Alþýðublaðið - 15.09.1988, Síða 5
Fimmtudagur 15. september 1988
5
FRÉTTASKÝRING m i » i
Ómar Friðriksson skrifar ^
Af Fjórðungsþingi Norðlendinga
ENGAR GRÁTFERÐIR
TIL REYKJAVÍKUR
Áratugir hafa liðið með til-
heyrandi tillögufargani, papp-
irsflæði og nefndaskipunum
án þess að nokkuð hafi í
raun miðað í átt að skipu-
lagsbreytingum á sveitarfé-
lögunum i landinu. 223 sveit-
arfélög skiptu landinu fyrir
aðeins tveimur árum. Nú hef-
ur þó verið gengið frá fækk-
un þeirra um 10 og vinna við
sameiningu 6 sveitarfélaga
stendur yfir. Jóhanna Sigurð-
ardóttir, ráöherra sveitar-
stjórnarmálefna, segir rétti-
lega: „Núverandi skipting
landsins i sveitarfélög hefur
ekkert breyst til samræmis
við þá byltingu sem orðið
hefur í samgöngumálum og
tekur nánast ekkert mið af
þeirri fólksfækkun, sem orðið
hefur í dreifbýli. Hún stendur
í raun í vegi fyrir því að hægt
sé að færa aukin verkefni frá
ríkinu til sveitarfélaganna."
Þetta sagði Jóhanna í ræðu
sinni á fjórðungsþingi Norð-
lendinga sem haldið var að
Húnavöllum 2. og 3. sept-
ember sl. Það eru áhyggju-
efni, vandamál og viðfangs-
efni framtíðarinnar í máli
sveitarstjórnarmanna nyrðra
á fjórðungsþinginu sem eru
til umfjöllunar í þessari
fréttaskýringu.
Jöfnunarhlutverk Jöfnunar-
sjóös sveitarfélaga er sem
kunnugt er ófullkomið en
möguleikar sjóösins sem
stýritækis eru sveitarstjórn-
armönnum ofarlega í huga.
Framkvæmdastjóri fjórö-
ungssambandsins, Askell
Einarsson, segir í skýrslu
sinni: „í tiílögum um breytta
tekjustofna sveitarfélaga er
lögö áhersla á að sjóðurinn
sinni jöfnunarhlutverki fyrst
og fremst og aö landsútsvör-
in verði stóraukin til aö
standa undir þessu verkefni.
Þessum sameiginlegu tekj-
um sveitarfélaganna veröi
varið til tekjujöfnunar og til
aö jafna kostnaö vegna verk-
efnatilfærslu milli ríkis og
sveitarfélaga.og til að stuðla
aö lausn stærri þjónustuverk-
efna á byrjunarstigi, þegar
verkefnaþörfin er meiri en
íbúafjöldinn stendur undir.
Hluta þessa jöfnunarfjár
veröi einnig variö til aö veita
vaxtalaus lán til aö standa
undir stærri verkefnum, sem
ríkið heföi greitt stofnframlög
til, áður en til verkefnatil-
færslu kemur. Það mun láta
nærri að um 27%-28% af
óskertum tekjum Jöfnunar-
sjóös sveitarfélaga væri
hæfilegt starfsfé i þessu
sambandi. Þetta er um 600
millj., sem þýðir nær tvöföld-
un landsútsvaranna.
Greiðslur ríkisins renni í
sérstaka deild óháða jöfnun-
arhlutverki sjóösins. Þær
miöist ekki við tekjustofna
ríkisins eins og nú er, enda
er af því slæm reynsla. í staö
þess komi einskonar ríkis-
útsvar, sem greiðist miöaö
viö launaumsvif ríkisins.
Þetta fé veröi notaö til
greiðslu almennra íbúafram-
laga að frádregnum sameig-
inlegum útgjöldum sveitarfé-
laga og framlögum til sam-
taka sveitarfélaga.
Meö þessum hætti má
tryggja áfram hiö tvíþætta
hlutverk Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga og koma sjóönum út
úr þeim þrengingum, sem
hann er í nú. Skerðing Jöfn-
unarsjóðsins nam í ár 46% af
eðlilegum tekjumöguleikum
hans skv. tekjustofnalögum,"
sagði Áskell.
