Alþýðublaðið - 07.02.1989, Page 2
2
MÞBUBUBD)
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Blaðamenn: Friörik Þór Guðmundsson
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Slðumúla 12.
Áskriftarsíminn er 681866.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið.
YFIRLÝSING
FORSÆTISRÁÐHERRA
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra flutti i gær á Al -
þingi yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.Ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar tók viö í lok septembermánaðar á
síðasta ári. Þá voru ákveðnar fyrstu aðgerðir i efnahagsmálum
sem tóku fyrst og fremst mið af því að skapa útflutningsgreinum
þolanlegan rekstur en ennfremur til að veita nýrri ríkisstjórn
svigrúm í nokkra mánuði til að afgreiða hallalaus fjárlög, draga
úr verðbólgu, lækka vexti, lagfæra raungengi krónunnar, kanna
stöðu atvinnuveganna og lagfæra skuldastöðu þeirra og undir-
búa varanlegri aðgerðiríatvinnu-ogefnahagsmálum. Þau mark-
mið sem ríkisstjórnin setti sér, hafa að mestu náðst. Verðbólgan
hefur verið undanfarna fjóra mánuði 9.5 af hundraði og er það
lægsta verðbólga á íslandi siðan 1971. Raunvextirnir hafa lækk-
að úr9,5% áverðtryggðum skuldabréfum í 7,5%. Nafnvextir hafa
ennfremur lækkaó úr 33-34% niðurí 15-16%. Þettaergríðarlega
mikilvægur árangur sem skapað hefur fyrirtækjum sem ein-
; staklingum betri rekstrarskilyrði. Raungengi krónunnar hefur
■ lækkað mjög og ekki síst í kjölfar aðgerða núverandi ríkisstjórn-
ar. Á einu ári hefur raungengið lækkað um 15% á mælikvarða
; launa og um 10% á mælikvarða verðlags. Lækkað raungengi
hefur hins vegar ekki skilað fullum árangri fyrir útflutningsfyrir-
tækin og atvinnuvegina og kemur þar helst til verðfall á erlend-
um mörkuðum. Það erþví í raun eðlilegt og nauðsynlegt að ríkis-
stjórnin hafi gripið til þeirrar ákvörðunar að lagfæra gengið lítil-
lega og bæta þarmeð rekstrarstöðu fyrirtækja í útflutnings- og
samkeppnisgreinum og draga jafnframt úr viðskiptahalla þjóð-
I arbúsins. Einnig er óvissu í gengismálum eytt.
| M ikilvægasti boðskapur forsætisráðherra á Alþingi í gær eru
ákvarðanir ríkisstjórnarinnar að koma á umbótum í peninga- og
vaxtamálum. Þæraðgerðirmiðaaðþvíaðkomaálægri raunvöxt-
um og stuðla að betra jafnvægi á lánamarkaði. Án þess að yfir-
lýsing forsætisráðherra í efnahagsmálum sé rakin hér frekar, er
j Ijóst að ríkisstjórnin hefur ætlað Seðlabankanum lykilhlutverk í
j framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar í peninga- og vaxtamálum.
Nú reynir verulegaáþau orð formanna A-flokkanna, hvort stjórn-
j arandstaðan sé í bankakerfinu. Stjórnarandstaðan hefur verið
■ óspör á að gagnrýna aðgerðir ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonarsem afturhvarf til fortíðarþegarpólitísk miðstýring
fjármagnsins réði ríkjum. Það er því ánægjulegt, að einn mikil-
vægasti hluti ræðu forsætisráðherra um vaxta- og peningamál
fjallaði þvert ámóti um verulegaopnun ápeninga-og fjármagns-
markaðnum. Þessi opnun kemurekki síst fram í tillögum um að-
iögun íslenska lánamarkaðarins aö breyttum aðstæðum í um-
'ieiminum; að islensku atvinnulífi verði tryggð sambærileg að-
staðaáfjármagnsmarkaði og er í helstu viðskiptalöndum, heim-
'ldir fyrirtækja að taka erlend lán á eigin ábyrgö rýmkaðar, nýjar
æglur um fjármagnshreyfingar og viðskipti fjármálaþjónustu
milli íslands og annarra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráð-
nerranefndar Norðurlanda um Efnahagsáætlun Norðurlanda
1989-1992. Og síðasta en ekki sist felst í þessum tillögum, að
ænnað verði hvort heimila megi viöurkenndum, erlendum bönk-
jm starfsemi hér á landi. Þessar tillögur um opnun á íslenskum
oeninga- og fjármagnsmarkaði eru tímamót og stórt skref fram
á við til opins nútímaþjóðfélags.
