Alþýðublaðið - 06.09.1989, Side 8

Alþýðublaðið - 06.09.1989, Side 8
UHinillD BNK£< Miövikudagur 6. sept. 1989 Tilraunaleikskóli í Hafnarfirdi: Jafnréttisráð fundar um kynjaskiptinguna Kynjaskipting kemur fólki í opna skjöldu segir formaöur Fóstrufélags Islands. Sjö sóttu um embætti skógræktar- stjóra Sjö sóttu um embætti skógræktarstjóra, en um- sóknarfrestur rann út um síðustu mánaðamót. Emb- ættið verður veitt frá og með 1. janúar á næsta ári, en Sigurður Blöndal gegn- ir því þangað til. Umsækjendurnir eru: Að- alsteinn Sigurgeirsson, skóg- fræðingur, Svíþjóð. Arnór Snorrason, skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins, Baldur Þorsteinsson, skógfræðingur hjá Skógræktinni, Guðmund- ur Örn Árnason, skógfræð- ingur, starfsmaður á Mógilsá, Haukur Ragnarsson, skógar- vörður á Vesturlandi, Jón Loftsson, skógarvörður á Hallormsstað og Sigvaldi Ás- geirsson, skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins. Jafnréttisráði hefur borist ósk frá einstakl- ingum í Fóstrufélagi ís- Iands um að ráðið taki fyrir og úrskurði um stofnun kynjaskipts leikskóla ■ Hafnarfirði. í leikskóla þessum er ætl- unin að gera tilraun til eins árs með því að brjóta upp hefðbundna deildarskiptingu og láta stráka og stelpur njóta þar uppeldis sitt í hvoru lagi. Hjá Jafnréttisráði fengust þær upplýsingar að ekki væri um formlega kæru að ræða, heldur beiðni um umfjöllun. Að sögn Ragn- heiðar Harðardóttur verð- ur mál þetta tekið fyrir á næsta fundi ráðsins, á þriðjudag í næstu viku. Fóstrufélag Islands hefur ekki fjallað formlega um mál þetta, en formaður fé- lagsins, Selma Dóra Þor- steinsdóttir, sagði í samtali við blaðið að mikið hefði verið spurt af félögum um mál þetta. „Við ætlum að funda um þetta mál á þriðjudaginn kemur. Af viðbrögðum hingað til að dæma virðist þetta koma fólki talsvert í opna skjöldu, miðað við undangengna umræðu um hvernig bæta megi sam- skipti kynjanna og gera heiminn betri og friðvæn- legri. Fólk virðist frekar slegið yfir þessu og telja að með þessu sé verið að hverfa til fortíðarinnar, þótt að kynjaskipting sé út af fyrir sig ekki ný hugmynd í menntakerfinu. Eg hef ekki kynnt mér þetta mál nægi- lega vel persónulega, en vissulega vakna upp marg- ar spurningar um þessa til- raun og þá einkum um að- ferðafræðina að baki. Því er ekki að leyna að innan okkar félags er mikil spenna í loftinu, fólk spyr hvort sé verið að hverfa til fortíðarinnar og hvort um uppgjöf sé að ræða að ein- hverju leyti" sagði Selma Dóra. Liggur leiðin til ítalíu? íslenska landsliðiö í knattspyrnu á enn fræðilega möguleika á sæti i úrslitum heimsmeist- arakeppninnar á Ítalíu á næsta ári. Næstsíðasti leikur landsliðsins í þriðja riðli keppninnar fer fram á Laugardalsvelli í dag, þegar liöið mætir Austur-Þjóðverjum. ísland má hvorki við jafntefli né tapi i þeim leik. Landsliösmennirnir Arnór Guðjohnsen, Guðmundur Torfason, Gunnar Gíslason og Sigurður Grétarsson virtust vera með hugann við efnið þegar Ijósmynd- ari leit við á æfingu hjá landsliðinu á KR-velli i gær. Vonandi halda þeir einbeitingunni þar til alvaran tekur við klukkan 18.00 i dag. A-mynd/KGA Söguleg yfirlýsing frá Landlæknisembættinu: Lyf sem gagnast vel gegn alnæmi Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag ÍSLAND Landlæknisembættið hefur í samvinnu við Far- sóttanefnd ríkisins í fyrsta sinn lýst yfir að komið sé fram lyf sem gagnist vel mörgum sjúklingum með alnæmi „Við erum fyrst og fremst að segja að hér sé komið lyf, sem hafi með stórum vísindalegum at- hugunum leitt í Ijós að gagnist fólki með alnæmi,“ sagði Ólafur Ólafsson landlæknir við Alþýðu- blaðið í gær. Þegar er farið að nota þetta lyf, sem nefn- ist AZT, hér á landi. Landlæknisembættið segir að þessi niðurstaða renni stoðum undir að þeir sem hafi grun um að þeir séu HIV- sýktir komi til sýnatöku. Þetta nýja lyf virðist því gefa vonir um breytt viðhorf fólks, sem hingað til hefur snið- gengið sýnatöku af ótta við vonlausa lækningu. Að sögn landlæknis hafa bandarískar rannsóknir leitt í Ijós að lyfið AZT gagnist vel mörgum sjúklingum með al- næmi. Margt bendir til að svo sé einnig um HlV-sýkt fólk, a.m.k. ef sýking er á vissu stigi. Þegar um er að ræða al- næmi, þá er átt við fólk sem er með líkamleg einkenni. En þegar embættið talar um HfV-sýkta, með sýkingu á vissu stigi, er átt við fólk sem er einkennalaust en hefur jafnframt fækkun á ónæmis- frumum. Enn er ekki vitað hvort lyf- ið hafi sömu áhrif á þann sem er með einkennalausa HIV- sýkingu og enga fækkun á ónæmisfrumum. En að sögn landlæknis bendir ýmislegt til að svo geti verið. Vöruskipti hag- stæð við útlönd Hitastig iborgum Evrópu kl. 12 i gær að islenskum tíma. Vöruskiptajöfnuður var hagstæður í júní um 1.250 milljónir króna, en í júní í fyrra var vöruskiptajöfn- uðurinn óhagstæður um röskar 500 milljónir kr. á sama gengi. Fyrstu sex mánuði ársins voru vöru- skiptin hagstæð um nær 4 milljarða, en á sama tíma- bili í fyrra var vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 1,2 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands voru í júnímánuði fluttar út vörur fyrir röskar 7.500 milljónir króna og inn fyrir nær 6.300 milljónir króna. Fyrstu sex mánuðina voru fluttar út vör- ur fyrir 37,9 milljarða kr. en inn fyrir rösklega 33,9 millj- arða króna. Fyrstu sex mánuðina var verðmæti vöruútflutnings meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 73% alls útflutnings- ins og voru um 5% meiri en á sama tíma í fyrra. Utflutning- ur á áli var 25% meiri og út- flutningur kísiljárns var 53% meiri en á sama tíma á síðast- liðnu ári. Útflutningsverð- mæti annarrar vöru, að frá- töldum skipum og flugvélum, var 4% meira í janúar til júni en á sama tíma í fyrra, reikn- að á föstu verðlagi. VEÐRID í DAG Breytileg átt, 2—3 vind- stig og viða smáskúrir um morguninn. Gengur í norð- vestan kalda og léttir til á Suður- og Suðausturlandi, þegar líður á daginn. Hiti 6—12 stig.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.