Alþýðublaðið - 14.04.1989, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 14.04.1989, Qupperneq 8
MBUBLMIH) Föstudagur 14. apríl 1989 Árni Heimir og hænan heima í eldhúsi i gær. Framtiö hænunnar var óráðin þegar Ijósmyndara bar að garði i gær. A-mynd/E.ÓI. Nemendur gáfu kennaranum hœnu „Hún minnir mig eilít- ið á formann samn- inganefndar ríkisins ii „Hún er dálítið sljó til augnanna, blessunin. Minnir mig eiginlega svo- lítið á forrnann samninga- nefndar ríkisins. — Að minnsta kosti verpir hún engu og ekki er gott að segja hver endalok hennar verða,“ sagði Árni Heimir Jónsson kennari í Mennta- skólanum í Reykjavík við Alþýðublaðið í gær. Nem- endur hans gáfu honum að skilnaði lifandi hænu, þeg- ar þau kvöddu skólann á dimmissjón í gær. „Ætli maður skili henni ekki á heimaslóðir, „ sagði Árni, en Alþýðublaðinu var kunnugt um að hann leitaði dyrum og dyngjum að einföldum uppskriftum meðal sælkera. Hænan mun ættuð af Seltjarnar- nesi. Albingi vill kaupa Hótel Borg HEILDARKOSTNAÐUR UM 200 MILUÓNIR Kaupverð á bilinu 115-150 milljónir — end- urbótakostnaður 50-60 milljónir — sparn- aður Alþingis 30-35 milljónir — borgarráð hefur áhyggjur af mannlífinu í miðborg- inni. Á Alþingi hefur verið lögð fram þingsályktunartillaga um heimild til handa forset- um þingsins að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg. Talið er að kaupverðið gæti numið 115-150 milljón- um króna og að það myndi kosta 50-60 milljónir króna að gera þær endurbætur á húsinu sem þarf til að það geti nýst vegna starfa Alþing- is. Á móti þessu hefur borg- arráð samþykkt samhljóða ályktun þar sem viöraðar eru áhyggjur vegna hugmyndar- innar um að leggja niður hót- elrekstur í miðborginni og hefur óskað eftir viðræðum um aðra lausn á húsnæðis- vanda þingsins. Hugmynd alþingismanna er að í húsnæðinu verði skrif- stofuaðstaða fyrir 42 þing- menn, ritaraþjónusta, fund- arherbergi, bókasafn og mötuneytisaðstaða. Breyt- ingar í þessa veru myndu kosta samkvæmt áætlunum a.m.k. 50-60 milljónir, sem er nálægt 10% af byggingar- kostnaði nýja þinghússins sem einhvern tímann á að ráð'ast í. Nú er Alþingi í mikl- um vandræðum, rekur starf- semi sína í alls 8 húsum, en með kaupum á Hótel Borg væri hægt að fækka þeim í 4. Þá er gengið út frá því að hægt yrði að rýma Skólabrú 2, Vonarstræti 12 og Vonar- stræti 8 eða Skjaldbreið. Með lækkun á rekstrarkostn- aði og sölu eigna gæti Al- þingi fengið 30-35 milljónir króna á móti kaupverðinu. Margt bendir til þess að af kaupunum verði, þrátt fyrir áhyggjur borgarráðs og sam- ráðsleysi við borgina. Eig- endur hótelsins munu vera í hinu mesta basli og Alþingi gæti með þessu móti leyst bráðan húsnæðisvanda fyrir tiltölulega lítinn tilkostnað. Leysa miðaldra þingmenn glaðvær ungmenni af hólmi? Þetta er teikning af mögulegum breytingum á fyrstu hæð inni á Hótel Borg. Þarna er gert ráð fyrir eftirfarandi: 1 Matsalur fyrir 100 manns. 2. Bókasafn, lesstofa og Ijósrit unaraðstaða. 3. Fundarherbergi. 4. Biðstofa og fata geymsla. 5. Eldhús og tengd aðstaða. 6. Snyrting. 7. Af greiðsla. 