Alþýðublaðið - 22.02.1989, Síða 8
MÞBVBLeiB
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
Jón Sigurðarson forstjóri Álafoss
EFNAHA6SREIKNINGURINN
OKKAR AKKILESARHÆLL
„Efnahagsreikningur
fyrirtækisins er ukkar
Akkilesarhæll", sagði Jón
Sigurðarson forstjóri Ála-
foss í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. „Það sem nú
er stefnt að er að minnka
efnahag fyrirtækisins og
losna bæði við eignir og
skuldir. Samningarnir við
Sovétmenn eru stærri í ár
en í fyrra og lofa góðu.“
Jón sagði ennfremur að
ástæða væri til hóflegrar
bjartsýni á öðrum mörk-
uðuni.
„Það sem gerist við sam-
runa eins og hefur orðið
hjá Álafossi er að við tæm-
um ósköpin öll af húsnæði
en vegna almennrar kreppu
í þjóðfélaginu hefur ekki
verið hægt að selja það.
Það er þessvegna erfitt að
hagræða á efnahagsreikn-
ingi á tímum sem þessum.
Við höfum verið í vinsam-
legum samræðum við lána-
drottna, engum nauðung-
arsamningum. Þessi hag-
ræðing á efnahagsreikn-
ingi er lykilatriði fyrir okk-
ur sem stendur. Gangi hún
ekki upp er staða fyrirtæk-
isins erfið.“
Jón sagði varðandi Sov-
étmarkað að það væri
ástæða til að vera bjart-
sýnn á söluaukningu,
magnaukningu, á þessu ári
miðað við árið 1988. Búið
er að gera myndarlegan
samning við Sovétmenn nú
þegar, en enn hefur ekki
náðst samstaða við þá um
verð á treflum og er því
ósamið um sölu þeirra á
þessu ári. Jón sagði að
menn væru sæmilega
bjartsýnir á að siíkir samn-
ingar næðust. Varðandi
aðra markaði sagði Jón að
hann væri hóflega bjart-
sýnn.
Jón sagði að sem stend-
ur væri fyrirtækið rétt að
byrja að sýna nýja fatalínu
og viðbrögð hefðu verið
óvenju góð, jákvæðari en
áður. Hinsvegar gæti enn
brugðið til beggja vona
með sölu. Myndarlegar
pantanir hefðu borist, á
hinn bóginn væri aðalsalan
ekki komin í gang þannig
að of snemmt væri að segja
til um hvernig hún gengi.
Hann ítrekaði að lokum að
ástæða væri til hóflegrar
bjartsýni, ekkert umfram
það.
Liðkað verði fyrir
samskiptum við Fær-
eyinga og Grænlend-
inga
Ólafur Þ. Þórðarson þing-
maður Framsóknar og Karl
Steinar Guðnason þingmað-
ur Alþýðuflokksins eru
flutningsmenn frumvarps á
Alþingi sem gerir ráð fyrir,
að fiskiskip frá Færeyjum og
Grænlandi verði undanþegin
ákvæðun 65 ára gamalla laga
sem banna erlendum fiski-
skipum að landa afla sínum í
íslenskum höfnum nema
með sérstöku leyfi ráðherra.
Flutningsmenn benda á að
afli skipa frá þessum þjóðum
og þjónusta við þau geti
skapað aukna atvinnu í ís-
lenskum sjávarþorpum og
einhliða aðgerð af þessu tagi
yrði til þess að efla samstarf-
ið enn frekar og auka við-
skiptin á öllum sviðum ís-
lendingum, Færeyingum og
Grænlendingum til hags-
bóta.
íslandssýning í Torínó
Handrit lánuð öðru sinni
Samfara kemur bók um Island þar sem forseti ís/ands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ritar for-
mála. Sýningin tilheyrir flokki sýninga frá áður óþekktum löndum.
á ítölsku um landið. Vigdís
Finnbogadótir, forseti ís-
lands ritar formála bókar-
innar. Að auki mun Jónas
Kristjánsson, forstöðumað-
ur Stofnunar Árna Magnús-
sonar, halda erindi um ís-
lenska bókmenntasögu í
fjallasafninu sem og háskól-
unum í Torínó og Mílanó.
Það er safnið sjálft sem kost-
ar undirbúning og ku kostn-
aður vera á sjöttu milljón.
Að auki kostar safnið allar
tryggingar og ferðir.
Að sögn Jónasar Krist-
jánssonar er þetta í annað
skipti sem handrit eru lánuð
til sýninga erlendis. Fyrra
skiptið var í tengslum við
sýninguna Scandinavia To-
day í Bandaríkjunum árið
1982, en þá voru handritin til
sýnis i Pierpond Morgan
bókasafninu. Tryggingar
handritanna nema 7 milljón-
um króna sem Jónas sagði
vera fengið með að leggja
kaupverð Skarðsbókar á sín-
um tíma til grundvallar.