Þriðjudagur 7. febrúar 1989
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
JULIUS Sólnes formaður
Borgaraflokksins ræðir um
pólitikina í viötali við Tímann
um helgina. Það sem fer
einna verst í bein flokksfor-
mannsins er að Borgaraflokk-
urinn „sé í hlutverki holds-
veika mannsins".
Til að útskýra þessi um-
mæli skulum við grípa niður I
viðtalið þar sem Júlíus er
spurður út í þær sögusagnir
að Óli Þ. Guðbjartsson sé á
leiðinni yfir í Alþýðuflokkinn
og Inga Birni standi til boða
að taka sæti Friðjóns Þórðar-
sonar á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Vesturlandi.
Júlíus Sólnes svarar:
„Ég held að þessar sögur
séu fyrst og fremst búnar til
af andstæðingum okkar, því
það er ekkert iaunungarmál
að við erum fyrir ýmsum í
pólitikinni. Það er t.d. keppi-
kefli sjálfstðismanna að
losna við okkur og þess
vegna hlýtur að vera alveg til
valið aö koma slíkum sögum
af stað til að gera okkur tor-
tyggilega. Maður skilur alveg
hvað liggur þarna að baki.
Það má ef til vill segja að
Borgaraflokkurinn sé í hlut-
verki holdsveika mannsins í
pólitikinni, það vilja helst all-
ir losna við okkur. Þess
vegna er reynt að kynda und-
ir allar sögusagnir um sundr-
ung í okkar röðum og að
vissir einstaklingar séu að
kljúfa sig út úr flokknum. Þar
er reynt að neyta allra
bragða. Þegar þetta er skoð-
að betur sjá allir að þetta
fæst ekki staðist. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur a.m.k.
hingað til ekki getað
skammtað þingsætum eftir
vild á miðju kjörtímabili."
Ef Júlíus Sólnes er þeirrar
skoðunar að borgaraflokks-
menn séu pólitískt holdsveik-
ir, er ekki nema von að hann
vilji koma til Steingríms og
ganga í hans söfnuð — likt
og holdsveikir menn gengu á
fund Frelsarans forðum —
og fengu lækningu.
MORGUNBLAÐIÐ viii
að fjármálaráðuneytið verði í
framtíðinni falið öðrum en
stjórnmálamönnum. Þessi
sérkennilega yfirlýsing er birt
í leiðara Morgunblaðsins sl.
laugardag. Höfundur forystu-
greinarinnar byggir rök sín á
því að Jón Baldvin og Ólafur
Ragnar séu vondir fjármála-
ráðherrar.
Eða eins og stendur i leið-
ara Morgunblaðsins:
„Þ«ð fer ekkert á milli mála,
að hverjum stjórnmálamann-
inum á fætur öðrum mistekst
að ráða við ríkisfjármálin.
Mistök þeirra Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Ólafs
Ragnars Grímssonar eru hins
vegar meira áberandi en ann-
arra vegna þess, að þeir gáfu
stóryrtari fyrirheit en aðrir.
Nú er væntanlega öllum
Ijóst, að stjórnleysi i rikisfjár-
málum er kjarninn i efna-
hagsvanda þjóðarinnar. Þess
vegna er ekki fráleitt að
varpa því fram, hvort tíma-
Július: Við erum álitnir holds-
veikir!
