrra fjármálafyrirtækja
o.fl.
Það er rétt, sem segir í
bréfinu, að vöxtur fjármálafyr-
irtækja af ýmsu tagi hefur
verið mikill á síðustu misser-
um. Það er hins vegar mis-
skilningur að það hafi „að
mestu verið án formlegs eft-
irlits af hálfu opinberra aðila“.
í gildi eru lög sem veita
bankaeftirliti Seðlabanka ís-
lands heimildir til þess að
framkvæma eftirlit með verð-
bréfamiðlun og rekstri verð-
bréfasjóða. Skal í því sam-
bandi bent á að í IV. kafla
laga um Seðlabanka íslands
er að finna víðtæk ákvæði
um bankaeftirlit og í reglu-
gerð settri samkvæmt þeim,
nr. 470/1986. I 34.-36. gr.
reglugerðarinnar er m.a.
kveðið á um eftirlitsskyldu
bankaeftirlitsins með fjárfest-
ingarfélögum, eins og þau
eru skilgreind í lögum nr.
9/1984. Einnig er kveðið á um
eftirlitsskyldu bankaeftirlits-
ins í reglum um starfsemi á
verðbréfaþingi og um verð-
bréfamiðlun skv. lögum nr.
27/1986. I 15. gr. þeirra laga
er kveðið á um eftirlitsskyldu
bankaeftirlitsins með starf-
andi verðbréfafyrirtækjum.
Með heimild í framan-
greindum lögum og reglu-
gerðum hefur bankaeftirlitið
haft eftirlit með starfsemi
verðbréfafyrirtækja, sem fólg-
ið hefur verið í heimsóknum
til fyrirtækjanna, í innköllun
endurskoðaðra ársreikninga
frá þeim og annarri uþþlýs-
ingasöfnun.
Því er rangt að segja, að
þessi fyrirtæki séu „að
mestu sjálfala og eftirlits-
laus“. Hitt er annað mál að
skort hefur ýmis ákvæði um
rekstur fyrirtækjanna. Má þar
nefna skýr ákvæði er girði
fyrir hagsmunaárekstra verð-
bréfafyrirtækis og verðbréfa-
sjóðs, sem það rekur, ákvæði
um upplýsingaskyldu gagn-
vart eigendum hlutdeildar-
skirteina í verðbréfasjóði,
ákvæði um eiginfjárstöðu
verðbréfafyrirtækis o.fl. Einn-
ig vantar reglur um starfsemi
svokallaðra fjármögnunar-
leigufyri rtækja.
Af þessum ástæðum skip-
aði ég hinn 16. febrúar sl.
nefnd til þess að fjalla um
starfsemi á fjármagnsmark-
aði utan banka og sparisjóða.
Nefndin hefur kannað nauð-
syn á frekari lagasetningu
um þessa starfsemi og ákvað
hún að skipta verkefni sínu í
þrjá þætti.
í fyrsta lagi ákvað hún að
fjalla um verðbréfaviðskipti
og verðbréfasjóði og í fram-
haldi af þeirri umfjöllun
samdi hún drög að frumvarþi
til nýrra laga um það efni.
Nefndin hefur leitað um-
sagna um frumvarpsdrögin
hjá ýmsum aðilum og mun
hún innan skamms ganga frá
breytingum á texta frum-
varpsdraganna í samræmi
við ábendingar frá þeim. Ég
mun væntanlega fá endanleg
frumvarpsdrög í hendurá
næstu dögum og mun ég þá
leggja frumvarp fyrir ríkis-
stjórnina og þingflokka henn-
ar til ákvörðunar um fram-
lagningu á Alþingi.
I öðru lagi fjallaði nefndin
um fjármögnunarleigur og
samdi hún síðan drög að
frumvarpi til laga um eignar-
leigu. Nefndin sendi nokkr-
um aðilum drögin til umsagn-
ar og rennur umsagnarfrestur
út í lok þessa mánaðar. Síð-
an verður gengið frá frum-
varþi, sem lagt verður fyrir
ríkisstjórnina og þingflokka
hennar til ákvörðunar um
framlagningu.
Að því er ákveðið stefnt,
að bæði þessi frumvörp verði
lögð fyrir Alþingi í þingbyrj-
un.
Þriðji þátturinn í starfi
nefndarinnar er rekstur á
sviði greiðslumiðlunar, af-
borgunarviðskiþta o.fl. sem
einkum snýr að neytenda-
vernd, en það starf er
skemmra á veg komið hjá
nefndinni en varðandi fyrstu
tvo þættina.
Eins og vitnað er til í bréfi
yðar, þá hef ég nýlega i
blaðaviðtali lýst nauðsyn
þess, að tekið verði á tengsl-
um milli viðskiptavina og fjár-
festingarfélaganna, þannig
að tryggt sé að félögin og
stjórnendur þeirra séu ekki
eigendur að þeim fyrirtækj-
um, sem félögin kaupa
skuldabréf af beint eða
óbeint. Að því er nú unniö
eins og að framan greinir og
stefnt að því að frumvörp um
málið fái þinglega meöferð
þegar í haust. Alþýðubanda-
lagið mun þá fá tækifæri til
þess að vinna að framgangi
málsins og vil ég nota tæki-
færið og lýsa ánægju minni
með þann áhuga á því, sem
bréf yðar ber vitni.
Jón Sigurðsson
FrálSentenAer
tflkynnir þú éígandaskqiti
ökutækis á næsta pósthúsí
Ætlar þú að skipta um ökutæki? Frá 1.
september fara eigendaskipti fram á póst-
húsinu. Þar liggur tilheyrandi eyðublað
frammi og þar afhenda seljandi eða kaup-
5 andi eyðublaðið að útfyllingu lokinni og
I greiða eigendaskiptagjald.
s Mjög einfalt, ekki satt?
BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS
Athugaðu að frá og með 1. september
verða eigendaskiptin einungis tilkynnt á
pósthúsinu. Þeir sem hafa gert sölutilkynn-
ingu fyrir þann tíma á önnur form sölutilk-
ynninga eiga einnig að snúa sér til næsta
pósthúss.
POSTGIR05T0FAN
Pósthús