Hann sagði þó að auðvitað
væri ekki hægt að meta bæk-
urnar til fjár, upphæðin væri
þessvegna aukaatriði. Trygg-
ingin væri meira að nafninu
til.
Um leið og Guðmundur afhenti rausnarlega gjöf fyrir hönd
Dagsbrúnar skoraði hann á önnur verkalýðsfélög að gera slíkt
hið sama.
Dagsbrún
GEFUR SAA
HÁLFA MILLJ-
ÓN KRÓNA
Eðlilegt að verka/ýðsfé/ög styrki þessa starf-
semi segir Guðmundur J. Guðmundsson.
Dagsbrún afhenti í gær
SÁÁ 500.000 kr. að gjöf til
eflingar starfsemi þess. Guð-
mundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, seml
afhenti gjöfina, sagði í sam-
tali við Alþýðublaðið að
hitastig
i borgum
Evrópu
kl. 12
í gær
að islenskum
tíma.
Dagshrún hefði þungar
áhyggjur af áfengisvanda-
málinu og að sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaganna gætu
mjög hjálpað til á þessu
sviði.
Dagsbrún hefur greitt
þeim félagsmönnum sínum
sem farið hafa í meðferð á
vegum SÁÁ sjúkradagpen-
inga. Guðmundur sagði enn-
fremur að forvarnarstarf
væri á engan hátt nægilegt í
landinu, hvorki í skólum né á
vinnustöðum. Dagsbrún
hefði hvatt menn til að fara í
meðferð í gegnum tíðina og
þeir þekktu því vel áhrifa-
n.átt meðferðar SÁÁ. Dags-
brún vildi ekki sjá starfsemi
sem þá er SÁÁ innir af hendi
dragast saman af fjárskorti.
Þessvegna styrkti Dagsbrún
samtökin.
Um leið og Guðmundur
afhenti gjöfina skoraði
Dagsbrún á önnur verkalýðs-
félög að styrkja starfsemi
SÁA og um leið á ríkisstjórn
og sveitarfélög að veita meira
fé til fyrirbyggjandi aðgerða í
áfengis- og vímuefnamálum.
hlutaðeigandi íslenska aðila verður gefin út 150 bls. bók
hefur að sögn verið mjög um ísland, en það ku vera sú
góð. Samfara sýningunni ýtarlegasta sem komið hefur
Frá blaðamannafundi á Hótel Borg i fyrradag. Frá vinstri til
hægri eru Enrico Benedetto umsjónarmaður sýningarinnar,
Brynja Tomér sem hefur haft hönd í bagga, Enrico Nerviani
menntamálafulltrúa Piemontos héraðs og Aldo Audisro fram-
kvæmdastjóri safnsins.
ÍSLAND
Hitastig i nokkrum landshlutum kl. 12 i dag.
Fimm fornrit frá Árna-
stofnun verða meóal þeirra
muna sem sýndir veröa á
stórri íslandssýningu í fjalla-
safninu Duca degli Abruzzi í
Torinó á Ítalíu. Sýningin
opnar þann 18. apríl næst-
komandi. Auk handritanna
verður margt annarra muna
á sýningunni, m.a. málverk
eftir þrjá íslcnska málara,
munir úr Þjóðminjasafni og
Árbæjarsafni og sögulegar
myndir úr Ijósmyndasafn-
inu. Að auki liefur ríkisút-
varpið lánað 10 klst. efni um
Island.
Fjallasafn þetta er gríðar-
lega stórt og hefur á hverju
ári skipulagt eina stóra sýn-
ingu, þar sem sýnt og kynnt
er áður óþekkt land. Að auki
fjórar til fimm smærri tíma-
bundnar sýningar. Alll á
þetta sameiginlegt að tengj-
ast náttúru og fjölluin með
beinum eða óbeinum hætti.
íslandssýningin verður í níu
sýningarsölum, auk þess sem
sýnd verða myndbönd frá
Ríkisútvarpinu um ísland
allan daginn. Undirbúningur
sýningarinnar hefur staðið í
þrjú ár og hefur safnið sjálft
átt allan heiður af þeim und-
irbúningi en samvinna við
VEÐRIÐ
ÍDAG
Litur ut fyrir norð-aust-
an átt, hvassa á austur
og suð-austurlandi og
þar verður snjókoma
eða siydda. Él á norður-
landi en úrkomulaust á
vestur- og suð-vestur-
landi. Frost -r5-0 stig.