Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 5

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 5
Laugardagur 19. nóvember 1988 5 FRÉTTIR Drög að stjórnmálaályktun flokksþings Alþýðuflokksins FLOKKAKERFIÐ AD GANGA ÚR SÉR „Almenningur gerir kröfur um nýjar áherslur“ — Rík áhersla á alþjóðasam- starf í friðar-, umhverfis- og efnahagsmálum. Tœkifœri til aukinnar álfram- leiðslu verði könnuð til hlítar. „I stjórnmálum verður æ Ijósara að núverandi flokka kerfi gengur óðum úr sér,“ segir m.a. í drögum að stjórnmályktun flokksþings Alþýðuflokksins.“ Fjölgun flokka á Alþingi hefur gert það ákaflega erfitt að mynda samhenta ríkisstjórn sem getur fylgt markvissri stefnu. Flokkum hefur hins vegar fjölgað vegna þess að gömlu flokkarnir fjórir hafa verið ákaflega seinir til að svara kalli timans. Almenningur gerir kröfur um nýjar áherslur í stjórnmálum sem gömlu flokkarnir hafa ekki tileinkað sér. í þessu liggur meðal annars skýringin á undirtekt- um almennings við málflutn- ing Kvennalistans, sem einn- ig er þó auðvitaö athvarf óánægðra." Lengsti kafli ályktunarinn- ar fjallar um alþjóðasamstarf um friðarmál, umhverfismál og efnahagsmál. Þar er hvatt til aukins samstarfs á al- þjóðavettvangi og segir að ís- lendingar verði að taka þátt í þeirri samræmingu á löggjöf og viðskiptareglum sem á sér stað vegna innri markað- ar Evrópubandalagsins 1992. „Mikilvægt er aö arðsemis- sjónarmið séu höfð að leiðar- Ijósi við ákvarðanir um fjár- festingu og rekstur," segir i kafla um markvissa iðnaðar- uppbyggingu. Þar segir enn- fremur að Alþýðuflokkurinn Frá setningu 44. flokksþings Alþýðuflokksins á Hótel Islandi í gær. A- mynd/Magnús Reynir. leggi á það sérstaka áherslu að tækifæri til þess að koma á laggirnar aukinni álfram- leiðslu verði könnuð til hlítar í samhengi við þróun at- vinnulifs og búsetu i landinu 'og uppbyggingu raforkukerf- isins. Þá segir m.a. í ályktuninni að leyfa eigi starfsemi er- lendra fjármálastofnana hér á landi á grundvelli almennra reglna til að auka samkeppni og bæta bankaþjónustu. HRIIN BLASIR VIÐ í ræðu sinni við setningu 20. flokksþings framsóknar- manna sem hófst í gær spáði Steingrímur Hemannsson, forsætisráðherra, áframhald- andi hruni þjóðartekna. „Þjóðhagsstofnun hefur spáð því að þjóðartekjur dragist saman á þessu og næsta ári um 5 til 6 af hundr- aði. Á grundvelli tillagna fiskifræðinganna er nú gert ráð fyrir þvi, að samdráttur i afla verði enn meiri en áður var talið nauðsynlegt. Þaö mun að sjálfsögðu enn auka erfiðleika útgeröar og fisk- vinnslu. Lækkun þjóðartekna veröur jafnframt meiri en áður var talið. Mér kæmi ekki á óvart þótt hún yrði á tveim- ur árum 6 til 8 af hundraði, þegar tekið er tillit til gjald- þrota og keðjuverkana af þeim. Það er í raun hrun,“ sagði Steingrimur. I ræðu sinni fórforsætis- ráðherra hörðum orðum um „frjálshyggjuarm Sjálfstæðis- flokksins" og sagði að hann hafi fyrst og fremst valdið stjórnarslitunum í haust. „Ég er sannfærður um að Þor- steinn Pálsson meinti það sem hann sagöi, þegar hann kom vestan af fjöröum. Það var hins vegar enn krumlan úr heiðnabergi íhaldsins, sem tók fram fyrir hendur hans. Því miður er það hún sem ræður hvenær, sem hagsmunir fjármagnsins eru taldir í hættu. Þannig sleit Sjálfstæðisflokkurinn stjórn- arsamstarfinu," sagði hann. í ræðu sinni sagði Stein- grímur að lánskjaravísitalan á nýjum lánum myndi breytast um næstu áramót og með beinum og óbeinum hæt-ti verði jafnframt lögð áhersla á að lántakendur geti fengið breytt eldri lánum yfir í nýju vísitöluna, ef þeir óska. Þá sagði forsætisráðherra að hann treysti því að bæði nafnvextirog raunvextir muni lækka eftir þessa helgi. Ef Seðlabankinn standi ekki fyrir því sé óhjákvæmilegt að beita lagaheimildum. Fram kom í ræðunni að erlendar skuldir vaxa á þessu ári í 45% þjóðartekna og muni að öllum líkindum fara yfir 50% á næsta ári. Þá muni greiöslubyrðin að öllum líkindum fara yfir 20 af hundr- aði gjaldeyristekna þjóðar- búsins á næsta ári. „Ég má ekki hugsa til þess sem ger- ist ef gjaldeyrisöflunin stöðv- ast við þessar aðstæður," sagði Steingrímur. Ennfremur ræddi Stein- grímur um ágreining stjórnar- flokkanna um álversstækkun og sagði sjálfsagt aö halda áfram athugun þess máls en