Alþýðublaðið - 04.07.1989, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 04.07.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 4. júlí 1989 7 UTLOND Vinsæla Lucy Lucille Ball var einskonar frumherji. Hún varð fyrsta og frœgasta gamanleikkona í bandarísku sjónvarpi. Eitt af siðustu hlutverkum Lucille var i sjónvarpskvik- mynd sem gerð var árið 1985 og nefndist „The Stone Pillow“. Myndin fjallaði um „plastpokakonu“, sem sé gjarnan á strætum stórborga. Henni þótti takast vel en lagði það hart að sér að hún varð að leggjast á spítala eftir að töku lauk. Lucille Ball kom úr verka- mannafjölskyldu í Jamestown, New York. Hún líktist ekki hinni opnu hressu Lucy í sjónvarpsþátt- unum hún var svo feimin og til baka að fyrsti kennari hennar í teiklist ráðlagði henni að leggja ekki i leiklistarferil. Hún gerðist aðstoðarstúlka á ísbar og þar tókst henni að losna við feimnina og temja sér hinn grallaralega stíl sinn, stutt í bros og brandara. Lucille var há og grönn, rauð- hærð og þótti mjög falleg. Um- boðsmaður frá Hollywood kom auga á hana og hún lék í yfir 50 kvikmyndum, oftast smáhlut- verk, dugnaðarforka með munn- inn fyrir neðan nefið. Það var þó fyrst í sjónvarpinu sem Lucille fór reglulega að njóta sín. Þættir hennar náðu feikna vinsældum. Þeir fyrstu nefndust „I Iove Lucy“ og fóru af stað árið 1951. Þáver- andi eiginmaður hennar, Desi Arnaz hljóðfæraleikari frá Kúbu Iék eiginmann hennar í þáttunum og er enn verið að sýna þessa þætti hér og þar. Hjónin skildu árið 1960 og þar með hættu sjón- varpsþættirnir. Lucille byrjaði aftur gerð sjón- varpsþátta og kallaði þá The Lucy Show og seinna „Here is Lucy.“ Lucille Ball fæddist 6. ágúst 1911, hún lést 26. apríl sf Ekki hlutu þessi þættir minni vin- sældir og það út um allan heim. Árið 1974 þegar Lucille var 63 ára var hún farin að þreytast á því að vera á undan keppinautum, sem stældu þætti hennar miskunnar- laust. Lucille Ball eignaðist tvö börn með Desi Arnaz sem bæði hafa fetað í fótspor móður sinnar. Lucille giftist gamanleikaranum og framleiðandanum Gary Morton árið 1961 og blessaðist það hjónaband vel. Þeim grædd- ist fé á tá og fingri og fjárfestu í fasteignum, sjónvarpsstöðvum o.n. Margir bandarískir listamenn minntust hennar og einn þeirra sagði að Lucille Ball hefði verið besta gamanleikkona Bandaríkj- anna fyrr og síðar. „Á köflum gat hún verið skemmtilegur trúður í þess orðs bestu merkingu. Hinn hefðbundni trúður sem gat verið svo dapurlegur, að maður hló og grét í einu“. það kemur aldrei önn- ur Lucille Ball. SJÓNVARP Stöð 2 kl. 18.25 íslandsmótið í knattspyrnu íþróttafréttamenn stöðvarinnar gera íslandsmótinu í knattspyrnu skil — mótið er reyndar nefnt eftir einhverju fyrirtæki — Hörpudeild- in eða eitthvað ámóta. Sýndar verða myndir frá leikjum úr síðustu um- ferð, Fram — KR, þar sem þeir síð- arnefndu grísuðust á að vinna. Og vafalítið frá fleiri leikjum. Annars er annar íþróttahaukurinn á Stöð- inni í dálítið vafasömum málum þegar hann lýsir leikjum eins liðsins í fyrstu deildinni... Stöð 2 kl. 21.55 Fórnarlambið*** Bandarísk bíómynd, gerð 1948, leikstióri Anatole Litvak, aðalhlut- verk Burt Lancaster, Barbara Stan- wyck, Ann Richards. Myndin segir af konu nokkurri sem bæði er auðug