Alþýðublaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. október 1988
3
FRETTIR
Hlutkesti í neðrideild Alþingis
9-0 FYRIR STJÓRNARLIÐA
Stjórnarflokkarnir þurftu
ekki á neinum huldumanni
aö halda við nefndarkosning-
ar í neðri deild Alþingis i
gær. Þeim nægðu heilladís-
irnar. 9 sinnum þurftu stjórn-
arsinni og stjórnarandstæð-
ingur að draga úr 63 tening-
um til að fá úr þvi skorið hver
fengi hærri tölu, hvor þeirra
kæmist þá i viðkomandi
nefnd og um leið hvort meiri-
hluti nefndarmanna væru
stjórnarsinnar eða stjórnar-
andstæðingar. í öll skiptin
drógu stjórnarsinnar hærri
tölu og mætti þvi ætla að sá
sem öllu ræður ætli ríkis-
stjórninni gæfu og gengis og
verji hana falli!
Sem kunnugt er standa
stjórnarflokkarnir og stjórnar-
andstöðuflokkarnir jafnt aö
vígi í neðri deild Alþingis. í
sameinuðu þingi og efri deild
er meirihlutinn stjórnarflokk-
anna og þar náðu þeir enda
meirihluta i öllum nefndum.
Menn biðu því spenntir eftir
atkvæðagreiðslunni í neðri
deild. Svo fór í öll 9 skiptin
að atkvæði voru jöfn, 21 gegn
21. Því varö að draga hlut í
hvert skipti.
Fyrsta nefndin í röðinni var
fjárhags- og viðskiptanefnd.
Hlut drógu þeir Páll Péturs-
son Framsóknarflokki og
Friðrik Sophusson Sjálfstæð-
isflokki. Páll dró töluna 46 en
Friðrik töluna 26.
Næst kom að samgöngu-
nefnd. Þar dró Guðni Ágústs-
son Framsóknarflokki töluna
21 en Guðrún Halldórsdóttir
Kvennalista dró fyrir hönd
Þórhildar Þorleifsdóttur töl-
una 7.
Landbúnaðarnefnd kom
síöan og þar dró Alexander
Stefánsson Framsóknarflokki
töluna 26 en Málmfríður
Sigurðardóttir Kvennalista
töluna 20.
Guðni Ágústsson komst í
sjávarútvegsnefnd með því
að draga töluna 45 en Guð-
rún Halldórsdóttir dró töluna
29 fyrir Þórhildi Þorleifsdótt-
ur.
Atvinnusjóður
útflutningsgreina
Fjallað um
reglugerð
„Á þessum fundi var að-
eins farið yfir þau drög að
reglugerð sem forsætisráð-
herra lagði fyrir stjórnina til
kynningar" sagði Kristján
Skarphéðinsson deildarstjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, en
hann á sæti i stjórn At-
vinnugryggingasjóðs útflutn-
ingsgreina.
Fyrsti fundur stjórnar At-
vinnutryggingasjóðs útflutn-
ingsgreina var haldinn í gær.
Fyrir fundinn voru lögð þau
drög að reglugerð sem for-
sætisráðherra hafði gert, og
stjórninni gefinn kostur á því
að gera athugasemdir við
þau. Að sögn Kristjáns
Skarphéðinssonar, sem er til-
nefndur f stjórnina af sjávar-
útvegsráðherra, munu at-
hugasemdirnar verða afhent-
ar forsætisráðherra, sem
mun síöan vega og meta
hvort þær verði teknar til
greina.
Fimmta nefndin var iðnað-
arnefnd. Páll Pétursson dró
töluna 53 en Geir H. Haarde
Sjálfstæðisflokki fékk bara 2.
Nú voru þingmenn orðnir
ansi gáttaðir eins og aðrir
nærstaddir og sá Albert Guð-
mundsson ástæðu til að
biðja um orðið. Gerði hann
huldumanninn stuttlega að
umræðuefni, spurði hvort
einhver saknaði ekki félaga
síns og fullyrti að stjórnin
væri mynduð á fölskum for-
sendum.
Næst kom að félagsmála-
nefnd. Þar dró Jón Kristjáns-
son Framsóknarflokki töluna
51, en Óli Þ. Guðbjartsson
Borgaraflokki dró töluna 33.
