Alþýðublaðið - 25.04.1989, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 25. apríl 1989
Hlutafé aukið
í Haferninum
Að undanförnu hefur nokk-
uð verið fjallað um málefni
Hafarnarins hf. á Akranesi,
en fyrirtækið, sem rekur fisk-
vinnslu og gerir út togarann
Höfðavlk AK-200, hætti
vinnslu um áramótin vegna
rekstrarörðugleika. Stjórn fýr-
irtækisins hefur að undan-
förnu leitað leiða til þess að
koma rekstri þess af stað að
nýju og treysta fjárhag þess.
Nú getur fyrirtækið hafið
vinnslu á ný í kjölfar ákvörð-
unar um aukningu hlutafjár
þess um allt aö 100 m.kr. Fyr-
irtækið hefur séð 80 manns
fyrir atvinnu og með því að
hefjavinnslu að nýju, léttir
verulega á atvinnuleysi á
Akranesi.
Bæjarráð Akraness hefur
samþykkt fyrir sitt leyti að
heimila kaup á hlutafé til að
stuðla að endurskipulagn-
ingu á fjárhag fyrirtækisins
og beiðni fyrirtækisins og
Akraneskaupstaðar um þátt-
töku Byggðasjóðs hefurverið
send Byggðastofnun, auk
þess sem gert er ráð fyrir
þátttöku fleiri aðila, en end-
anleg niðurstaða hvað varðar
hlutafjárkaup einstakra aðila
mun væntanlega skýrast á
næstu dögum.
Bæjarstjórn Akraness hef-
ur lagt á það verulega
áherslu að koma rekstri Haf-
arnarins hf. af stað að nýju
auk annarra fyrirtækja á
Akranesi sem hafa stöðvast
og er vilyrði bæjarins fyrir
kaupum á hlutafé eitt skref í
þá átt að styðja við atvinnulíf
í bænum. Þess er að auki
vænst, að aðrir opinberir að-
ilar muni hver með sínum
hætti gera það sem í þeirra
valdi stendur til að auðvelda
fyrirtækjum að endurskipu-
leggja rekstur sinn og fjárhag
og nýjum fyrirtækjum að
hefja starfsemi.
Norrænir ráð-
herrar stað-
festu áætlun
um sjávar-
útvegsmál
Sjávarútvegsráðherrar
Norðurlanda héldu fund I
Reykjavík þann 5. apríl og
staðfestu samstarfsáætlun
um sjávarútvegsmál, sem
rædd var á þingi Norður-
landaráðs fyrir rúmum mán-
uði. í áætluninni er bent á
þörf fyrir aukiö samstarf á
sviði sjávarútvegsmála, rann-
sókna á því sviði, svo og
markaðsmálum og fiskeldi.
Grænlendingar lögðu fram
tillögu um samstarf í mark-
aðsmálunum, sem ráðherr-
arnir féliust á að þyrfti
vandlega skoðun. Ráðherr-
arnir voru sammála um að
aukið fé þyrfti til aö fram-
fylgja samstarfsáætluninni.
Rætt var um áróður og við-
skiptaþvinganir sem beinst
hafa að einstökum löndum
Norðurlanda. í efnahagsáætl-
un Norðurlanda er gert ráð
fyrir 3 milljónum danskra
króna til rannsókna sem
tengjast vistkerfi hafsins. Á
næsta ári er gert ráð fyrir að
rannsóknir á sel og öðrum
sjávarspendýrum geti hafist,
undir þessum lið.
Stjórnarkjör
í Fríkirkju-
söfnuðinum
Aðalfundur Fríkirkjusafn-
aðarins var haldinn í Háskóla-
bíói laugardaginn 15. apríl sl.
Á fundinn mættu 848 safnaö-
arfélagar. Fundarstjóri var
Sigurður E. Guðmundsson.
Á fundinum var kjörið í
trúnaðarstöður innan safnað-
arins.
Atkvæöi í stjórnarkjöri
féllu þannig:
1. Formaður(til 1 árs): Ein-
ar Kristinn Jónsson 445 atkv.,
Þorsteinn Þorsteinsson 390
atkv.
2. Tveir í safnaðarstjórn til
3 ára: Birgir Páll Jónsson 427
atkv., Eygló Victorsdóttir 427
atkv., Guðmundur Guðbjarn-
arson 311 atkv., Margrét
Helgadóttir 311 atkv.
3. Einn í safnaðarstjórn til
1 árs: Áslaug Gísladóttir 421
atkv., Sigríður Karlsdóttir 321
atkv.
4. Varaformaður til 1 árs, -
kjörinn úr hópi stjórnarmanna:
Berta Kristinsdóttir 378 atkv.,
Birgir Páll Jónsson 277 atkv.
5. í varastjórn til 2 ára:
Gísli Guðmundsson 404
atkv., Jóhannes Örn Óskars-
son 224 atkv.
Á fyrsta stjórnarfundi safn-
aöarins skipti stjórnin með
sér verkum og er hún nú
þannig skipuð:
Einar Kristinn Jónsson for-
maður, BertaKristinsdóttir
varafcrmaður, Áslaug Gísla-
dóttir ritari, Birgir Páll Jóns-
son safnaðarfulltrúi, Eygló
Victorsdóttir safnaðarfulltrúi,
ísak Sigurgeirsson safnaðar-
fulltrúi, Magnús Sigurodds-
son safnaðarfulltrúi, Gísli
Guömundsson varasafnaðar-
fulltr., Guðmundur Hjaltason
gjaldkeri/varasafnaðarftr.
