Tíminn - 26.01.1968, Qupperneq 14
14____________________________
UMBÚÐIR
Framhald af bls. 16.
frystan fisk til frystihúss B.Ú.R.
Allniiklar umræður fóru fram um
miálið. Að umræðum loknum var
samlþyikkt með öllum atkvæðum
að senda stjórn S.H. eftirfarandi
tilkynnimgu:
Þar sem stjórn S.H. hefur ítrek
að neitað að láta af hendi umbúð
ir um braðfrystan fisk til hrað-
fryistihúss B.Ú.R. á Grandagarði og
síðast í gær synjað beiðni Bæjar
útgerðinnar um aflhendingu á
slíkum umbúðum, þá tilkynnum
vér stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hér með, að vér
teljum ákvörðun stjórnarinnar um
stöðvun á afgreiðslu umbúða til
vor óheimila og áskiljum oss fullar
bætur frá S.H. fyrir öllu því tjóni,
sem þessi synjun á afgreiðslu um
búðanna kann að baka oss.
Þá viljum vér bendia á, að beiðni
Bæjarútgerðar Reykjavíkur um af
greiðslu á umbúðunum var synjað
á stjórnarfundi S.H. í gær með
jöfnum atkvæðum. Fimm atkvæð
um gegn fimm.
Það virðist því fyllsta ástæða til
að beiðni Bæjarútgerðar Reykja
víkur verði tekin til afgreiðslu að
nýju og förum vér fram á að
svo verði gert strax á morgun,
föstudiaginn 26. janúar.
Verði svar S.H. um afhendingu
umbúða neitandi munum vér
gera S.H. ábyrga fyrir öllu því
tjóni, sem synjun hennar á af-
hendingu umbúðanna kann að
baka oss og athuga jafnframt hvort
vér getum ekki krafizt afhendingar
umbúðanna með aðstoð dómstól-
anna.
Vegna þessa umbúðamáls hef-
ur Sölumiðstöðin og Sjáwarafurða-
TÍMINN
deild SÍS sent frá sér svohljóðandi
yfirlýsingu:
„1. Það eru Sölumiðstöð hrað-
frystilhúsanna o.g Sjávarafurða-
deild SÍS, sem hafa stöðvað af-
greiðsiu umibúða til hraðfrysti-
húsa, en ekki Umibúðamiðstöðin h.
f. SH og SÍS annast innkaup og
afgreiðslu á öllum umbúðum til
hraðfrystihúsanna, sem keyptar
eru bæði hjá Kassagerð Reykija
víkur h. f. og Umbúðamiðstöðinni
h. f.
2. Undanfama diaga hafa staðið
yfir viðræður við fulltrúa ríkis
stjórnarinnar um starfsgrundvöll
hraðfryisti'húsanna og iögðu fulltrú
ar ríkisstjórnarinnar fram titboð
s. 1. þiðjudag. Þessu tilboði var
hafnað af hálfu hraðfryslihúsaeig
enda, sem alls ófullnœgjandi.
3. Nær öll hraðfrystihús lands
ins hafa sjálf ákveðið að stöðva
frystingu vegna þess að fjárhags-
legur grundvöllur fyrir rekstri
þeinra er ekki fyrir hendi.
Þessi ákvörðun nær þó eigi til
allra hraðírystihúsa í eigu bæjar-
og sveitarfélaga, enda hafa þau
aðra fjárhagslega ðstöðu.“
BÓKASÝNING
Framhald at bls. 16.
sagði, að sýning sömu teg-
undar hefði fyrst verið hald
in hér í júní 1966, og hefði
teiknarafélagið staðið að
henni eitt sér, en fengið
dómnefnd til þess að velja
þær bækur, sem á sýning-
unni voru, en þær voru 17
auk tveggjia tímarita.
Nú hefur teiknarafélagið
aftur á móli snúið sér til
t. d. Rithöfundasambands ís
lands, Bókbindarafélags ís-
lands, Bóksalafélags ís-
lands, Félags bókbandsiðn-
rekenda, Félags íslenzkra
bókaverzlana, Félags ís
lenzkra myndlistarmanna,
Félags ísl. prentsmiðjueeig-
enda, Félags offsettprentara
og fleiri með það fyrir aug
um að leita eftir samstarfi
við þessa aðila um undirbún
ing að syningunni, þar sem
félag teiknara er fámennt fé
lag og hefur ekki eitt sér
bolmagn til þess að standa
undir kostnaði af slíkri
að í öllum atriðum slí'kri
sýningu. Ekki er enn vitað,
hversu margir aðilar samein
ast um þessa sýningu, en
fullvíst er þó að hún verð
ur haldin í vor.
Eftir að stofnuð hafa verið sam
tök, sem standa að sýningunni, er
þeim ætlað að velja dómnefnd,
sem svo aftur velur bækur á sýn
inguna, eins og á fyrstu sýninguna
sem hér var haldin.
