Tíminn - 24.02.1968, Qupperneq 7

Tíminn - 24.02.1968, Qupperneq 7
'•F . r T «- LAUGARDAGUR 24. febrúar 1968. VETTVANGUR TÍMINN t m Umræður um þjóðfélagsmál hérlendis hafa á síðustu áratug- um snúizt óhóflega mikið um efnahagsmálin, og stafar það vit- anlega af þeiin efnaliagsvandræðum, sem sífellt hafa steðjað að. Önnur vandamál ístenzka þjóðfélagsins hafa á þessu bernskuskeiði lýðveldisins legið að ýmsu leyti í láginni lang- tímum saman. Til dæmis má segja þetta um skólamálin. Á allra síðustu tímum hafa þó hafizt nokkrar umræður um skólamálin á opinberum vettvangi hér, og er það vel. Rétt er að benda á, að Framsóknarflokkurinn samþykkti á síðasta flokks þingi sínu s. 1. vor mjög ítarlega stefnuskrá í menntamálum, og höfðu fjölmargar nefndir fjallað um einstaka hluta liennar mán- uðina fyrir flokksþingið. í þessum ncfndum eða málefnaráðum áttu einkum sæti menn af yngri kynslóðinni, nýkomnir í gegn- um skólakerfið og kannski síðan starfandi við það og því öll- um hnútum þaulkunnugir. Eni óneitanlega margar tillögur að finna í þessari ályktun. Bent er þar á, að gera þurfi stórátak í skólabyggingum, ekki sízt vanti fleiri héraðsskóla. I,agt er til, að skólaliúsnæði í sveit- um verði nýtt til sumardvalar bæjarbarna, svo sem unnt reynist. I>á er lagt til, að gerð verði áætlun urn framtíðarstaðsetningu hinna ýmsu sérskóla og annarra menningarstofnana og stefnt að því að reisa menntamiðstöðvar í öllum landslilutum. Lagt er til, að þeim, sem lokið hafa gagnfræðaprófi en ekki landsprófi, verðí opnuð leið til stúdentsprófs með sérstöku við- bótarnámi. I>á verði komið á fót námskeiðum í ýmsum grein- um fyrir þá, sem lokið hafa gagnfræðaprófi. Jafnframt þurfi að endurnýja fræðslukerfi gagnfræðasU"'r'” að þessar breytingar þarf að gera í sambandi hverja við aðra og með heildarsamræmi í huga. Bent er á, að gefa þurfi meiri kost á valgreinum í mennta- skólunum og efla þurfi Tækniskólann.Samvinnuskólann og ýmsa aðra sérskóla. Sérstaklega er vikið að kennaramenntuninni, enda er þar um algert undirstöðuatriði að ræða. Sagt er í samþykktinni, að menntun kennaraefna skuli jafnan miðast við auknar kröfur og breyttar þarfir menntakerfisins. Ennfremur verði launamál kennara á öllum stigum tekin til rækilegrar athugunar. I>á er lögð áherzla á, að haldið verði uppi stöðugu tilrauna- og rannsóknastarfi á sviði skólamála yfirleitt. Síðar í þessari stefnuskrá Framsóknarflokksins í mennta- málum er m. a. vikið að nauðsyn þess, að hafizt verði lianda nm byggingu ríkisbókhlöðu og tekið fram að gera verði gang- skör að því að rituð verði samfelld vísindaleg saga íslenzku þjóðarinnar, m. a. byggð á nýjustu fornleifarannsóknum. Valdaár Framsóknarflokksins um og eftir 1930 voru mikill framfaratími í skólamálum hérlendis. Sýnt er, að flokkurinn myndi enn kosta mjög kapps um framfarir í þessum efnum, ef hann fengi ráðið. Og það er vonandi flestum Ijóst, að á þessum sviðum megum við sízt við því að dragast meira aftur úr nágrannaþjóðunum en orðið er. Því þarf að gera verulegar, rækilega undirbúnar breytingar í skólamálum okkar alveg á næstu árum. Bj. T. Jón Eiríksson formaður FFS Aðalfundur Félags frjálslyndra stúdenta var haldinn í loik nóvem Jón Eiríksson ber s. I. Þar fóru fram venjuieg aðalfundarstörf, og kom fram í skýrslu fráfarandi formanns, Þor steins Skúlasonar, stud. jur. að starfið hafði verið með venjuleg um hætti. Nokkrir almennir fé- lagsfundir höfðu verið haldnir og m.a. hafði félagið tekið verulegan þátt í samvinnu B-lista-samtak- anna, sem farið hafa með meiri hlutavöld í Stúdéntafélagi Há- skóla íslands þessi fyrstu tvö ár eftir endurreisn félagsins. Kjörin var ný stjórn fólagsins fyrir árið 1967—1968 Hana skipa: Jón Eiríksson stud. jur. formaður, Finnbogi Alexandersson stud. jur. ritari, Gísli Magnússon stud. Philol, gjaldkeri, Jón Friðjóms- son stud. polyt, meðstjórnandi. Endurskoðendur voru kjörnir Pétur Kjerulf stud. jur. og Rúnar Guðjónsson stud. jur. Norræni lýSháskólinn í Biskops-Arnö. Sigurður Geirdal, varaformaður SUF: Norræn samvinna í brennipunkti í desember síðastliðnum barst Norræna félaginu á íslandi boð um að senda þátttakanda á ráð- stefnu um norræn málefni, eink um félagsmál, sem haldin skyldi að Biskops-Arnö í Svílþjóð dag ana 2.