Alþýðublaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 3
3
'>V< - -'h - • • . »**’. •
Miðvikudagur 14. september 1988
FRÉTTIR
Sigur Gunnars í Fríkirkjustyrjöldinni
„Ef séra Gunnar verður
ráðinn áfram, þá er ég hætt-
ur. Ég held að það sama
muni gilda um kórinn,“ sagði
Pavel Smid organisti og kór-
stjóri Fríkirkjusafnaðarins i
samtali við blaðið í gær.
Á sögulegum fundi hjá
söfnuðinum á mánudags-
kvöld, þar sem færri komust
að en vildu, lýsti meirihluti
yfir stuðningi við séra Gunn-
ar Björnsson, jafnframt því
sem samþykkt var vantraust
á starfandi stjórn safnaðar-
ins. Fundurinn var haldinn í
Gamla bíói og greidd 376 at-
kvæði gegn uppsögn Gunn-
ars, en 313 voru á móti.
Stjórn safnaðarins ætlaði
aö koma saman til fundar i
gærkvöldi og taka ákvarðanir
í framhaldi af niðurstöðu
fundarins. Líklegt er talið að
stjórnin fari frá og Gunnar
vinni fullan sigur í striðinu
sem ríkt hefur innan safnað-
arins bæði fyrir og eftir að
stjórnin ákvað að segja prest-
inum upp.
Þrátt fyrir sigur virðist
Ef Gunnar verður áfram frikirkjuprestur, þarf bæði nýjan organista og
nýjan kór.
Gunnar hins vegar þurfa að I isti og kórinn yfirgefi kirkj-
sætta sig við, að bæði organ- | una.
Grímseyingar fundu
megna brennisteinslykt
Grimseyingar urðu varir við
megna brennisteinsstækju
bæði fyrir og eftir að jarð-
skjálftar mældust í Grimsey
á mánudag.
„Þeir telja sem betur fer
litlar líkur á eldgosi. En það
er auðvitað ekki hægt að úti-
loka neitt. Mig minnir t.d. að í
gömlu landafræðinni hafi því
verið haldið fram að Helgafell
í Heimaey væri útbrunnið
eldfjall. Annað kom á daginn.
Ég held að það hljóti að vera
möguleikar á þv( að upp komi
hraunkvika hvar sem er á
þessum sprungum, en þær
eru sem betur fer í nokkurri
fjarlægð frá eyjunni," sagði
Haraldur Jóhannsson sjó-
maður og útgerðarmaður í
Grlmsey þegar Alþýðublaðið
ræddi við hann I gær. Harald-
ur var þá staddur á bátnum
sínum norðaustur af Grímsey.
Haraldur var á sjó þegar
stærsti kippurinn fannst um
klukkan átta á mánudags-
kvöld. Hann sagðist ekki hafa
orðið var við þann stóra, þar
sem „kvikuskaftur" var á
sjónum. Haraldur sagðist
hins vegar ekki muna eftir
jafn miklum hræringum og
um kvöldið, en hann er
fæddur og uppalinn I Gríms-
ey. Stærsti kippurinn, sem
kom um áttaleytið, mældist
5,2 stig á Richter og kippirnir
um kvöldið voru á bilinu 4-5
stig. Talið er aö jarðskjálft-
arnir hafi átt upptök við Kol-
beinsey.
Á mánudagskvöld var hald-
inn fundur I félagsheimilinu
með tveimur jarðfræðingum,
þeim Páli Einarssyni og Guð-
mundi Sigvaldasyni. Haraldur
sagði að samskonar fundur
hefði verið haldinn I fyrra,
þegar jarðskjálftar mældust I
Grímsey. „Ég held að þessir
fundir séu hugsaöir sem and-
leg sprauta fvrir mann-
skapinn," sagði hann.
„Það voru margir sem
fundu sterka brennisteinslykt
hér á mánudag. Þetta var
mjög sterk lykt. Jarðfræðing-
arnir voru spurðir út I þetta
og vildu meina, að ekki væri
um óþekkt fyrirbæri að ræða
þegar jarðskjálftar væru
annars vegar. Þeir töldu, að
mig minnir, að gas gæti
komið upp úr jarðskorpunni I
slíkum hræringum. Við
minntumst líka á, að rétt
áður en stóri skjálftinn byrj-
aði þá ruku hestar á feyki-
legan sprett. Þeirvissu
greinilega hvað var í vænd-
um. Þetta bar á góma og
jarðfræöingarnir sögðu að
þetta væri nokkuð þekkt fyr-
irbæri með skepnur, en
ástæðuna fyrir því vissu
merin ekki,“ sagði Haraldur.
Á mánudagskvöld voru
nánast látlausar hræringar í
Grímsey og því þótti ráðlegt (
gær að hafa varðskip I nánd
viö eyjuna svo og flugvélar til
taks á Akureyri.
„Eg held að þessir fundir séu
hugsaðir sem andleg sprauta fyrir
mannskapinn," sagði Haraldur
Johannsson um fundi Grimsey-
inga með jarðfræðingum.
