Alþýðublaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 1
Sprenging í matfiskeldi
FRAMLQBSLAN FJÓRFALDAST
Árni Gunnarsson
alþingismaður:
Varaflug-
völlur er
hernaðar-
mannvirki
• Árni Gunnarsson al-
þingismaður segir í grein
sem birtist í Alþýðublað-
inu í dag, að það leiki eng-
inn vafi á því að fyr-
irhugaður varaflugvöllur
sé hernaðarmannvirki.
Flugvöllurinn verði kost-
aður af Mannvirkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins
sem einnig mun kosta
rekstur hans. Hins vegar
verði engin hernaðarleg
umsvif á vellinum á frið-
artímum og með engu
móti hægt að segja að
varaflugvöllurinn verði
meiriháttar hernaðar-
mannvirki, eins og fyrir-
vari sá er orðaður í
stjórnarsáttmála núver-
andi ríkisstjórnar. Árni
telur í greininni margvis-
lega kosti varaflugvallar í
Aðaldal en bendir einnig
á neikvæðar hliðar máls-
ins. Sjá „í miðri viku“
bls. 4
Húsbréfakerfið
Andstaðan gegn
breytingum fer
dvínandi
• Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins aukast
þessa dagana verulega lík-
urnar á breiðri samstöðu
um breytingar á húsnæð-
islögunum, þar sem með-
al annars er gert ráð fyrir
upptöku húsbréfakerfis.
Fulltrúar hinna ýmsu
stjórnmálaflokka ná æ
betur saman og andstað-
an sem kom strax fram
hjá ASÍ fer dvínandi eftir
að inálið hefur verið
kynnt betur.
• í fréttaskýringu á blað-
síðu 3 er nánar fjallað um
það öngþveiti sem ríkir í
gildandi húsnæðislána-
kerfi og einnig eru kynnt
helstu atriði í frumvarps-
drögum félagsmálaráð-
herra, sem ráðherra von-
ast til að leggja fram á
allra næstu dögum.
Framleiðsla á matfiski
hátt í fjórfaldast á þessu
ári miðað við árið á undan.
Framleiðslan var 1200 tonn
í fyrra, en verður líklega
4500 tonn í ár og um 9000
tonn 1990. Áriö 1987 var
matfiskframleiðslan ein-
ungis 530 tonn.
Samkvæmt upplýsing-
Mikill fjöldi gesta heiðraði
Jón Baldvin Hannibalsson í
hófi í Þórscafé, þar sem hann
hélt upp á fimmtugsafmæli
sitt í gærkvöldi. Afmælis-
Stjórn Verkamannasam-
bandsins hefur sent Sam-
bandi almennra lífeyrissjóða
bréf þar sem þeirri hugmynd
er komið á framfæri að
kannað verði hvort lífeyris-
sjóöirnir geti haft frum-
kvæði í að koma vöxtum í
landinu niöur.
Framkvæmdastjórn SAL
fjallaði um málið í gærmorg-
un og í framhaldi af þeim
fundi reit hún Verkamanna-
sambandinu bréf þar sem
hún féllst á að skipuð y.rði
um sem Alþýðublaðið afl-
aði sér hjá Veiðimálastofn-
un verður mikil aukning í
eldisrými á þessu ári.
Framleiðslugeta í matfiski
var 7600 tonn undir lok
síðasta árs, en verður lík-
lega um 12000 tonn við lok
þessa árs. Þróunin hefur
orðið sú að eldisstöðvum
barninu bárust margar góðar
gjafir af þessu tilefni og á
mvndinni sést hvar Jón Bald-
vin tekur á móti gjöf Hafn-
firskra krata, málverki af
nefnd, ásamt ASÍ og VSÍ,
sem myndi kanna hvort
vaxtalækkun af hálfu lífeyr-
issjóðanna gæti haft áhrif til
vaxtalækkunar á almennum
markaði.
Á stjórnarfundi í Verka-
mannasambandinu setti Jón
Karlsson frá Sauðárkróki
fram ofangreinda hugmynd.
