Tíminn - 21.11.1967, Qupperneq 9

Tíminn - 21.11.1967, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 1967. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN B’ramkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórartnn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriðl G. Þorsteinsson Fulitrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gislason Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7 Af- greiðslusimi: 12323 Auglýsingasimi: 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán Innanlands — f lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Sterlingspundið og krónan Sú ákvörðun brezku ríkisstjórnarinnar að fella gengi sierlingspundsins gerir það að sjálfsögðu eðlilegt, að tekið sé til vandlegrar athugunar, hvort einhver breyting skuli gerð á íslenzkum gjaldmiöli. Þetta er eðlilegt vegna þess, að hluti útflutningsins hefur farið til sterlings- svæðisins. Ef staða þjóðarinnar væn með eðlilegum hætti eftir samfellt góðæri í mörg ár, hefði þetta val átt að vera auðvelt, þrátt fyrir nokkurt verðiall á vissum útflutn- ingsvörum. Þá hefði átt að vera auðvelt að halda krón- unni óskertri, líkt og Svíar og Norðmenn, og flestar aðrar þjóðh’ ætla að gera. En hér hefur ríkt önnur stefna en þar. Þess vegna er mestur gróði góðærisins farinn út í veður og vind. Þess vegna verðum við að athuga hvort fylgja verður fordæmi Breta eða ekki. Það sem ræður að sjálfsögðu öllu um þá ákvörðun, er staða atvinnuveganna- Þessa ákvörðun hefði mátt taka fljótt og fyrirvaralaust ef fyrir hendi hefðu verið nægar og glöggar upplýsingar um afkomu atvinnuveganna. Því hafa Framsóknarmenn lagt meginaherzlu á slíka athugun í þeim umræðum sem orðið hafa um efnahagsmálin að undanförnu. Ríkisstjórnin befur ekkert skeytt þess- um ábendingum og látið helzt eins og henni væru þessi mál óviðkomandi. Þess vegna stendur hún uppi eins og glópur, þegar fregnin berst um fall sterlingspundsins. Næstum allar aðrar ríkisstjórnir nafa getað gert sér strax fulla grein fyrir málinu og eru því búnar að ákveðá, hvort pundinu skuli fylgt eða ekki. Hér þarf það hins vegar að taka marga daga atnugun að komast að niður- stöðu um þetta. Ástæðan er sú, að fáar eða engar ríkis- stjórnir hafa fylgzt eins illa með atvinnuvggum þjóðar sinnar og ríkisstjórnin íslenzKa. Ef það verður niðurstaðan hjá ríkisstjórninni að láta krónuna fylgja pundinu, breytist alveg viðhorfið til þess efnahagsmálafrumvarps, sem uggur fyrir þinginu. Þess verður þá ekki nein þörf lengur að leggja á nýja skatta til að afla ríkissjóði tekna. Ríkið mun fá stórauknar tekjur af gengisfellingunni, jafnve’ þótt tollar væru eitt- hvað lækkaðir jafnhliða, eins og eðlilegt virðist. Þetta hefur ríkisstjórnin líka réttilaga viðurkennt með því að fresta að sinni öllum umræðum á Alþingi um áðurnefnt frumvarp sitt. En þótt svo færi, að þetta frv verði látið sofna eða dregið til baka, er ekki minni þörí fyrir mikla árvekni launþegasamtakanna. Gengisíeliing, sem er framkvæmd án margvíslegra hliðarráðstafana til að draga úr kjara- skerðingt^, getur reynst neytendum miklu þungbærari en þær álögur og kvaðir, sem felast umræddu frumvarpi. Þess vegna er það hárrétt ákvörðun hjá stjórn Alþýðu- sambands íslands að slaka eKxi neitt tii á þeim varúðar- ráðstöfunum, sem verkalýðshreyfingin hefur gripið til, þótt áðurnefnt stjórnarfrumvarp verði dregið til