Tíminn - 30.01.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.01.1968, Blaðsíða 8
B ÞRIÐJUDAGUR 30. janúar 1968. ÓLAFUR RAGNAR GRlMSSON Samtök fólksins Á þessari öld hafa tvær fjölda hrfeyfiingax markað djúp spor í ípenzkt þj óðlíf og verið meg- in tækin í hinni víðtæku lífs- kjarabaráttu almennings til sjávar og sveita; hreyfingar samvinnu og verkalýðs. Þær uxu upp hlið við hiið og voru boðberar nýrra viðihorfa og nýrra þjóðfélagshátta á íslandi. Ærið snemma myndaðist með þeim hugsjónalegt bræðralag, enda urðu margir menn sam- tímis forystumenn þeirra beggja og festu þær í séssi með allsfaerjar skipulagi og stofnun stjórnmálasamtaka, sem styrkja skyldu hreyfingarnar og knýja fram hagsmunamál fólksins með stjórnmálajegu samstarfi, þótt formlega væru' flokkar þessara hreyfinga, Framsóknar flokkurinn og Alþýðuflokkur- inn, aðskildir. Það var gæfa íslendinga, launiþega og bænda, sem búið höfðu við kröpp kjör, að stjórn málasamtök þessara tveggja fjöldahreyfinga megnuðu með harðri og samvirkri baráttu á þriðja og fjórða tug aldari-nn ar að hrinda í framkvæmd svo róttækum og umífangsmiklum þjóð'félagsbreytingum, - áð ÖM framfarasókn fólksiní í land- inu hefur síðan verið á þeim' gruindvölluð. Þau öfluðu laga legrar viðurkenningar á fié- lagslegum réttindum launþega og bænda, j.uku kaupmiátt með lægra vöruiverði og bættum launum, innleiddu víðtæka og almenna. menntun, en umfram allt eflidu svo mátt þessara hreyfinga, að þær urðu sterk ustu fiélagisstoðir íslenzks sam tíma, óbiifanlegir hagismuna- verðir tugþúsunda landsmanna. Þegar hinum byltingarsinn- uðu heimskommúnistum tókst með pólitískri' herferð sinni og samstarfi við íhaldsöflin, að sundra verkalýðshreyfingunni, var fyrsti skipulagsfleinninn rekinn í samstöðu samvinnu- hreyfinear 'op verkalýðs. þótt á eftir færi ýmislegt óheillavænlegt af öðrum toga, sem veikti í verki mátt bræðra lagshugsjónarinnar. Pólitísk hringiða þess samsteypustjórná kerfis, "sem • hófst í síðara heimsstríðinu, hefur einnig smátt og smátt síðasta aldar fjórðung dregið úr samstöðu þessara hreyfinga. þótt sú sasa sé bæði of löng og of rnare- brotin tii að vera rakin her Á fyrstu áratugum ferils slns gættu samvinuuhreyfingin og verkalýðsihreyfingin að aoKitrj leyti hagsmuna mismunandi hópa, þar eð stór hluti sam- vinnumanna voru bændur. Verkamenn mynduðu þó víða sterk kaupfélög í bæjum. Þessi dálítið frábrugðni hagsmuma- grundvöllur var talinn höfuð- réttlæting stjórnmálalagrar að- greiningar hreyfinganna, þótt sú réttlæting hafi aldrei verið Studd nægilegum rökum. Hin gífurlega byggðabreyting serr. orðið hefur í landimu, hmn mikli vöxtur dreifbýlis 03 at- vinnuvega þess, sijávarút- vegs, iðnaðar og verzlunar, hef- ur æ meir þokað saman félags hópum samvinnuhreyfingar og verkalýðs. Þótt bændur verði ávallt mikilvægir þátttakendur samvinnustarfs, hlýtur megin- vöxtur samvinnuhreyfimgarinn- ar í nánustu framtíð að eiga sér stað í þéttbýlinu, þa_ eð slíkt er í eðlilegu samræmi við þróun þjóðfélagsins. Samvinnu- hreyfingin og launþegahreyfing in gæta því í æ ríkara mæli hagsmuna sama fólksins og starfsemi þeirra beggja miðar að bættum lífskjörum þess 03 blómlegum efnahag. Aðgerðir * hvorrar um sig, jafnt vöru dreifing og vinnusköpun sarn vinnuhreyfingarinnar og kaup- gjaldsbarátta iaunbe'gahreyfimg arinnar. verka í ríkum mæli á árangur hinnar. Þannig gætu deilur og stundarstríð þessara tveggja hreyfinga leitt til löm- unar á framfarasókn þeirra tug þúsunda, sem þeim tilheyra og árangurinn af starfi þeirra beggja, fólkinu til hagsþóta orðið næsta lítill. Á hinn bóg- inn myndi samhæfð banátta