Alþýðublaðið - 31.03.1989, Qupperneq 2
2
Föstudagur 31. mars 1989
MÞYfllíBLMB
ÖNHUR SJONARMIÐ
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Dreif ingastjóri:
Setning og umbrot:
Prentun:
Blað hf.
Flákon Hákonarson
Ingólfur Margeirsson
Kristján Þorvaldsson
Steen Johansson
Sigurður Jónsson
Filmur og prent, Ármúla 38
Blaöaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarslminn er 681866
Askriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið.
HÁLFT ÁR TIL VINSTRI
H veitibrauðsdagar ríkisstjórnar Steingríms Hermannsson-
ar eru brátt á enda. Lengst af hefur stjórnin setið í vernduðu
umhverfi, eðaeftirað samningsrétturvarafnuminn með lög-
um. Það var vafasöm aðgerð stjórnar sem kennir sig við lýð-
ræði og jöfnuð. Ástæður þess að gripið var til svo andlýð-
ræðislegra aðgerða var meðal annars sögð sú kreppa sem
þjóðfélagið sigldi inn í. Verri yrði hún ef ekki yrði brugðist við
með því að stöðva tímans rás með verðstöðvun og banni við
samningum um kaup og kjör. Hálft ár er liðið og enn virðist
sem stjórnin hafi ekki áttað sig á því að tíminn líður með öðr-
um hætti. Skipunartónninn hljómar áfram.
Samningar við launafólk urðu frjálsir fyrir rúmum mánuði
án þess að ríkisstjórnin virtist hafa tekið eftir því. Engar ráð-
stafanir höfðu verið gerðartil að komaí veg fyrirátök ávinnu-
markaði, þrátt fyrir að sum stéttarfélög hefðu verið samn-
ingslaus í mánuði. Tveimurdögum áðuren launaseðlaropin-
berra starfsmanna voru prentaðir út bauð samninganefnd
ríkisins eitt þúsund króna kjarabót, og um líkt leyti kallaði
fjármálaráðherra til sín fulltrúa þeirra félaga sem áttu í kaup-
stríði við ríkisvaldið á fjölmiðlafund til að tilkynna þeim að
auk þúsund krónunnaryrðu laun ekki greidd nematil 6.apríl.
Þá færu starfsmenn margir hverjir í verkfall og því bæri að
ákveða fyrirfram greiðslurnar eins og um verkfall yrði að
ræða. Þetta vardæmalaus aðferð fulltrúa félagshyggjunnar
í viðkvæmri deilu. Skipunartónn vinstri ‘félagshyggjunnar“
hinn sami og fyrrum.
Starfstími ríkisstjórnar vinstri flokkanna er orðinn hálft ár.
Það hefur vakið nokkra athygli að ekki skuli hafa borið á öðr-
um áherslum hjástjórninni en þeim ríkisstjórnum sem und-
an sátu og kenndu sig við hægri mennsku. Það virðist sem
hver ráöherra stundi sjálfsþurftarbúskap hver í sínu horni
fjarri mannabyggð. Aðferðir menntamálaráðherra eru sumar
hverjar virðingarverðar. Hann leitartil aðilautan ráðuneytis,
ef vera skyldi að einhverjir aðrir í þjóðfélaginu kynnu að hafa
eitthvað til málanna að leggja.
Nefndafarganið törllríöur öllu. Málum erskipað i nefndirog
reyndar eru ýmis teikn á lofti um að örlög þessarar stjórnar
verði hin sömu og vinstri meirihlutans sáluga í Reykjavík,
sem tókst með undraverðum hætti að koma öllum framfara-
málum I nefndir. Sú meirihlutastjórn kafnaði í einhverri mis-
skilinni lýðræðisást, sem fólst í því að ekkert mætti fram-
kvæma nema vinir og vandamenn hefðu fjallað rækilega um
málið í nefnd. Vinstri meirihlutinn drukknaði í nefndaflóði
sem Sjálfstæðjsmenn skoluðu í burtu með afturtöku sinni.
Hlutskipti þessarar rikisstjórnar er að verða það sama og
ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Það hafði enginn áhuga á
henni og því lognaðist hún út af. Ef ríkisstjórn Steingríms á
að eigavon um að verðasett áfyrir veturinn, verður að skapa
henni annað bakland en það sérfræðistóð sem nú virðist öllu
ráða. Stuðningsfólk stjórnarinnarerorðið langþreytt á því að
sjónarmiö vinstri fólks sjái ekki dagsins Ijós. Framferði ráð-
herra benda alls ekki til þess að launfólki verði sýnd önnur
veiði en sú sem fyrirf ram er gef in og f ramreidd af grátkórnum
um ‘erfiða stöðu þjóðarbúsins". Kór sem ætti fyrir löngu að
hafa verið sagt upp. Kórstjórinn fékk allt annað hlutverk en
aö endurflytja gamla sinfóníu aðila vinnumarkaðarins. Inn f
þetta þjóðarbú hafa ekki ósjaldan runnið óskiptar milljarðir.
