Alþýðublaðið - 31.03.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 31. mars 1989
5
TTÁ
>INN
>öxtunarslys“.
boð markaðsverðbréfa og taka að
sér sambærileg hlutverk og verð-
bréfafyrirtæki í nágrannalöndun-
um, þ.e. að kaupa og selja mark-
aðsverðbréf. Þetta er talið opna
möguleika á að hér á landi skapist
virkur hlutabréfamarkaður. Tals-
menn verðbréfafyrirtækja sem
blaðið ræddi við telja hins vegar
að meira þurfi að korna til, því
bæta þurfi viss atriði í skattlagn-
ingu þannig að almenningur njóti
einhvers skattalegs ávinnings af
hlutabréfakaupum.
Skýr greinarnrunur er gerður á
fjárhag verðbréfasjóðs og verð-
bréfafyrirtækis. Sérstakar reglur
kveða á um að fyrirtæki rnegi ekki
notfæra sér sjóði í óeðlilegum til-
gangi. „Markmið þessara reglna
er að þeir sem kaupa hlutdeildar-
skírteini í sjóðnum verði ekki
hlunnfarnir," segir Björn Friðf-
insson. Algjörlega er bannað, að
blanda saman rekstri verðbréfa-
sjóða og öðrum rekstri. Að sama
skapi er bannað að verðbréfafyr-
irtæki eigi verðbréfaviðskipti við
verðbréfasjóði í þeirra vörslu.
Minni áhætta —________________
minni ávöxtun
Með þessu eiga viðskipti við
verðbréfasjóðina að verða miklu
traustari. „Fram að þessu er alveg
ljóst, að þarna hafa menn getað
fengið betri ávöxtun heldur með
því að eiga ríkisskuldabréf eða
pening á bankabók. En á móti
hafa menn verið að taka mikla áh-
ættu eins og dæmin sýna. Með
lögunum er áhættan minnkuð.
Hugsanlega minnkar ávöxtunin
líka, því nú þurfa sjóðirnir að fara
varlegar í sinni fjárfestingu," seg-
ir Björn Friðfinnsson.
Engar reglur voru til um kaup-
leigufyrirtækin svokölluðu þegar
nefndin hóf störf. Því þurfti að
byrja á því að skilgreina hugtökin
sem um var fjallað. Samkvæmt
lögunum er eignarleiga samheiti
yfir fjármögnunarleigu, kaup-
leigu og rekstrarleigu. Strangar
kröfur eru gerðar um upplýsinga-
skyldu, þannig að fólk viti hvað
það er að skrifa undir. Hlutafé á
a.m.k. að nema 10 milljónum og
eigið fé, að viðbættum vikjandi
lánum, skal á hverjum tíma vera
a.m.k. 10% af heildarskuldbind-
ingum. í lögunum er gert ráð fyrir
að ráðherra geti með reglugerð
sett nánari skilyrði um eignarleigu
á fasteignum. Þar með yrði kaup-
leiga góð og gild varðandi við-
skipti með iðnaðar- og verslunar-
húsæði.
Pétur Blöndal hjá Kaup-
þingi segist á heildina litið
ánægður með nýju löggjöf-
ina um verðbréfaviðskipti
og verðbréfasjóði. Hann er
hins vegar mjög ósáttur við
ákvæði um bindiskyldu
sem sett voru í lögin um
Seðlabanka íslands. „Þessi
bindiskylda er raunveru-
lega skattlagning á þá sem
eiga minna sparifé. Þeir
sem eiga meira geta bara
átt sín eigin skuldabréf,“
segir Pétur. ,,Það eru
nokkrir aðilar sem eiga um
eða yfir milljón. þeir geta
keypt skuldabréf sjálfir af
því að áhættudreifingin er
orðin nægilega mikil. En þá
er engin bindiskylda,- fjár-
magnið ekki sett í bindingu
með lágum eða jafnvel eng-
um vöxtum. Þetta er þvi i
raun skattlagning á litla
manninn."
Pétur Blöndal: Lögin koma í veg fyrir hluti eins og Ávöxtun.
Pétur Blöndal hjá Kaupþingi:
NAUÐSYNLEG
LAGASETNING
en bindiskyldan er skattlagning á litla manninn
Pétur segir að helmingur þeirra
sem eiga einingarbréf eigi undir
200 þúsund krónum. „Meginupp-
spretta sparnaðar er hjá fólki með
tiltölulega lítið sparifé, en hópur-
inn er stór. Það er ólíklegt að þetta
fólk sé í bíssnes. Þeir sem reka fyr-
irtæki skulda yfirleitt og eiga ekki
sparifé. í hópi þeirra sem á sparifé
eru m.a. ungt fólk sem sparar fyrir
íbúð. Eldra fólk sem sparar fyrir
ellina og meira að segja sendlar og
unglingar með fermningapening-
ana sína.“
— Fórnarlömb Ávöxtunar
hafa haldið uppi harðri gagnrýni
á Bankaeftirlitið. Hvað finnst þér
um þá gagnrýni?
