Alþýðublaðið - 17.01.1989, Qupperneq 1
Stefán Valgeirsson sendir formönnum stjórnarflokkanna bréf
VILL AFNEMA „MATARSKATTINN"
Þetta eru ekki úrslitakostir, en við viljum breytingar, segir Stefán — Borgaraflokksmenn telja bréf Stefáns hafa styrkt samningsstöðu sina.
A fyrsta viðræðufundi full-
trúa stjórnarflokkanna fjög-
urra við fulltrúa Borgara-
flokksins var Borgaraflokkur-
inn ekki einn um að leggja
fram kröfur eða tillögur um
aðgerðir. Þá lá fyrir bréf Stef-
áns Valgeirssonar fyrir hönd
Samtaka um jafnrétti og fé-
lagshyggju (SJF) til formanna
hinna þriggja stjórnarflokk-
anna með afriti til Júliusar
Sólnes formanns Borgara-
flokksins um æskilegar
breytingar og umfjöllunarefni
í viðræðunum. Heimildar-
menn Alþýðublaðsins töldu
að túlka mætti bréfið sem
kröfur gegn áframhaldandi
stuðningi samtakanna, en
Stefán segir sjálfur i samtali
við Alþýðublaðið að ekki sé
um úrslitakröfur að ræða —
en það væri Ijóst að SJF
« ISAF4ÖRÐUI
.» AKRANES .
VESTMANf «EVJ/',R
IhÖFN i H< WAFIRÐI
„Hvor ykkarverður varaformaður i nýjum, stórum jafnaðarmannaflokki?“ var spurt á fundi formanna A- flokk-
annaá Akranesi um helgina. „Hvað segirþú um Jóhönnu?" spurði Jón Baldvin Ólaf Ragnar. Og Ólafur Ragnar
svaraði: „Eða Guðrún Helgadóttur." Frá vinstri: Jón Baldvin Hannibalsson, Óttar Proppé spyrill, Guðbjartur
Hannesson fundarstjóri, Ingólfur Margeirsson spyrill og Ólafur Ragnar Grimsson. A-mynd/GTK.
Á rauðu Ijósi:
Stjórnarandstaðan í bankakerfinu
NESKf.UPSTAOUR *
AKUREVRI •
SIGLUFJOROUR
rlAFNrRFJÓROUR •
Húsfyllir á þremur fyrstu fundunum
Jón Baldvin Hannibalsson og
Ólafur Ragnar Grímsson eru
sammála um að hin eiginlega
stjórnarandstaða sé sterkari i
bankakerfinu en á Alþingi.
„Haldið þið að Geir Hall-
grímsson eða Sverrir Her-
mannsson hætti að vera
sjálfstæðismenn þótt þeir
fari af þingi og setjist í
bankastjórastóla?“ spuröi Ól-
afur Ragnar á fundi á Sel-
fossi sl. sunnudagskvöld.
„Aðalvígi sjálfstæðismanna
er í peninga- og fjármálakerf-
inu,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson á sama fundi
sem er sá þriöji í fundarher-
ferð formanna A- flokkanna
„A rauðu ljósi.“
Á fundinum á Selfossi
veittust formenn A- flokk-
anna harkalega að stjórn
bankakerfisins og sögðu
hana hindra ríkisstjórnina í
eðlilegum störfum og við af-
greiðslu peninga- og fjár-
máia. Formennirnir ræddu
einnig ýmis önnur mál eins
og á fyrri fundum sínum og
var raett um flokkakerfið,
framtíð jafnaðarstefnunnar,
afvopnunar- og öryggismál,
ríkisstjórnarsamstarfið,
þungaskatt, viðræðurvið
Borgaraflokk um stjórnar-
myndun og fjölda annarra
mála.