MILLJON SEIÐI
DRÁPUST
Veiöimálastofnun hefur
gert könnun á ráðstöfun
þeirra 11 milijón gönguseiða
sem framleidd voru í vor. í
Ijós kom að alls eru í eldi um
6 milljón seiði og standa
vonir til að i haust verði fjöldi
seiða í eldi orðiinn 7,5 milljón
seiði. Þá hefur verið sleppt
tæplega 2,5 milljón seiðum í
hafbeit. Þannig hefur verið
ráðstafað um 10 milljón seið-
um en um milljón seiði hafa
tapast í flutningun, vegna
sjúkdóma og vegna veðurs.
Landssamband fiskeldis-
og hafbeitarstöðva segir að
eldi 7,5 milljón seiða og 2,5
milljón seiða í hafbeit muni
gefa af sér ekki minna en 15
þúsund tonn af laxi. Slátrun
þeirra seiða sem fóru i eldi í
sumar og sleppt var í hafbeit
mun hefjast sumarið 1989 og
standa fram á sumarið 1990.
Telur Landssambandið að út-
flutningsverðmæti þess séu
um 5 milljarðar króna. Þar er
þvi um að ræða tæplega
10% af heildarútflutnings-
verðmæti landsins á síðasta
ári.
Landssamband fiskeldis-
manna segir í fréttatilkynn-
ingu að þetta útflutnings-
verðmæti svari til um 100-120
þús. tonna þorskafla upp úr
sjó. Skora Landssambands-
menn á stjórnvöld að þau
beiti sér fyrir því að tryggja
eðlilega rekstrarlánafyrir-
greiðslu til handa fiskeldis-
stöðvum og óska eftir raun-
hæfum aðgerðum hið fyrsta,
ella verði ekki umflúið stór-
slys.
Pingflokkur Alþýðubandalagsins
KOSNINGAR
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins sendi frá sér ályktun
í gær þar sem fagnað er því,
að „breið samstaða hefur
skapast milli samtaka launa-
fólks um að mótmæla kjara-
skerðingaraðgerðum og
áformum ríkisstjórnarinnar".
TAFARLAIST
Þá segir í ályktuninni að rík-
isstjórn Þorsteins, Stein-
gríms og Jóns Baldvins eigi
tafarlaust að gefa þjóðinni
kost á að veita nýrri og ger-
breyttri stjórnarstefnu braut-
argengi í kosningum.
OVISSA
UM SLÁTRUN
í frétt frá Landssamtökum
sláturleyfishafa kemur fram
að mikil óvissa er um rekstr-
arskilyrði í komandi sláturtið.
Vegna vanreiknaðs slátrunar-,
heildsölu- og vaxtakostnaðar
í verðákvörðunum fimm
manna nefndar segjast slát-
urleyfishafar hafa mátt þola
verulegt rekstrartap sem
þegar hafi leitt til rekstrar-
stöðvunar nokkurra slátur-
leyfishafa og mikilla greiðslu-
erfiðleika.
í frétt frá samtökunum
kemur m.a. fram að meintar
vanefndir ríkisins á uppgjöri
útflutningsbóta geri það að
verkum aó sláturleyfishafar
eigi nú ógreiddar hjá ríkinu
útflutningsbætur og tilheyr-
andi vaxtakostnað að upp-
hæð um 600 milljónir. Ovissa
ríki um tekjur sláturleyfishafa
þar sem ekki liggur fyrir hver
slátrunar- og heildsölukostn-
aöur verður ákveðinn í haust.
Þá telja sláturleyfishafar ekki
forsvaranlegt að selja nýtt
kjöt á sama verði og kjöt frá
fyrra ári vegna vanmetins
kostnaðar við framleiðslu og
sölu þess kjöts.
„Besta barnabókin“
100 þúsund króna verðlaun
Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka efnir nú i fjórða
sinn til samkeppni um hand-
rit að bókum fyrir börn og
ungiinga. íslensku barna-
bókaverðlaunin 1989 nema
100.000 krónum, en auk þess
fær sigurvegarinn i sam-
keppni sjóðsins greidd
höfundarlaun fyrir verkið
samkvæmt samningi Rit-
höfundasambands Islands
og Félags islenskra bókaút-
gefenda.
Frestur til að skila hand-
ritum í verðlaunasamkeppn-
ina er til 31. desember 1988,
en verðlaunabókin mun koma
út vorið 1989 á vegum Vöku-
Helgafells í tengslum við af-
hendingu verðlaunanna. Þess
má geta að ákveðinn
hundraðshluti af útsöluverði
hverrar bókar rennur til sjóðs-
ins.
Að honum standa bókafor-
lagið Vaka-Helgafell, fjöl-
skylda Ármanns Kr. Einars-
sonar, rithöfundar, Barna-
bókaráðið, íslandsdeild IBBY-
samtakanna og Barnavinafé-
lagið Sumargjöf, sem nýlega
gerðist formlegur aðili að
Verðlaunasjóðnum og lagði
honum til viðbótarfé.
Sumargjöf hefur undan-
farin 64 ár starfað að mál-
efnum barna með margvís-
legum hætti og meðal
annars annast dagvistun og
rekstur barnaheimila í hálfa
öld. Þá gaf Sumargjöf út
tímaritið Sólskin og Barna-
dagsblaðið og stóð fyrir
hátfóahöldum á sumardaginn
fyrsta um árabil.
Formaður stjórnar Verð-
launasjóðs íslenskra barna-
bóka er Ólafur Ragnarsson,
bókaútgefandi.