Slðast var það á góðæriskaflanum 1986-1988. Vegna stjórn-
leysis og þar af óðaverðbólgu er svo komið að venjulegt heið-
virt fólk er ekki matvinnungur þó að unninn sé tvöfaldur
vinnudagur.
Það þarf að jafna lífskjörin (landinu. Stuðningsfólk þesss-
arar rlkisstjórnar kærir sig ekkert um að heilsugæsla sé
dregin saman og sjúku fólki vlsað út I buskann. Þaö vill Ifka
að það sé hlúð að börnunum með margfallt betri aðbúnaði á
uppeldisstofnunum og að heimili séu ekki leyst upp vegna
óhóflegrar vinnu. Atvinnan I dreifbýlinu og byggðaröskunin
ættu sömuleióis að vera á dagskrá vinstri stjórnar.
Ráðherrar góðir. Dragiö ykkur út úr ráðuneytunum og bank-
ið upp á hjá fólkinu I landinu.
Eyvindur Erlendsson: Fólkið vill vera heima hjá sér i kreðsunum fyrir sunn-
an.
TREGTIN hans Þorleifs Land-
verndarstjóra virðist ætla að reyn-
ast mörgum tilefni til að tjá sig. Það
er Iíkast því sem öll samanlögð nátt-
úra landsins muni gjalda sjónvarps-
þáttarins um ókomin ár. Útrásin
tekur á sig furðulegustu myndir.
Landvernd fékk fyrjr nokkrum ár-
um jörð í Ölfusi til afnota. í Dag-
skránni sem er gefin út á Selfossi
ræðst leiðarahöfundur að grasinu á
Landverndartúninu með offorsi:
„Það keinur ekki til mála að
„sveitamenn" mundu liða slíka
meðferð á landi sem þarna á sér
stað. Túnið er í slíkri órækt að
vandséð er að það verði nokkurn
tíma nýtt framar nema að rækta
það upp að nýju.“
Og höfundur segir kaupmenn
ganga í lið með „Landvernd“ með
því að skikka neytendur til að
kaupa burðarpoka. Látum af þeirri
skattpíningarstefnu, skrifar Her-
geir Kristgeirsson Ieiðarahöfundur.
Landvernd sem sé orðin boðberi
skattpíningar. Hvað næst?
VESTFIRÐINGAR viija
jarðgöng. Og þau koma — en lík-
Iega undir Hvalfjörð. Það er niður-
staða Eyvindar Erlendssonar í
spjalli um byggðastefnu í Lands-
byggðinni (sem er gefin út í Reykja-
vík). Og hvað varð af kjúklingun-
um sem neytendur vildu?
„Og hvernig fór með kjúklinga-
framleiðsluna sem svo sjálfsagt
þótti að láta taka við af „niður-
greiddu rolluketi" og átti að verða
guðsblessun neytandans af því
nefnilega að hún bar sig. Ekki
höfðu þeir fyrr komið rollunum á
kné og fest hænsni sín í sessi en þeir
heimtuðu niðurgreiðslur og eins-
konar útflutningsbætur til þess að
troða þeim ofan í Kana á Keflavík-
urflugvelli. Urðu einhverjir hissa?
Og hvað með jarðgangnageröina
sem búið er að hnotbítast um árum
saman gegn varginum á Ólafsfirði
og Vestfjörðum, sem þóttist þurfa á
henni að halda fremur öðru. Jú, —
allt í einu komast menn að því að
eitthvað verður að gera við verktak-
ana milli þesssem þeireru í virkjun-
um handa stóriðjunni, (niður-
greiddum af hinum almenna not-
anda). Og þá þykja jarðgöng sjálf-
sögð enda þær fréttir borist að Fær-
eyingar bori svona göng út um allt
eins og ekkert sé. En þá finnst
mönnum jafnframt tóm vitleysa að
vera að bora svona göng einhvers-
staðar „langt í burtu".
Árangurinn af baráttu Vestfirð-
inga á sem sagt að verða sá að bor-
uð verði göng undir Hvalfjörð þar
sem samgöngur eru prýðilegar fyrir
(þrjár til fimm ferjur á dag) en þó
fyrst og fremst og endilega undir
miðri Lækjargötunni í Reykjavík
sjálfri. Varð einhver undrandi?
Og Skógræktin neitar að setja
niður höfðustöðvar sínar á Hall-
ormsstað. Sigurður minn Blöndal
er látinn standa fyrir því og maður
verður að skilja hann svo sem.
Hann verður að halda starfsfólki
sínu góðu. Það vill vera „heima hjá
sér“ og í „kreðsunum“. Og sjálfur
verður hann að vera innan um
menn, þar sem spekulerað er og fé
er úthlutað svo ekki verði hlutur
hans fyrirtækis fyrir borð borinn.
