Alþýðublaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. ágúst 1989
7
w ■■
UTLOND
„Good Night Sweet Prince"
Hann er besti enskumælandi leikari á hvíta taldinu", skrif- Það var þó leikhúsið, sem var
aði Pauline Kael, þekktur bandarískur kvikmyndagagnrýn- mesta ástríða hans allt frá því
andi á sínum tíma. hann var 15 ára en þá „debuter-
Það er ekki óeölilegt
aö finnast þessi
yfirskrift passa vel
viö eftirmœli um Sir
Laurence Olivier,
líklega þekktasta
Shakespeare leikara
aldarinnar, þessi
tilvitnun í eina af
þekktustu setningum
úr verkum
Shakespeare var
einnig viðhöfö eftir
andlát John
Barrymore, sem
einnig var þekktur
Shakespeare-leikari.
Ein af síðustu myndunum sem teknar voru af Sir Laurence Olivier. Hann
lést nú nýverið 82 ára að aldri.
aöi“ hann á leiksviði. Það var þó
ekki fyrr en um 1935, sem hann
fór að fá viðurkenningu fyrir hina
miklu hæfileika sína.
Olivier lék i öllum þekktustu
verkum Shakespeare í heimalandi
sínu, Bretlandi, en einnig í Banda-
ríkjunum í leikhúsum á Broadway.
Hann lék einnig í kvikmyndum,
gerðar eftir verkum Shakespeare
og þóttist takast vel til. Hann leik-
stýrði sjálfur fjórum kvikmyndum
sem hann lék í og þrjár þeirra voru
gerðar eftir verkum Shakespeare
og hlaut hann mikið lof fyrir
frammistöðu sína. Kvikmyndir
sem hann lék í á seinni árum þóttu
sumar hverjar ekki samboðnar
honum, en þrátt fyrir það tókst
Olivier alltaf að gera eitthvað
spennandi og eftirtektarvert við
hlutverk sín, þannig að þau urðu
mönnum eftirminnileg.
I sjálfsævisögu sinni og ævisög-
um, sem aðrir hafa skrifað um
hann, kemur berlega í Ijós hvers-
lags víti einkalíf hans var um ára-
bil. Hann var kvæntur Vivien
Leigh í 20 ár en hún var þekkt leik-
kona. Þegar þau kynntust, voru
þau bæði gift öðrum, en milli
þeirra blossaði upp mikil ást, svo
mikil að sumir vinir þeirra höfðu á
orði að það væri hætt við að þau
brenndu hvort annað upp. Fljót-
iega eftir giftingu þeirra kom í Ijós
að Vivien fékk hræðileg geðveik-
isköst, var svokallaður geðklofi.
Hann þraukaði þó þessi 20 ár með
henni.
Hann átti þó eftir gott og frið-
sælt 25 ára hjónaband með leik-
konunni Joan Plowright og eign-
aðist með henni þrjú börn. Hann
hafði oft á orði, hversu mikils
hann mat heimilislíf sitt.
I sjálfsævisögu sinni segir hann
frá erfiðu tímabili á ævi sinni um
1970, en þá várð hann haldinn því-
líkum leiksviðskvíða að hann hélt
sig að mestu við kvikmyndir.
Hann var ráðinn sem leikhússtjóri
við breska Þjóðleikhúsið en jrað
gekk ekki hávaðalaust fyrir sig
þann tíma sem hann starfaði þar.
Ingmar Bergman fer ekki sér-
lega fögrum orðum um Oliver í
sjálfsævisögu sinni „The Magic
Lantern". Þeir höfðu eitthvert
samneyti í London um tíma og
sagði Bergman að í Olivier hafi
hann aðeins fundið innantómt
skurn af manni!
Olivier sagði reyndar oftsinnis
sjáifur að eins og margir aðrir leik-
arar væri hann utan leiksviðs af-
skaplega óspennandi og svo lítið
áhugaverður að ,,ég myndi ekki
nenna að umgangast mig"!
Trúlega eru þeir, sem hafa notið
snilldar hans á sviði, sammála um
að sú uppljómum sem geislaði frá
honum hafi sannarlega verið allt
að því „háspenna".
(Arbeiderbladet, stytt.)
SJÓNVARP
Stöö 2 kl. 23.40
TAKATVÖ
(Doubletake)
Seinni hluti spennandi leynilög-
reglumyndar. Framin voru tvö morð
og var höfðum fórnarlambanna
víxlað. Einnig kemur inní spilið
spilling innan lögreglunnar svo og
ástarævintýri. Kvikmyndahandbók-
in okkar telur myndina vera fyrir of-
an meðallag, en hún er byggð á
spennusögunni „Switch eftir Will-
iam Bayer.
Aðalhlutverk eru í höndum Rich-
ard Crenna, Beverly DAngelo, og
Paul Gleason. Leikstjóri er Jud Tayl-
or.
OVÆNTENDALOK
(Tales of the Unexpected)
Þessa þætti þekkja allir, enda bresk-
ir og vandaðir. Endalokin koma,
eins og nafnið gefur til kynna, oftast
á óvart. Spennandi þættir. Ekki mik-
ið meira um það að segja.
Sjónvarpið kl. iai5
MÚMÍNDALURINN
(Mumindalen)
Finnskur teiknimyndaflokkur um
hinar kunnu sögupersónur rithöf-
undarins Tove Jansson, Múmínálf-
ana. Þeir eru skrýtnar skepnur sem
lifa ágætu fjölskyldulífi í hinum
týnda Múmíndal. Þeir eiga skrýtna
vini eins og til dæmis Snabba. Að
Múmínálfunum og vinum þeirra
steðja ýmsar hættur sem þeir verða
að glíma við, en það gera þeir á sinn
sérstaka æðrulausa hátt.
Sögumaður er Helga Jónsdóttir.
Stöð 2 kl. 22.00
BARÁTTAN VIÐ HAFIÐ
(Samatarian)
Bandarisk sjónvarpsmynd frá 1986
um heimkominn Víetnamhermann
sem ákveður að helga sig aðstoð við
heimilislausa í Bandaríkjunum, en
þeir skipta hundruðum þúsunda og
sinnuleysi stjórnvalda gagnvart
þessu fólki er ótrúlegt. Hann fer í
hungurverkfall svo til í skugga
Hvíta hússins til að vekja athygli á
málinu. Þetta er að sögn sönn saga.
Með aðalhlutverk fer Martin
Sheen og ásamt honum leika stór
hlutverk þau Cicely Tyson, Roxanne
Hart og Joe Seneca. Leikstjóri er
Richard T. Heffron
0 STÖD 2
17.50 Freddi og fé- lagar (25) 16.45 Santa Barbara 17.30 Bylmingur
1800 18.15 Múmíndalurinn (2) 18.30 Kalli kanína 18.45 Táknmálsfréttir 18.55 Fagri-blakkur m00 Elsku Hobo 18.25 Íslandsmótið í knattspyrnu
1900 19.20 Leöurblöku- maðurinn (Batman) 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veö- ur 20.30 Skógrœkt á ís- landi 21.00 Ferö án enda — Annar þáttur — Leitin aö risaeðlun- um 22.00 Útþurrkun (Wipe Out) — Fyrsti þáttur — 19.19 19.19 20.00 Alf é Metmac 20.30 Visa-sport 21.30 Óvænt endalok 22.00 Baréttan við kerfið
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok 23.40 Taka tvö. Seinni hluti 01.10 Dagskrérlok