Tíminn - 04.01.1968, Qupperneq 3
ESMMTUDA<JUIt 4. janúar 1968.
TfMtNN
3
ii
i
i
FB-Reykjavík, miðvikudag.
f gær flæktist lítill hvítur hundur inn á Fréttastofu útvarpsins. Var
þegar gripið til þess ráðs að auglýsa þennan óvænta gest í útvarpinu,
og leið ekki löng stund, þar til eigandi hans kom og sótti hann. Þegar
eigandinn kom, sagði hann, að hundurinn héti Flandrara-Snúlli, væri
hann upprunninn í Keflav. en nú búsettur á Þórsgötunni í Rvík. GE
ljósmyndari Tímans tók meðfylgjandi mynd af Flandrara-Snúlla og
eigandanum, þegar þeir sátu í góðu yfirlæti á Fréttastofunni, og hvíldu
sig fyrir heimferðina.
Á 4. HUNDRAÐ BIÐU EFTIR
FLUGFERÐ FRÁ AKUREYRI
FB—Reykjavík, miðvikudagur.
Innanlandsflug hefur gengið
heldur stirðlega í gær og í dag
vegna veðurfarsins. Ekkert var
hægt að fljúga til Akureyrar í
gær, og í dag biðu þar nær fjögur
hundruð manns. Skást var ástand
ið í sambandi við ísafjarðarflugið.
Þangað höfðu verið farnar tvær
ferðir síðdegis í dag. Þá var veð
ur heldur að skána fyrir norðan,
og var búizt við, að hægt yrði að
fara fimm ferðir til Akureyrar í
kvöld, ef veður breyttist ekki aft-
ur, og væri þá búið að flytja þá
farjþega, sem á biðlista voru syðra
og nyrðra.
Flogið var til Sauðárkróks í
morgun, en ekki hafði verið hægt
að fljúga til Hornafjarðar og
Vopnafjarðar vegna veðurhæðar
á þessum stöðum.
Aðalfundur
miðstjórnar
Framsókn-
arflokksins
Á fundi framkvæmda-
stjórnar Framsóknar-
ffokksins, var einróma
samþykkt, að aðalfundur
miðstjórnar Framsóknar
flokksins yrði haldinn
dagana 9.—11. febrúar
næstkomandi. — Hefst
fundurinn kl. 2 eftir há-
degi ) Framsóknarhús-
•nt við Frikirkjuveg.
Þei1- aðalmenn í mið-
stjórn sem ekki geta
mætt á fundinum, þurfa
að tilkynna það vara-
manm sínum, og skrif-
stofu Framsóknarflokks-
ins i Reykjavík með næg-
um fyrirvara. Sími skrif
stofunnar er 2-44-80.
HJARTAMANNIN-
UM LÍÐUR VEL
NTB-Höfðaborg, miðvikudag.
Su'ður-Afríkumaðurinn dr. Phil.
ip Blaiberg, sem nýja hjartað var
grætt í á þriðjudagsmorgun, er
við góða líðan að þvi er læknar
hans sögðu í dag. Blaiberg er ný
farinn að nærast á auðmeltri,
fljótandi fæðu„ og drekkur vatn,
og i dag gat hann spjallað við
læknana og hjúkrunarkonurnar,
sem slunda hann. Hann er sífellt
undir nánu eftirliti lækna og sér-
fræðinga, því að það þarf að vera
vel á verði gegn ýmsum kvillum
og aukaáhrifum af aðgerðinni, sem
kunna að skjóta upp kollinum,
þegar mínnst varir.
Læknaniir segja, að sjálf skurð
aðerðin hafi gengið enn betur en
þegar Washkansky var skorinn
upp á dögunum, enda hafa þeir
öðlazt margvíslega reynslu af því.
Bl.vberg er þriðja mannveran,
sem skip er um hjarta í, þær
fyrri voru Washkansky, sem skor-
inn var upp á sama sjúkrahúsi og
Blaiberg, Grobte Scuur, og banda
rísk' Ungbarn, en læknar á Mai-
monides-sjúkrahúsinu i New York
gerfiu á því misheppnaða hjarta
flutningaaðgerð fyrir um það bil
i mú iuði.
