Alþýðublaðið - 19.11.1988, Qupperneq 9
Laugardagur 19. nóvember 1988
9
Jarðgangnagerð er umtal-
aðasta framtíðarmálið i Aust-
urlandskjördæmi um þessar
mundir. Austfirðingar hafa
mikinn áhuga á þessu máli
og það var mjög umrætt á
síðasta aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga á Austurlandi.
Austfirðingar telja bættar
samgöngur vera eitt mikil-
vægsta málið þegar litið er
til framþróunar byggðar á
svæðinu. Svo mikilvægt að
þeir hafa sjálfir látið fram-
kvæma ýmsar undirbúnings-
rannsóknir án þess að aðrir
kæmu þar til sögu. Nú hefur
það hinsvegar nýverið gerst
að Samgönguráðuneytið hef-
ur látið skipa nefnd til að
kanna þessa jarðgangnagerð
til hlítar. í henni eiga sæti
auk heimamanna, fulltrúar
frá Byggðastofnun, ráðuneyt-
inu og Vegagerðinni.
í samtali Alþýðublaðsins
við Magnús Guðmundsson,
bæjarfulltrúa á Seyðisfirði
kom fram að sá möguleiki
sem menn hafa helst velt
fyrir sér eru jarðgöng sem
myndú tengja saman firðina
svokölluðu, Seyðisfjörð,
Norðfjörð, Mjóafjörð, Eski-
fjörð og síðar Fáskrúðsfjörð
og Reyðarfjörð. Auk þess er
hugmyndin sú að úr einum
þessara fjaröa yrði farið upp
á Hérað, helst ræða menn
um Mjóafjörð í því sambandi,
og þar með næðust greiðar
samgöngur við Héraðsbúa og
Egilsstaði. Ef að slíkt næst
fram þá tala menn um að
hringnum hafi verið lokað.
Magnús: „Til lengri tíma litið
er hér um líf þessara byggða
að ræða. Menn eru hér að
tala um að með þessum jarð-
gangnahugmyndum verði á
þvf möguleiki að koma upp
ýmislegri sameiginlegri þjón-
ustu og um leið bæta þá
sem fyrir er. Svæðið yrði þá
heild sem er mjög mikilvægt.
Menn eru að tala um að
dreifa þessari þjónustu, það
er að minnsta kosti hugmynd
okkar Fjarðarbúa og þrátt
fyrir að menn inn áHéraði
hafi sumir aðrar hugmyndir
og séu með einhverskonar
kjarnahugmyndir í kringum
Egilsstaði. Við teljum til að
mynda að hagur Héraðs-
manna myndi vænkast við
þessa tengingu þar sem þeir
gætu þá auðveldlega sótt
vinnu niður á firði en miðað
við firðina hefurHéraðið verið
láglaunasvæði."
SÉRSTAÐA VOPNFIRÐINGA
Vopnfirðingar hafa allmikla
sérstööu í samgöngumálum
innan kjördæmisins. Magnús
Guðmundsson talaði um að
koma þeim inn á kortið og í
samtölum við Vopnfirðinga,
m.a. Ellert Árnason, kom
fram að samgöngur þeirra
austur eru afar bágbornar,
svo til eingöngu sumarvegir
austur. Vopnafjörður er því í
raun meira tengdur Noröur-
landi helduren afganginum
af Austurlandi. Samtök sveit-
arfélaga á Austurlandi hafa
margoft ályktað um að það
sé forgangsverkefni að koma
Vopnfirðingum í samband við
aðra Austfirðinga og Magnús
Ingólfsson hreppsn'éfndar-
maður á Vopnafirði
sagði að menn væru allir
sammála um það fyrir austan
að tenging Vopnafjarðar
hefðí forgang. Magnús
Ingólfsson sagði enn fremur
að svo virtist sem Vegagerðir
væri að falla frá þeim hug-
myndum sem hafa verið (
gangi á undanförnum árum
AUSTURLAND
Jarðgöng
UM LIF BYGGÐANNA AÐ RÆÐA
þ.e. að bæta samgöngur
Vopnfirðinga með hefðbund-
inni vegagerö. Hann sagði aó
umræður um jarðgöng hefðu
verið miklar fyrir þetta 4-6
árum en siðan hefðu vega-
gerðarmenn fengið aukin
áhuga á hefðbundinni vega-
gerð að nýju.
Þegar menn ræða þessi
samgöngumál tengd Vopn-
firðingum er alls ekki bara
verið að tala um að tengja
Vopnafjörð við hina Austfirð-
ina, í raun er verið að tala um
að tengja saman tvo lands-
hluta, Norður- og Austurland.