Staðan var orðin 6-0 og menn
gátu ekki varist hlátri.
Þá kom að heilbrigðis- og
trygginganefnd. Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson Al-
þýðuflokki dró töluna 37 en
Guðrún Halldórsdóttir töluna
24.
Áttunda nefndin var
menntamálanefnd og töldu
menn einsýnt að þar myndi
Óli Þ. Guðbjartsson sigra
Ólaf Þ. Þórðarson Framsókn-
arflokki. En Ólafur dró töluna
37 á meðan Óli fékk aðeins 3.
Óli Þ. Guðbjartsson þurfti
að draga i þriðja sinn þegar
kom að síðustu nefndinni,
Allsherjarnefnd. Fyrst dró
Geir Gunnarsson Alþýðu-
bandalagi töluna 12, lægstu
töluna sem stjórnarliðar
höfðu fengið. Menn bókuðu
því Óla sigur. En hann dró
töluna 9 og fullnaðarsigur
Már Guðmunds-
son efnahagsráð-
gjafi Ólafs
Ragnars
Már Guðmundsson hefur
verið ráðinn efnahagsráðgjafi
fjármálaráðherra. Már er 34
ára hagfræðingur og hefur
verið fastur starfsmaður í
hagfræðideiid Seðlabankans
frá árinu 1981.
Hann stundaði nám i hag-
fræði og stærðfræði við há-
skólann í Gautaborg í Sví-
þjóð, veturinn 1976-1977, en
lauk BA prófi í hagfræði frá
háskólanum í Essex, Eng-
landi , vorið I979 og M.Phil.
prófi frá háskólanum i Cam-
bridge um gengismál og auð-
lindahagfræði.
„Maður vonar hið besta, en
það getur brugðið til beggja
vona. Ég er bjartsýnn núna,
af þvi að það er búið að
skipta um rikisstjórn” sagði
Þórður Óiafsson formaður
verkalýðsfélagsins i Þorláks-
höfn um atvinnuástandið þar,
en uppsögnum hjá Meitlinum
var frestað fram að næstu
mánaðamótum.
Örlög Meitilsins í Þorláks-
höfn, sem átt hefur í miklum
rekstrarörðugleikum undan-
farið, hafa ekki enn verið ráð-
in. í september var öllum
stjórnarliða varð Ijós. I þing-
salnum hristu menn höfuð
sín og brostu, stjórnarliðar
yfir yfirnáttúrulegri heppni
sinni, en stjórnarandstæðing-
ar yfir hróplegri óheppni.
7 Framsóknarmenn, 1 Al-
þýðuflokksmaður og 1 Al-
þýðubandalagsmaður höfðu
sigrað 4 Kvennalistakonur, 3
Borgaraflokksmenn og 2
Sjálfstæðismenn. Þótt úrslit-
in hafi verið næsta ótrúleg
Sighvatur Björgvinsson
verður formaður Fjárveitinga-
nefndar sameinaðs þings,
eins og á síðasta þingi.
Nefndin er skipuð sömu 9
mönnum og síðast að því
undanskiidu að Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson Al-
þýðuflokki kemur i stað Frið-
jóns Þórðarsonar Sjálf-
stæðisflokki. Um leið fengu
Norðlendingar vestra mann
frá Vestlendingum.
Fyrir utan Sighvat eru í
Fjárveitinganefnd þau Alex-
ander Stefánsson, Margrét
Frimannsdóttir, Ólafur Þ.
Þórðarson og Jón Sæmundur
starfsmönnum hans sagt
upp, en uppsögnunum síðan
frestað til októberloka meðan
leitast var við að skapa nýjan
rekstrargrundvöll fyrir fyrir-
tækið. Starfsfólkið bíður nú í
mikilli óvissu um hvert fram-
haldið verður, en Þórður
Ólafsson formaður verkalýðs-
félags staðarins kvaðst hafa
ástæðu til bjartsýni.
Þórður sagði það ekki
koma sér á óvart að nú væri
farið að segja upp fastráðn-
ingarsamningum í fiskvinnu
viða um land, þó vissulega
þá eru þau ekki einsdæmi. A
göngum Alþingis rifjaði Matt-
hías Á. Mathiesen það upp,
að haustið 1959, þegar minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins
ríkti með hlutleysi Sjálfstæð-
isflokksins, hefði hlutkesti
farið fram alls 16 sinnum og
þá hafði sameiginlegur listi
Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokks sigrað sameig-
inlegan lista Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks alls 15-1.
