Alþýðublaðið - 14.04.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 14. apríl 1989
7
UTLOND
Erfitt að vera sonur föður sins
Hann likist ekki þeirri mynd, sem blaðamaður Det fri
Aktuelt hafði gert sér af syni Johns Lennon. Hann er ekki
ofdekraður og kæruleysislegur pönkari.
Aldeilis ekki, þvert á móti býð-
ur hann af sér látlausan, stillileg-
an þokka og er mjög kurteis í
framkomu þegar hann segir frá
sjálfum sér.
Julian Lennon
segir það ekki
hafa verið
neitt sœldarlíf
að vera sonur
Johns Lœnnon.
Julian Lennon er 26 ára og er
sonur Johns Lennon og Cynthiu,
fyrri konu bítilsins. Ef hann setti
upp „ömmugleraugun“ kringl-
óttu, sem faðir hans notaði, væri
það með ólíkindum hversu Iíkur
hann er föður sínum.
Julian segir: „Það hefur verið
ótrúlega erfitt að mörgu Ieyti að
vera sonur Johns Lennon, en það
hefur einnig verið mér hvatning.
Menn hafa borið mig saman við
föður minn og það fékk ekkert á
mig þegar ég var barn og ungling-
ur. Það særði mig aftur á móti
mikið, eftir að fyrsta hljómplata
mín kom á markaðinn, að gagn-
rýnendur sögðu mig líkja eftir
rödd föður míns. Nú, þegar þriðja
plata mín er að koma út, er ég orð-
inn sáttur við sjálfan mig.
Mér gekk illa með plötu nr. 2 og
var þunglyndur í eitt ár og drakk
þá meira en góðu hófi gegndi.
Mér tókst á löngum tíma að koma
Iífi mínu á réttan kjöl. Nú Iifi ég
reglusömu lífi og geri mér Ijóst að
það er ég, sem ber ábyrgð á sjálf-
um mér, ekki plötuútgefendur."
Á æskuárunum bjó Julian á
Englandi með Cynthiu móður
sinni, síðan bjó hann í Sviss en
núna er hann búinn að kaupa sér
hús í Hollywood Hills í Kaliforn-
íu, þar sem hann býr ásamt tveim-
ur hundum en engum lífvörðum.
Julian er ómyrkur í máli þegar
hin illræmda bók um John Lenn-
on, skrifuð af Albert Goldman,
berst í tal. „Þessi bók er skrifuð af
illkvitni og rætni og „bókmennt-
ir“ af þessu tagi eru ekki á háu
plani, faðir minn er jú látinn og
getur ekki svarað fyrir sig.“
Blaðamaður spyr Julian hvort
hann telji sig hafa átt tvær mæð-
ur? „Nei, Cynthia Lennon er hin
eina sanna móðir mín. Ég er í
ágætu vinarsambandi við Yoko
Ono, við hittumst sjaldan en töl-
um oft saman í síma. Það er satt
að hér áður fyrr Ientum við í rifr-
ildum og það var mér að kenna að
það komst í fjölmiðla, ég var ung-
ur og barnalegur.
Ég hef mikinn áhuga á Sean,
litla bróður mínum, sem er 13 ára
og býr hjá Yoko Ono. Ég veit að
hann á eftir að ganga í gegnum
það sem ég þurfti að reyna og ég
vildi óska að ég gæti verndað
hann og hjálpað honum.“
Tónlist Julians Lennon á nýju
plötunni er ljóðræn og að því leyti
lík lögum Bítlanna. „Trú mín er
sú, að fólk sé orðið þreytt á þessari
innihaldslausu tónlist, sem hefur
tröllriðið tónlistarheiminum und-
anfarin ár. Þessi gervitónlist með
lemjandi, glerhörðum takti, mat-
reidd af „skemmturum“ og hljóð-
gervlum. Það er engin gleði í þess-
ari tónlist, engin kímni, ekkert
sem kemur frá hjartanu,“ segir
Julian Lennon og blaðamaður
hefur tilhneigingu til að vera sam-
mála.
(Det fri Aktuelt)
SJÓNVARP
Stöð 2 kl. 23.30
GIFTING TIL
FJÁR***
Bandarísk kvikmynd, gerð 1953,
leikstjóri Jean Negulesco, aðalh/ut-
verk Marilyn Monroe, Betty Gra-
ble, Laureen Bacall, David Wayne.