AUKIÐ FJÁRHAGSLEGT
SVIGRUNI
í máli félagsmálaráðherra
kom fram að nú er unnið að
heildarendurskoðun laga um
tekjustofna sveitarfélaga og
er miðað að því að fjárhags-
legt svigrúm þeirra og
ákvörðunarvald um álagningu
verði aukið.
Benti ráöherra á aö finna
þyrfti nýja viðmiðun í sam-
bandi við tekjur Jöfnunar-
sjóösins þegar viröisauka-
skatturinn kemst á. M.a. er
rætt um aö miða viö hlutfall
af launagreiðslum rikissjóðs
og aö sögn ráðherra hefur
einnig verið hreyft þeirri hug-
mynd að útsvarsprósentan f
staðgreiðslukerfinu verði enn
hækkuð og hækkunin gangi
til Jöfnunarsjóðsins og verði
megin tekjustofn hans. „Eins
og nú háttar hefur litlum
hluta af ráðstöfunarfé sjóös-
ins verið variö til jöfnunar á
milli sveitarfélaga. Ég legg
mikla áherslu á aö þessi hluti
verði stóraukinn þannig að
sjóðurinn standi undir nafni.
Miðað við þann mikla
aðstöðumun, sem nú er milli
Reykjavíkursvæðisins og
landsbyggðarinnar tel ég
algerlega óviðunandi hversu
mikið af ráðstöfunarfé sjóðs-
ins rennur til Reykjavíkur,"
sagði Jóhanna Sigurðardóttir.
RÆTT ÍMYND
Meðal tillagna sem sam-
þykktar voru á fjóröungsþing-
inu var ályktun um að vinna
beri aö breytingum á mennta-
kerfinu þannig að lögð verði
miklu meiri áhersla en nú er
á þær námsgreinar sem
mennta fólk til starfa á lands-
byggöinni. Og ennfremur um
að dregið verði úr þeim mis-
mun sem er á milli Reykjavík-
urborgar annars vegar og
sveitarfélaga á landsbyggð-
inni hins vegar varðandi tekj-
ur af fasteignagjöldum og
aðstöðugjöldum. Þá hafa
sveitarstjórnarmenn áhyggjur
af ímyndinni og fól þingió
fjórðungsstjórninni að vinna
að bættri ímynd landshlut-
ans með því að draga fram
helstu kosti búsetu þar og
jafnframt vinna að jákvæðari
umfjöllun um lífsskilyrði á
landsbyggöinni í fjölmiölum.
Fjölmiðlarnir voru ofarlega
á baugi í umræðum á þing-
inu og raunar var annaö aöal-
mál þingsins, landsbyggöin í
fréttum. Forsvarsmenn nokk-
urra fjölmiðla héldu ræður og
skiptist nokkuö i tvö hom
meö þeim. Fjölmiölastjórar
höfuöborgarsvæöisins töldu
af og frá aö landsbyggðin
væri aftarlega á merinni I
fréttaöflum miölanna. Heima-
menn héldu samt aö þaö
væri meira en lítið til í því.
JóhannesSigurjónsson, rit-
stjóri Víkurblaösins á Húsa-
vík sagði t.d. að Reykjavíkur-
blööin væru sjálf ekkert ann-
að er héraösfréttablöö. „Þau
eru útgefin ( Reykjavíkurhér-
aði, fjalla einkum um fréttir
úr því vísa héraði og brúka
svo fréttir úr öörum héruðum
heimsins, s.s. Afganistan eða
Eyjafirði, sem uppfyllingar-
efni,“ sagði Jóhannes á þing-
inu.
Bragi Bergmann ritstjóri
Dags tók norðlensku fjöl-
miðlana til skoðunar og
sagði m.a.: „Landsbyggðar-
menn hafa löngum verið
óhressir með það á hvern
hátt landsbyggðin birtist í
fjölmiðlum og taliö hana af-
skipta þar. Atriði eins og
neikvætt fréttamat og torvelt
aðgengi aö fjölmiölunum
hafa oft veriö nefnd í því
sambandi. Vissulega á þessl
gagnrýni við nokkur rök að
styðjast, en við sem búum á
landsbyggðinni, eigum
nokkra sök á því hvernig mál-
um er komið. Við höfum
almennt séð ekki verið nægi-
lega iðin við að koma lands-
byggöinni og því sem þar er
aö gerast á framfæri við fjöl-
miðla og hafa þannig áhrif á
bæði fréttamat og framboð
frétta þaðan.“
BREYTINGAR Á
VERKASKIPTINGU
Meðal stærstu og raun-
hæfustu verkefna dagsins i
landsbyggðarmálum er án efa
breytt verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga. Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráð-
herra, sagöi á þinginu að hún
hefði ekki getað fallist á þá
ákvörðun rikisstjórnarinnar
að fresta breytingum á verka-
skiptingunni um eitt ár og
sagöi aö þessi niðurstaða
hafi m.a. leitt til 250 millj. kr.
