Alþýðublaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 1
Starfsmenn samvinnuhrey fingarinnar fjármagna nýju hö fuðstöðvarnar á Kirkiusandi:
LÍFEYRISSJÓÐURINN
EIGNAST HEILA H/EÐ
Kaupverð talið verða um 80 milljónir
Samvinnulífeyrissjóður-
inn, lífeyrissjóður starfs-
manna hjá samvinnuhreyf-
ingunni, verður einhvern
næstu daga eigandi að
hluta hússins á Kirkjus-
andi, sem hýsir höfuð-
stöðvar Sambandsins. Um
er að ræða alla þriðju hæð
byggingarinnar og er kaup-
vcrðið 80 milljónir króna
samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins.
Margeir Daníelsson
framkvæmdastjóri Sam-
vinnulífeyrissjóðsins og
Kjartan P. Kjartansson
framkvæmdastjóri fjár-
hagsdeildar SÍS staðfestu
þessa ráðgerð í samtali við
blaðið, en vildu ekki tjá sig
um kaupverðið.
Margeir sagðist hins veg-
ar eiga von á að gengið yrði
frá samningum næstu
daga. Hann sagði jafn-
framt að starfsemi sjóðsins
flyttist í nýju húsakynnin.
Á sömu hæð verður bú-
vörudeildin með aðsetur.
— Hefur Sambandið
staðið í skilum með greiðsl-
ur lífeyrisiðgjalda?
„Það hefur staðið í skil-
um ekkert síður en aðrir
aðilar," sagði Margeir. Að-
spurður sagði hann ekki
um það að ræða, að verið
væri að taka þriðju hæðina
upp í skuld. Kjartan sagði
að um hver áramót hefði
verið gert upp við Sam-
vinnulífeyrissjóðinn og
væri ekki um að ræða
skuldir frá liðinni tíð.
Lífeyrissjóðurinn eignast þriðju hæðina i nýju höfuðstöðvum SÍS að Kirkjusandi.
A-mynd/E.ÓI.
Borgaraflokkur klofnar — nýr þinzflokkur:
FORFÖLL RÁDA
STÆRÐ FLOKKANNA
Fjöldi BHMR-manna sótti baráttufund i Austurbæjarbíói i
gær. A-mynd/E.ÓI.
Aukin harka
í deilu ríkis-
ins og BHHIR
Viðskiptaráðuneytið
Heimilað að
flytja inn
takmarkað magn
af smjörlíki
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra hefur heimilað
Hagkaup að flytja inn tak-
markað magn af smjörlíki,
20 tonn, en hingað til hefur
verið lagt blátt bann við slík-
um innflutningi.
„Þetta er gert eftir ítrekað-
ar umsóknir frá Hagkaup og
á áreiðanlega eftir að leiða til
lækkunará verði,“ sagði Jón
Sigurðsson í samtali við
blaðið. Forráðamenn Hag-
kaups telja að verð á inn-
flutta smjörlíkinu verði allt
að helmingi lægra.
Viðskiptaráðherra ætlar
að láta fara fram víðtæka
könnun á verði matvæla hér
á landi og erlendis. Aðspurð-
ur sagði hann að hátt verð á
búvörum hér á landi stafi að
verulegu leyti af miklum
framleiðslu, vinnslu og dreif-
ingarkostnaði.
Ráðherrann telur margar
ástæður fyrir háu vöruverði
hér á landi. „Hér eru óbeinir
skattar mikilvægari en í ná-
grannalöndunum. Það er hár
framleiðslu, vinnslu- og
dreifingarkostnaður á bú-
vörum, en vegna þess að
markaður er lítill verður t.d.
innflutningur á suðrænum
ávöxtum og matvælum sjálf-
sagt dýrari hér en í mörgum
samanburðarlöndum. í
mörgum löndum, eins og t.d.
Englandi, er mikill innflutn-
ingur frá löndum sem fram-
leiða búvöru með litlum til-
kostnaði. En síðast, en ekki
síst, er í Evrópubandalaginu
mjög mikið styrkjakerfi í
landbúnaði og sennilega
meiri niðurgreiðslur en hér,“
sagði Jón Sigurðsson.
A Iþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Tveir frum-
mælenda
komu ekki
til fundar
Litlar umræður voru um
flokksstarfið í Reykjavík á
fundi sem nýskipuð stjórn
Alþýðuflokksfélags Reykja-
víkur boðaði til í féiagsmið-
stöð flokksins sl. miðviku-
dag og greint var frá í Al-
þýðublaðinu á þriðjudag.
Forysta flokksins átti að hafa
framsögu á fundinum, en
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður og Jóhanna Sig-
urðardóttir varaformaður
afboðuðu komu sína vegna
anna.
