Alþýðublaðið - 22.09.1988, Blaðsíða 1
Guðrún Agnarsdóttir
REIDUBÚNAR í
STJÓRN TIL
SKANINIS TÍMA
„Við erum fyrst og fremst
reiðubúnar í samstjórn, en ef
því er algjörlega hafnað, þá
erum við reiðubúnar til að
endurskoða möguleika á öðr-
um stjórnarmynstrum, — en
alls ekki til frambúðar. Þetta
hafa menn látið liggja á milli
hluta þegar þeir hafa verið að
túlka það sem sagt var á
þessum fundi okkar með
flokkunum," sagði Guðrún
Agnarsdóttir við Alþýðu-
blaðið í gær. Á bls. 5 skýrir
Guðrún nánar afstöðu
Kvennalistans til stjórnarþát-
ttöku.
Stefán Valgeirsson
MUN TRYGGJA
MEIRIHLUTA í
BÁÐUM
DEILDUM
„Ef kemur jákvætt út úr
samtölum viö mitt fólk, þá er
ég tilbúinn,“ sagði Stefán
Valgeirsson þingmaður Sam-
taka um jafnrétti og félags-
hyggju við Alþýðublaðið i
gær. Stefán segist hafa til-
kynnt Halldóri Asgrímssyni
og Steingrimi Hermannssyni
þessa afstöðu sina á þriðju-
dagskvöld, með þeim fyrir-
vara að hann ætti eftir að
ræða við sitt fólk.
Hann virðist því persónu-
lega ekki hafa á móti ríkis-
stjórn sem Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur standa að og
segist raunar geta tryggt
meirihluta stuðning við slikt
stjórnarmynstur í báðum
þingdeildum. Aðspurður vildi
hann hins vegar ekki gefa
upp nöfn þessara ákveðnu
þingmanna.
Stjórnarmyndun Steingríms
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
RÆÐUR ÚRSLITUNUM
Stuðningur Stefáns Valgeirssonar í höfn. Jafnvel meirihluti í báðum deildum. Hugsanlegt
að Alþýðubandalagið bíði með beina stjórnarþátttöku í nokkrar vikur.
E f tir viðræðufund fulltrúa
Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Framsóknar í gær
er Ijóst að niöurstaöa til-
raunar Steingríms Hermanns
sonar til stjórnarmyndunar
hvílir á Alþýðubandalaginu.
Stuðningur Stefáns Valgeirs-
sonar virðist í höfn, en hann
segist jafnframt geta tryggt
meirihluta i báðum deildum
þingsins eftir samtöl sín við
ákveðna þingmenn. Ríkis-
stjórn með stuðningi flokk-
anna þriggja auk Stefáns
hefði 32 þingmenn á bak viö
sig, heföi meirihluta í efri
deild og gæti varist van-
trausti i sameinuðu þingi.
Stefán neitaði hins vegar að
gefa upp nöfn huldumanna
sinna, sem væntanlega eru í
neðri deild þingsins og
tryggöu einnig meirihluta
stuðning þar.
Alþýöubandalagsmenn
ætluðu í gærkvöldi að ræða
ítarlega afstöðu sína til
stjórnarmyndunar og sagðist
Steingrímur Hermannsson
vænta þess að niðurstaða til-
raunarinnar lægi fyrir eigi
siðar en fyrir hádegi í dag. Á
föstudag rennur út sá frestur
sem hann talaði um þegar
forseti íslands fól honum
umboð til stjórnarmyndunar.
Hann sagðist hins vegar gera
ráð fyrir að skila umboði sínu
í dag, ef ekki næðist saman.
Af samtölum sem Alþýðu-
blaðið átti við þingmenn í
gær má ráða að jafnvel komi
til greina að Alþýðubanda-
lagiö komi ekki strax inn i
rikisstjórn, heldur undirbúi
sig fyrir þátttöku í nokkrar
vikur og komi inn I stjórnina
fyrir þingbyrjun.
Svo virðist sem Alþýðu-
flokkur og Framsókn hniki
ekki frá sameiginlegri yfirlýs-
ingu sinni gagnvart Alþýðu-
bandalaginu, en talið er að
flokkarnir telji sig geta komið
til móts við Álþýðubanda-
lagið með loforði um frjálsa
samninga frá áramótum.
Ólafur Ragnar Grimsson, formaður Alþýðubandalagsins sagði að viðræðurnar í gær hefðu verið gagnlegar. í gærkvöldi var búist við að Alþýðu-
bandalagsmenn mótuðu endanlega afstöðu sina til stjórnarþátttöku. A-mynd/Magnús Reynir. ,
24.000 KRÓNA GJÁ
Nú hefur verið reiknað út að „vísitölufjölskyldan“ þurfi 150.300 krónur í hreinar ráðstöfunartekjur á
mánuði til að framfleyta sér og sínum. Það er aðeins í stöku undantekningartilvikum sem það dugir að
hafa eina fyrirvinnu. I Alþýðublaðinu í dag er á bls. 4 fjallað um framfœrsluþörfina samkvœmt útreikn-
ingum Hagstofunnar og tekjur launþeganna samkvœmt útreikningi Kjararannsóknarnefndar. Meðal
annars er rökum leitt að því að hjón sem bœði eru fullvinnandi og í bullandi eftirvinnu þurfi 24.000 fleiri
krónur inn á heimilið til þess að geta framfleytt sér í samrœmi við formúlu „vísitölufjölskyldunnar“.
Þetta þýðir um 20% launahœkkun hjá verkámönnum og verkakonum.