Alþýðublaðið - 14.09.1988, Side 5
Miðvikudagur 14. september 1988
5
BÖNDUM KOMIÐ Á GRÁA MARKADINN
Viðskiptaráðherra lagði fram tvö ítarleg frumvörp um starfsemi á
fjármálamarkaðnum fyrir ríkisstjórnarfund í gœr.
A rikisstjórnarfundi í morg-
un lagði viðskiptaráðherra
fram tvö frumvörp til laga um
fjármálastarfsemi utan
bankakerfisins. Hér er annars
vegar um að ræða frumvarp
til laga um verðbréfaviðskipti
og verðbréfasjóði og hins
vegar frumvarp til laga um
eignarleigustarfsemi eða
„fjármögnunarleigu“ eins og
þessi starfsemi hefur oftast
verið nefnd. Þessi frumvörp
eru samin af nefnd sem við-
skiptaráðherra skipaði 16.
febrúar sl. til að fjalla um
lagasetningu um starfsemi á
fjármagnsmarkaði. Viðskipta-
ráöherra bætti inn í verð-
bréfafrumvarpið grein sem
veitir honum heimild til þess
að heimila Seðlabanka ís-
lands að láta sömu reglur
gilda um bindiskyldu verð-
bréfafyrirtækja og verðbréfa-
sjóða og gilda um bindi-
skyldu innlánsstofnana.
Verðbréfafrumvarpið er
viðamikið. Með þvl er settur
nýr rammi um starfsemi verð-
bréfamiðlara, verðbréfafyrir-
tækja og verðbréfasjóða sem
leysir meðal annars af hólmi
lög nr. 27 frá 4. mal 1986 um
verðbréfamiðlun en þau lög
eru um margt ófullkomin.
Meðal efnisatriða I verðbréfa-
frumvarpinu má nefna eftir-
farandi:
1) ítarlegar ceglur um skil-
yrði sem verðbréfamiðlar-
ar verða að uppfylla og
um starfsskyldur þeirra
gagnvart viðskiptavinum
og eftirlitsaðilum.
2) Ný ákvæði um verðbréfa-
fyrirtæki og starfsemi
þeirra en engin slík
ákvæði eru í lögum.
3) ítarleg ákvæði um rekst-
ur verðbréfasjóða.
4) Ströng ákvæði um tilsjón
bankaeftirlits Seðlabank-
ans með verðbréfavið-
skiptum og verðbréfa-
sjóðum.
5) Reglur um lágmarks-
hlutafé verðbréfafyrirtæk-
is og um lágmark eigin
fjár þess.
6) Akvæði um viðskipti
verðbréfafyrirtækja og
verðbréfasjóða með verð-
bréf.
7) Ákvæði um rekstrarform
verðbréfasjóða og um
samþykktir þeirra.
8) Ákveðnar reglur um dreif-
ingu fjárfestingar verð-
bréfasjóða.
9) Ákvæði um lausafjár-
skyldu verðbréfasjóða.
10) Ákvæði um heimild til
þess að setja bindiskyldu
á verðbréfafyrirtæki og
verðbréfasjóði.
11) Skýr ákvæði um heimild
stjórnvalda til að hlutast
til um rekstur verðbréfa-
fyrirtækis brjóti það
gegn ákvæðum laganna
að mati bankaeftirlits
Seðlabankans.
12) Ákvæði um hörð viðurlög
við brotum gegn lögum
og reglum um starfsemi
verðbréfafyrirtækja.
í eignarleigufrumvarpinu
eru ýmsar skilgreiningar sem
eru nýlunda í lögum. Þar eru
sett lágmarksskilyrði til
rekstrar eignarleigufyrirtækja
og um starfssvið þeirra. Þar
er meðal annars ákvæði um
að lágmark eigin fjár eignar-
leigufyrirtækis skuli á hverj-
um tíma ekki nema lægri
fjárhæð en sem svarar 8% af
heildarskuldbindingum þess.
Þá eru þar lágmarksákvæði
um efni eignarleigusamninga
og um upplýsingaskyldu
eignarleigufyrirtækja gagn-
vart viðskiptavinum. Loks eru
í frumvarpinu ítarleg ákvæði
um eftirlit með starfsemi
eignarleigufyrirtækja og um
viðurlög við brotum á lögum
um starfsemina.
Þessi frumvörp ná til stórs
hluta fjármagnsmarkaðarins
utan bankakerfisins. Með
þeim er bætt úr brýnni þörf
fyrir skýrar og ákveðnar regl-
ur um þá fjármálastarfsemi
sem hér um ræðir. Markmið-
ið með þessum frumvörpum
er að tryggja hag sparifjáreig
enda sem kjósa að ávaxta
sparnað sinn á þessum vett-
vangi, upplýsingasöfnun,
eftirlit stjórnvalda með þess-
ari starfsemi og að sams
konar reglur gildi um skylda
fjármálastarfsemi. Viðskipta-
ráðherra leggur ríka áherslu á
að frumvörp þessi verði að
lögum á Alþingi nú í haust.
Ijf/
1 i
I
hmm
EINDAGI
. SKILA .
A STAÐGRBÐSLUFE
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reiknuðu
endurgjaldi mánaðariega. Skilin skulu
gerð eigi síðar en 15. hvers mánaðar.
Ekki skiptir máli í þessu
sambandi hversu oft f mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram
eðaeftirá.
Með skilunum skal fylgja greinargerð á
sérstökum eyðublöðum „skilagreinum“,
blátt eyðublað fyrirgreidd laun og rautt
fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber
ávailt að skila einnig þó svo að engin
staðgreiðsla hafi verið dregin af
í mánuðinum.
Allarfjárhæðirskuluveraí
heilumkrónum.
Allir launagreiðendur og sjátfstæðir
rekstraraðilar eiga að hafa fengið send
eyðublöð fyrir skilagrein. Þeir sem
einhvena hluta vegna hafa ekki fengið
þau snúi sértil skattstjóra, gjaldheimtna
eða innheimtumanna ríkissjóðs.
RSK
RÍKISSKATTSUÓRI