þeinra, heilshugar og raun- hæft samstarf, færa fóilkinu í landinu stærri björg í bú en það ella ætti kost á. Hiri ofur einfalda staðreynd, að sameJn- aðir stöndum vér en sundraðir föllum vér, gildir einmig um hinar tvær fjöldahreyfingar ab. mennings á fslandi. Árangur hinnar víðtæku lífs kjarabaráttu á næstu árum er einkum undir því kominn, að þessi samtök fólksins beri gæfu tiil að starfa saman, að kleift verði í reynd að samstilla átök þeirra. Þótt samvinnuhreyfing- in og launþegaihreyfingin hafi á síðUstu áratugum að nokkru leyti þokazt fijær hvor annarri í baráttunni fyrir hagsmunum sama fólksins, bendir ýmislegt til að nú sé tækifæri til að spyrna við fótum og snúa við, halda á ný í átt til samvirkrar starfsemi þeirra og feta þauni'g farsælasta stíginn að auknum og raunverulegum kjarabótum almennings á íslandi. Slík ganga er svo mikilvæg að vanda verður vel til undirbúci- ings hennar, tryggja árangur- inn með hæfilegum aðdrag- anda. Samstarfsmö'guleikar hreyf- inganna eru ærið margir, þótt fræðsla og félagsleg þjálfun sé eðlilegur upphafsvettvangur, enda gerðist Alþýðusambandið fyrir fáeinum árum þátttakandi 1 rekstri bréfaskóla samvinnu- hreyfingarinnar óg hefur sú starfsemi gefizt vel. Enn skort- ir hreyfingarnar þó tilfinnan- lega unga forystumenn í félags málum og almenmri starfsemi, og eru vandamál þeirra á þessu sviði svipuð. Nánara samstarf þeirra að skipulegri menntun starfskrafta sinna væri eðlilegt framhald breytingarinnar á bréfaskólanum. Með tiltölulega lítilli fyrirhöfn má gera mennta setrið að Bifröst að samvinmu- og verkalýðsskóla, sem þjónaði jafnt báðum hreyfimgunum. Slík tilhögun myndi þegar til lengdar léti koma samvinnu- hreyfingunni betur en núver- andi fyrirkomu'lag skólains og launþegaihreyfingin fengi ákjós anlega og langþráða aðstöðu tjl þjálfunar á starfskröftum sín- um. Einnig væri eðlilegt, að við- ræður hæfust um aukinn þátt launþega í rekstri samvhmu- hreyfimgarinnar til að stuðla að gagnkvæmum skilningi á vanda málum og verkefnum. Tilrsun um atvinnulýðræði á hvergi bet ur heima en í samvinnuhreyf- ingunni. Enn fremur væri mögulegt samstarf þessara hreyfimga um ákveðnar fram- kvæmdir, sem taldar væru til hagsbóta meðlimum þeirra á ákveðnum svæðum, bæði með tiUiti til atvinnu og bættra lífs kjara. Bygging stórs vöruhúss í Reykjavík, sem byði til muna lægra verð, væri tiltölulega auðu-nnim, ef samvinnuhreyfing in og launþegahreyfingin tækju 'hér höndum samam og stæðu báðar að framkvæmdinni. Ofangreind atriði eru að eins fáeinar ábendingar inn hina miklu möguleika á sam- starfi þessara hreyfinga báðum til hagsbóta. Sé viljinn á annað borð fyrir hendi bíða ótal önn ur verkefni. Raunhæf samræm- ing á baráttu þessara samtaka fólksins fyrir bættum hag og lilómlegra lífi, er meginskilyrði þess, að mögulegt verði að knýja fram hinar óhjákvæmi- legu breytingar á íslenzku þjóð féíagí, bæði efnahagslegar og félagslegar. Öngþveitið og hringiðan eru orðin svo mögn uð, að eimungis máttur sam- eiginlegs átaks þessara samtaka fólksins er nægilega sterkur til að brjótast í gegn og leggja nýjan grunn að árangursríku starfi. Án traustrar samstöðu samvinnuhreyfingaxinnar og lauuiþega getur aldrei myndazt óbifanlegur bakhjarl hinnar víðtæku þjóðfélagslegu umsköp unar, sem nauðsynleg er fram- tíðarheill og sjálfstæði hinnar íslenzku þjóðar. JON GUÐNASON TRÉSMIÐUR Jlón Guðnason, trésmiður, Lang ho'ltsvegi 67 andaðist hinn 23. þ.m. og er útför hans gerð í dag frá Lágafellskirkju. Jón var fæddur hinn 26. júli 1889 að Kröggólfsstöðum í Ölfusi; sonur Guðna Símonarsonar, bónda þar og barnakennara, og konu hans Sólveigar