Urðu einhverjir hissa?“
EINN MEÐ
KAFFINU
Ameríski túristinn var
staddur í Evrópu og virti fyrir
sér glæsilega dómkirkju frá
miööldum.
„Hvaö tók langan tíma að
reisa þessa kirkju?“ spurði
hann fararstjórann.
„500 ár,“ svaraöi farar-
stjórinn.
„Iss!,“ sagði ameriski túr-
istinn. „í Ameriku byggjum
viö svona byggingu á einu ári
og erum búnir aö rífa hana
eftir tvö ár!“
DAGATAL
Kallinn í kistunni
Nú sem stendur er uppistand
vegna þess að einhversstaðar
kvisaðist að til stæði að bræður
okkar í vestri ætluðu sér að halda
heræfingar í einu aðildarríki Atl-
anshafsbandalagsins og byrja
þann 17da júní. Skyndilega erum
við, þessi nýríka auglýsingaþjóð á
endalausu halla og laddarerí farin
að muna eftir Jóni Sigurðssyni.
Samt eins og menn minni að
hingað til hafi meira máli skipt á
þessum degi rigningin og rokið og
vætan að innanverðu. Verður ekki
séð að menn hafi verið sérstaklega
innblásnir af Jóni þennan dag
júnímánaðar fremur en aðra.
Hér væri rétt að gera skoðana-
könnun. Ekki um það hvort ís-
lendingar vilji hafa heræfingar á
íslandi 17da júní, heldur hversu
vel hún þekkir til Jóns Sigurðs-
sonar og hans verka. Hvaða stærð
hann er i hugum þjóðarinnar?
Kannski mætti setja upp krossa-
próf með valkostum:
Hvern þessara manna þekkir
þú best? Stutt svar æskilegt.
a) Jón Sigurðsson
b) Dustin Hoffman
c) Ronald Regan
d) Ómar Ragnarsson
e) James Joyce
0 Napoleon
g) Madonnu
Þegar niðurstaðan er ljós má taka
ákvörðun um framhaldið. Er Jón
í meiri hættu en tungan, er þjóð-
hetjan sjálf dottin í kistuna sem
geymir glataða dýrgripi. Og í
framhaldi. Hvað er þess virði að
fara ekki í sömu kistu? Þar má
lengi telja; Arnarflug, Söngva-
keppni sjónvarpsins, einkarekin
útvarpsrekstur... Hins vegar er
það sem má gleymast: Þjóðleik-
húsið, þjóðkirkjan, þjóðskáldin,
Þjóðarbókhlaðan og áfram.
Eða að skoðanakönnunin gæti
verið í anda þeirrar sem Arnarflug
gerði um það hvort fólki fyndist
fyrirtækið eiga að vera til eða
ekki. Spurningargæti þá hljóðað:
Á Jón Sigurðsson heima í sögu-
bókum? Voru marseringar að
hans skapi að þínu mati?
í Arnarflugskönnunni gleymdist
einhvern veginn alveg að spyrja
‘ hvað fólk vildi borga mikið til að
halda fyrirtækinu gangandi. Því
myndu allir sjálfkrafa muna eftir
varðandi Jón. Það er líka skrýtið
að engum hefur dottið í hug að
gera skoðanakönnun með svo-
hljóðandi spurningum: Vilt þú að
fólk á Stöðvarfirði hafi vinnu í
frystihúsinu sínu? Hvað finnst
þér það mega kosta?
Kannski mætti líka leyfa heræf-
ingar á þeim grundvelli að Arnar-
flug, með ríkisábyrgð og -styrk,
fengi að flytja hingað hermenn.
Ef til vill væri líka hægt að veita
félaginu einkaleyfi á að fljúga
með Greenpeace yfir hvalamiðin
og Landvernd yfir uppblásin
svæði á hálendinu. Umfram allt
verður ríkið að tryggja félaginu
rekstrargrundvöll. Einkabissnes-
sinn er allt of þarfur til að hann
fari eftir eigin lögmálum og fari á
hausinn þegar hann getur ekki
meir. Engin leið að hann fari í
kistuna með Jóni.
Þannig getur þetta í raun gengið
fínt.Meðan enginn man eftir Jóni,
hvað þá þeim öðrum sem með
honum stóðu og börðust, Fjölnis-
mönnum og einhverjum fleirum
sem ekki eru annað en merkingar-
laus nöfn, getur ríkið á sama tíma
boðið launafólki þúsundkall og
svo sullað peningum í fólk sem
predikar lögmá! frjáls markaðar
en nennir ekki að gangast við
þeim þegar þau læðast að því
sjálfu. Undir þessu höldum við
hátíð — hátíðarinnar vegna —
með dúndrandi orustuþotum yfir
hausamótunum og Jón riðandi til
falls á stallinum.