Aðalfundurinn kaus eftir-
talda endurskoðendur og
varaendurskoðendur: Andrés
Andrésson endurskoðandi,
Guðbrandur Árnason endur-
skoðandi, Ragnar Bernburg
varaendurskoðandi, Sigur-
borg Bragadóttir varaendur-
skoðandi.
Eftirtaldir voru kosnir í
kjörstjórn, sem hefur umsjón
með komandi prestskosning-
um: Ragnar Tómasson, Birgir
Rafn Gunnarsson, Þórarinn
Árnason, Málfríður Ólafsdótt-
ir, Kristinn Vilhjálmsson,
Anna Eygló Antonsdóttir,
Guðmundur R. Jónsson.
Á fundi þessum hlaut
stjórn Fríkirkjusafnaðarins
ótvíræðan stuðning þar sem
frambjóðendur hennar hlutu
kosningu í allar trúnaðarstöð-
ur.
Alþjóðafundur
um friðar- og
ferðamál
Steingrimur Hermannsson,
forsætisráðherra hefur skip-
að undirbúnings- og fram-
kvæmdanefnd vegna fyrir-
hugaðs alþjóðafundar um
friðar- og ferðamál í Reykja-
vík.
Formaður nefndarinnar er
Heimir Hannesson, lögfræð-
ingur, en aðrir nefndarmenn
eru, Júlíus Hafstein, borgar-
fulltrúi, Lúðvíg Hjálmarsson,
fyrrverandi ferðamálastjóri og
Sigurður Helgason, fram-
kvæmdastjóri.
* Krossgátan
□ 1 2 3 r 4 ■•••
5
6 □ 7
s 9
iö □ ii
□ 12
13 □ □
Lárétt: 1 rétt, 5 höfuð, 6 hlýju, 7
frá, 8 aðsjáll, 10 lærdómstitill,
11 þjóta, 12 kvæði, 13 hand-
samar.
Lóðrétt: 1 tarfar, 2 konu, 3
gangflötur, 4 galdrar, 5 undar-
leg, 7 fjármunir, 9 böl, 12 hljóm.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 glóps, 5 gláp, 6 Rín, 7
Re, 8 umsvif, 10 na, 11 afl, 12
ógna, 13 auðna.
Lóðrétt: 1 glíma, 2 láns, 3 óp, 4
skefla, 5 grunda, 7 rifna, 9
vagn, 12 óð.
• Gengií
Gengisskráning nr. 76 — 24. april 1989
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 52,370 52,510
Sterlingspund 89,775 90,015
Kanadadollar 44,099 44,217
Dönsk króna 7,2837 7,3032
Norsk króna 7,7897 7,8105
Sænsk króna 8,3087 8,3310
Finnskt mark 12,6589 12,6928
Franskur franki 8,3578 8,3801
Belgiskur franki 1,3534 1,3570
Svissn. franki 32,1121 32,1979
Holl. gyllini 25,1109 25,1780
Vesturþýskt mark 28,3410 28,4168
ítölsk llra 0,03859 0,03869
Austurr. sch. 4,0261 4,0369
Portúg. escudo 0,3417 0,3426
Spánskur peseti 0,4551 0,4564
Japanskt yen 0,39924 0,40031
irskt pund 75,567 75,769
SDR 68,4832 68,6663
Evrópumynt 58.8822 59,0396
RAÐAUGLÝSINGAR
Sóknarfélagar
sóknarfélagar
Félagsfundur veröur haldinn í Sóknarsai mið-
vikudaginn 26. apríl kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Nýgeröir kjarasamningar.
2. Önnur mál.
Sýniö skírteini.
Stjórnin.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Viö Menntaskólann á Egilsstööum eru lausr til
umsóknar kennarastöður í eftirtöldum greinum:
f rönsku, dönsku, stærðfræöi, tölvufræði, viö-
skiptafræði og sálfræöi eöa uppeldisfræði.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er laus til um-
sóknar staða skólameistara til eins árs og staöa
aðstoðarskólameistara til fimm ára.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar
kennarastöður í þýsku og stærðfræði.
Að Kirkjubæjarskóla á Síðu vantar kennara til að
kennafiskeldisgreinar, einaog hálfastöðu. Upp-
lýsingar veitir skólastjóri í símum: 98-74633 og
98-74640.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 19. maí nk.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
garðyrkjustjóra Reykjavikur óskar eftir tilboðum
í jarðvinnu og lagnir í fyrirhugaðan húsdýragarð
í Laugardal.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík gegn kr. 5.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
2. maí 1989 kl. 15.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Flo
lOKKl
tarfið
Kratakaffi
Miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.30.
Gestur fundarins er Wincie Jóhannsdóttir for-
maður Hins íslenska kennarafélags.
Umræðuefni: Skólamál — Kjaramál kennara.
1. MAÍ KAFFI Á
HÓTEL BORG
Frá kl. 13 til 18.
Ávörp flytja: Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
og Jón Sigurðsson viðskipta- og
iðnaðarráðherra.
Haukor Morthens og félagar rifja
upp gömlu góðu dægurlögin.
Fundar og veislustjóri: Bjarni P.
Magnússon borgarfulltrúi.
Allir velkomnir ungir sem aldnir.
Mætum í hátíðarskapi.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Félagsfundur
þriðjudaginn 25. apríl kl. 20.15 í félagsmiðstöð-
inni Hverfisgötu 8-10. ----------
Bjarni P. borgarfulltrúi mætir.
Hvernig getur ungt fólk náð sínum
málum fram?
Kristinn T. Haraldsson kemur og
ræðir um flokksstarfið.
Menntamálaráðuneytið.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Stjórn F.U.J.