baka. Ríkisstjórnin hefur sýnt bue sinn tii launþega með því frumvarpi, sem nú liggur tyrir þinginu. Nú telur hún sig ef til vili ekki hafa lengur þörf fyrir þá leið, sem felst í þessu frumvarpi, og hyggst fara aðra leið að sama marki- Ekkert nema öflug samstaða verkalýðs- hreyfingarinnar getur á þessn stigj hindrað slík áform í’íkisstjómarinnar. Lækkun sterlingspundsins hefur ekki minnkað hættuna í þeim efnrm. heidur miklu fremur aukið hana. Nú ríður á því, að enginn bili á verðinum. TÍMINN ERLENT YFIRLIT Viðhorf bandarískra kjósenda til styrjaldarinnar í Vietnam AthyglÍRverð niðurstaða aukakosningar í Kaliforníu EINS OG ÁÐUR hefur verið skýrt frá, fór fram aukakosn- ing tii fulltrúadeildar Banda- ■•ikjaþings í kjördæmi einu í nágrenni San Francisco síðast- iiðinn þriðjudag. Úrslitanna í pessari kosningu hafði verið heðið með verulegri eftirvænt- mgu. Að vissu leyti stafaði það af tm, að kvikmyndadísin iræga, Shirley Temple, var í liopi frambjóðandanna. En öllu ir.eira var þessi eftirvænting þó sprottin af því, að úrslitin þóttu líkleg til að geta orðið visbending um viðhorf banda- riskra kjósenda til styrjaldar- rekscursins í Vietnam. Aistaóan til styrjaldarrekst- ursins t Vietnam varð aðalmál ;ð í bessum kosningum. Viðhorf almennings var bvi l'V’on tii að toma nokkuð glöggt í ljós. Kosning þessi fór fram með peim hætti, að hún var jafn- tramt einskonar prófkjör hjá aðalflokkunum innbyrðis. Hver flokkur gat haft eins marga frambjóðendur og vildi. Ef einn framoióðandinn fékk yfir 50% greiddra atkvæða náði hann lögmætri kosningu. Næði eng- ian þeirra slíku atkvæðamagni, sKyldi kjósa upp aftur 12. des. Þa skyldi valið eingöngu bund- ið við tvo menn, eða atkvæða hæsta frambjóðandann hjá avorum flokki um sig. Niðurstaðan varð sú. að eng- 'nn frambjóðandanna náði lög mætri Kosningu og verður því kosið aftur 12. desember. Þá eigast við republikaninn Paul M. McCloskey og demókratinn Rov Arcibald. UPPHAFLEGA var því al- mennt spáð, að Shirley Temple Black feng’ flest atkvæði af frambjóðendum republikana, sökum teikfrægðar sinnar. Það var ekki talið líklegt til að spilla fyrir henni, að hún tók afstöðu sem haukur til Viet- namstyrjaldarinnax, en svo eru þeir nefndir, sen\ vilja herða siyrjöldina og telja aukna hern döarlega sókn vænlegasta til að knýja Hanoistjórnina að samn- ingaoorðinu. Sá frambjóðandi repu'biikana, Draper að nafni, sem þótti helztur keppinautur hennar var einnig haukur. Shirl ey Temple lýsti því sem aðal- siefnu sinni, að hún vildi fara að ráðum hershöfðingjanna í Vietnam. Þetta var skilið þann ig, að hún vildi færa út styrj- öldina Þegar leið á kosningabarátt- una. fóru menn að efast um sigurmöguleika Shirleý Temple. Ástæðan var sú, að einn af - ríamhjóðendum repuiblikana, McCloskey, hóf mikla sókn gegn henni fyrir afstöðu henn- ar til styrjaldarinnar í Viet- nam Hann hafði boðið sig fram sem dúfa, en svo eru þeix nefndir sem vilja hætta ■oftárásunum á Norður-Viet- aam. og telja það vænlegustu leiðina til að fá Hanoistjórnina að samningáborðinu. McClos- key hafði sér það iafnframt ti) ágætis. að vera stríðstoetja Shirley Temple Black — hún féll, en ætlar ekki aS gefast upp. frá Kóreu, en þar hafði hann íengið mörg heiðursmerki fyr- r vasklega framgöngu. Hann ar maðux myndarlegur og geð þekkui í framgöngu. Seinustu dagana stóð barátt- an fyrst og fremst milli hans og kvikmyndastjörnunnar. — Bæði