Alþýðublaðið - 22.08.1989, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 22. ágúst 1989
SMÁFRÉTTIR
Valdimar Flygenring og María Ellingssen í hlutverkum sínum í „Sjúk ást".
Annað svið
sýnir
„Sjúka ást
Leikhópurinn ANNAÐ SVIÐ
mun þann 26. ágúst frumflytja á
íslandi eitt þekktasta verk
bandaríska leikritaskáldsins SAM
SHEPARDS ,,FOOL FOR LOVE"
eða „SJÚK AST".
Verkið fjallar um ástríðufullt
ástarsamband manns og konu,
sem tengd eru saman af
sterkum böndum fortíðarinnar
þrátt fyrir síendurteknar tilraunir
sínar til að stokka upp spilin og
hefja nýtt líf.
Með hlutverk í sýningu
ANNARS SVIÐS fara þau
MARÍA ELLINGSSEN,
VALDIMAR ÖRN FLYGENRING,
RÓBERT ARNFINNSSON OG
EGGERT ÞORLEIFSSON.
Leikstjóri sýningarinnar er
KEVIN KHULKE og er þetta í
fyrsta skipti sem hann stýrir
uppfærslu hérlendis. KEVIN
KHULCE kemur frá miðríkjum
Bandaríkjanna, hann er af yngri
kynslóð leikstjóra og starfar
bæði í NEW YORK og EVRÓPU.
Þaö er MENNINGARSTOFNUN
BANDARÍKJANNA sem stendur
fyrir komu hans hingað og hefur
gert þetta menningarsamstarf
mögulegt.
Frumsýning er sem fyrr segir
l26. ágúst og verða sýningar í
leikhúsi FRU EMILÍU,
SKEIFUNNI 3. C. Sími 681125.
Atvinnuleysi í
júlí þrefalt
meira en
í fyrra
Skráð atvinnuleysi er þrefalt
meira nú en á sama tíma í fyrra
og hefur ekki áður mælst jafn
mikiö í júlímánuði þann tíma
sem sambærilegar tölur eru til
um en mest hefur atvinnuleysi
áöur mælst í júlímánuði árið
1969, 1,1% af mannafla.
í júlímánuði voru skráðir 39
þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu öllu, 23 þúsund hjá kon-
um en 16 þúsund hjá körlum.
Þetta svarar til þess að rösklega
1800 manns hafi að meðaltali
verið á atvinnuleysisskrá í mán-
uðinum en það jafngildir 1,3% af
áætluðum mannafla á vinnu-
markaði í mánuðinum sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar.
Samkvæmt þessum niður-
stöðum var atvinnustigið í júlí-
mánuði nánast óbreytt frá mán-
uðinum á undan. Skráðum at-
vinnuleysisdögum fækkaði þó
örlítið eða um 2400 daga í heild
sem svarar til þess að hlutfall at-
vinnulausra af mannafla hafi
lækkað um 0,1%. Konum fækk-
aði á skrá um tæp 7% en körl-
um um tæp 4%.
Skráðum atvinnuleysisdögum
fækkaði á 6 af 8 skráningar-
svæðum, mest á Norðurlandi
vestra um 1050 daga. Á Suður-
landi var ástandið nánast
óbreytt en á Suðurnesjum fjölg-
aði skráðum atvinnuleysisdögum
um 400.
í júlímánuði í fyrra voru skráðir
11300 atvinnuleysisdagar á land-
inu öllu sem svarar til þess að
hlutfall atvinnulausra af mann-
afla hafi verið 0,4%.
SÍS hefur
siglingar til
Bremerhaven
Skipadeild Sambandsins hefur
ákveðið að hefja reglubundnar
áætlanasiglingar til Bremerhav-
en.
Um er að ræða siglingatíðni á
14 daga fresti. Siglt verður frá
Reykjavík á þriðjudögum og
Vestmannaeyjum á miðvikudög-
um og síðan beint til Bremer-
haven, þar sem losun fer fram á
sunnudagskvöldum. Fyrsta ferð-
in verður frá Reykjavík 29. ágúst
og Vestmannaeyjum 30. ágúst.
„Til þessarar nýju þjónustu er
fyrst og fremst stofnað fyrir ís-
lenska útflytjendur sem sýnt
hafa málinu mikinn áhuga. Þegar
hefur verið bókaður í fyrstu ferð-
ina flutningur á freðfiski og salt-
fiski í gámum auk ferskfisks.
Losun í Bremerhaven á sunnu-
dögum er hagstæð vegna mánu-
dagsmarkaðar, en mánudagurinn
er besti söludagur ferskfisks,"
segir í fréttatilkynningu.
* Krossgátan
□ 1 ._ . ■ V 2 hf1é 3. .j ‘ n 4
5LOI seb,: "O *) v r; ;
6 n. □ 7
S 9 •
10 □ 11
□ 12 v .
13 □ □
Lárótt: 1 hristu, 5 skógur, 6
ellegar, 7 fæddi, 8 gortaði, 10
gangflötur, 11 kjaftur, 12 sigr-
uðu, 13 kölski.
Lóðrétt: 1 reiðtygi, 2 varn-
ingur, 3 keyrði, 4 muldrinu, 5
máttar, 7 guð, 9 korna, 12
samstæðir.
Lausn á síðustu kross-
gótu.
Lárótt: 1 hólma, 5 háll, 6 asi,
7 að, 8 runnur, 10 mm, 11 oka,
12 ætir, 13 ráðin.
Lóðrétt: 1 hásum, 2 ólin, 3II,
4 auðrar, 5 harmur, 7 aukin, 9
noti, 12 æð.
RAÐAUGLÝSINGAR
Póst- og símamálastofnunin
Rafeindavirkjanám
Póst- og símamálastofnunin tekur nú í haust
upp að nýju nám í rafeindavirkjun og óskar hér
með eftir nemum á 7. önn.
Umsækjendur skulu hafa lokið bóklegu námi á
6. önn í rafeindavirkjun.
Námstími er 13 mánuðir, bóklegt nám og
starfsþjálfun hjá stofnuninni og lýkur með
sveinsprófi.
Laun eru greidd á námstímanum.
Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu
afriti af því, sakavottorði og heilbrigðisvott-
orði, berist Póst- og símaskólanum fyrir 15.
september n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og
símaskólanum Sölvhólsgötu 11, Reykjavík, hjá
dyravörðum Landssímahúss og Múlastöðvar
og ennfremur á póst- og símstöðvum.
Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma-
skólanum í símum 91—26000/336/385/386.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð í
Hólmavík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina á Þórshöfn.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð-
ina í Neskaupstað.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja, Keflavík.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina á Djúpavogi.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð-
ina á Akranesi.
9. Tvær stöður hjúkrunarfræðinga við Heilsu-
gæslustöðina í Garðabæ.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuenytið
17. ágúst 1989.
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA
REYKJAVÍKURUMDÆMIS
Auglýsing
Ritari óskast að Sálfræðideild skóla, Réttarholts-
skóla.
Kunnátta í ensku, dönsku, vélritun og notkun tölvu
nauðsynleg. Upplýsingar í síma 680698.
Fræðslustjórinn í Reykjavík
Innritun í próf
Próf verða haldin 28. ágúst — 1. september.
Þeir nemendur, sem skráðu sig í vor, þurfa að stað-
festa skráninguna með símtali við skrifstofu skól-
ans, sími 26240 í síðasta lagi föstudaginn 25. ágúst
n.k.
Iðnskólinn í Reykjavík
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
i umferðmm?
iir™