Alþýðublaðið - 21.10.1989, Side 6

Alþýðublaðið - 21.10.1989, Side 6
6 Laugardagur 21. okt. 1989 Þessi herramaður sagöist hafa unnið næstum tuttugu ár í smiða- verkstæði Leikfélags Reykjavíkur, gerði lítið úr vinnuframlagi sínu og sagðist vera eins og hvert ann- að gamalmenni. Hér er höfuðstöð rafmagnsins í húsinu. Það sem sést er þó aö- eins lítill hluti alls tæknibúnaðar sem í þessu litla herbergi er. Raf- virkjarnir upplýstu að rafmagnið í Borgarleikhúsinu jafnaðist á við heilt þorp. langt fyrir ofan mann eru svalir yf- ir sviðinu þar sem tæknimennirnir eru að störfum, leikarinn verður eins og smápeð á þessu risastóra sviði og þegar komið er að því er það eins og úr bíómynd, kaðlar frá lofti og niðrúr um allt og svartir dúkar hanga í festingum. Einhver upplýsir að sumir þeirra séu yfir 400 fermetrar. Allsstaðar í leiksöl- unum eru hljóðskermar, sumir úr járni, aðrir úr eik eða einhverri annarri trjátegund. Tréð endur- varpar bcissanum, járnið einhverju öðru. Ekkert má gleymast og kannski er loksins komið boðlegt hús fyrir tónleika í höfuðborginni. Samt ekki líklegt að Sinfó fái þarna inni. Eldri maður í smíðaherberginu, segist hafa unnið fyrir Leikfélagið í tæplega tuttugu ár, hefur yfir sér stóíska ró og lætur ekki viðburði kvöldsins hagga sér mikið. Upp- lýsir að gólfið í smíðaherberginu sé það besta sem hægt er að hugsa sér og það er satt. Það er mjúkt og byggingarstjórinn hélt því fram að það væri réttasta gólf á landinu. Ef ekki myndu leikmyndirnar annars bara hrynja þegar þær kæmu fram á sviðið. Að mörgu er að hyggja . . . Margar vistarverur mörg andlit Svo villist maður, álpast inn í baðhúsið, sána og sturtur, hverfur þaðan aftur en ekki tekur betra við því loftræstikerfisherbergin eru óteljandi einhversstaðar undir rjáfri en samt er alltaf hægt að finna einn stiga í viðbót eitthvað upp. Skyndilega komnir inn á sval- irnar fyrir ofan sviðið þar sem tæknibúnaðurinn er þannig að Stones gætu verið fullsáttir af á tónleikum. Og manni fer að skilj- ast að það sem gerist á sviðinu hverju sinni og í hausnum á lista- manninum er kannski bara agnar- lítið brot þess sem fram fer í svona húsi. Upp og niður og út og suður og herbergin taka við eitt af öðru, einhversstaðar heyrist úr kallkerf- inu af sviðinu þar sem æfing stendur yfir en þó ekki verið að hrópa Ó vei ó vei sem ætti annars nokkuð vel við. Skyndilega setu- stofa leikaranna, eldri maður með skringilegan hatt, nornaleg kona með úfið hár, önnur klædd eins og þjónustustúlka. Margar vistaverur mörg andlit. Konurnar i saumastofunni voru eiginlega þær einu sem búnar voru að öllu og höfðu þaö náðugt meðan aðrir voru á hlaupum um allt hús. Það var allt á fullu i anddyrinu, málarar príluðu upp á palla til að ná þangað sem þeir annars ekki ná. Svo var hamast eins og Davíð myndi fara fram á aö fá að kíkja þarna upp til að athuga hvort allt væri örugglega ekki sæmilega úr garöi gert. Þaö vantaði almennilegt leikhús í Reykjavík, borgin þurfti aö eiga almennilegt leikhús sem hægt væri að sýna gestum og gangandi. Menn hugsuöu margt á þeim þrjátíu og sex árum sem liðin eru frá því að húsbyggingarsjóður Leikfé- lags Reykjavíkur var stofnsettur. Svo liðu ein ellefu ár, þá var félaginu boðin lóð í nýja miðbænum. Tuttugu og fimm árum síðar er húsið risið og á að fara að ieika í því og þá er það orðið 11.000 fermetrar og kostar einn og hálfan milljarð króna. Sem er dágóð upphæð, ef menn vilja stilla því upp á svínslega mátann, og