Alþýðublaðið - 31.03.1989, Page 3

Alþýðublaðið - 31.03.1989, Page 3
Föstudagur 31. mars 1989 3 FRÉTTASKÝBIHB Ríkisbankastjórar og hagsmunir Eru hluthafar þátttakendur i atvinnurekstri? Spurningin um tengsl opinberra starfs- manna við einkafyrirtæki virðist í mörgum til- fellum opin fyrir túlkun lagaákvæða þegar reynt er að meta hvort um hagsmunaárekstur sé að ræða. í lögum frá 1985 um viðskipta- banka er ákvæði þar sem segir að bankastjórar megi ekki sitja í stjórnum einkafyrirtækja eða >.taka þátt i atvinnurekstri að öðru ieyti“. Til eru dæmi um að bankastjórar eða útibússtjórar ríkisbankannia séu hluthafar í einkafyrir- tækjum án þess að það sé túlkað sem þátttaka í atvinnurekstri. Bankaeftirlitið á að sjá um að lögum um viðskiptabanka sé framfylgt. Hvernig verður þátt- taka í atvinnurekstri að öðru leyti túlkað? I kjölfar vandræðamáls Sverris Hermannssonar fyrrverandi alþingismanns vegna tengsla hans við fyr- irtækið Ögurvík, þar sem hann var skráður hluthafi og stjórnarmaður er hann tók við bankastjórastól sínum í Landsbankanum, hafa vaknað upp spurning- ar um túlkun ákvæðanna sem koma eiga í veg fyrir hagsmunaárekstra. Um leið hafa komið fram ótæk dæmi um að ekki sé allt með felldu með skráningu í hlutafélagaskrá. Útibústjóri skráður stjórnarmaður__________ í máli Sverris Her- mannssonar þótti koma í ljós að mistök hefðu ráðið því að hann væri enn skráður í stjórn ögurvíkur og að hann hefði ritað nafn sitt undir fundargerðabók fyrir misskilning, hann hefði talið sig gera slíkt sem fundarstjóri. Um leið kom fram að hann hefði leitast við að selja hlut sinn í fyrirtækinu án árangurs. Mjög hliðstætt dæmi hefur komið upp varðandi útibússtjóra Búnaðar- bankans, sem er rikis- banki, á Blönduósi. Útibússtjóri Búnaðar- bankans þar er Sigurður Kristjánsson, sem í gögn- um hlutafélagaskrár er skráður varamaður í stjórn trésmiðjunnar Stíganda þar í bæ. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins er að auki bróðir Sigurðar, Hilmar Kristjánsson, sem þess fyrir utan er oddviti Blönduóshrepps. Svo virð- ist sem um handvömm kunni að vera að ræða varðandi stjórnarsetu Sig- urðar í fyrirtækinu, en hitt liggur fyrir að hann er hlut- hafi í fyrirtækinu og ræðst þá mögulegur hagsmuna- árekstur á því hvernig beri að túlka 13. grein laga um viðskiptabanka þar sem kveðið er á um þátttöku í atvinnurekstri „að öðru leyti“. Kaupfélagið á 53170 í Stíganda, en að öðru leyti eru stærstu eigendurnir Hilmar Kristjánsson og fjölskylda, þeirra á meðal Sigurður Kristjánsson úti- bússtjóri Búnaðarbank- ans. í stjórn fyrirtækisins eru frá 16. ágúst 1988 skráðir Guðsteinn Einars- son kaupfélagsstjóri, stjórnarformaður, Hafþór Sigurðsson og Björn Magnússon, en varamenn tilgreindir þeir Sigurður Kristjánsson útibússtjóri og Jóhann Guðmundsson. Framkvæmdastjóri er Hilmar Kristjánsson, odd- viti Blönduóshrepps. Til- kynning um þessa skipan mála barst hlutafélagaskrá ekki fyrr en 23. febrúar í ár og hefur því liðið hálft ár á milli. Hluthafi en i stjórn fyrir mistök Reynt var að auka hluta- fé fyrirtækisins á síðasta ári, en í apríl það ár var til- kynnt að hlutafé þyrfti að lækka um 2,1 milljónir króna niður í 4,7 milljónir, þar sem ekki hefði tekist að selja eigið hlutafé fyrir- tækisins. „Eg hef í raun ekkert um þetta mál við þig að tala. Ég var einhvern tíma í stjórn Stíganda, en sagði mig úr henni þegar lögum um viðskiptabanka var breytt 1985. Ég á hlut í þessu fyrirtæki, en kannast ekki við að hafa setið fund þennan í ágúst og ef ég hef verið þar kjörinn varamað- ur stjórnar þá hefur það gerst að mér forspurðum. Mínir yfirmenn vita af því að ég á hlut í þessu fyrir- tæki, en vegna þessara laga sagði ég mig úr þessari stjórn. Ef þeir hafa sett mig í stjórnina aftur þá er