—8. janúar li968. Þau titmæli fylgdu boðinu,, að íslenzki þátt- takandinn skyldi vera úr samtök um ungra Framsóknarmanna og ætti hann að flytja erindi um floikk sinn á t.ilteknum degi ráð- stefnunnar, en sá dagur mundi helgaður stjórnmálasamtökum ungra manna á Norðurlöndum. Það varð að ráði að ég undirrit aður tækist þessa ferð á hendur, og vil ég koma hér á framfæri beztu þökkum til Norræna félags ins og þó einkum til framkvæmda stjórans Einars Pálssonar, fyrir ágæta fyrirgreiðslu og aðstoð við undirbúning fararinnar. Ferðir féllu þannig, að ég kom degi of seint á ráðstefnuna, og mætti þann 3. janúar, eftir að hafa skipt um flugvél í Kaup mannahöfn, en þvi fylgdi dálítil töf. BiskoPs-Arnö er menntasefur Nor.ræmi félaganna sænsku og er ca. 85 km. utan við Stokkiholm. Það er fornt biskupssetur í fögru um'hverfi sögufrægs staðar. Þar dvaldi meðal annars Jón biskup Gerreiksson, og þótti Svíum greini lega litið til um gestrisni íslend inga þegar ég sagði þeim frá af- 'drifum hans á Fróni. Skólinn að Biskops-Arnö er vel búinn húsum bæði hvað snertir kennsluihúsnæði og nemenda- Ritstjóri: Björn T eitsson Sigurður Geirdal bústaði, enda er þarna í gangi einhver starfsemi allt árið, ráð- stefnur, fundir og námskeið auk skólans sjálfs. Þarna voru mættir rúmlega iþrjátíu fulltrúar' frá öllum Norður ilöndunum nema Færeyjum, og jþeir kynntu hin ólíkustu félög s. Is. ílþróttafélög, skáta. bindindis j og stúdentafélög auk stjórnmála- | félaganna, enda komið víða við í : dagskránni. ! Fyrsta daginn var norræn sam Ivinna í viðtækri merkingu á dag skrá. Þar fluttu erindi þeir Rune Johansson, ritari Norræna félags ins í Stokikihókni og þingmaðurinn Niels Kéllgren. Okkur var síðan skipt í fjóra hópa og fékk hver hópur fyrir sig ákveðnar spurning ar til þess að svara og leggja út af í umrasðunum scinni hluta dags ins, en jþaer umræður urðu hinar fjörugustu/ Þar varð mér brátt ljóst að hugtakið norræn sam- vinna er miklu meira brennandi spursmá] hjá hinum Norðurlanda þjóðunum en það er hjá okkur, það kom til dæmis í ljós að flestir ef ekki allir fulltrúanna, sem mættu fyrir hin ýmsu félög, voru efnnig meðlimir í Norrænu félög unum hver á sínum stað, og talar það sinu máli. Hcma kannast menn að vísu vpl við hugtakið norræn samvinna, en félögin þekkja þeir ekki. enda mun starf semi þeirra fremur dauf hér á landi. Næsta dag höfðum við nóg að gera. því þá hlustuðum við á þrjár framsöguræður, þá fyrstu iflutta af Gunnari Olsson, en j’hann er mjög kunnur fyrir rann- sóknir sínar á þessu sviði og hef ur meðal annars skrifað fjölda bækiinga og flutt ótal erindi í sænska útvarpið og sjónvarpið um Iþessi mál. I-Ieldur fannst mér 1 hann mikið sæns'kur og sagði hann meðal annars, að það væri ekki nóg að á su-mum sænskum vinnustöðum væru fleiri Finnar en Svíar, heldur hefðu þeir einnig Framliald á bls. 12. MÁLFUNDA- NÁMSKEIÐ Kjördaimissamband ungra Framsóknarnianna í Reykjanes- kjördæmi heldur málfuudanám- skeið í dag, laugardag, og verð- ur það haldið á Strandgötu 38 (uppi), í Hafnarfirði og liefst kl. 15. Rætt verður uin þjóðfrelsi íslendinga og saniskipti þeirra við önnur lönd. Framsögu- menn: Hannes I>. Jónsson og Bergsveinn Auðunsson. Hannes Þ. Jónsson Bergsveinn Auðunsson i Tunri meinmgu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.