drógu þá nokkuð úr fyrri ommælum sínum, þannig að Shirley Temple varð minni haukur og McCloskey minni dúfa Úrslitin urðu þau, að McCloskey fékk 52.878 atkv., en Shirley Temple 34.521 atkv. Oraper fékk hins vegar 19.560 atkvæði. Hefði þau atkvæði, sem hann fékk, verið greidd Shiriey Temple, hefði hún rétt sigrað McCloskey. Segja má því, hvað atkvæði snertir, að litlu hafi munað á fylgi dúf- mna og haukanna. Þess er svo hins vegar að gæta að þeir tveir frambjóð- endui demókrata. sem flest atkvæðí fengu, voru báðir dúf- ur. Annar þeirra Edward M. Kcating, sem var um skeið út- íefand' blaðsins Ramparts, var aiger dúfa, þ.e. bann vildi láta öandarikjamenn draga her ?inn s’rax frá Vietnam Hann /ar upphaflega talinn líklegast- ur tii að fá flest atkvæði af rambjóöendum demókrata. Hann fékk ekki nema rúm 8 pús. atkv Sá demókratinn, sem fékk flest atkvæði. Roy Arci- oald. vill hætta loftárásum á Morðu) Vietnam, draga úr hern rðaraðgerðum í Suður-Vietnam og Leita samninga við Hanoi- stjórnina. Hann fékk 15 þús. ackvæði. Augljóst er að fjöl- margir demókratar hafa í þess- um kosningum kosið frambjóð endur republikana, sennilega vegna þess hve samkeppnin var þar hörð. ÞOTl Shirley Temple félli nú, lýsti hún yfir því, að hún uæri ekki af baki dottin. Hún tom fram sem hin fullkomna ieikkona, þegar hún ávarpaði frlgismenn sína eftir að kunn- ugt varð um ósigur hennar. Hún sagðist ekki gefast upp, en nú væri hún búin að kynn- ast baráttuaðferðunum og hún ætti ekkert erfitt með að læra. Síðan brosti hún sínu fegursta brosi. Fullvíst þykir að hún muni reyna að vinna prófkjör hjá reputolikönum næsta vor, en aimennar kosningar fara fram til fulltrúadeildar Bandaríkja- bings : nóvember 1968. Baráttan í þessum kosning- um vai mjög hörð og kostnaðar söm fyrir frambjóðendur. Mc Closkey hefur upplýst. ai kosn ingabarátta hans hafi kostað vfir 120 þús. dollara. Hann elur. að Shirley Temple hafi Alltaf eytt 250 þús. dollara. f kjördæminu eru um 500 þús. ibúar. Það er talið hafa verið Mc Closkey mikill stuðningur, að Gavin hershöfðingi veitti hon- um meðmæli sín. Gavin var nýlega Suður-Vietnam í boði Westmoreland hershöfðingja en för hans þangað hefur síður er svo breyÞ skoðun hans. Hann hefur um nokkurt skeið verið eindregin talsmaður þess, að Bandaríkin hættu loftárás- um á Norður-Vietnam og reynau að semja við Hanoi- stjóruina, ' fyrstu mátti skilja McCLoskey þannig að hann vildi tafarlausan heimflutning Banda ríkjahers frá Vietnam, en síðar dró hann úr því og tók líka afstöðu og Gavin. AF ÚRSLITUM þessara kosn inga þykir mega draga eftirfar andi álvktanir: Aðeins lítill hluti Banda- rikiamanna vill hætta styrjöld- inni svo að segja skilyrðislaust og kalla herinn heim tafar- laust. Rúmur meirihluti banda- nskra kjósenda fylgir orðið dúf unum að málum, þ. e. að loft arásunum á Norður-Vietnam verði hætt og ieitað verði samn inga við Hanoistjórnina á þeim grundvelli. Stói hluti kjósenda er þess sinnis, að ekki verði hægt að knýja fram úrslit í Vietnam. aema með auknum hernaðarað- gerðuiri. Augijósc er á þessu, að bandariska þjóðin er mjög klof ir * afstöðu sinni til styrjaldar tekstursins, Það ber hinu banda ríska stjórnarfarskerfi góðan vitnisburð, að ekki er reynt að dyljs' þennan skoðanamun, held ui fæi hann að njóta sín til tulis fyrir opnum tjöldum. Þ. Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.