það ekki með mínu sam- þykki“, sagði Sigurður Kristjánsson útibústjóri í samtali við Alþýðublaðið um mál þetta. Stjórnarformaður er sem áður segir Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Húnvetninga og var hann kjörinn i stjórnina á aðalfundinum í ágúst i fyrra. Hann er hins vegar fremur nýlega tekinn við stöðu sinni af Árna Jó- hannssyni. í samtali við Alþýðublaðið sagði Guð- steinn að Sigurður hefði á sínum tíma sagt sig úr stjórn Stíganda og hefði tilkynnt Bankaeftirlitinu um það. „Ef hann er skráð- ur í stjórn fyrirtækisins eru það mistök forvera míns í embætti stjórnarformanns og kaupfélagsstjóra að hafa ekki gengið frá því, en hann er löngu hættur af- skiptum sinum af fyrir- tækinu." Hvað w að taka þétt i atvinnurakatrl? Guðsteinn sagði að á að- alfundinum í ágúst hefði fyrrverandi kaupfélags- stjóri lent i svipaðri að- stöðu og Valur Arnþórsson að vera i stjórn hinna ýmsu fyrirtækja. „Ég var ráðinn kaupfélagsstjóri og átti að taka við af honum. Þessu var hespað af í snarhasti". Sigurður er augljóslega mjög tengdur fyrirtækinu Stíganda, hann og fjöl- skylda hans að oddvitan- um meðtöldum eru stærstu eigendurnir utan Kaupfé- lagsins. Hann er skráður stjórnarmaður í fyrirtæk- inu, þótt handvömm kunni að ráða því, enda ritaði hann bréf í desember 1985 áður en lögin tóku gildi til Búnaðarbankans, til við- skiptaráðuneytisins og Seðlabankans. í bréfinu til ráðuneytisins sagði Sigurð- ur meðal annars: „Ég und- irritaður, Sigurður Kristj- ánsson útibústjóri Búnað- arbanka íslands, mun ekki frá 1.1. 1986 vera í stjórn stofnana eða atvinnufyrir- tækja utan bankans né taka þátt i atvinnurekstri að öðru ieyti sem ekki sam- rýmist framangreindum ákvæðum nýrra laga um viðskiptabanka." Úrsögn Sigurðar verður ekki dregin í efa. Eftir stendur hins vegar að enn hefur ekki reynt fyllilega á túlkun 13. greinar laganna um viðskiptabanka: Hvað telst vera þátttaka í at- vinnurekstri að öðru leyti? í tengslum við Sverris mál Hermannssonar og Ögur- víkur kom sem kunnugt fram að litið var svo á að Sverrir ætti að losa sig við eignarhlut sinn í fyrirtæk- inu og hefði reynt það og út frá því er ekki úr vegi að túlka það sem viðurkenn- ingu á því að eignarhlut- deild flokkist undir þátttöku í atvinnurekstri. Enda hlýtur bankastjóri að tengjast fyrirtæki sterkum taugum sem mögulega stór hluthafi, hvort sem hann situr í stjórn þess eða ekki. FRIÐRIK ÞÓR | GUOMUNDSSON, FRÉTTASKÝRIH6 Tillögur að útvarpslögum Breytingar á tekjustofnum og stjórnskipun RÚV Einkum þrjú nýmæli I tillögum nefndarinnar; Stofnun fjölmiðlasjóðs, breytingar ð tekju- stofnum RÚV og breytingar ð stjórnskipan RÚV. Útvarpsrðð skal ð brott. Helst skiptar skoðanir I nefndinni varðandi auglýsingagjald. EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Nefnd sú sem Svavar Gestsson, menntamálaráð- herra, skipaði til að gera tillögur um breytingar á út- varpslögum hefur skilað ráðherra áliti. í áliti nefnd- arinnar má einkum nefna þrjú nýmæli, þ.e. afnám söluskatts og menningar- sjóðsgjalds af auglýsing- um í ljósvakamiðlum og stofnun fjölmiðlasjóðs með þátttöku allra fjöl- miðla landsins. í öðru lagi breytt stjórnskipan Ríkis- útvarpsins og í þriðja lagi breyting á tekjustofnum Ríkisútvarpsins. Fjölmiðlasjóður_________ Hlutverk Fjölmiðla- sjóðs er samkvæmt tillög- um nefndarinnar að styrkja innlenda fjölmiðla í samkeppni við erlenda. í þeim tilgangi er honum ætlað að efla íslenska mál- vitund og tungu í fjölmiðl- um, efla innlenda dag- skrárgerð einkum fyrir börn og unglinga og fleira. Tekjur fjölmiðlasjóðsins eru sérstakt gjald, Fjöl- miðlasjóðsgjald sem skal vera 12% og Ieggst á allar auglýsingar í ljósvaka og prentmiðlum. Þetta gjald leysir af hólmi söluskatt af auglýsingum og um leið verður