skerðingar á Jöfnunarsjóöi
sveitarfélaga.
„Nú er unnið að því að yfir-
fara fyrri tillögur i þessu efni
og gera á þeim nokkrar breyt-
ingar,“ sagöi Jóhanna. Miö-
ast breytingarnar við ábend-
ingar frá sveitarstjórnar-
mönnum sjálfum og fela f sér
að ríkið haldi áfram að greiða
beina styrki til íþrótta- og
æskulýðsfélaga en verkefnið
færist til sveitarfélaganna. Þá
er að sögn ráðherra reiknaö
með að rikið annist áfram
stofnkostnað og rekstur
sjúkrahúsa, en sveitarfélögin
stofnkostnað og rekstur
heilsugæslsustöðva. Eftirer
þó að ná niðurstöðu um
hvernig skilin þarna á milli
verða dregin.
Orðrétt sagði Jóhanna:
„Stærstu breytingarnar sem
gert er ráð fyrir eru á sviði
menntamála og heilbrigðis-
mála. Auk breytinga á sjálfri
verkaskiptingunni er gert ráð
fyrir að sveitarfélögin hætti
að greiða hluta af kostnaði
sjúkrasamlaga, hluta af
kostnaði við tannlækningar
og framlög til Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og ríkissjóöur
taki viö þessum skuldbind-
ingum... Breytingarnar ættu
að geta dregið úr „betliferð-
um“ sveitarstjórnarmanna í
ráðuneyti og til alþingis-
manna þar sem uppskeran er
oft býsna rýr miöað við fyrir-
höfn og tilkostnaö."
„ÞANGAÐ LEITAR KLÁRINN../'
Sveitarstjórnarmenn litu
yfir stöðu mála almennt og
til framtíðar. Fráfarandi for-
maður sambandsins, Valtýr
Sigurbjarnarson, sagði: „Eg
sagði í fyrra að stundum
fyndist mér máltækió „þang-
að leitar klárinn sem hann er
kvaldastur" eiga vel við ýmsa
þá sem eru í forsvari fyrir
sveitarfélög eða fyrirtæki á
landsbyggðinni. Þetta birtist í
grátferðum þeirratil Reykja-
víkur og í skrifum um hve
hagurlandsbyggðar sé
slæmur. Vissulega og því
miður á margt af því sem
grátið er yfir við rök að styöj-
ast en við megum aldrei
gleyma kostunum við aö búa
á landsbyggðinni og þeir eru
miklu fleiri en gallarnir.“
Áskell Einarsson lýsti fram
á veginn og sagði: „Tíundi
áratugurinn veröur tími opn-
unar Islands fyrir erlendu
fjármagnsstreymi og með
aöild landsins aö erlendum
stórmörkuðum. Landsbyggö-
armenn veröa að aölaga sig
aö nýjum þjóöfélagsháttum
og átta sig á hvaða verklag
hentar hverju sinni.“
AUGLÝSING
Fjármálaráðuneytið óskar að ráða starfsmann í hálft
starf til sendistarfa.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu eigi síðar en
27. september n.k.
Fjármálaráðuneytið, 14. september 1988
„Eins og nú háttar hefur litlum hluta
af ráðstöfunarfé Jöfnunarsjóðsins
verið varið til jöfnunar á milli sveitar-
félaga. Ég legg mikla áherslu á að
þessi hluti verði stóraukinn þannig að
sjóðurinn standi undir nafni... Ég tel
algerlega óviðunandi hversu mikið af
ráðstöfunarfé sjóðsins rennur til
Reykjavíkur. “
— Jóhanna Siguröardóttir, ráöherra sveitarstjórnarmála,
á Fjórðungsþingi Norðlendinga.