Jón Sigurðsson viðskipta-
og iðnaðarráðherra gerði
stuttan stans, þar sem hann
hafði einnig verið auglýstur á
öðrum fundi i flokknum um
kvöldið. Fjórði frummæl-
andi, Birgir Árnason for-
maður SUJ, sat fundinn.
BHMR telur ekkert hafa
enn komið frá samninga-
nefnd ríkisins, sem komið
geti skriði á viðræður aðila.
Samninganefnd BHMR
heldur fast við kröfuna um
þriggja ára samning, en ríkið
býður BSRB-samninginn og
ekki krónu meira.
BHMR-menn sem blaðið
ræddi við sögðu sífelldar
rangtúlkanir samninga-
manna ríkisins hleypa illu
blóði í sitt fólk. Hefðu þeir
m.a. brotið heiðursmanna-
samkomulag um að láta af
áróðursstríði í fjölmiðlum.
Þegar blaðið fór í prentun
í gærkvöldi var að hefjast
samningafundur í Karphús-
inu að ósk ríkisins.
Borgaraflokkurinn klofn-
aði endanlega í gær þegar
Ingi Björn Albertsson og
Hreggviður Jónsson til-
kynntu formlega stofnun
nýrra stjórnmálasamtaka
sem þeir hafa skýrt „Samtök
frjálslyndra hægrimanna“.
Um leið er Ijóst að samtök
með fulltrúa á Alþingi eru
orðin 8 og hefur þá gamla
fjórflokkakerfið tvöfaldast!
Rcikna má með því að sam-
tök Inga Björns og Hregg-
viðs vinni náið saman með
Sjálfstæðisflokknum.
Klofningur Borgara-
flokksins kemur fáum á
óvart, enda virðast flestir
sammála um að skilyrði tví-
menninganna fyrir áfram-
haldandi veru í Borgara-
flokknum hafi verið þannig
að ekki var hægt að ganga að
þeim. Einn viðmælenda Al-
þýðublaðsins benti sérstak-
lega á, að ef ganga hafi átt að
skilyrðinu um að viðurkennt
yrði að aðstoð Aðalheiðar
Bjarnfreðsdóttur og Óla Þ.
Guðbjartssonar hefði verið
mistök væri um leið verið að
brjóta í bága við 47. og 48.
greinar stjórnarskrárinnar,
þar sem kveðið er á um að
þingmenn skuli fara eftir
samvisku sinni.
En málið er flóknara en
svo að flokkur hafi klofnað
og nýr flokkur orðið til.
Þannig er staðan i Reykja-
neskjördæmi sú, að annar
þingmaður S-Iistans er Borg-
araflokksmaður, Júlíus Sól-
nes formaður flokksins, en
hinn er þingmaður Samtaka
frjálslyndra hægrimanna
(SFH), Hreggviður Jónsson.
1 samtali við Alþýðublaðið
staðfesti Kolbrún Jónsdóttir,
fyrsti varamaður S-listans,
að hún fylgdi SFH að málum
og hefði fundað með þeim
Inga Birni og Hreggviði. Því
blasir við að ef Júlíus Sólnes
formaður Borgaraflokksins
forfallast verður hann að
kalla til afleysinga viður-
kenndan stuðningsmann
SFH og hefur sá þingflokkur
þá stækkað úr tveimur í þrjá.
Ef svo ólíklega vill til að
bæði Júlíus og Hreggviður
forfallast kemur Kolbrún inn
og þá sem þingmaður SFH
og að auki kæmi inn Ragn-
heiður Ólafsdóttir húsmóðir,
sem sagði sig úr Borgara-
flokknum fyrir ári síðan og
kæmi þá væntanlega inn sem
utanflokkaþingmaður — ní-
undu samtökin!
I Vesturlandskjördæmi er
varamaður Inga Björns Al-
bertssonar Óskar Ólafsson
skipstjóri. Óskar staðfesti í
samtali við Alþýðublaðið að
hann væri að óbreyttu stuðn-
ingsmaður sjálfs Borgara-
flokksins, en hann ætti eftir
að ræða við flokksfólk um
viðbrögðin. „Ingi Björn
hafði ekkert samráð við okk-
ur um stofnun þessa nýja
þingflokks. Ég persónulega
er ósammála þessum skil-
málum sem hann og Hregg-
viður settu gagnvart Borg-
araflokknum, sjálfur hefði
ég hent slíku framan í þá.
Mér sárnar að menn skuli
hugsa svona grunnt“ sagði
Óskar. Það virðist sam-
kvæmt þessu Ijóst að ef Ingi
Björn forfallast fjölgar í
þingflokki Borgaraflokksins
en ekki SFH.
Reykjavík er hins vegar
tryggt vígi „gamla“ flokks-
ins, það staðfestu fyrir sitt
leyti Guttormur Einarsson
og Hulda Jensdóttir og sam-
kvæmt okkar heimildum er
Ásgeir Hannes Eiríksson
stuðningsmaður Borgara-
flokksins en ekki SFH.