Þá má geta þess, að íslending
um hefur verið boðin þátttaka í
þýzkri bókasýningu, sem haldin
verður síðar á árinu. Sýningin á
að fjalla um bókagerð síðustu 50
árin. íslandi er boðin þátttaka í
sambandi við bókasamtökin Nord
isk Bokkunst, sem aðalbækistöð
hafa í Svíþjóð, en félög á hinum
nor'ðurlöndunum eru aiðlar að sam
tökunum. Fyrst var íslendingum
boðið að senda 20 bækur, en á-
kveðið var að þiggja aðeins að
senda 10, þar sem betra væri að
hafa bækurnar færri og vandaðri
í alla staði. Danir munu senda 45
bækur, Finnar 35, Norðmenn 35
og Svíar 45.
SJÁVARÚTVEGSSÝNING
Framhald af bls. 16.
Torfi Jónsson. Ein verðlaun voru
veitt, að upphæð 15.000 krónur.
Frestur til að skila tillögum rann
út 10. janúar. Þegar hann var
úti, höfðu 78 tillögur borizt, frá
47 höfundum.
Eftir að hafa þaulhugsað sitt
ráð, komst dómnefnd samhljóða
að þeirri niðurstöðu. það er að
merki það sem merkl var dul-
nefninu Úgga Núgg skyldi hreppa
verðlaunin (merkið sést á með-
fylgjandi mynd). f ljós kom, að
tveir menn leyndust að baki þessu
dulnefni, þeir Guðbergur Auðuns-
son og Atli Már Árnason, báðir
auglýsingateiknarar, og skipta þeir
með sér verðlaununum. Merki
þetta þótti bera af öðrum, þótt
hinar tillögurnar væru margar
snjallar, vegna þess hve stilhreint
það er og tengsl við sögu islenzks
sjávarútvegs, því að um aldir
gegndi seglið þar veigamiklu hlut
verki.
JARÐSKJÁLFTAR
Framhald af bls. 1
standa mörg þorp nú mannlaus,
að heita má, Öngþveiti ríkir á
þjóðvegunum vegna þess. og ekki
bætir það úr skák, að ausandi
rignlng var á SikUey í dag.
Yfirvöld á eynni segja að 224
Mk hafi fundiist til þessa, en um
1000 manins er saknað, og tuttugu
iþúsund hafa misst heimili sín.
Jarðskjálftinn mældist 8 stig á
Mercalikvarða.
ÖKUKENNARAR
Framhald af bls. 3.
vegna umferðaTbreytLngarinnar í
vor, og mun sænskur sérfræðing-
ur koma himgað til lands og vera
til aðstoðar ásamt íslendingum á
námskeiðum, sem haid-in vetrða í
Reykjavík og á Akureyri. Þeir
Brathén og Bergmark koma vænt-
anlega eiinnig í aðra heimsókn til
íslandis viku fyrir H-dag.
Þá ætlar Ökuikennarafélagið að
gefa út nýja útgáfu af „Akstur
og urnferð" ætlaða til ökukennslu
í hægri umferð.
Að gefnu tilefni vilja íslenzkir
ökukennarar taka það fram að
ökukeninsla mu,n ekki stöðvast
vegna væntanlegrar umferðar-
breytingar.
KÓREA
Framhald af bls. 1
tvö ár. Blaðafulltrúi forsetans
sagði í dag, að stjórtnin hefði
haft samiband við stjórnir ým-
issa erlendra ríkja hvað þetta
mál snertir, og hún leggi kapp
á að finna friðsamlega lausn
á þessum nýju vandræðum í
A'U'Stur Asíu.
FÖSTUDAGUR 26. janúar 1968.
Varaliði hefur ekki verið
boðið út siðan 1062, þegar
Kúbudeilan var í algleymingi.
Norður Kóreainska útvarpið
sendi í dag út sérstaka til-
kynmngu. Það var að sögn út-
varpsstöðvarinnar, siripstjóri
nj'ósniasikiipsins. sem hana lais.
Þar játaði hann, að skipið
hefði verið í njósnaferð innan
landhel.gi og brotið þar gróf-
lega vopnahléssáttmála ríkj-
anna tveggja og gengið á rétt
Ndíóreumanna. Röddin, sem
ti'lkynnin,guna lais, var greini-
lega bandarísk, en hún var ó-
styrk og hikandi, eins og mað-
urinn hefði aldrei séð hana áð
ur og orðavalið var ekki þess-
legt að Bandaríkjamaður heíði
samið tilkynninguna. Lestur
yfirlýs ing ari n n ar tók tvær og
hálffa mírnútu. Hiún nóðist á
seguillband, og eru bandarískir
sérfræðingar nú að kynna sér
hana nákvæmlega.
