Tíminn - 04.01.1968, Síða 16
/
2. tbl. — Fimmtudagur 4. jan. 1968. — 52. árg.
Vegir vestan-, norðan- og austanlands lokaffir
! * 1
Lmuveiðin stöðv-
ast vegna
íss vestra
Kuldalegt var við Reykjavíkurhöfn í gærmorgun, þegar GE tók þessa mynd af togaranum Neptúnusi, sem
var að koma úr siglingu.
OÓ-iRjeykjavík, miðvikudag.
Óskaplegur veðrahamur hefur
gengið yfir landið síðustu sólar-
hringa. Iðulaus stórhríð gengur
yfir Norður- og Austurland, og
má segja, að allir vegir í þessum
landshlutum séu tepptir. Sama er
að segja um ástand vega á Vest-
fjörðum, en þar hríðar ekki eins.
Frostið er yfirleitt 15—20 stig á
landjnu og hefur mælzt 30 stiga
frost á Hveravöllum. fs ryðst upp
að landinu fyrir norðan og vest-
an. Vestfjarðabátar komast ekki
á miðin fyrir ís, sem nú lokar
mynni fsafjarðardjiips. íshröngl
er víða á fjörum norðan lands, en
skyggni þar er mjög slæmt vegna
hríðarinnar og því erfitt að gera
sér grein fyrir hvort mikill ís er
fyrir landi og hve þéttur hann er.
Á Suður- og Vesturlandi er ekki
Millilandaf lug Flugf élags-
ins gekk mjög vel 1967
sérstaklega eftir tilkomu þotunnar
FB-Reykjavík, miðvikudag.
í upphafi árs 1967 gerðu
forstöðumenn Flugfélags ís-
lands ráð fyrir, að farþega-
auknmg hjá félaginu á milli-
landaleiðum yrði um 15%. í
viðrali við Svein Sæmundsson
blaðafulltrúa félagsins, í dag,
kom fram, að millilandaflug-
ið hefur gengið alveg framúr
skarandi vel á árinu sem var
að liða, og sér í lagi eftir að
jjota fiugfélagsins var tekin
í notkun 1. júlí s.l. Samkvæmt
niðurstöðutölum í millilanda-
flugi fyrstu 11 mánuði árs-
ins 1967 var aukningin á mill*
landaleiðum 21,2%, að sögn
Sve:ns.
— Við erum þwí þessa ellefu
Aðalfundur Full-
trúaráðs Framsókn
arflokksins í Rvík
Aðalfundur fulltrúaráðs
Framsóknarflokksins í R-
vík vcrður haldinn í Fram
sóknarhúsinu við Fríkirkju
veg (uppi) mánudaginn 8.
jan. og hefst liann kl. 8,30
síðdegis. Fulltrúaráðsmenn
eru hvattir til að mæta vel
og stundvíslega.
mánuði 'búnir að flytja 56.000 far-
þega milli íslands og anmarra
landa. Frá því 1. júlí hefur milli-
landaflugið að lang méstu leyti
verið framkvæmt með þotunni,
og hefur það gengið aliveg prýði-
léga.
I — Það var alltaf reiknað með
að aukningin á þessum leiðum
yrði a. m. k. 15%, þá væri hún
í góðu lagi, og það sem hún færi
fram yfir það, væri að sjálfsögðu
rnjög gott.
— Auikiningin í vöruflutningun-
um milli landa er einnig miikil,
þannig, að þeir virðast ætla að
verða svipaðir hér milli fslands
og annarra landa og þeir eru
annars staðar í heiminum. yöru-
flutningaaukiningin er í rauninni
miklu meiri en aukningin í far-
þegaflutningunum, miðað við það
sem verið hefur til þessa.
— Ég held ég megi fullyrða,
að farþegum líki mjög vel að ferð
ast með þotunni, og það merkasta
við árið 1967, sagði Sveinn að
lokum, — tel ég vera, að íslend-
imgar komust inn á þotuöldina.
Þar sem fram hefur komið, að
failþegiaaukning Flugfélagsins á
millilandaleiðum hefur orðið mun
meiri en félagið gerði ráð fyrir í
byrjun síðasta árs, a. m. k. fram
til desemiber, og ekki er líklegt,
að desember hafi skemmt þær
tölur, þar sem sjaldan eða aldrei
eru fleiri, sem vilja þá komast
heim til íslands, og utan aftur
heldur en í kringum jólin, má
reikna með, að rekstur hiinnar
nýju BoeingJþotu hafi orðið hag-
stæðari en búizt var við, þegar
vélin var keypt.
hríðarveður en mikil frostharka.
Eru allir vegir færir fyrir umferð
á þessum landssvæðum.