Formenn A-flokkanna hafa
nú haldið þrjá fyrstu fundi í
fundaherferðinni „Á rauðu
ljósi“ þar sem samvinna og
hugsanlega sameining Al-
þýðuflokks og Alþýðubanda-
lags er til umræðu. Fundir
hafa verið haldnir um helgina
á ísafirði, Akranesi og Sel-
fossi og húsfyllir á öllum
stöðum. Segja menn á við-
komandi stöðum ekki muna
eftir annarri eins aðsókn að
stjórnmálafundum.
Stjórnendur og
spyrlar fundanna eru þeir
Óttar Proppé, fyrrum ritstjóri
Þjóðviljans og Ingólfur Mar-
geirsson ritstjóri Alþýöu-
blaðsins.
HOTEL SELFOSS
í HÓTELSKÓLA?
VERDUR
RREYTT
Bæjarstjórn Selfoss hefur
skipað þriggja manna nefnd
til að gera rekstrarúttekt á
Hótel Selfoss, skoða framtíð-
armöguleika og hafa umsjón
með rekstri hótelsins. Eitt af
fyrstu verkum nefndarinnar
verður að ganga til samn-
ingaviðræðna við Heiðar
Ragnarsson, veitingamann í
Reykjavik, sem vill taka hót-
elið á leigu í tvö ár og reka á
eigin reikning.
Á sama tíma undirbýr Svav-
ar Gestsson menntamálaráð-
herra skipun nýrrar staöar-
valsnefndar til að velja Hótel-
og veitingaskólanum framtíð-
arstað. Nefndin mun sérstak-
lega skoða Selfoss sem stað
og húsnæði hótelsins, auk
þess sem metnir verða að ný-
ju þeir tveir möguleikar, sem
áður voru inni í myndinni,
það er að segja Húsmæðra-
skólinn á Laugarvatni og ný-
bygging fyrir skólann í Kópa-
vogi.
Þegar hefur verið samið
við Kópavogsbæ um að Hót-
el- og veitingaskólinn nýi
verði reistur þar í bæ og
byggingarnefnd tilnefnd, en
ekkert fé er veitt til þeirrar
smíði á fjárlögum. Núverandi
skólanefnd telur hins vegar
Laugarvatn besta kostinn.
Um þetta er fjallað í frétta-
skýringargrein á blaðsíðu 3 í
Alþýðublaðinu í dag.
vildu breytingar.
Heimildir Alþýðublaðsins
greina frá því að í bréfinu
væri talað um afnám „matar-
skattsins" svonefnda, endur-
skoðun tekjuöflunarkerfisins
almennt, hækkun skattleysis-
marka, endurskoöun á mál-
efnum landbúnaðarins og
sjávarútvegsins og fleira og
sagði heimildarmaður innan
Borgaraflokksins meðal ann-
ars að tillögur SJF féllu mjög
vel að tillögum Borgara-
flokksins, sem meðal annars
fela i sér auk afnáms „matar-
skattsins" svokallaða og upp-
stokkunar ríkiskerfisins af-
nám lánskjaravísitölunnar og
breytingar á húsnæðiskerf-
inu. Var á þessum heimildar-
manni að heyra að bréfið
væri túlkað sem ákveðnar
kröfur og að þær kröfur
styrktu talsvert stöðu Borg-
araflokksins í viðræðunum
með því að þær tvöfölduðu
þrýstinginn á Framsóknar-
flokkinn, Alþýðuflokkinn og
Alþýöubandalagið um að
semja.