Þrjár fyrirsætur Ieigja sér saman
íbúð í New York og hafa uppi áform
um að giftast vel, semsagt til fjár.
Þær beita ýmsum brögðum til að
krækja í þá menn sem þeim líst
þannig að muni verða vænlegir
kostir. Þetta er sæmilegasta gaman-
mynd, í henni leika þrjár af skær-
ustu kvenstjörnum Hollywood
fyrr og síðar. Betty Grable var
þarna á hátindi ferils síns, Laureen
Bacall sömuleiðis og Marilyn rétt
að byrja. Grable stal auðvitað sen-
unni þegar myndin var gerð, í seinni
tíð er myndin frægust fyrir að
Marilyn Monroe lék í henni. Hún
svíkui ekki aðdáendur sína, stillir
kynþokka sínum i hóf, nægur er
hann samt, og sýnir ágæta hæfi-
leika sem leikkona. Hæfileika sem
hún átti eftir að þróa vel á sviði 10
árum síðar, þrátt fyrir að kvik-
myndaheimurinn kynni aldrei að
meta þá.
Sjónvarp kl. 22.30
ÁSTARÓRAR***
Frönsk kvikmynd, gerð 1973, leik-
stjóri John Frankenheimer, aðal-
hlutverk Alan Bates, Dominique
Sanda, Michel Auclair, Lea Mass-
ari.
Myndin segir frá rithöfundi sem er
hamingjusamlega giftur og á þrjár
dætur. Hann á engu að síður í ástar-
sambandi við gifta konu og hættir
að gera greinarmun á veruleika og
ímyndun. Veit sem sagt ekki hvort
hann á í þessu ástarsambandi eða
ekki. Myndin er vel hugsuð frá
grunni en gengur einhvern veginn
ekki upp, þrátt fyrir stórleikarann
Alan Bates í aðalhlutverkinu. Verð-
ur ruglingsleg með köflum.
Stöð 2 kl. 01.00
AF ÓÞEKKTUM
TOGA*
Kanadísk kvikmynd, gerð 1983,
leikstjóri George Pan Cosmatos,
aðalhlutverk Peter Weller, Jennifer
Dale, Lawrence Dane, Kenneth
Welsh, Louis Del Grande.
Myndin segir frá ungum kaupsýslu-
manni sem berst hörðum höndum
fyrir stöðuhækkun innan fyrirtæk-
is síns. Hann sendir konu sína og
börn á burt yfir helgi til þess að
hann fái næði til að vinna að verk-
efni sem hann hefur í takinu. Ungi
maðurinn býr í einskonar kastala
og þegar fjölskylda hans rennir úr
hlaði fer hann að finna einhverja
strauma umlykja sig og húsið,
straumar sem gera alla vinnu
ómögulega og beina huga hans að
því einu að halda lífi. Þetta er frem-
ur döpur mynd, eins og söguþráð-
urinn gefur réttilega til kynna,
hverning á að vera hægt að gera
góða mynd úr annarri eins tuggu og
þessari.
ff 5TÖD2
15.45 Santa Bar- bara. 16.30 Hrói og Mari- anna (Robin and Marian).
1800 18.00 Gosi (16). Teiknimynd. 18.25 Kátir krakkar (8). Kanadiskur myndaflokkur. 18.50 Táknmáls- tréttir. 18.55 Austurbæing- ar. Breskur mynda- flokkur i léttum dúr. 18.15 Pepsi-popp.
1900 19.25 Leðurblöku- maðurinn (Batman). 19.54 Ævintýri Tinna. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Libba og Tibba. Rætt vió ungmenni um llfið og tilveruna. 21.05 Þingsjá. 21.25 Derrick. 22.30 Ástarórar (Story of a Love Story). 19.19 19:19. 20.30 Klassapiur. 21.05 .Ohara. 21.55 Óklndin IV (Jaws — The Rev- enge).
2300 00.15 Otvarpsfréttir i dagskrárlok. 23.30 Gifting til tjár (How to Marry a Millionaire). 01.00 Af óþekktum toga (Of Unknown Origin). Alls ekki við hæfi barna. 02.25 Dagskrárlok.