Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 14

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 14
14 Laugardagur 19. nóvember 1988 Berlínarsamþykkt jafnaðarmannaflokka Evrópu EVRÓPURÍKIN VERDI SAMSTÍGA í FÉLAGSLEGRI OG EFNAHAGSLEGRI ÞRÓUN Yfirlýsing leiðtoga jafnað- armannaflokka og sósíal- demókratískra flokka í aðild- arríkjum EB (Evrópubanda- lagsins) og EFTA (Fríverslun- arsamtaka Evrópu) um sam- vinnu jafnaðarmannaflokka Evrópu í framtiðinni, sam- þykkt á ráðstefnunni „EC/ EFTA — COMMON FUTURE 1992“ (Sameiginleg framtið EB og EFTA 1992) sem haldin var i Berlin 6.-7. nóvember 1988. Alþýðublaðið birtir hér kafla úr Berlinaryfirlýsingunni: ALMENN TENGSL EB OG EFTA 1. Samruni innan EB hefur gengið allvel á undanförn- um árum. Markmið Rómar- sáttmálans, aö mynda sameiginlegan markað að- ildarríkja EB, á að nást fyr- ir árslok 1992 samkvæmt ákvæðum Einingarsam- þykktar Evrópu. Fram- kvæmdastjórn EB hefur, undir stjórn forseta síns, Jaques Delors, náð góð- um árangri í að taka þær ákvarðanir og gera þær ráðstafanir sem nauðsyn- legar eru til þess að slík markmið náist. Flokksleiðtogarnir fagna einum sameiginleg- um markaði, jafnframt því sem tekist hefur að ná efnahagslegri og félags- legri samheldni og gera Evrópu að einu svæði í fé- lagslegu tilliti. Stofnun sameiginlegs markaðar mun valda breyt- ingum á eðli tengsla EB við aðrar Evrópuþjóðir, einkum EFTA-ríkin. Efna- hagsþróun og nauðsyn- legar ákvarðanir um efna- hagsstefnu EB útheimta nánari samvinnu EB og EFTA-ríkja og leiða til samvinnu á öðrum sviðum en í fríverslunarsamning- um. 2. Aukin samvinna milli EB og EFTA-ríkja hófst með Lúxemborgaryfirlýsing- unni 1984 og hefur komist á frekara skrið eftir að EB tók þá ákvörðun að sam- eiginlegur markaður skyldi vera kominn á að fullu 1992. Sambandið milli þess- ara tveggja samtaka er með miklum ágætum og þau vandamál sem kunna að vera fyrir hendi ber að skoöa í því Ijósi. Sameig- inlegt markmið með þess- ari samvinnu er stofnun öflugs efnahagssvæðis Evrópu sem nærtil EB og EFTA-rlkja og þeirra 350 milljóna manna sem þar búa, svo sem ákveðið var með Lúxemborgaryfirlýs- ingunni, svo og viðleitni til sameiginlegrar upp- byggingar Evrópu sem öins félagslegs svæðis og lausn mikilvægra vist- fræðilegra vandamála. í þróun samvinnunnar milli samtakanna tveggja verður að gefa nánar gæt- ur að smáatriðum og taka fullt tillit til þýðingarmik- illa mála einstakra ríkja. Mikla vinnu þarf að inna af hendi til að styrkja tengslin milli EB og EFTA svo að þau fái notið sam- eiginlega hagsbóta af samvinnu á sviði efna- hagsmála, iðnaðar og stjórnmála. Auk þess hafa tengsl EB og aðildarríkja Efna- hagsbandalags Austur- Evrópu (COMECON) kom- ist á nýtt stig síðan undir- rituð var sameiginleg yfir- lýsing i Lúxemborg 26. júní 1988. Möguleikarnir hafa aukist á því að bæta samband þessara sam- taka, bæði á sviði stjórn- mála og efnahagsmála. Einnig að þessu leyti snertir þetta sameiginlega hagsmuni EB og EFTA og er því mjög æskilegt að náin samvinna takist með þeim til að brúa bilið milli austurs og vesturs I Evrópu. 3. Flokksleiðtogarnir eru enn staðráðnari í því en áður að byggja upp og efla samvinnu milli EB og að- ildarríkja þess annars veg- ar og EFTA-rikja hins veg- ar. Árangursrík samvinna milli EB og EFTA-rikja á sviði utanrikismála hefur komið fram í sameigin- legu átaki til að framfylgja og stuðla að þróun loka- samþykktar Helsinkiráð- stefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu og samþykktar Stokkhólms- ráðstefnunnar um traust- vekjandi aðgerðir og af- vopnun um gervalla Evrópu. Það er hagsmunamál allra Evrópuríkja að stuðla að bættri sambúð Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Sameiginleg markmið að- ildarríkja EB og EFTA eru m.a. að útrýma kynþátta- aðskilnaðarstefnu i Suður- Afríku og efla lýðræði um allan heim. Einnig eru það sameiginleg markmið þeirra að koma í veg fyrir hernaðarátök í hinum ýmsu heimshlutum, eink- um í Austurlöndum nær, í löndunum við Miöjaröar- haf, í löndunum sunnan Sahara í Afríku, svo og í Mið-Ameríku. EB og EFTA- ríkin stuðla að verndun mannréttinda um allan heim; þar sem þau hafa verið brotin krefjast sam- tökin þess að ástandið breytist til batnaðar. 