Alþýðublaðið - 22.09.1988, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 22.09.1988, Qupperneq 3
Fimmtudagur 22. september 1988 3 FRÉTTIR Afgreiðslan gengur vel hjá Lánasjóði námsmanna FERÐAMENN FÁ SÖLUSKATT- INN ENDURGREIDDAN Samkvæmt nýrri reglugerð sem fjármálaráðuneytið kynnti i gærgeta erlendir feröamenn eftirleiðis verið öruggir um aö fá endur- greiddan söluskatt hafi þeir verslað hér á landi fyrir ákveðna lágmarksupphæð, 3000 krónur. Endurgreiösla skattsins fer fram í fríhöfninni í Keflavík. Reglugerðin tekur gildi 1. október næst komandi. Fasteignaverð JAFNVÆGI AÐ NÁST? Fyrsta ársfjórðung 1988 hækkaði söluverð fjölbýlis- íbúða í Reykjavik lítillega umfram lánskjaravísitölu frá því sem var á fjóröa ársfjórð- ungi 1987. Kemur þetta fram i upplýsingum frá Fasteigna- mati rikisins og segir þar einnig, að þessar litlu verð- breytingar gefi til kynna að jafnvægi sé að nást á markaðnum. Segir þar að raunverð endursöluíbúða hafi verið orðið meö því hæsta sem mælst hafi s.l. tuttugu ár. Þá gefi lækkun á útborgunar- hlutfalli um rúm 3% frá árs- fjórðungnum á undan til kynna aukinn stöðugleika á markaðnum. Samkvæmt upplýsingum Fasteignamatsins hækkuðu íbúðir í takt við almennar verðhækkanir á tímabilinu nóvember 1987 fram í mars 1988, og megi því segja aó raunverö hafi staðið í stað á tímabilinu. SJÓÐVÉLARNAR KYNNTAR 600 MILLJONIR ÚT FYRIR ÁRAMÓT Að sögn Þorbjörns Guðjónssonar framkvæmda- stjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur afgreiðsla hjá sjóðnum gengið með ágætum og er þegar búið aö afgreiða umsóknir um 70% þeirra sem rétt hafa á lánum fyrir áramót. Heildarupphæð lánanna fyrir áramót verður liklega um 600 milljónir króna. Lánsumsóknir fyrir skóla- árið 1988-89 eru mjög svip- aðar og i fyrra, eða 5090 samanborið við 5224 í fyrra. Að sögn Þorbjörns er þegar búið að afgreiða umsóknir 2200 lánþega, en á sama tíma í fyrra var aöeins búið að afgreiða 1440 umsóknir. Alls er reiknað með að 3900 námsmenn eigi rétt á lánum fyrir áramót. Upphæðin sem afgreidd hefur verið á skulda- bréf nemur um 500 millj- ónum. Þessi fjárhæð kemur þó ekki öll til útborgunar fyrir áramót, þar sem skuldabréfin til námsnanna á íslandi gera ráð fyrir framfærslu frá upp- hafi skólaárs fram í mars. Samkvæmt lánunum er framfærsla einstaklings um 33.400 krónur. Námsmaður með 1 barn fær 41.773 krónur og rúmar 50 þúsund krónur með tvö börn. Framfærsla hjóna með eitt barn er 83.545 krónur á mánuði og hjón með tvö börn frá rétt rúmar 100 þúsund krónur. Einstætt foreldri með eitt barn fær um 50 þúsund, með tvö börn um 67 þúsund krónur og með þrjú börn um 83 þúsund krónur. Kvennalistinn ÞJOÐSTJÓRNARTIL- LÖGUR í SJÖ LIDUM Fjármálaráðuneytið kynnti í gær nýja reglugerð um notkun peningakassa, eða sjóðvéla eins og kassarnir hafa verið kallaðir á stofnana- máli. Að sögn Stefáns Friðfinns- sonar, aðstoðarmanns fjár- málaráðherra, er þetta liður í mjög hertu söluskattseftirliti. Nýja reglugerðin nær til margra aðila sem fram að þessu hafa ekki þurft aö notast við peningakassa. Reglugerðin tekur gildi frá og með 1. október. í viðræðum sem kvenna- listakonur hafa átt með full- trúum hinna flokkanna að undanförnu hafa þær kynnt ákveðin atriði sem þær telja að öll stjórnmálasamtök geti verið sammála um. Um er að ræða aðgerðir i sjö liðum: 1. Greiðsla verð- bóta vegna framleiðslu á freðfiski og skelfiski. 2. Lækkun orkukostnaðar til framleiðslugreinanna. 3. Stofnun viðreisnarsjóðs at- vinnuveganna, skuldbreyt- inga- og lánafyrirgreiðslu- sjóðs. 4. Lækkun vaxta með lagaboði, ef ekki með þrýst- ingi. 5. Breytta samsetningu lánskjaravísitölu. 6. Breyttur útreikningur dráttarvaxta. 7. Hallalaus fjárlög, aðhalds- söm lánsfjárlög. Skoskir ferdamálafrömuöir standa þessa dagana fyrir ýmisskonar uppákomum hér á landi til kynningar á landi sínu og þjóð. í gær buðu þeir upp á sekkjapípublástur, dans, mat og wisky í sérstöku boði á Hótel Loftleiðum. Tillögur Borgaraflokksins TALDAR KOSTA 10-12 MILLJARÐA I könnunarviðræðum að undanförnu hafa Borgara- flokksmenn viðrað hugmynd- ir sínar í grófum dráttum. Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins eru tillög- urnar ekki nákvæmlega útfærðar, en felast aöallega í afnámi matarskatts og láns- kjaravísitölu auk 20% hækk- unar persónuafsláttar. Sér- fræðingar Framsóknar og Alþýðuflokks eru sagðir meta tillögurnar sem 10-20 millj- arða króna útgjaldaauka fyrir ríkissjóð. NÝR FORMAÐUR VERÐLAGSRÁÐS Viðskiptaráðherra skipaði i gær Atla Frey Guðmunds- son, deildarstjóra i viöskipta- ráðuneytinu, formann Verð- lagsráðs frá 1. október n.k. í stað Sveins Björnssonar, fyrr- um skrifstofustjóra í við- skiptaráðuneytinu, sem tekið hefur við starfi sendifulltrúa í utanrikisráðuneytinu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.