í yfirlýsingu sinni bað skip-
stjóirinn N-Kóreustjómn um að
dæma sig og menn sína ekki
hart, þó að þeir hefðu gert svo
frekiega á hlut landtemanna,
sem raum ber vitnj.
LEIT
Framhald af bls. 1
neyðarkall frá togaranum að
kvöldi hins 11. þ. m. Var
báturinn að veiðum út af
ísafjarðardjúpi en staðsetn-
ingin, sem togarinn gaf upp
varJ>4 gráður n. b. og 4
gráour v. 1. Kallið var ó-
greinilegt, og miklar trufl
anir á stöðinni, og þar sem
um slíka órafjarlægð var að
ræða, sinntu skipsverjar
kallinu ekki frekar, en hafa
sjálfsagt álitið, að önnur
skip, sem naar togaranum
væru stödd, gætu veitt hon-
um aðstoð, að því er Henry
Hálfdanarson tjáði Timan-
um í kvöld.
Giidjön Styrkírsson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUSTURSTRÆTI « SlMI I»3S4
Eiginmaður minn faðir tengdafaSir og afi.
Ólafur Finnsson,
Bergvík, Kjalarnesi
vtrSur larðsettur frá Brautarholtskirkju laugardaginn 27. jan. kl.
13.30.
Jakobína Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Eiglnmaður minn, faðlr og sonur,
Ólafur Björnsson,
haraðslsknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunnl mánudaginn 29. janúar kl.
13.30. Blóm vinsamiegast afþökkuð.
Katrín Elíasdóttir og börnin,
Jónína Þórhailsdóttir.
BílferS verður frá Hellu kl. 10,30.
öllum fjær og nær, sem margvíslega sýndu vinsemd, hlýhug og
samúð, viS andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
Filippíu Margrétar Þorsteinsdóttur,
fyrrum húsfreyju að Ölduhrygg í Svarfaðardal,
fsrum við okkar innilegustu þakkir og biðjum þeim blessunar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er á einn eða annan hátt
hafa vottað okkur samúð vegna andláts og útfarar sonar okkar og
bróður mins
Jóns Ágústs Ólafssonar.
Stefanía og Óiafur J. Ólafsson,
Anna M. Ólafsdóttlr.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og vin-
arhug vlð andlát og jarðarför
Hermanns Sveinssonar
frá Mikla-Hóli.
Guð blessi ykkur öll.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Innilegustu þakklr fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og úHör
Guðlaugar Magnúsdóttur
Sérstaklega þökkum við læknum og starfsliði Sjúkrahúss Skag-
flrðinga fyrir þá umönnun er það veitti henni.
Vandamenn.
Alúðar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug við veikindi og
andlát,
Þorbjargar Halldórsdóttur og Þóröar Kárasonar.
Fjölskyldan Litla-FI jóti.
Þakka margháttaða vinsemd og hlutteknlngu við fráfall
Jóns Magnússonar,
fréttastjóra Rikisútvarpsins.
Fyrir hönd vandamanna.
v Ragnheiður E. Möller.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vlnsemd við fráfall og
jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa,
SigurSar Jónssonar,
bónda frá Mánaskál.
Börn, fengdabörn og barnabörn.
AUGLÝSING
um gjalddaga fyrirframgreiðslu
opinberra gjalda 1968
Samkvæmt reglugerð um sameiginlega innheimtn
opinberra gjalda nr. 95/1962, sbr. reglug. nr.
112/1963 og nr. 100/1965, ber hverjum gjaldanda
í Reykjavík að greiða á fimm gjalddögum frá
febrúar til júní, fyrirfram upp í opinber gjöld,
fjárhæð, sem svarar helmingi þeirra gjalda, er
á hann voru lögð síðastliðið ár.
GjÖldin eru þessi:
Tekjuskattur, eignarskattur, námsbóka-
gjald, kirkjugjald, lífeyristryggingagjald,
slysatryggingagjald, iðnlánasjóðsgjald, alm.-
tryggingasjóðsgjald, tekjuútsvar, eignarút-
svar, aðstöðugjald, atvinnuleysistrygginga-
gjald, kirkjugarðsgjald, launaskattur, iðnað
argjald og sjúkrasamlagsgjald.
Fjárhæð fyrirframgreiðslu var tilgreind á
gjaldheimtuseðli, er gjaldendum var send-
ur að lokinni álagningu 1967 og verða gjaldseðlar
vegna fyrirframgreiðslu því ekki sendir út nú.
Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu er 1. febrúar
næstkomandi.
Kaupgreiðendum ber að halda eftir opinberum
gjöldum af launum starfsmanna og verður lögð
rík áherzla á að full skil eru gerð reglulega.
GJALDHEIMTUSTJÓRINN.