Alþýðublaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 7
Fimmtiidacjúf 15. september 1988
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Megrunarpillan á að hraða efna-
skiptunum, sem oft eru of hœg hjá
fólki sem þjáist af offitu. Hún á að
flýta fyrir brennslunni sem leiðir svo
til þess að vöðvamyndun verður
auðveldari.
eftir þeirri starfsemi tauga-
kerfisins, sem sér um eðli-
lega brennslu í líkamanum.
Brennsla í líkama manns
sem þjáist af offitu er of
hæg, og þegar pillan hraðar
brennslunni myndast frekar
vöðvavefir.
Danski framleiðandinn
gefur þær upplýsingar, að
margar tilraunir eigi eftir að
gera, bæði til að skrásetja
áhrifin og einnig til að full-
kanna aukaverkanir ef ein-
hverjar eru. Þessar tilraunir
veröa gerðar á sjúkrahúsum í
Danmörku og einnig í öðrum
löndum, en DAK vill ekki gefa
upplýsingar um hvar þær fara
fram til þess að hafa frið fyrir
áhugasömum sjúklingum.
Mögulegt er að pillan veröi
notuð í öðru samhengi. Gerð-
ar hafa verið tilraunir á kjúkl-
ingum og svínum. Árangur-
inn var vöðvameiri kjúklingar
og minni fiturönd á svína-
kjöti.
Danskt fyrirtœki er vel á veg
komið í þróun á pillu gegn
fitu. Pillan breytir spikinu í
vöðva.
Innan fárra ára er talið, aö
læknar muni geta hjálpað
fólki sem þjáist af offitu. Það
er fyrirtæki lyfsalasambands-
ins, DAK A/S, sem hefur unn-
ið að þessu. Pillan hefur
verið reynd á 200 sjúklingum
á Hvidovre-sjúkrahúsinu.
Menn segja árangurinn vera
„töluverðan“, þó ekki hafi
fengist upplýsingar um hve
mörg kíló hafi fokið.
Mörg alþjóðleg lyfjafyrir-
tæki vinna að þróun svipaðr-
ar megrunarpillu, og þeirri
sem danska fyrirtækið er
sagt vera komið langleiðina
með.
Dr. med. Arne Astrup sér-
fræðingur í offitu (efnaskipta)
sjúkdómum, segir að nú
þegar sé í notkun í Bretlandi
megrunarpilla, en heilbrigðis-
yfirvöld í Danmörku hafa ekki
upplýst hvort sú pilla sé við-
urkennd í Danmörku.
HRAÐAR EFNASKIPTUM
Pilla þessi er sögð líkja
Þessi mynd er
tekin á Bellevue-
ströndinni i mai sl.
Hún skýrir sig
sjálf!
FIIAN
VERÐUR AB
VÖÐVUM
GEGN LYFSEÐLI
Nú á tímum er mikill áhugi
fyrir megrunarlyfjum. Tegund-
irnar eru ótrúlega margar, og
eru til sölu í heilsuverslunum
og hjá ýmsum aðilum. í Dan-
mörku hefur Helsingör-pillan
verið eina megrunarlyfið,
sem fram aö þessu hefur
hlotið viðurkenningu sem
lækningalyf, hún er seld
gegn lyfseðli og ku draga úr
matarlist.
Ekki mun verða frjáls sala
á þessari pillu í Danmörku, í
fyrsta lagi verður hún aðeins
seld gegn lyfseðli, í öðru lagi
verður hún seld í smá-
skömmtum i sambandi við
læknismeðferð og matarkúr,
og aðeins fólki sem á við of-
fituvandamál að stríða verður
gefin þessi pilla.
SJÚKRASÖGUR
Dr. med. Arne Astrup segir
að sjúklingar með offitu-
vandamál, sem hafa fengið
offitusjúkdóma svo sem gigt,
sykursýki, háan blóðþrýsting
o.þ.h., verði forgangshópar
þegar þar að kemur. Hvað
stór sá hópur er í Danmörku
vita menn ekki, engar skrán-
ingar eru til þar að lútandi.
„Siðast þegar blöð fjölluðu
um megrunarpillu, fékk ég
300 bréf frá óhamingjusömu
fólki með offituvandamál, og
jafnvel frá Þýskalandi, og
margir sendu peninga í þeirri
trú að ég gæti selt þeim pill-
una. Oft fylgdu langar sjúkra-
sögur og það var hörmulegt
að heyra hvernig fólkinu
leið“, sagði Arne Astrup og
biður fólk jafnframt að sýna
þolinmæði í bið þess eftir
megrunarpillunni.
ÚTFLUTNINGUR
Megrunarpillan er einn
liður í útflutningsáformum
DAK, og allt útlit fyrir aö hún
verði mikil útflutningsvara.
Þó brýn þörf sé fyrir megrun-
arpillu á dönskum markaði er
það ekki nóg til að standa
undir rannsóknarkostnaðin-
um sem fylgir þróun og fram-
leiðslu á_nýjum lyfjum.
Dr. med. Arne Astrup bend-
ir á Bandaríkin, sem dæmi
um land þar sem offita virð-
ist vera orðin landlægur
sjúkdómur, og brýn þörf á
megrunarlyfjum.
Hann segir: „í Bandaríkjun-
um er mönnum farið að
blöskra offituvandamálið en
talið er að helmingur banda-
rísku þjóöarinnar eigi við
þetta vandamál að stríða.
Það eru ekki hvað síst börn
og unglingar þar í landi sem
eru haldin þessum sjúkdómi,
mörgum sinnum fleiri en í
Vestur-Evrópu. Við höfum
vanist því að það sem er að
ske í Bandaríkjunum kemur
til okkar tiu til fimmtán árum
seinna, það er því ekki frá-
leitt að við reynum að taka
okkur tak i tima.
(Det fri Aktuelt.)