4. Jafnt aðildarríkjum EB sem EFTA er umhugað um að stuöla að stöðugleika og friði í Evrópu. Þau mundu fagna því ef unnt yrði að koma á sameigin- legu öryggiskerfi fyrir Evrópu, þar sem frumhvat- inn yrði efnahagsleg sam- vinna og verslun milli ríkja Austur- og Vestur-Evrópu. Þau styðja og hvetja til umbóta og eflingar lýð- ræðis i Evrópu. 5. Flokksleiðtogarnir gera sér grein fyrir að náttúru- auðlindirog nýting þeirra skipta meginmáli fyrir all- mörg EFTA-riki varðandi samskipti þess við EB. ÁHRIF SAMEIGINLEGS MARKAÐAR EB Á SAMVINNU EB 0G EFTA 1. Flokksleiðtogarnir krefjast þess að um leiö og hinn sameiginlegi markaður er kominn á að fullu verði um leið stuðlað að þróun sameiginlegrar félags- málastefnu, félagslegri samheldni í Evrópu og öfl- ugra efnahagslífi, svo sem gert er ráð fyrir í Lúxem- borgaryfirlýsingu EB og EFTA. Þær ráðstafanir sem gerðar verða til að koma á sameiginlegum markaði munu hafa veruleg en mis- munandi áhrif á efnahags- líf aðildarrikja EB og EFTA. Allur vöxtur f fram- leiðni og bætt samkeppn- isaðstaða efnahagskerfis EB kann að hafa hagstæð áhrif á verðbólgu, fjár- málastefnu hins opinbera og hagstæðan jöfnuð í viðskiptum við önnur lönd, en gæti leitt til auk- ins timabundins atvinnu- leysis ef engar breytingar eru gerðar á efnahags- stefnu. í þessu sambandi vísa flokksleiðtogamir til athugunar Samtaka verka- lýðsfélaga Evrópu (European Trade Union Confederation) á sameig- inlegri atvinnumálastefnu fyrir Evrópu. Flokksleið- togarnir krefjast þess að markmið efnahagsstefn- unnar verði að nýta til fulls möguleika til aukins vaxtar og atvinnu eftir að hinn sameiginlegi markað- ur er kominn á. Þeir leggja einnig áherslu á að við undirbúning og upphaf hins sameiginlega mark- aðar séu menn vel á verði til þess að vinna gegn hugsanlega neikvæðum áhrifum á vinnumarkaðn- um. 2. Flokksleiðtogarnir frá að- ildarríkjum EB og EFTA gera sér grein fyrir að til þess að koma á sameigin- legum markaði verður EB að taka fjölmargar ákvarð- anir. Þrátt fyrirað þær verði að hafa forgang telja flokksleiðtogarnir æski- legt að koma á sem víð- tækastri samvinnu milli EB og EFTA vegna sam- eiginlegra hagsmuna. Þátttaka EFTA-landanna í stöðlunarnefndum Evrópu, CEN og CENLEC, er skref í áttina til þess að ryðja úr vegi tæknilegum hindrun- um fyrir verslun og það sama má segja um til- komu Skjals um einföldun tollmeðferðar vara (SAD). Á öðrum sviðum verslunar með vörur og þjónustu skyldi gera gagnkvæma samninga sem eru báðum samningsaðilum til hags- bóta: • milli EB og EFTA þar sem EFTA hefur umboð til þess • tvihliða milli EB og að- ildarrikja EFTA • með lagabreytingum ein- stakra rikja • milli aðildarrikja EB og aðildarríkja EFTA þar sem hvorug samtökin hafa umboð til þess. Frá sjónarhóli flokks- - leiðtoganna er óhjákvæmi- legt að aðilar vinnumark- aðarins, einkum verkalýðs- félögin, taki þátt í því á öllum stigum að koma á fót hinum sameiginlega markaði, einkum við sam- ræmingu lagaákvæða og staðla. 3. Flokksleiðtogarnir fagna þvi að sjóðir EB til upp- byggingar, sem ætlað er að verða til hjálpar á þeim svæðum þar sem breyt- ingar á uppbyggingu at- vinnulifs standa yfir, svo og á þeim svæðum sem eiga í vök að verjast, verða tvöfaldaðir að raungildi. Flokksleiðtogarnir lýsa því yfir að eitt skuli látið yfir alla ganga varðandi kosti og galla við það að mark- aður EB og EFTA veröur að meira leyti sameigin- legur og verði tekið tillit til þess í samstarfi EB og EFTA. 4. Frjálsari flutningur fjár innan EB og sameining markaðar fjármagnsþjón- ustu útheimtir fjölmargar breytingar á lögum um banka og vátryggingar. Samningaviðræður