Alþýðublaðið - 07.07.1989, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 07.07.1989, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 7. júlí 1989 Sumartónleik- ar í Skálholti Dagana 8. og 9. júll verður önnur tónleikahelgi sumars- ins á vegum Sumartónleika i Skálholti. Að þessu sinni eru það þrfr tónlistarmenn sem koma fram: Robyn Koh sem- balleikari, HilmarÖrn Agn- arsson orgelleikari og Erna Guðmundsdóttir sóþransöng- kona. Að venju eru haldnir þrenn- ir tónleikar hverja tónleika- helgi, tvennir á laugardag, kl. 15 og kl. 17, og einir á sunnudag og hefjast þeir kl. 15. Á laugardagstónleikun- um flytja Hilmar Orn Agnars- son og Erna Guðmundsdóttir söng- og orgelverk, m.a. verð- ur flutt verk úr safni Neu- meister sem fannst árið 1985 I Yale-háskóla. Einnig flytja þau Hilmar og Erna verk eftir Jón Nordal, sálminn: Vér treystum þvi, og toccötu sem samin var til minningar um Pál ísólfsson. Nýtt orgel verður tekið í notkun á þess- um tónleikum. Það er gjöf sóknarmanna og sóknar- prests I Skálholtsprestakalli til fjögurra kirkna prestakalls- ins í minningu Önnu Magnúsdóttur t Skálholti. Á laugardagstónleikum kl. 17 leikur Robyn Koh sembalverk eftir W. Byrd, G. Frescobaldi, J.Ph. Rameau, D. Scarlatti og J.S. Bach. Robyn Koh mun endurtaka þessa dagskrá á sunnudag kl. 15. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Messa verður siðan i Skál- holtskirkju kl. 17. Séra Guð- mundur Óli Ólafsson predik- ar en organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Erna Guðmunds- dóttir og Hilmar Örn Agnars- son flytja orgel- og söngverk við messuna. Áætlunarferðir eru á sunnudögum frá BSÍ kl. 11:30 og til bakatil Reykjavíkur kl. 17:40. Skólastjórar mótmæla niðurskurði Félag skólastjóra og yfir- kennara sendir frá sér eftir- farandi fréttatilkynningu: A stjórnarfundi 13. júní var fjallað um þann niðurskurð sem Alþingi samþykkti við gerð seinustu fjárlaga. Stjórnin mótmælir þvi að ákveðinn flatur niðurskurður sé lagður á öll ríkisútgjöld og tekið tillit til þess hver þróun hefurverið i aukningu út- gjalda undanfarin ár. Stjórnin bendir á að síðastliðna tvo áratugi hefur hlutfall menntamála í rikisút- gjöldum haldist óbreytt, verið á milli 14 og 15 af hundraði. Aukin útgjöld sem nema aukningu þjóðartekna hafa * Krossgátan ■ 1 BðV ra iirtá IO me&j . 'tÚí ir:G' 5207 sagi T2H5 t'rl.'t 'TTq ic: •£ nsí p r -jtc g~n7 ‘ ; -T i ; ;%■; í P -•' u •*7?$» yc-y r~ ■ ■ ' m <4 ■. 1 - r‘ ■ ÍTT njfn\ ■ J - IST14s? - - :'r${ i \;ö? TÍ3. ; ■ 'UivSjl E .< . ■■ r m Lárétt: 1 snjóa, 5 græða, 6 arm ur, 7 þyngdarmál, 8 blika, 10 eins, 11 sveif la, 12 dragi, 13 sló. Lóðrétt: 1 lágu, 2 múli, 3 átt, 4 ilmaöi, 5 fár, 7 frelsara, 9 fiskur, 12 samstæðir. Lausn á síðusfu krossgátu. Lárétt: 1 skörp, 5 stál, 6 kot, 7 át, 8 aftaka, 10 KA, 11 tað, 12 lafi, 13 tjáði. Lóðrétt: 1 stofa, 2 kátt, 3 öl, 4 potaði, 5 skakkt, 7 ákaf i, 9 atað, 12 lá. öll farið í uppbyggingu fram- haldsskóla og háskóla. Það er því næsta ósanngjarnt að skera niður útgjöld til menntamála í sama mæli og til annarra þátta i ríkiskerfinu sem þanist hafa út síðustu ár. Sérstaklega er það ósann- gjarnt gagnvart grunnskólan- um. + Alúðarþakkir færum viö öllum þeim er sýndu samúö og hlýhug við andlát og útför Vigfúsar Jónssonar fyrrverandi oddvita. Sérstakar þakkir til hrepþsnefndar Eyrarbakka sem heiöraöi minningu hans. Vigfúsína Bjarnadóttir og frændfólk. RAÐAUGLÝSINGAR TILKYNNING FRÁ SÖLU VARNARLIÐSEIGNA se: Alþingi ÍSLENDINGA FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla Framlengdur umsóknarfrestur: Viö Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til umsókn- lar kennarastööur I stæröfræði og eðlisfræði. Stundakennara I Islensku vantar aö Menntaskólanum við Sund. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, ! 150 Reykjavík fyrir 14, júli n.k. Menntamálaráðuneytið Utboö ínnkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita- veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboöum í upp- setningu og tengingu rafbúnaðar á Nesjavöll- um. Verkið felst í: Útdrætti og tengingu strengja, uppsetningu strengstiga, háspennu-lágspennu-1 og smáspennuskápa, tækja og búnaðar! í skápa, tækjaog kerfaog útiháspennubúnaðar. Skrifstofa vor og verzlanir veröa lokaöar frá 17. júlí til 14. ágúst vegna sumarleyfa. Sala varnarliðseigna Starfsmenntunarstyrkir til náms í Noregi og Svíþjóð Lausir eru til umsóknar fáeinir styrkir sem norsk og sænsk stjórnvöld veita , á námsárinu 1989—90 handa íslendingum til náms viö fræðslustofnanir í þess- um löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaöir til ýmiss konar starfs- menntunar sem ekki er unnt aö afla á íslandi. Fjárhæö styrks í Noregi er 20.400 n.kr. og í Svíþjóð 10.000 s.kr. miðað viö styrk til heils árs. Utgáfustjóri Skrifstofa Alþingis óskar að ráða starfsmann (útgáfustjóra) er hafi umsjón með útgáfustarfi þingsins (prentun Alþingistíðinda o.fl.). Háskólamenntun og þekking á ritvinnslu æskileg. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á skrif- stofunni, sími 11560. Umsóknarfrestur er til 28. júlí n.k. Skrifstofa Alþingis Flo SKl tarfið Kveðjuhóf Vinir og samherjar I Aiþýðuflokknum í Reykja- neskjördæmi halda Kjartani Jóhannssyni al- þingismanni kveðjuhóf laugardaginn 8. júlí næstkomandi kl. 16.00—18.00 i veitingahúsinu Við fjörðinn Strandgötu Hafnarfirði. Allar nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu Al- þýðuflokksins í Hafnarfirði s: 50499 Vettvangsskoðun á Nesjavöllum fimmtudaginn 13. júlí n.k. kl. 14.00. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 25. júlí 1989, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800 Umsóknir skulu berast mennta- málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 20. júlí n.k. og fylgi staöfest afrit prófskírteina, ásamt meömælum. Sérstök eyöu- blöö fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 5. júlí 1989.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.