Blaiberg er flmmítu og átta ára
gamall tannlæknir ,og eins og
Washkar.sky er hann Gyðingur að
æi+eini og trú.
f kvöld leið Blaiberg vel og lét
fara vel um sig í súrefnistjaldinu.
sem reist hefur verið í herbergi
AUKIN UMV
FERÐ UM
KEFLAVÍKUR
FLUGVÖLL
Á árinu 1967 voru flugtök og
lendingar á Keflavíkurflugvelli
alls 66.168, en á fyrra ári 58.069.
Alls voru lendingar fanþegaflug-
véla á Vellinum 2.654 á síðasta
ári en árið 1966 lentu þar 2.480
farþegaflugvélar. Um flugvöllinn
fóru alls á þessu ári 296.442 far
þegar, en árið 1966 213.174 far-
þegax.
Einnig hafa vöruflutningar auk-!
izt talsvert frá því sem var árið i
1966. Nú voru flutt alls 1.601.507 j
kg en þá 1.156.438 kg. Alls voru j
flutt 507.841 kg af pósti um völl
inn á árinu en 1966 339.083 kg.
hans. Hann rabbaði við læknana
í kvöld meðan þeir hagræddu
leiðslum og pipum, sem flytja
blóðpiasma inn í æðakerfi hans.
Læknarnir sögðu, að Blaiberg
væri mun hressari en Washkansky
var á þessu stigi, og þeir spáðu
því að aðeins fáir dagar myndu
líða þai til hann gæti matazt
á eðlilegan hátt og snætt linsoð-
in cgg og grænmetisrétti.
Þegar sjúklingurinn vaknaði af
værum svefni í morgun, voru
fyrstu orð hans þessi: „Ég er
þyrstur „Viljið þið gera svo vel
að skila kveðju til konunnar minn
ar ‘? Læknarnir voru ekki seinir
á sér að flytja frú Eileen Blai-
berg kveðjuna, en hún hafði gist
á sjúkrahúsinu um nóttina til að
geta verið eins nærri manni sm-
um og kostur var á. Hún fær þó
eka. að heimsækja hann strax.
Fréttamenn í Höfðaborg segja,
að ekk, sé auðvelt að fá fréttir
af Uðan sjúklingsins og uppskurð-
inum, læknarnir vörðust allra
fré ía. Þessu var öfugt farið, þeg
ar Washkansky var skorinn upp,
þá hiupu allir læknarnir til og
sögðu hverjum sem hafa vildi,
allt sem þeir vissu um uppskurð-
inn og sjúklinginn. Gilti þetta
jaí.ir um þá, sem tóku þátt i að-
geiðinni, og þá, sem hvergi komu
þar r.ærn Nú fá fréttamenn ekki
að~ai upplýsingar en hinar stutt-
oruu opinberu tilkynningar sjúkra
húsaijóri o- nnar, og ýmsar tálm-
amr hata verið settar upp til að
stugga við ljósmyndurum, til
dæmis s endur lögregluvörður um
heiztu dyr.
Aðgerðin á Blaiberg verður eftir
öllum solarmerkjum að dæma sú
síðasta sinnar tegundar í Suður-
Af.iku um langan tíma. Prófessor
Barnard sagði í dag, að óhugsandi
væn, að hann og félagar hans
myndu gera aðra aðgerð í náinni
framtíð. Bernard gaf ekki frekari
skýnngai á þessum ummælum
sínum.
Stora spurningin varðandi Blái
be. g er sú. hvort hann lifir aðra
og þriðjn vikuna af, en á þvi
tímabili fer iíkaminn gjarnan að
m^nÖE mótefni gegn aðskotaÞ'f-
fær.au, sem getur orðið sjúkli ign
um að aldurtila. Þessa gætir vana
lega iííl fyrstu vikuna eftir
ígræðsiuaðgerðir. Washkansky
heibnn iilði þetta hættutímabil
eksi aí, þiátt fyrir að vonir stæðu
til þcss. Lungnabólga varð honum
að bana
Læknarnir telja Blaiberg nafa
| mein lífsmöguleika, og liggja þar
tvær góðar og gildar ástæðui
j í fyrsla lagi öðluðust læknarmr
| mir-.ia og dýrmæta reynslu vií
- Washkanskyaðgerðina, og peir
getu nú miklu betur hlynnt að
Blaiberg vegna þess og ráðið við
þau fiókr.u vandamál sem upo
ku.ma ac koma. í öðru lagi tr
Biaiberg nraustari sjúklingur en
Wdshkansky var. Nýlenduvöru-
kaupmanninn, sem var fimmtíu
og sex ara gamall, var ekki J n
göngu þjáður af hjartasjúkdómn-
. um, hann var einnig haldinn syc.ir
! sýki. sem gerði illt verra, og i’.’.i
þvi að hann var móttækilegri fyr
ir .ungnabólgunni sem dró ham
til aauða Blaiberg er hins vegnr
ekki hrjaður af neinum slíkum
kvuium, það eina sem að hon irn
er, vrr veikt hjarta. oe ætti hmn
því fremur að lifa aðgerðina af
og likam. hans að aðlagast hjart
anu, sem tekið var úr unga blökKj
maru.inum Cleve Haupt, en hann
lézt aí heilablæðingu.