Sigurðardótt ur. Jón var næstelztur fimm barna þeirra hjóna, sem upp komust. Hann fluttist um fermingara-ldur með foreldrum sínum að Bredð- holti við Reykjavík og var oft kenndur við þana stað löngu eft- ir að hann og alt hans fólk var horfið þaðan. Ungur lærði Jón trésmíði hjá Guðmundi Brynjólfssyni. síðar bónda að Miðdal í Kjós. Hann stundaði þa íðn í nokkur ár að námá Lokuu en hvarf hetm til föð- urhúsa aftur og vann foreldrum sínum, þar til hann giftist eftir- lifandi konu sinni, Jónu Þorbjarn ardóttur frá Ártúnum f Mosfells- sveit um jól 1920. Stofriaði heira- ili í Reykjavik og stundaði húsa- smíðar og aðra trésmíð í sex áT.' Þá festi hann kaup á jörðinni Úlf- arsá í Mosfelllssveit og bjó þar í 17 ár en fluttist þá afbur til Reykjavíkur 1944, þar sem hann hefúr stundað iðnina síðan og allt fram á síðasta ár. ÍÞriu hjón,: Jóna og Jón eign- uðust 5 'rnannvænleg börn, ‘sém öll éru uppfcomin,- gift-ög góðir bórgarar, öll búsett í Reykjavík og nágrenhi. Jón Guðnasoa var drengur góð ur í þess orðs beztu merkingu. Hann var karlmenni að burðum og talinn með sterkustu mönnum á yngriyarum Hann var þá ein- ig glæsilegur maður að vallarsýn, scíá hvarvetna vakti athygli sam- ferðamanaa. Hann var alla aevi léttur í lund svo að af bar. hvað sem að höndum bar, traustur og raungóður, og því vel liðinn af öllum, sem hann hafði samskipti við. Eðnaðarmaður var Jón ágætur og til fyrirmyndar yngri mönn- um. Hann umgekkst öll sín verk- færi með virðingu og nærgætni. vandaði öll sin störf og leitaðist við að inna þau þannig aí hendi. að þau væri iðninni til sóma og hagnýt og varanleg eigenduim. Jón mun af fæstum hafa verið talian trúmaður. Sótti litt kirkju •"Igiathafnir. Þó vissu þeir, sem bezt þekktu han.n, að undir glensi og gríni um andleg mál, sem stundum gat villt möna um sýn, bjió alvara og trú á höf- und lífsins. Jón var bókamaður mikili og fylgdist vel með öllu, sem var að gerast í kringum hann á langri dagleið, jafat í heimsmálum sem bókmenntum. og því alltaf reiðu- búinn að rökræða ým,is vanda- og dægurmál við hvern sem var. Eins og fram riefur komið hér að framan, skiptist ævistarf Jóns nokkurn vegirin að jöfnu milli iðngreinar rians og sveitabúskap- ar. Líkur benda til þess, að bú- skapur hafi átt öllu sterkari ítök í huga hans en iðnaðurinn, eada þótt hann hafi metið hann mik- ils og fórnað houm siðustu kröft um. Á hinum 17 árum, sem hann bjó á ÚLfarsá, eignaðist hann og þau hjónin bæði marga trygga og góða vini, og að leiðarlokum er hann jarðsettur að Lágafelli eft- ir eigin ósk, og talar það sínu mi^Ii. Um leið og ég kveð Jóa, mág minn, með þessum fátæklegu orð um, votta ég konu hans, börnum og barnabörnum systkinum hans og öðruim vinum og ættingjum innilega samúð okkar hjóna oa bið Jóni velfarnaðar í hinum nýju heimkynnum, þar sem við eigum öl eftir að hitta hann aftur glað- an og reifan. Guðfinnur Þorbjörnsson. Tómas Árnason mælti í gær fyrir fnimvarpi Framsóknarmanna um að ríkið beiti sér fyrir seríubyggingu fiskiskipa innanlands. Nánar verður greint frá þessu máli síðar- Lúðvík Jósefsson lagði fram á þingi í dag nær samhljóða frumvarp. Þórarinn Þórarinsson mælti fyrir frumvai-pi um að afnumin verði vísitöluákvæði húsnæðisstjórnariána. Vegna þrengsla í blaðinu verða fráságnir af þessum málum að bíða. Frímerki 1 Norskur frímerkjasafnari "ill j láta 250 frímerki frá hinum 1 Norðurlöndunum, i skiptum fyrir 75 tslenzk frímerki. Ragnar Olsen, Smedgateri .3.8, . Osló, Norge. Ráðskona Ung kona með tvö börn, óskar eftir ráðskonustöðu á Suðurlandi. Upplýsingar á súnstöðinni, Hveragerði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.