miða það við þessa tuttugu leikara sem eru fastráðnir við leikhúsið. Þá hefur hver og einn þeirra dágott rými og kostar sitt. En svona er heldur ekki hægt að segja. EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON OG EINAR ÓLASON Margar vistarverur Mörg andlit Opnunarhátíðin á að hefjast um kvöídið. Það er eins og venjulega hjá Islendingum. Það er sóðað út með annarri hendinni, tekið til með hinni. Það urgar og suðar í ryksugunni sem er á hælunum á iðnaðarmönnunum sem vinnu- lúnir reyna að leggja síðustu hönd- ina á allt sem á eftir að gera. í and- dyrinu er búið að koma fyrir þvi mikilvægasta, sælgætissölu og bar. Ekkert leikhús getur í raun þrifist án þessa. Annars minnir það meira á flugstöð. Samkvæmt íslenskri venju myndi hljóma úr hátalarakerfi, Flugleiðir verða því miður að tilkynna seinkun ... Kona með skúringarfötu, kúst og klút er í stigahúsinu og reynir að þrífa upp skítinn sem best hún get- ur, vantar bara skupluna á höfuð- ið. Ræstingin verður vandamál segir okkur maður í húsinu sem hefur greinilegar áhyggjur af því að það náist ekki að ganga frá öllu áður en fyrirfólkið streymir í hús- ið, prúðbúið og gerir sér enga grein fyrir öllum vinnustundum sem liggja að baki hverri raf- magnsleiðslu og hverri sviðshreyf- ingu. Leikhússtjórinn er á skrif- stofunni og brosir en brosið er orð- ið býsna þreytulegt og baugar undir augunum. Hafði upplýst að allt væri á tólftu stundu deginum áður. Svo sést hann samt á þeyt- ingi um húsið öðru hverju, redda þessu, redda hinu, svara í símann og einhver reynir að afgreiða mann frá ölgerð sem er kominn með tvo kæliskápa. Veit ekki hvar hann á að setja þá og er á hraðferð og má ekki vera að því að bíða eft- ir því að einhver leiðbeini honum. Raflýsing fyrir heilt þorp Hver getur líka fundið nokkurn mann í þessu risastóra húsi sem er svo fullt af herbergjum að þau skipta hundruðum. Oll rækilega tölusett, nr. þetta fyrir leikara, nr. hitt fyrir sviðsmenn, nr. eitthvað annað fyrir búninga og svo áfram upp eftir öllum fimm hæðunum sem eru einhvern veginn skringi- legar í laginu, húsið stærst neðst en mjókkar svo um miðjuna þang- að til það breikkar aftur en mjókk- ar svo í toppinn. Þetta er auðvitað allt saman fagurfræðilega, verk- fræðilega og síðast en ekki síst veðurfræðilega út reiknað. Gjör- samlega vonlaust að gera sér grein fyrir því hvar maður er staddur hverju sinni. Heppinn að rekast á vingjarnlega rafvirkja sem eru að störfum í sínum höfuð- stöðvum, sem er lítið herbergi hvaðan liggja einhverjar milljónir af rafmagnslínum sem stjórna öllu rafmagninu í húsinu. Gólfið er sett einhverskonar timburflekum og rafvirkjarnir upplýsa að undir þeim sé allt þakið af leiðslum. Eins gott að allt draslið stemmi þegar á reynir, að einhver hafi ekki sett vitlausa leiðslu í einhvern tengil- inn svo ijós kvikni í anddyrinu þegar það á að kvikna í áhorf- endasalnum. Rafvirkjarnir upp- Bladamadur Alþýöublaösins laumast um Borgarleikhúsid nokkrum tímum áöur en opnunarhátíöin hefst lýsa að þarna sé nægilega mikið af dóti svo nægi fyrir heilt þorp úti á landi. Minna g'at það auðvitað ekki verið. Það eru breyttir tímar frá því Halldór Laxness skrifaði greinar í blöð og skoraði á íslend- inga að leggja út í að raflýsa sveitir landsins. Réttasta gólf á landinu Hliðarsvið stóra sviðsins eru svo stór að þau gætu rúmað gamla Iðnó mörgum sinnum og þetta er eins og í alvöru leikhúsi, langt

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.