Þcssar staðreyndir gefa tilafni
Framhald a bia 14
HEYLAUSIR FJAREIG-
ENDUR STÁLU HEYI
ÚR FITJAKOTSHLÖÐU
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Tveir heylausir liesta- og sauð
fjáreigendur í Reykjavík brugðu
sér í hlöðuna í Fitjakoti á Kjalar
nesi og stálu þaðan 16 hestum af
heyi, núna skömmu fyrir jól. Tek
izt hefur að hafa hendur í hári
heyþjófanna og kom í ljós við
rannsókn að þeir áttu ekki strá
að gefa skepnum sínum og kváðust
ekki hafa átt peninga til heykaupa.
Heyinu stálu mennirnir aðfara
nótt 17. desember. Voru þeir tekn
ir á Þorláksmessu, og viðurkenndu
strax verknaðinn. Bóndinn í Fitja
koti varð strax var við að tekið
hafði verið hey úr hlöðu sinm og
kærði þjófnaðinn þegar. Höfðu
mennirnir farið með bíl að hlöð
unni og brotizt þar inn að nætur
lagi. Mennirnir eiga þrjá hesta o?
átta kindur, og engin hey. Bónd
inn sem stolið var frá ví]] ekki
heyið aftur þar sem búið er að
þvæla því fram og til baka og
verða þvi þjófarnir að kaupa það
á fjórar krónur kílóið, en þes$:r
16 hestburðir duga engan veginn
til að fóðra skepnum þeirar fraro
á vorið
Er þetta í annað skiptið á stutt
um tíma sem heyi er stolið úr
hlöðum i nágrenni Reykjavikur.
21 sjúkling-
ur á Borgar
sjúkrahúsi
FB-Reykjavík, miðvikudag.
í dag var kominn 21 sjúkl
ingur á lyflæknisdeild Borg
arsjúkrahússins nýja í Foss
vogi, sem opnað var 28. des
ember s. 1. Við hringdum í
Óskar Þórðarson yfirlækni
lyflæknisdelidarinnar og
spurðum frétta.
— Það er ekkert sérstakt
að segja héðan, sem almenn
ingsheill varðar. Þetta er að
komast í gang og gengur vel,
það er ekki annað um það
að segja.
— Nú er að byrja hjá ykk
ur „akútvakt“, þá fyllist hjá
ykkur, hvað getið þið tekið
á móti mörgum?
— Við tökum á móti þvi,
sem berst að?
— Er ekki einhver tak-
markaður rúmafjöldi?
— Það er það alltaf
hreint, en maður bjargast
einhvern veginn.
— Hvað eru mörg rúm tal
in vera á lyfjadeildinni und-
ir venjulegum kringumstæð
um?
— Ja, þetta eru ekki
venjulegar kringumstæður
eins og er. Við höfum 32
rúm hér, það er allt og
sumt.
Ekki vildi yfirlæknirinn
leyfa myndatökur á sjúkra-
húsinu, hvorki af sjiikum né
heilbrigðum, en sagði, að
vonandi yrði spítalinn vtgð
ur í haust, og þá mætti
reikna með, að sjúkrahús-
nefnd biði blaðamönnum,
bæði til að taka myndir og
annars.
— Það er ekkert í frétt-
um um þetta, þetta gengur
allt saman ósköp eðlilega, og
og ekkert sérstakt að segja,
sagði yfirlæknirinn að lok-
i