Sigurjónsson frá stjórnar-
flokkunum og þau Pálmi
Jónsson, Óli Þ. Guðbjarts-
son, Egill Jónsson og Málm-
fríður Siguröardóttir frá
stjórnarandstöðunni.
Jóhann Einvarðsson tekur
sæti Páls Péturssonar i utan-
ríkismálanefnd og verður for-
maður að auki. Aðrir aðal-
menn eru Kjartan Jóhanns-
son, Hjörleifur Guttormsson
og Guðmundur G. Þórarins-
son frá stjórnarflokkunum og
Eyjólfur K. Jónsson, Kristín
Einarsdóttir og Ragnhildur
Helgadóttir frá stjórnarand-
stöðunni. Fram kom þriðji
það væru slæmar fréttir.
„Allir þeir sem hafa fylgst
rheð atvinnu- og efnahags-
málum hér á landi sáu í hvað
stefndi strax í fyrrahaust.
Það var fært það mikið fjár-
magn frá fiskvinnslunni yfir i
þjónustugreinarnar með fast-
gengisstefnunni, að það
hlaut að springa. Þetta er af-
leiðing þess” sagði Þórður.
Hann sagðist þó bjartsýnn á
að atvinnulífinu yrði kippt í
lag aftur eftir að skipt hefði
verið um ríkisstjórn, og losn-
að við frjálshyggjuna út úr
henni.
Verðbólga
á niðurleið
Visitala framfærlsukostn-
aðar í októberbyrjun reyndist
0.36% hærri en í september.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
framfærsiuvísitalan hækkað
um 26.6%, en undanfarna
þrjá mánuði hefur hún hækk-
að um 3.2% sem jafngildir
13.3% verðbólgu á heilu ári.
Af hækkun vísitölunnar um
0.36% frá september til októ-
ber stafa um 0.2% af haékk-
un á verði fatnaðar, en verð-
hækkun ýmissa vöru- og
þjónustuliða olli nálægt
0.2% hækkun visitölunnar.
listinn frá Borgaraflokknum
með nafni Hreggviðs Jóns-
sonar, en hann var dreginn til
baka. Kvennalistinn hefur um
leið fengið sæti i nefndinni á
kostnað Borgaraflokksins, en
á móti verður Hreggviðúr
varamaður Kristínar Einars-
dóttur.
Samgönguráðuneytið
Engin áform um
byggingu vara-
flugvaliar i sam-
vinnu við Nato
Samgönguráðuneytið fyrir-
hugar engar framkvæmdir við
gerð varaflugvallar i sam-
vinnu við Bandarikjaher og
flotastjórn Atlantshafsbanda-
lagsins og hefur þvi slitið
viðræðum formlega fyrir sitt
leyti.
Það var í nóvember 1986
sem Matthías Bjarnason, þá-
verandi samgönguráðherra,
skipaði tvo fulltrúa sem
ásamt fulltrúum frá utanríkis-
ráðuneyti skyldu taka þátt í
viðræðum við fulltrúa Banda-
rikjahers og flotastjórnar
Nato um gerð varaflugvallar
hér landi og hugsanlega þátt-
töku Bandaríkjahers í því
skyni.
Viðræður þessar áttu sér
stað á tveimur fundum í
desember I986 og janúar
I987, en þá skiluðu íslensku
fulltrúarnir greinargerð um
viðræðurnar til viðkomandi
ráðherra. Engar viðræður
milli þessara aðila hafa átt
sér stað slðan og f gær var
þeim formlega slitið.
Á myndinni er verið að draga um hvort þeirra Alexander Stefánsson eða Málmfríður Sigurðardóttir skyldu fá
saeti í landbúnaðarnefnd neðri deildar Alþingis. Alexander dró töluna 26 en Málmfriður töluna 20. Staðan varö
þá 3-0 fyrir stjórnarliða, en leikar fóru 9-0.
Fjárveitingarnefnd
JÓN SÆMUNDUR í STAÐ
FRIÐJÓNS ÞDRÐARSONAR
Meitillinn hf
ÁSTÆÐA TIL RJARTSÝNI
segir Þórður Ólafsson formaður verkalýðsfélagsins