„Það er skiljanlegt að þeir sem
lenda í svo gífurlegum áföllum
eins og þarna hafa átt sér stað
reyni að finna einhvern sem ber
ábyrgð. Mér finnst þessar árásir á
Bankaeftirlitið á vissan hátt óm-
aklegar, þar sem það hefur ekki
nægileg völd. Það hefur ekki tæki
til að grípa inn í slík mál.“
— Hefur Ávöxtunarmálið
skaðað ykkur?
„Það er engin spurning. Málið
var farið að skaða okkur löngu
áður en Ávöxtun varð gjaldþrota.
Við bjuggum við það að þarna
voru aðilar sem voru að taka við
sparifé eins og við, en voru greini-
lega með allt önnur vinnubrögð
við meðhöndlun á þvi fjármagni.
Við höfðum heyrt af.því alls kon-
ar sögusagnir og það var mjög
erfitt fyrir okkur að vinna við þær
aðstæður, enda vorurn við stöð-
ugt að ýta á að þessi lög yrðu sett.
Ég vil taka sérstaklega fram að
þessi lagasetning er mjög nauð-
synleg og jákvæð, einmitt til þess
að koma i veg fyrir hluti eins og
Ávöxtun og fría þá sem eru á þess-
um markaði að þurfa að keppa
við slíka aði!a.“
— Samkvæmt lögunum er for-
svarsönnum sjóðanna bannað að
eiga viðskipti við sjálfan sig og
bannað að standa í öðrum rekstri
jafnhliða. Breytir þetta einhverju
fyrir ykkur?
„Nei. Útgefandi bréfanna er
Hávöxtunarfélagið sem hefur
enga aðra starfsemi. Þetta er ein-
mitt gert til að tryggja hag eigend-
anna sem allra best. Þó að illa fari
fyrir Kaupþingi, snertir það ekki
eigendur einingabréfanna nokk-
urn skapaðan hlut.“
— Þið kaupið sem sagt ekki
bakarí og giervöruverslun eins og
forsvarmenn Ávöxtunar gerðu?
„Það er út í hött. Flest sem þeir
gerðu var gróft brot á öllum regl-
um sem menn hafa mótað í þess-
ari starfsemi. Á síðastliðnu sumri
voru stofnuð samtök verðbréfa-
sjóða, sem Ávöxtun átti ekki þátt
í. Samtökin settu á blað margs-
konar siðareglur um verðbréfa-
sjóði, t.d. um áhættudreifingu og
innri viðskipti. Þær reglur voru
að mestu leyti teknar inn í þau lög
sem núna eru komin fram.“
Þórður Irigvi Guðmundsson hjá eignaleigunni Lind:
NYR MARKAÐUR
FYRIR EIGNA-
LEIGUFYRIRTÆKI
Nú geta þau keypt iðnaðar- og atvinnuhúsnœði og leigt það á fjármögnunarleigusamningi.
,,Við erum alls ekki ósátt-
ir við að búið skuli að setja
þetta í lög, en okkur finnst
hins vegar gerð óþarflega
mikil krafa um eiginfjár-
hlutfall. Samkvæmt frum-
varpinu var gert ráð fyrir
8%, en það var hækkað í
10%,“ segir þórður Ingvi
Gudmundsson fram-
kvæmdastjóri eignarleigu-
fyrirtækisins Lindar.
„Hvað varðar starfsemina er
aðalbreytingin sú, að núna er búið
að heimila með lögum að eignar-
leigufyrirtækin niegi leigja fast-
eignir á eignarleigusamningi. Það
er stór og mikilvæg breyting fyrir
okkur, því við höfum haft áhuga
á þessu, en skort lagaheimildina.
Við erum stjórnvöldum og Al-
þingi mjög þakklát fyrir þetta,“
segir Þórður Ingvi. „Þetta opnar
alveg nýjan markað fyrir eignar-
Ieigufyrirtækin. Þau geta keypt
iðnaðar- og verslunarhúsnæði og
leigt það á fjármögnunarleigu-
samningi til langs tíma. Þetta er
ákaflega mikilvæg breyting fyrir
mörg fyrirtæki, sem borga dýra
leigu en eru ekki að eignast fast-
eign á sama tíma.“
Hagnaður Lindar á síðasta ári
var 12 milljónir fyrir afskrifta-
reikning. Ríflega 9 milljónir voru
lagðar inn á afskrifareikning. Út-
lán félagsins voru rúmlega millj-
aður á síðasta ári. Glitnir er
stærsta fyrirtækið á þessu sviði
með ríflega helmingi meiri útlán
en Lind.