ríkisstjórnin gæti ekki flutt frumvarp um stóriðjufram- kvæmdir án samþykkis allra stjórnarflokkanna. Þaö væri líka útilokað að rannsókn á slíkum stóriðjukosti yrði lok- iö á þessu kjörtímabili. Steingrímur boðaði nauð- syn á endurskipulagi banka- kerfisins. „Banka þarf að sameina, hvað sem þeir heita, og ákveða ber hámark leyfilegs vaxtamunar. Yfir- stjórn Seðlabankans á skil- yrðislaust og án tafar að framfylgja stefnu ríkisstjórn- ar. Víða fara og koma seðla- bankastjórar með ríkisstjórn- um. Það er líklega skynsam- legt,“ sagði forsætisráðherra og formaður Framsóknar- flokksins í ræðu sinni i gær. Steingrímur Hermannsson forsœtisráðherra lýsti svörtum framtíðarhorfum í rœðu sinni á flokksþingi Framsóknar. Frjálshyggjuarmur Sjálfstæðisflokksins fékk harkalega ádrepu frá Steingrími. Lítil vinna hjá vörubílstjórum ÓSKILVÍSI VERKTAKA VANDAMÁL Vinna hjá vörubifreiðastjór- um í Reykjavík hefur fariö niður í 1 klukkustund á dag og jafnvel enga að undan- förnu aö sögn Braga Sigur- jónssonar formanns Þróttar og Landssambands vöru- bifreiðastjóra. Segir hann óskilvísi verktaka vera stórt vandamál hjá vörubílstjórum. Landssamband vöru- bifreiðastjóra hélt sitt 18. þing fyrir skömmu. Ýmsar ályktanir voru samþykktar þar, m.a. að landssambandið beitti öllum tiltækum ráðum til að tryggja betur en nú at- vinnuréttindi félagsmanna við allan akstur á vörum og jarðefnum á hverju félags- svæði fyrir sig. Einnig er skorað á samgönguráðherra að láta gera úttekt á núver- andi framkvæmd útboða meö tilliti til hagkvæmni þeirra fyrir þjóðina. Einnig að verk- kaupi sem er ábyrgur fyrir vali á verktaka, sé lika gerður ábyrgur fyrir skuldbindingum • verktakans við sína þjónustu- aðila. Bragi segir í samtali viö Al- þýðublaðið að samdráttur sé núna, en það sé ekkert nýtt þar sem þetta sé árstíða- bundin vinna. „En það haust- aði heldur snemma hérna hjá okkur í Reykjavík. Okkur vant- ar vinnu fyrir svona 30 bíla á Þrótti til að það sé gott líf í þessu.“ Hann sagði að mis- jafnt væri hve mörgum vinnu- stundum menn næðu nú á viku, enda væru sumir i fastri vinnu hjá fyrirtækjum, en af- ar daprir tímar væru hjá þeim sem væru á stöðinni og gæti vinnan farið allt niður í 1 klst. á dag eða jafnvel enga eins og tilfellið væri hjá sunríum. Færi þetta nokkuð eftir út- búnaði bilanna. Félagsmenn í landssambandinu hafa yfir að ráða um 640 bilum og þar af eru um 150 hjá Þrótti í Reykjavík. Bragi taldi að ástandið hafi verið einna verst á þessu ári í Vest- mannaeyjum og einnig hafi lítið verið aö gera í Neskaup- stað, en best sennilega i Hafnarfirði og þokkalegt í sumar á Akureyri og á höfuð- borgarsvæðinu. Vinna um allt land vegna Vegagerðarinnar hafi fariö minnkandi og einn- ig á vegum Reykjavikurborg- ar. Bragi sagðist ekki reikna með að vörubifreiðastjórum í Reykjavík myndi fækka nú, en úti á landi hafi orðið fækkun að undanförnu. „Stórt vandamál hjá okkur vörubílstjórum og lands- byggöarfólki sérstaklega, er óskilvísi verktaka, hún er alveg með ólíkindum mikil. Ég er búinn að fá yfirlit frá bílstjórum og þar koma fram háar tölur. Verktakar hafa boðið það lágt að þeir hafa farið á hausinn. Þetta á ekki við um alla verktaka, sumir eru alveg 100% skilvísir, en það hefur verið mjög mikið um þetta, þvi miður." Bragi sagði að yfirleitt væri um glatað fé að ræða þegar verk- takar yröu gjaldþrota. Verkefnalausir vörubilar Jijá Þrótti. A-mynd/Maqnús Reynir. Bráð'abirgðatölur um fiskafla jan. til okt. HEILDARAFLI TÆP 1300 ÞÚSUND T0NN Samkvæmt bráðabirgðatöl- um Fiskifélags íslands fyrir tímabilið janúar til október 1988 veröur heildaraflinn fyrir tímabilið 1.298.683 tonn, en í fyrra var aflinn 1.175.996 tonn. Áætlað er að þorskafl- inn verði 315.103 tonn, en i fyrra var hann 332.408 tonn. I skýrslunni kemur fram aö mestur hluti aflans berst að landi með bátunum eða rúm 900 þúsund tonn og munar þar að sjálfsögðu mest um loðnuna, en hún er áætluð 655 þúsund tonn. Gert er ráð fyrir aö togarar landi um 350 þúsund tonnum. Vestmannaeyjar eru enn sem fyrr afkastamesta ver- stöðin og er reiknað með að þangað hafi borist á um- ræddu tímabili rúm 17 þús- und tonn af þorski, en í fyrra bárust þangað tæp 11 þús- und tonn af þorski.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.