Tíminn - 24.02.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.02.1968, Blaðsíða 1
í EJ—Reykjavík, östudag. Mikið „verðstríð“ milli oliu félaganna í Danmörku hefur vakið verulega athygli þar í landi, og það jafnvel svo. að verðlagsyfirvöld kanna nú, hvort eðlilegt sé að verð á olíu til upphitunar skuli lækka. Miklar verðhækkanir hafa verið á brennsluoMu í Dan- mörku frá því Suez-skurðinum var lokað, og síðan eftir gengis fellinguna þar í landi. Hefur olíuverðið hækkað um tæp 40% siðustu sjö mánuðina. Nú fyrir nokkru.m dögum gerðist það aftur á móti, að ESSO tók að veita föstum við skiptavinum sínum á Sjálandi afslátt, er nam 2.2 aurum dönsk um á líter, en almennt verð var þá 28,5 aurar á líterinn. Framhald á bls. 14. HUE NTB-Hue, föstudag. Víeteongmenn verjast\enn af hörku í keisaraborginni Hue, þó að farið sé að sverfa að þeim. Vörn þeirra hefur nú staðið í 24 daga. í morgun tókst þeim að ná svæði nokkru í norðausturhluta borgarvirkis ins með áhlaupi og sagt er að ein deild þeirra hafi búið um sig í gamla borgarhlutanum að nýju, en þeir voru hraktir það an fyrir nokkrum dögum. Er leið á daginn. sóttu Bandaríkjamenn á. Herflokkar Framhald á bls. l^. Þessi mynd var tekin fyrir þrem ur dögum I Hue í Suður-Viet- nam. Bandarískur hermaður hvíl- ist undir fána lands sfns, sem komiS hefur verið fyrir uppi á Tiúrveggnum er umlykur gamla borgarhlutann i Hue. EJ—Reykjavík, föstudag. Viðræðufundur um verðlagsupp bót á laun var haldinn í morgun í húsnæði Vinnuveitendasambands fslands. Þar gáfu vinnuveitendur algjörlega nejtandi svar við kröfu verkalýðshreyfingarinar um fullar verðlagsuppbætur á laun, og fóru iafnframt fram á að verkfallsað- gerðum vrði a. m.k. frestað. Þessu böfniiðu fulltníar verkal'S^hreyf ingarinnar, og verða verkföll því boðuð fvrir hádegi á morgun. laug ardag en sum félög, t. d. -Dagshrún hafa begár boðað verkföll. Næsti viðræðufundur verður haldinn á mánudaginn. T-Tannibal Valdimarsson. forseti ASf. er formaður viðræðunefnd ar Albvðusambandsins. og náði blaðið tali af honum í dag. — Hvernig standa máTin effir þennan viðræðufund. Hannibal? — Fulltrúar vinnuveitenda gáfu okkur þau svör. að eins og sí^kir stæðu trevstu ,beir sér ekki til þess að verða við kröfu verka tvðsfélaganna um fuilar vfsitölu bætur á kaup. og væri þeirri kröfu okkar þvi nú sem stæði svnjað. f annan stað báru þeir fram tilmæli um. að við — vegna þess hversu hörmulega stæði nú allt hjá atvinnulífi og viðskintuim — a.m.k. frestuðum aðgerð- um í þessu máTi. pg var þeirri ósk beirra synjað af okkar hendi. Að öðru leyti var svo samkomu Tag um að ræðast við aftur á mánuda®inn kl. 14. — Þvðir betta. að verkföll verða boðuð? — Já. þau verða boðuð á morg un. fvrir háde?i. vfirleitt hjá mörg um verkalvðsfélögum. og þá mið að við að verkföllin hefjist að morgni dags 4 marz. — Diggur ljóst fyrir, hver al- menn þátttakan i bessum aðgerð um er og verður? — Eg hef ekki tekið saman vfir lit vfir bað Aftnr á móti virðid mér. að 70—80% félaga i ASf hafi veift 18 manna nefndinni um- boð til samninea um þetta mál T>á virðist mér svnileet. að bátttak an sé almenn. oe ekki að að flest pða nit stóru félögin standa saman í þessu. — Viltu einihverju spá um þró- un málanna? — Það er aldrei hægt að full- yrða um það, því að það eru sein ustu stundir seinasta dags, sem venjúlega skera úr um þetta. Þá er örlaga stundin. Við höfum aldrei fengið annað en neitun á fyrstu fundum, svo að við föllum ekkert í stafi yfir þvL Og við höfum alltaf heyrt svartar og' svæsnar lýsingar á erfiðleikum at- vinnuveganna, svo að það var heldur ekkert nýtt að heyra slíkt Framhald á bls. 14. Hedur Pearson NTB-Ottawa, föstudag. Lester Pearson, forsætis ráðherra Kanada, sagði f dag að ósigur ríkisstjórnar innar, á þjóðþinginu s. 1. mánudag mundi skápa ó- reiðu í stjórnmálum lands- ins, ef frumvarpið um traustsyfirlýsingu til handa stjórninni, sem nú liggur fyrir verður ekki samþykkt. Þjóðþingið hefur tæpazt starfað síðan á mánudag, en þá felldi íhaldsflokkurinn ásamt þrem öðrum stjórnar andstöðuflokkum, stjórnar- frumvarp um fimm prósent skattaaukningu. Var frum varpið fellt með 84 atkvæð um gegn 82. Pearson sagði, að atkvæða greiðslan um traustyfirlýs- inguna skýra stöðu ríkis- stjórnarinnar. Ef stjórnin bíður ósigur f atkvæða- greiðslunni. mun stjórnin Framhald á bls. 14. JT fallin í Skriðdal GÞE-Rekjavík, JK-Egils- stöSum, föstuag. Fimm hreindýr hafa drepizt i Skriðdal og fleiri eru orðin svo þreklítil og veikburða, að þau lifa senni lega ekki lengi úr þessu. Jarðlaust er með öllu í daln um, en hreindýrunum hef- ur hingað til tekizt með herkjum að ná til jarðar, en fylli sína fá þau engan veginn. Hafa bændur í Skriðdal hýst nokkur dýr og fóðrað á heyjum, en allt kemix- íyrir ekki. Þau drepast fyrir þvi. — Það er bókstaflega ekkert hægt að gera fyrir þessi blessuð dýr, sagði bóndi einn úr Skriðdal í viðtali við Tím- ann i dag. BlaSð hefur ekki fengið fregnir af hreindýradauð-a í öðrum byggðum Austur- lands. þar sem dýrin hafa haldið sig síðustu mánuð- ina. En ástandið er slæmt. Þykk sveþalög eru yfir öllu, klaki er sums staðar á hálfan metra í jörðu. svo að dýrin eiga mjög örðugt með að kroppa sér fæðu. Eru þau orðin mjög þrótt- lítil og veikburða og megna vart að hlaupa und- an mönnum. Dýrin eru á víð og dreif i Skriðdal, Fljótsdal, Jökul Fi-amhald á bls. 15. Olíufélögin í „veröstríöi" í Danmörku Vika til örlagastundar í vísitölumálinu: Lokaátök undirbúin FASTEIGNASALAN HÚS&EIGNIR BANKASTR ÆTI 6 Simar L6637 — L8828. Auglýsing í Tlmanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.