í Reykjaivík hefur umferð geng
ið greiðlega í dag. Götur voru
orðnar erfiðar vegna skafrennings
í gærkweldi en voru skafnar í
nótt. Bílstjórar á sendibílastöðvuLi
um böfðu inóg að gera í mörgun
og giærmorgun við að dragá bila
í gang. En mjiög vildi við brenna,
að bílaeigendur komu bílum sín-
um ekki í gang vegna frosthörk-
unnar. Urðu sendiferðatoílarnir að
draga mörg þúsund bíla í gamg.
Strætisvagnaferðir gengu sæmi-
lega, en nokkrir , strætisvagnanna
stöðvuðust vegna þess að olía á
þeim þykknaði vegna frostanna.
Tíminm hafði í dag samtoand við
Veðurstofuna og sfrarðist fyrir
um, hivort útlit sé fyrir að veðrið
fari að ganga niður og hlýni. Páll
Bergþórsson, veðurfræðingur,
sagði, að Mýrra loft sé að vísu suð
vestur af landinu, sem heldur er
að vinna á, en nær taspast að
hafa áhrif á veðurfar hér næstu
sólarihringa, og að þessi kuldi
haldi áfram, og verði svipaður um
allt land. Erostið er i dag 13—16
stig á iáglendi. Snj ókoma er mikil
á Norðurlandi, sérstablega austan
til, en þar er moldöskubylur.
Vindur er hægari sunnan lands,
tojartaira og úrkomulaust.
ísinn við landið ýirðist heldur
vera að aukast. fshröngl er á móts
við ísafjarðardjúp og suður á
móts við ,Önundarfjörð og á sigl-
ingarleiðinni austur fyrir Horn.
Framhald á tois. 14.
Heita vatniö tekið af á nóttunni?
E.I-Reykjavík, miðvikudag.
Ilitaveitustjóri skýrði frá því í
viðtaii í dag, að væntanlega myndi
víða vera vöntun á heitu vatni í
borginni í dag. Mun það hafa
verið orð að sönnu, og m. a. einn
gagnfræðaskóli í borginni til-
kynnti að skólinn yrði lokaður um
óákveðinn tíma vegna kuldans.
Yrði auglýst síðar hvenær skólinn
hæfi starfsemi að nýju.
Þá hefur hitaveitustjóri boðað,
að ef þessi miklu frost héldu
'áfram, gæti swo farið að takmarka
yrði heita vatnið á næturnar til
þess að Hitaveitan gæti safnað
Týndur frá því á aðfangadag
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
43 ára gamall maður hefur ver-
ið týndur síðan á aðfangadags-
kvöld, en þá sást síðast til hans,
svo vitað sé. Nafn mannsins er
ífermann Guðjónsson.
Hermann er búsettur í Reylcja-
vík, einhleypur. Rannsóknai’lög-
reglan hefur reynt að hafa uippi
á manninum undanfarna daga, en
að öðru leyti hefur ekki farið
fram skipulögö leit að honum.
Þeir, sem orðið haifa varir við
Hermann síðan á að-fangadags-
kvöld eru beðnir að láta rannsókn
arlögregluna vita.
toirgðum fyrir notkun á daginn.
H'itaveitan muin nú geta þolað
átta stiga frost, eftir endurbæt-
urnar í haust, en samfelt meira
frost leiðir til vandræða, o-g kulda,
einku-m væntanlega í „gamla b-æn
um“ svonefnda.
Ekki er blaðinu kunnugt um,
að einn hafi skapazt alvarlegt
óstand í íbúðum vegna hitaleysis,
enda hefur þetta mikla frost ekki
staðið nema skamma stund.
Aftur á móti hefur nokkuð bor-
ið á því, að frosið h-efutr í vatns-
leiðslum fyrir kal-t vatn, og hafa
starfsmenn Hitaveitun-nar unnið
að því að reyna að koma í veg
f-yrir að leið-slurnar springi í þessu
mikla frosti.
Samkomulagsvilji lítill?
EJ-Reykj-avík, miðvikudag.
Samnjngafundur var hjá sjó-
mönnum og útgerðarmönmim í
morgun, og annar fundur ákveð-
inn á föstudaginn.
Blaðið hafði í kvöld samband
við Jón Sigurðsson, formann Sjó-
mannasambands íslands, og sagði
hann, að lítið hefði gerzt á þess-
um fundi. I-Iefðu útgerðarmenn
lítt komið til móts við sjómenn.
þó ekki væri meira sagt. A. m. k.
m-ætti segja, að samkomulagsvilj-
inn væri lítill.
Blaðburðarfólk óskast
á Snorrabraut, Kjartansgötu, Kleppsveg, —
Tómasarhaga, Hjarðarhaga. — Upplýsngar á
afgreiðslunni, Bankastræti 7, sími 12323.
'má
1111
I