Meining sambandsins er að
lífeyrissjóðirnir lækki vexti í
allt að 5% og að ríkissjóður
fylgi í kjölfarið, ríkisbankar
lækki sína vexti og að vextir
af spariskírteinum ríkissjóðs
hefur ekki fjölgað jafn
mikið og árin á undan, en
stöðvarnar hafa orðið því
stærri.
Um áramót voru fiskeld-
isstöðvar á skrá, um 125.
Þeim fjölgaði um 12 á síð-
asta ári. Nokkrar stöðvar
bíða staðfestingarleyfis,
fæðingarplássi ráðherrans,
isafjarðarbæ. Jón Baldvin er
augljóslega hinn ánægðasti
með myndina sem Haukur
Helgason skólastjóri færði
verði 5°/o. Yfirlýst markmið
ríkisstjórnarinnar er að ná
raunvöxtum niður í 5°/o.
Hrafn Magnússon fram-
kvæmdastjóri SAL, sagði í
viðtali við Alþýðublaðið að
framkvæmdastjórn lífeyris-
sjóðanna hefði tekið vel í
málið og að þarna væri vissu-
lega hreyft mikilvægu máli.
Þeir væru tilbúnir að láta
kanna hvort þessi vaxtalækk-
un gæti haft áhrif á almenna
vexti í Iandinu.
Urri þetta hefur þó ríkt
deila lengi vel. Sumir telja að
þannig að búast má við að
heildartalan sé um 135, og
til viðbótar konti a.m.k. 10
á þessu ári.
Gífurleg umframfram-
leiðsla hefur verið í seiða-
eldi, en vonir eru bundnar
við, að á þessu ári verði
umframframleiðslan lítil
honum. Er ekki ofmælt að
ísafjörður og Hafnarfjörður
hafi um árabil verið einhver
allra sterkustu vígi krata.
A-mynd/E.ÓI.
svo verði, aðrir, eins og t.d.
Hrafn Magnússon, segja að
það skipti engu hverjir vext-
irnir i húsnæðiskerfinu séu
upp á almenna vexti á mark-
aðnum.
Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Verkamanna-
sambandsins, sagði að þarna
væri Verkamannasambandið
að sparka af stað máli sem
væri löngu orðið tímabært,
vaxtabrjálæðið væri að
drepa bæði fólk og fyrirtæki
í þessu landi.
sem engin. Þetta þýðir að
gífurlega aukinn kraftur
hefur komist í matfisk-
framleiðsluna.
Á þessu ári má búast við
að matfiskur verði seldur
út fyrir 1200-1500 milljónir
króna.
Frumvarp um breyt-
ingar á /ögum um
Seðlabanka
Lausafjárhlutfall
Útvegsbanka
myndi versna
um 400 milljónir
• Guðntundur Hauksson
bankastjóri Útvegsbank-
ans segir lausafjárhlutfall
Útvegsbankans versna
urn 400 milljónir ef Seðla-
banki nýti heimildir sam-
kvæmt frumvarpi sem
liggur fyrir á Alþingi og
felur m.a. í sér breytingu á
lausafjárhlut falli bank-
anna. Frumvarpinu er
ætlað að létta á þeim
bönkunt sem fyrst og
fremst fjármagna útflutn-
ingsgreinarnar. Sverrir
Hermannsson banka-
stjóri Landsbankans telur
að frumvarpið þjóni
þessu markmiði hvað
varðar Landsbankann.
• „Það er alveg ljóst að
þessar breytingar eru
íþyngjandi fyrir okkur.
Það er misskilningur sem
fram kemur í frumvarp-
inu að þetta verði til þess
að létta á okkur. Hitt er
rétt að upplýsingar Seðla-
banka, sem þeir miðuðu
við voru réttar á sínum
tíma. En aðstæður hafa
breyst," sagði Guðmund-
ur í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Sjá nánar bls 3
ÞAÐ ER
STUÐ
ÁÞVÍ
segir Sveinn Jónsson
aflakóngur vikunnar.
Sjá Sjávarsíðuna bls. 5.
Jón Baldvin fimmtugur
FJÖLMENNI HEIÐRAÐI AFMÆLISBARNIÐ
Verkamannasambandið
Lífeyrissjóðir hafi frumkvæði
að almennri vaxtalækkun
Erum til í að kanna þennan möguleika segir Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri SAL.
/