Ellert: Fjármálaráðherra ekki ein-
ráða.
bært sé orðið að fela öðrum
en stjórnmálamönnum fjár-
málaráðherraembættið. I
Bandarikjunum t.d. hafa fjár-
málaráðherrar hvað eftir ann
að komið úr röðum manna,
sem hafa sérhæft sig í fjár-
málum eða úr hópi stjórn-
enda stórra fyrirtækja. Það
24
gæti verið fróðlegt að sjá,
hvernig fjármálaráðherra,
sem hefði reynslu af rekstri
stórfyrirtækis, gengi að fást
við fjárhagsvanda islenska
ríkisins. En svona getur þetta
ekki gengið öllu lengur.“
Nú vaknar eðlilega sú
spurning, hvaða menn kæmu
til greina í stöðu fjármálaráð-
herra? Eru einhverjir forkólfar
í íslensku atvinnulífi lausir
við hina þvölu hönd flokka-
hagsmuna?
Og reyndar má bæta við:
Ekki voru það Jón Baldvin
eða Ólafur Ragnar sem verst
hafa reynst í stóli fjármála-
ráðherra. Við munum enn
hvernig Albert og Þorsteinn
Pálsson skiluðu ríkissjóði —
og það í bullandi góðæri!
ELLERT b. Schram ritstjóri
DV leggur einnig nokkur orð
á vogarskálarnar í umræð-
unni um fjármálaráðuneytið.
Hann skrifar í leiðara blaðs
síns I gær:
„Rekstur íslenska ríkisins
er ekki mikill eða merkilegur
í samanburði við önnur þjóð-
félög. Fjárlögin eru minni en
í meðalstóru fyrirtæki erlend-
is. Auðvelt er að hafa yfirsýn
yfir slíkan rekstur. Það er á
færi eins eða tveggja fjármál-
stjóra hjá vel reknum fyrir-
tækjum. Ef fjármálastjóri í
einkageiranum skilaði frá sér
þeim halla, sem nú blasir við
hjá íslenskra ríkinu, væri
hann umsvifalaust rekinn.
Hér á íslandi er fjármála-
ráðherra ekki alráður. Hann
býr við fjölmennisstjórn þar
sem meðráðherrar hans eru
með í ákvarðanatökunni.
Hann er háður pólitískri
stjórn, hann er upptekinn við
aðra stjórnsýslu, bundinn
lögum og lögbundnum út-
gjöldum og mannahaldi,
sem gera honum erfitt fyrir.“
Við spyrjum: Hvað myndi
íþyngja fjármálaráöherra úr
einkageiranum.?
,l> .i. morgunbu
Útgefandi
Framkvœmdastjóri
Rltstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýslngastjóri
Árvakur, Reykjavik
Haraldur SVeinason.
Matthlas Johannessen,
Styrmlr Gunnarsson.
Bjöm Bjamason.
Þorbjöm Guðmundsson,
Bjöm Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Slgtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingl Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Rltstjóm og skrlfstofur Aðalstraati 6, slmi 691100. Auglýsirigar
Aðalstrœti 6, sfmi 22480. Afgrelðsla: Krínglan 1, slmi 83033.
Áskrtftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. (lausasölu 70 kr. eintakið.
Halli ríkissjóðs
Arangurinn af sameigin-
legri fjármálasljóm
formanna Alþýðuflokks og
ári. Hvemig má þetta vera?
Morgunblaðinu kemur ekki
til hugar, að fyrrverandi fjár-
Morgunblaðið: Fjármálaráðherra komi úr einkageiranum.
Farþeginn lá grænn í andliti yfir borðstokkinn og
kúgaðist. Stýrimaðurinn átti leið framhjá og sagði hug-
hreystandi við hinn sjóveika:
„Það hefur nú enginn drepist úr sjóveiki ennþá!“
„Ekki taka frá mér einu vonina...“ stundi farþeginn.
Einn
mei
kaffinu