þyrftu að fara fram milli aðildar- ríkja EB og EFTA um meira frjálsræði á sviði fjármála og vátrygginga. í slíkum samningaviðræð- um skyldi tekið tillit til ákvæða í alþjóðalögum um stjórnun fjármagns- flutninga og samvinnu á sviði skattamála. Þegartil nokkuð lengri tíma er litið veldur frekari samruni efnahagskerfa þjóðanna því að styrkja veröur mynt- kerfi Evrópu. Flokksleið- togarnir vænta þess að fá skýrslur frá Hannover- hópnum, sem falið var að spá fyrir um hver fram- vinda mála yrði á þessu sviði, og munu því taka þetta mál upp aftur siðar. (Breski Verkamannaflokk- urinn hefur fyrirvara á texta síðustu málsgrein- anna). Flokksleiðtogarnir benda á að tengsl við gengisviðmiðun takmark- ast ekki við aðildarríki EB. 5. Nú þegar eru margvísleg tengsl milli EB og EFTA- ríkja hvað varðar rann- sóknir, bæði á vegum stofnana, svo sem Geim- ferðastofnunar Evrópu (E.S.A.) og Sameinda- og líffræðistofnunar Evrópu (E.M.B.O), þar sem EFTA- ríkin eða fyrirtæki innan þeirra hafa gert samninga um þátttöku í rannsóknar- verkefnum, eða í verkefn- um EUREKA (Samstarfsá- ætlunar á sviöi visinda). Sameiginleg rannsóknar- verkefni á vegum EUREKA hafa leitt til mikillar sam- vinnu milli aðildarríkja EB og EFTA til hagsbóta fyrir efnahagskerfi Evrópu. Flokksleiðtogarnir fagna þessari þróun og treysta því að framtíðarverkefni á vegum EB verði einnig op- in aðildarrikjum EFTA þannig að hvert riki greiði sinn hluta kostnaðarins. 6 Flokksleiðtogarnir óska jafnframt eftir því að Evrópuríkin verði sam- stiga í efnahagslegri og félagslegri þróun. Atvinn- umálastefna, byggða- stefna, viðhald og viðbæt- ur við reglur um öryggi verkamanna í fyrirtækjum, allt þetta verður að taka jafnmikið til greina við frekari samruna Evrópu- markaðar. SAMVINNA EB 0G EFTA Á SVIDI UMHVERFISMÁLA 1. Ljóst er, með tilliti til vist- fræðilegra stórslysa, sem hafa orðið nýlega, og vax- andi umhverfismengunar, að EB og EFTA gegna þýöingarmiklu hlutverki í þessum málum. Þess vegna viljum við, sem flokksleiðtogar, taka þessi mál til sérstakrar umfjöll- unar, aðskilin frá öðrum málum sem á dagskrá eru. Þrátt fyrir að gerður hafi verið mikill fjöldi samn- inga um umhverfisvernd versnar ástandið stöðugt, einkum vegna aukinnar loftmengunar frá iðjuver- um, bifreiðum o.þ.h., en einnig af þeim sökum að þessir samningar hafa ekki reynst nægilega hald- góðir. Þörf er fyrir samn- inga með strangari ákvæðum. Mengun berst hæglega yfir landamæri og þvi dugir lítt aö hvert ríki móti sína eigin stefnu um umhverfisvernd, held- ur verður að koma til sam- vinna ríkja í milli, ekki að- eins milli rikja EB, heldur einnig milli EB og EFTA og raunar milli Austur- og Vestur-Evrópu, sem og milli annarra rikja heims. 2. Flokksleiðtogarnir eru sammála um að samvinna á sviði umhverfisverndar- mála ætti að verða þáttur i alhliða samstarfi EB og EFTA, eins og fram kemur í Lúxemborgaryfirlýsing- unni frá 1984. Einnig er mikilvægt að breyta f sam- ræmi við viljayfirlýsingu Noordwijk-ráðstefnunnar. Markmiðið er að styrkja núverandi sambönd þjóða i milli og samvinnu milli EFTA-ríkja, Evrópubanda- lagsins og EB-r(kja með því að hafa í því skyni fastanefndir og fulltrúa, svo og með fundum sér- fræðinga á sviði umhverf- ismála og háttsettra stjórnmálamanna, svo að ná megi varanlegum ár- angri á sviði umhverfis- mála þar sem hagsmunir rikjanna fara saman. Meöal mikilvægra sviða má nefna: • loftslagsbreytingar: að vinna gegn gróöurhúsa- áhrifum vegna myndunar koltvísýrings og annarra efna sem valda því aö andrúmsloft jarðar hitn- ar; • verndun ósónlagsins. Niðurstöður í rannsókn- um vísindamanna benda til þess að draga verði mjög verulega úr loft- mengun af völdum klóró- flúóró-kolefnis (CFC) í samræmi við ákvæði Frá fundi leiðtoga jafnaðarmannaflokka og sósíaldemókratískra flokka í EB og EFTA, sem haldinn var i Berlín 6.-7. nóvember.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.