Alþýðublaðið - 09.08.1989, Síða 4
4
Miðvikudagur 9. ágúst 1989
ÞANKAR Á MIÐVIKUDEGI
Að óvaxta sitt pund -
eða hvernig peningar
verða
Hvaö gera stjórnendur stórfyrir-
taekjanna þegar þeir fara á eftir-
laun? Þeir stofna klúbb til aö
ávaxta hýruna sína. Forstjórar
margra af stærstu fyrirtækjum
Bandaríkjanna stofnuðu með sér
klúbb árið 1963. Kiúbburinn var
fjárfestingarfyrirtæki og allt fram
á þennan dag hafa þeir farið leynt
með tiltækið og líklega ekki að
ástæðuiausu. Upphaflegt stofnfé
hefur tvöfaldast á ári hverju síðast-
iiðin fimmtán ár. Þeir sem lögðu til
100 þúsund dollara í upphafi eiga
nú 26.3 milljónir dollara.
Georg Love þáverandi forstjóri
Chrysler snæddi með J. Richard-
son Dilvorth fjármálaráðgjafa
Rockefeller fjölskyldunnar sem
kynnti hann fyrir breskum fjár-
málamanni, Sir Siegmund War-
burg. Þeir ákváðu að hafa sam-
band við forstjóra stórfyrirtækja
sem voru á leiðinni á eftirlaun og
bjóða þeim þátttöku í fjárfestinga-
klúbbi. Þeim tókst vel til því fram-
ámenn stórfyritækja á borð við
Du Pont, IBM, General Electric,
General Motors. Einn af þeim fáu
meðlimum sem ekki hafa stjórnað
að fleiri peningum
stórfyrirtæki er Henry Kissinger,
fyrrverandi utanríkisráðherra.
Menn sækja ekki um aðild heldur
er þeim boðin hún.
AEA Investors, en það heitir fyr-
irtækið, hefur að meðaltali skilað
45% arði af hlutabréfum árlega.
Verðbréfasjóðirnir hér gerðu sig
líklega ánægða með slíkan af-
rakstur.
í sjálfu sér eru það ekki nýjar
fréttir að peninga þurfi til að búa
til meiri peninga. Eignasamþjöpp-
unin er slík í iðnvæddustu ríkjun-
um að tölurnar eru óraunveruleg-
ar. 1% eiga 10 til 15% og ríkustu
10% eiga um 50%. Það sem meira
er tölur sýna að þeir ríku verða
stöðugt ríkari.
Það sem er athyglisvert við
klúbbinn er að hann er hugsaður
sem skemmtun athafnasamra elli-
lífeyrisþega. Því er það ótrúlegt að
gamlingjarnir geti rakað saman
siíkum fúlgum að þeir hafa margir
hverjir haft meira upp úr ævintýr-
inu en á öllum forstjóraferli sínum
og þó var enginn þeirra á lúsar-
launum.
Christopher Knowlton skrifar
grein um AELA í Fortune og hann
telur að leyndarmálið að baki vel-
gengninnar sé ekki aðgangurinn
að fjármagni jafnvel þó það sé til-
tækt í ómældu magni, heldur
þekking og sambönd klúbbfélaga.
Fjárfesti klúbburinn í fyrirtæki þá
fara einn eða tveir meðlima í
stjórn. Fyrirtækin sem þeir fjár-
festa í eru yfirleitt lítil eða meðal-
stór fyrirtæki þar sem áhugasamir
stjórnendur ráða yfir góðri við-
skiptahugmynd eða vænlegum
stækkunarmöguleikum. Síðan
leggja þeir til fjármagn, þekkingu
og sambönd. í langflestum tilfell-
um gengur dæmið upp.
Klúbburinn hefur keypt 35 fyrir-
tæki á tímabilinu fyrir að meðal-
tali 100 milljón dollara og þeir
hafa endurselt um helming fyrir-
tækjanna. Þeir leggja áherslu á að
tryggja stjórnendum fyrirtækj-
anna hlutfallslega stóran hluta
hlutabréfanna þannig að þeir hafi
augljósan hag af að vel gangi. Þeir
sem síðan setjast í stjórnarstólana
gera það sem sjálfboðaliðar.
Mikið hefur verið rætt um hlut-
verk fjárfestingasjóða bæði í
Bandaríkjunum og væntanlegri
Stórevrópu. Yfirtaka fjárfestinga-
sjóða á fyrirtækjum með tilheyr-
andi hreinsunum er almennt talin
til bóta. Með þessum hætti næst
nauðsynleg endurskipulagning,
þó mörg dæmi séu um hreint og
klárt brask.
Hérlendis hefur þetta lítið verið
stundað. Helst er að nokkur stór-
fyrirtæki hafi endurfjármagnað
vænleg fyrirtæki með góðum ár-
angri. Gjaldþrot Ávöxtunar ætti
þó að vera minnisvarði um hvílíkt
hættuspil hér er á ferðinni ef ekki
er vel að málum staðið.
Velgengni ellilífeyrisþeganna
undirstrikar þá staðreynd að fjár-
magn og reynsla verði að fara
saman og ekki má gera lítið úr
góðum samböndum.
SMÁFRÉTTIR
Heildarupphæð vinninga
05.08 var 2.071.112
Enginn hafði 5 rétta sem var
kr. 1.770.518
Bónusvinninginn fengu 8
og fær hver kr. 38.409
Fyrir4tölurróttarfær
hver 7.260 ogfyrir
3 réttar tölur fær hver um
sig 340
Sölustaöir loka 15 minútum
tyrir útdrátt í Sjónvarpinu.
Gítartónleikar
á Kjarvals-
stöðum
Fimmtudaginn 10. ágúst mun
Kristinn H. Árnason, gítarleikari,
halda tónleika að Kjarvalsstöð-
um og hefjast þeir kl. 1&00
Menningarmálanefnd Reykja-
víkur býður til þessara tónleika í
samvinnu við listamenn og eru
þetta þriðju og síðustu tónleik-
amir í þessari röð gítartónleika.
Á efnisskránni eru verk eftir
Weiss, Villa-Lobos, Turina og
Mangoré.
Kristinn H. Árnason er faedd-
ur í Reykjavík 1963. Hann lærði
gítarleik hjá Gunnari H. Jóns-
syni og Joseph Fung í Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar og
lauk þaðan burtfararprófi 1983.
Árið 1987 lauk hann B.M. gráðu
frá Manhattan School of Music
í New York. Síðan hefur hann
verið við nám m.a. hjá José
Tomas í Alicante á Spáni. Hann
hefur tekið þátt í námskeiðum
hjá André Segovia og Manuel
Barrueca Á hausti komanda
heldur Kristinn aftur til Spánar
til frekara náms hjá José
Tomas.
Reykjavík
síðdegis
tekur
breytingum
Frá og með næsta þriðjudegi
sem er 8. ágúst kemur aftur til
starfa á Bylgjuna hinn vinsæli
útvarpsmaður Hallgrímur Thor-
steinsson. Hallgrímur er fyrsti
stjómandi „Reykjavík síðdegis"
og f.v. fréttastjóri Bylgjunnar.
Reykjavík sídegis verður með
breyttu sniði í framtíðinni og
verður þátturinn lengdur um
klukkutíma og verður hann á
dagskrá frá kl. 17 til 19 á Bylgj-
unni. Fréttastofan kemur til
með að tengjast þættinum
meira en áður hefur verið, og
fréttir og fréttatengd málefni
verða nú einnig í Reykjavík síð-
degis.
Sími 685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulínan: 99 1002.