8. Anddyri. Sovéski kafbáturinn Áskilinn réttur til skaðabóta íslendingar áskilja sér rétt til að krefjast skaðabóta hljótist viðskiptalegt tjón i kjölfar þess að sovéski kjarn- orkukafbáturinn sökk við Bjarnarey sl. föstudag. Utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, lýsti þessu yfir á Alþingi í gær. A Ibýðusambandið VERKFALLSHEIMILDA AFLAÐ KOMIST EKKI SKRIÐUR Á VIÐRÆÐUR FLJÓTLEGA Þolinmæði verkafólks á þrotum Komi ekki til skýr samn- ingsvilji af hálfu atvinnurek- enda á næstu dögum, er lík- legt að viðræðunefnd ASÍ óski eftir að félögin afli sér verkfallsheimilda, segir í Karvel Pálmason Bætur verði greiddar vegna læknamistaka — Hótar að styðja ekki stjórnarmál ef frumvarpið nœr ekki fram að ganga Karvel Pálmason þing- maður Alþýðuflokksins af Vestfjörðum er fyrsti flutn- ingsmaöur að frumvarpi til laga um að Tryggingastofn- un skuli greiða bætur sem hljótast af mistökum lækna og annars starfsfólks heil- brigðisþjónustunnar. 11 aðr- ir þingmenn úr öllum þing- flokkum flytja málið með Karvel, sem hefur lýst yfir að hann muni ekki styðja þing- mál ríkisstjórnarinnar nema frumvarp þetta hljóti af- greiðslu. Málið stendur Karvel sem kunnugt er nærri þar sem hann telur sig sjálfan fórnar- lamb alvarlegra læknamis- taka sem leiddu til 75% ör- orku. Hann stóð í langvinn- um málaferlum gegn Borgar- spítalanum, en að lokum féll- ust báðir aðilar á sátt, þar sem Karvel fékk nokkra upp- hæð greidda. Frumvarpsgrein Karvels við lög um almannatrygging- ar gerir að efni til ráð fyrir því að verði maður fyrir var- anlegu heilsutjóni sem nem- ur a.m.k. 10% örorku sam- kvæmt læknisfræðilegu mati, vegna læknisaðgerðar eða vegna mistaka starfs- fólks sem starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjón- ustu, skuli Tryggingastofnun ríkisins bæta það tjón á sama hátt og vinnuslys. Eiga land- læknir og tryggingayfir- læknir sameiginlega að meta hvort um bótaskylt tilfelli sé að ræða og ákveða örorku- stigið. Úrskurðinn megi leggja fyrir tryggingaráð. bréfi sem ASI sendi (il aðild- arfélaga í gær. Þar segir að nú fyrst sé for- senda til þess að ræða í al- vöru um aðgerðir, þar sem allir stærstu hópar Alþýðu- sambandsfélaga hafi nú lausa samninga. „Það kom skýrt fram á fundi viðræðu- nefndar í gær að þolinmæði okkar fólks er á þrotum og það sættir sig ekki við langt samningsþóf." Aö mati ASÍ er óhjá- kvæmilegt að gera tilkall til þess að kaup ASÍ-félaga hækki a.m.k. um það sama og gerst hefur með samning- um BSRB. Með bréfinu til aðildarfélaganna fylgir mat hagdeildar á því hvernig samningur BSRB kæmi út fyrir ASÍ. Miðað við hreint tíma- kaup á fjórða ársfjórðungi 1988 auk 1,25 hækkunarinn- ar í mars, myndi krónutölu- hækkunin verða að meðaltali 7,2% og með hækkun or- lofsuppbótar og desember- uppbótar yrði meðaltals hækkunin um 8,2%. Miðað við greitt tímakaup yrði hækkunin að meðaltali um 7,8%. Dæmi er sýnt um kaup- máttarspá, miðað við að gengi verði fellt um 9% á ár- inu, í maí og september. Þetta myndi nokkurn veginn þýða að raungengi yrði ób- reytt út árið. í þessu dæmi verður kaupmáttarhrapið milli áranna 1988 og 1989 rúmlega 7% og kaupmáttur verður um 9% lægri í desem- ber í ár en í desember i fyrra. Væri gengi fellt minna fæst betri mynd svo og verri ef gengi yrði fellt meira. Ef gengi yrði stöðugt og BSRB samningurinn notað- ur sem rammi og ekki um að ræða hart verðlagseftirlit, myndi kaupmáttur falla nokkuð það sem eftir er árs- ins. Miðað við að ekki yrðu fleiri launabreytingar yrði hrapið um 6% á milli ára. Kaupmáttur í desember yrði samkvæmt þessu dæmi rúm- lega 5% lægri í desember í ár, en í desember í fyrra.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.