„Það er ekki rétt að við
höfum sett fram ákveðnar
kröfur í sambandi við skatt-
ana, en hins vegar hef ég í
bréfi til formannanna lagt til
að það yrði athugað að
stokka upp allt tekjuöflunar-
kerfi hins opinbera. Með það
í huga meðal annars að
leggja niður „matarskattinn"
svokallaða eða að hann verði
að minnsta kosti ekki hærri
en gilti um ákveðnar vöruteg-
undir áður. Að breytingin á
tekjuöflunarkerfinu væri mið-
uð við að jafna meira á milli
þegnanna en nú er, enda er
það efst á blaði hjá mér og
fleirum að jafna lífsaðstöð-
una og hin raunverulegu laun
í landinu. En ég hef ekki lagt
fram neina úrslitakosti, sumt
af þessu hef ég lagt til fyrir
löngu, en bréfið sendi ég út
af þessum samningum nú og
þar kemur fram hvað ég vildi
láta ræða i þessum viðræð-
um“ sar,ði Stefán Valgeirsson
í samtali við Alþýðublaðið
Stefán sagði að rikisstjórn-
in væri i klemmu nú, nema
Borgaraflokkurinn héldi
áfram að greiða atkvæði eins
og Aðalheiður gerði. „Það
eru erfiöleikar á sliku til
frambúðar, ég var búinn að
segja það áður að þetta yrði
að skýrast e nmitt á pessum
tíma, eftir á.amótin Eins og ég
sagði i hai'St þá sé ég ekki
annaö en að skoðanir mínar
og sumra annarra séu svo lík-
ar um meginmálin að menn
láti ekki slitna upp úr þess
vegna“ sagði Stefán.
# RÖSE í Vínarborg:
JON BALDVIN HELDUR
RÆÐU SÍNA í DAG
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra fiaug til
Vinarborgar i gær þar sem
hann mun sitja Ráðstefnu
um öryggi og samvinnu i Evr-
ópu (ROSE). Jón Baldvin
mun halda ræðu sina í dag. I
lokaskjali Vinarfundarins er
m.a. að finna ný ákvæði um
eftirlit með mannréttindum.
Fjórði framhaldsfundur
RÖSE veröur haldinn i Hels-
inki í mars 1992.
Fulltrúar sextán ríkja Atl-
antshafsbandalagsins og sjö
rikja Varsjárbandalagsins
samþykktu 14. janúar s.l.
erindisbréf fyrir nýjar samn-
ingaviðræður austurs og
vesturs um jafnvægi hefð-
bundins vígbúnaöar i Evrópu,
allt frá Atlantshafi að Úral-
fjöllum.
Viðræöurnar um erindis-
bréfið hófust í Vín í febrúar
1987 og hafa staðið yfir sam-
hliöa þriðja framhaldsfundi
Ráðstefnunnar um öryggi og
samvinnu í Evrópu (RÖSE)
sem hófst í nóvember 1986
og lýkur 17.-19. þ.m. með ræð-
um þátttökuríkjanna 35.
Fyrsti framhaldsfundur RÖSE
var haldinn í Belgrad 1977-78
og annar í Madrid 1980-83.
Lokaskjal Vínarfundar var
samþykkt í Vin 15. janúar s.l.
og er þar m.a. að finna
ákvæöi um að halda ráð-
stefnu RÖSE- rikjanna 35 um
traustvekjandi aðgerðir á
hernaðarsviðinu í framhaldi
af Stokkhólsráðstefnunni
sem lauk í september 1986.
Sú ráðstefna verður í Vínar-
borg og mun fara fram á
sama tíma og nýjar viðræður
23 ríkja NATO og Varsjár-
bandalagsins. Fundir hefjast
6. mars n.k..
Ríkisbankarnir
Bankaráðsmenn
andvígir
vaxtahækkunum
Fulltrúar stjórnarsinna i
bankaráðum ríkisbankanna
telja hækkun nafnvaxta ekki
koma til greina á næstunni.
Lækkun raunvaxta á verð-
tryggðum skuldabréfum er
jafnvel talin möguieg, sam-
kvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins.
Þessi sjónarmið komu m.a.
fram á fundi bankaráðsmann-
anna með þremur ráðherrum
í gær, þeim Steingrimi Her-
mannssyni forsætisráðherra,
Jóni Sigurðssyni viðskipta-
ráðherra og Ólafi Ragnari
Grimssyni fjármálaráðherra.