Austfirðingar eru bjartsýnir á
að þessi staðreynd hafi áhrif
í þá veru að framkvæmdir
verði hafnar á einhverjum
næstu ára, hverjar svo sem
þær verða en Magnús Ing-
ólfsson á Vopnafirði sagði
Vopnfirðinga tilbúna til að
bíða nokkur ár enn eftir jarð-
göngum, frekar en að hafist
yrði handa við vegagerð sem
ekki þjónaði fullkomlega til-
gangi sínum.
HVENÆR?
Magnús Guðmundsson tók
skýrt fram að enginn áhugi
væri fyrir því af hálfu Aust-
firðinga að metast við Vest-
firöinga í jarðgangnagerð.
Það væri viðurkennt að Vest-
firðirnir Væru næstir á þess-
ari áætlun, enda væru þeir ’
miklu lengra komnir en Aust-
anmenn. Austfirðingar gerðu
sér hinsvegar vonir um að
geta nýtt sér þá reynslu og
þekkingu sem skapaðist á
Vestfjörðum og þannig jafn-
vel orðið þeim samferða að
einhverju leyti. Stórfram-
kvæmdir sem þessar taka
hinsvegar langan tíma í und-
irbúningi og vinnslu og sagði
Magnús menn gera sér fulla
grein fyrir því, Austfiróingar
byggjust ekki við að hafist
yrði handa fyrr en eftir 4-5 ár,
og það væru björtustu vonir.
- Stærsti gólfdúkaframleiðandi
Evrópu. Vestur-þýsk gæðavara.
mm
- Hollenskar teppaflísar með
ótrúlega möguleika (
sérframleiðslu
CRESPANIA
- Fallegar heimilisfllsar Irá Spáni
ege
- Stærsti teppaframleiðandi
Danmerkur, 50 ára og enn slungir
Brintons VORWERK
carpets
- Einn elsti framleiðandi Wilton
og Axminster teppa í Englandi
- Einn stærsti teppaframleiðandi
Vestur-Þýskalands.
Frumlegustu teppamynstrin á
markaðnum.
miP°lQml tuftxm
- Gegnheill vinyldúkur frá virtasta
framleiðanda Vestur-Þýskalands
- Skitgleypimottur (Coral) frá
Hollandi
llUmMUm 3°®§EMA
- Lím og fylgiefni frá
Vestur-Þýskalandi
norament
'Freudenberg
____i
- Náttúru- og vinylkorkur frá
Portúgal
j-^Frei
- Takkaðir gúmmídúkar frá
V-Þýskalandi. Stærstir og
fjölbreyttasta úrvalið
haro
y ■■■
Die Parkett-Marke®
- Vestur-þýskt gæðaparket
- Stærsti teppaflisaframleiðandi (
heimi
- Stærsti teppaframleiðandi
Evrópu.
AltroNordic
- Öryggisdúkar frá Svlþjðð
\REDESTEIN=)
- Hollenskar gúmmlmottur og
gúmmldreglar
Æto^Keramlk
- Vestur-þýskar gæðafllsar.
- Stök teppi úr ull með
tískumynstrum frá Hollandi
OSTACARPETS
- Sérhæfður framleiðandi stakra
teppa í Belgiu
- Stök teppi I sígildum mynstrum
frá Belgíu.
LA 54N
Giemcio
- Steyptar marmaraflðgur
(terrazzo) frá ftallu
Hjá okkur færðu allt á gólfið á einum stað.
; - ;á’
Teppaland
Grensásvegi 13, Rvik., simar 83577 og 83430.
FOTUM
Nú eru liðin 20 ár frá
opnun Teppalands. •
Á þessum tíma höfum við
selt yfir 3,2 milljónir fer-
metra af gólfefnum, sem
segir sína sögu um vin-
sældir Teppalands. • Petta
hefur einnig verið staðfest í
nýlegri skoðanakönnun
Hagvangs, þar sem 51%
aðspurðra sögðust myndu
leita fyrst til Teppalands ef
kaupa ætti gólfefni. •
Næstu verslanir voru með
10,8% og minna.
Teppaland er nú alhliða
verslun með allt á gólfið á
einum stað. • í Teppalandi
færðu gólfteppin, teppaflís-
arnar, motturnar og dregl-
ana. • í Dúkalandi færðu
gólfdúkinn, parketið og flí-
sarnar auk úrvals fylgihluta.
• Styrkur okkar liggur í inn-
flutningi frá þekktum og virt-
um framleiðendum gólfefna
um allan heim.
• Teppaland-Dúkaland er í
dag umfangsmesta gólf-
efnaverslun landsins, með
reynslu og þekkingu sem
kemur þér til góða.
LÍTTU VIÐ EÐA HAFÐU
SAMBAND.