og hugsjúk og á að auki eiginmann sem gifst hefur henni vegna peninganna. Hún heyr- ir fyrir tilviljun á tal tveggja manna sem eru að skipuleggja morð síðar sama kvöld og hefur þegar sam- band við lögregluna. Þeir geta hins- vegar ekkert að gert þar sem allar nánari upplýsingar liggja ekki á lausu. Smámsaman fær konan þá hugmynd að hún sjálf sé fórnar- lambið. Barbara Stanwyck, sem leikur konu þessa, var tilfnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni á sínum tíma. Myndin er annars gerð eftir útvarpsleikriti sem þykir standa kvikmyndinni nokkuð framar, en engu að síður á þetta að vera þokkalegasta spennumynd af gamla skólanum. Sjónvarpið kl. 22.00 Byltingin í Frakklandi 1. Þáttur — Freisisdraumar Nýr breskur heimildamynda- flokkur í fjórum þáttum um frön- ,sku stjórnarbyltinguna og áhrif hennar. Þessi þáttaröð er gerð í til- efni af því að 200 ár eru liðin frá byltingunni sem ásamt þeirri sov- ésku frá 1917, er líklegast frægasta bylting frá upphafi og þykir að mörgu leyti marka upphaf nútíma ríkis og nútíma hugsunarháttar um jafnrétti og lýðræði. Sem kunnugt er liafa Frakkar haldið þessi tíma- mót hátíðleg með ýmsum hætti í ár. Þýðandi er Jón O. Edwald. Stöð 2 kl. 23.20 Hetjurnar frá Navarone Bresk bíómynd, gerð 1978, leik-> stjóri Guy Hamilton, aðalhlutverk Harrison Ford, Barbara Bach, Ro- bert Shaw, Franco Nero, Edward Fox. Hallærislegt framhald hinnar klassísku myndar úr Seinni heims- styrjöld; Guns of Navarone (Hetj- urnar frá Navarone), slöpp hvernig sem á það er litið, þó svo margir ágætis leikarar reyni að lyfta því sem lyft verður. Annars segir mynd- in frá hópi hermanna, þeim sama og í hinni réttu Hetjum frá Navar- one (þá var leikarahópurinn þessi: Anthony Quinn, David Niven, Ir- ena Papas, Richard Harris o.fl.), en nú hafa þeir fengið það verkefni að sprengja í loft brú til þess að gera Þjóðverjum það erfiðara að ná yfir- ráðum á Ítalíu. Auðvitað er svikari með í ferðinni til að gera þetta allt erfiðara en í stað þess að sprengja brúna má segja að þeir sprengi myndina, svo léleg þykir hún. Auk þess má benda á að myndin er alls ekki gerð eftir sögu Alistair MacLe- an, upprunalega myndin var það hinsvegar. S7ÖÐ 2 17.50 Freddi og (é- lagar (18) 16.45 Santa Barbara. 17.30 Bylmingur. 1800 18.15 Ævintýri Ni- kós (1). Breskur myndaflokkur fyrir börn í sex þáttum. 18.45 Táknmálsfréttir. 18.00 Elsku Hobo. 18.25 íslandsmótið f knattspyrnu. 18.55 Fagri-Blakkur. Breskur framhaldsmynda - flokkur. 1900 19.20 Leðurblökum- aðurinn (Batman). 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Nýjasta tæ-kni °g visindi. 21.05 Blátt blóð. Spennumyndaflokk- ur gerur I samvinnu bandariskra og ev- rópskra sjónvarpsstööva. 22.00 Byltingin i Frakklandi. — 1. þáttur — Frelsis- draumar. Nýr, bresk- ur heimildamynda- flokkur í fjórum þáttum um frönsku stjórnarbyltinguna og áhrif hennar. 19.19 19.19. 20.00 Alf á Melmac. 20.30 Visa-sport. 21.25 Óvænt enda- lok. 21.55 Fórnartambið (Sorry, Wrong Num- ber). Sígild svart/ hvít spennumynd. 2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. 23.20 Hetjurnar frá Navarone (Force Ten From Navarone). Spennu- mynd úr siðari heimstyrjöldinni. Bönnuö börnum. 01.05 Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.