stofnun þessa sjóðs til þess að Menningarsjóð- ur leggst af, enda þykir nefndarmönnum sem hann hafi ekki sannað gildi sitt, heldur þvert á móti. Að auki skal lagt sér- stakt gjald á móttökubún- að útvarpsefnis frá gervi- hnöttum er nemi 12% af kostnaði við búnað þenn- an þegar hann er kominn til Iandsins. Helmingur þessara 12% prósenta rennur reyndar til KVIK, sambands íslenskra og er- lendra höfundarrétthafa á kvikmyndum. Að auki skal lagt á sérstakt 12% gjald á viðtæki fyrir hljóðvarp og sjónvarp, enn af því verði sem tækin kosta hingað komin. Sú upphæð rennur öll í Fjölmiðlasjóð. Broytt otjómvkipan rikioútvarpoins Menntamálaráðherra mun áfram hafa, sam- kvæmt tillögunum, vald til að skipa útvarpsstjóra, en nú verður hann aðeins skipaður til 5 ára, með heimild til skipunar önnur fimm ár. Menntamálaráð- herra skipar einnig fram- kvæmdastjóra að fenginni tillögu framkvæmda- stjórnar og gilda sömu tímatakmörk. Þessir menn sjá um daglegan rekstur ríkisútvarpsins. Útvarpsráð verður hins- vegar lagt niður í núver- andi mynd, skv. tillögun- um og skiptir sér því ekki meir af mannaráðningum. í stað þess kemur dag- skrárráð sem skipað verður fulltrúum þingflokkanna, fulltrúum sveitarfélag- anna, neytandasamtak- anna, auk þess sem út- varpsstjóri, framkvæmda- stjórar hljóðvarps og sjón- varps og fulltrúi starfs- manna eiga sæti i ráðinu. Höfuðhlutverk þess er að fjalla um dagskrána eftir á og ætlast er til að ráðið fái skrifleg svör sé þess óskað. Ráðið á að endurspegla þjóðfélagið, ekki valda- hlutföll og í því skal og taka tillit til byggðsjónar- miða og kynjasjónamiða. Menntamálaráðherra skipar dagskrárráð eftir hverjar alþingiskosningar og hann skipar einnig for- mann ráðsins. Sérálit komu fram en þau verða ekki rakin hér, nema hvað fram kom tillaga að út- varpsráð hittist ekki oftar en tvisvar á ári, væri hug- myndabanki og tengsl við fjárveitingavald og Alþingi væru mjög efld. Skiptar skoðanir voru um tengslin við Alþingi og fjárveitinga- valdið. Breyting á tekjustotnum__________ Tekjustofnar Ríkisút- varpsins eiga enn sem fyrr að vera afnotagjöld og auglýsingatekjur. Mennta- málaráðherra á samkvæmt tillögunum að ákveða af- notagjöldin að fengunum tillögum Rikisútvarpsins. Stofn afnotagjaldsins eru íbúðir og atvinnuhúsnæði eftir því sem við á. Ekki verður lengur mið- að við fjölda viðtækja, enda telur nefndin að milli 10 og 15.000 heimili svindli á afnotagjaldinu. Með þessari Ieið á að tryggja RÚV auknar tekjur enda stækkar tekjustofninn verulega ef þessi leið geng- ur eftir. í tillögunum segir að um gjald fyrir auglýsingar í Ríkisútvarpinu gildi reglur um grunngjald auglýsinga sem menntamálaráðherra setur í reglugerð að feng- inni tillögu framkvæmda- stjórnar Ríkisútvarpsins. Um þetta atriði voru skipt- ar skoðanir og misjafn rökstuðningur. Tillögur komu fram um að ekki yrðu seldar auglýsingar í dagskrá Ríkisútvarpsins og sömuleiðis efasemdir um hvort rétt væri að fela ráð- herra að ákveða, að feng- inni tillögu RÚV, reglur um grunngjald auglýsinga. Réttara væri að slík ákvörðun væri í höndum RÚV sjálfs, að öðrum kosti yrði frelsi þess skert og í ljósi þeirra tekjustofna sem það hefur verið skert þá er ekkert öruggt í þess- um málum. Ennfremur var á það bent i tillögunum að aug- lýsingagjald RÚV þyrfti að hækka um 70- 100% til þess að jafnvægi náist á auglýsingamarkaði. For- senda slíkrar hækkunar er að tekjur RÚV dragist ekki saman, þrátt fyrir að aug- lýsingum fækki, enda sé þá miðað við að ljósvaka- miðlar hafi of mikið af auglýsingum miðað við prentmiðla. Straumur smærri auglýsenda frá prentmiðlum til sjónvarps ætti þá að snúast við og slíkt væri til þess að auglýs- ingatímar styttust veru- lega.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.