Tíminn - 03.03.1968, Page 3
f i. \» f v •
SUNNUDAGUR 3. marz 1968.
TÍMINN
3
I SPEGLITIMANS
Sextíu og tveggja ára göm-
ul kennslukona í Bretlandi hef
ur barizt í þrjátíu og átta ár
til þess að setja heimsmet og
heimsmetið er það að rnæla
tuttugu og einn sentimetra um
mittið. Kennslukonan segir frá
því með miklu stolti, að hún
hafi náð þessu marki með því
að hora sig og ýmsum æfingum.
Er nú svo komið, að hún getur
hvergi keypt á sig tilbúinn
fatnað og er því farin að sauma
á sig sjálf.
★
Kona nokkur í Saloniki í
Grikklandi, Miriathi Nyfli, held
ur því fram, að hún sé hundrað
þrjátíu og tveggja ára gömul.
Þegar hún var spurð af hverju
hún áliti að hún hefði náð þess
um háa aldri svaraði hún því
til, að það vœri ekki nokkur
vafi á því, að það væri vegna
þess að hún hefði aldrei komið
nálægt karlmönnum,
★
Les Skinner tók þátt í kapp-
áti í AuoMand á Nýja-Sjáfandi.
Hann vann keppnina, þar sem
hann borðaði átta pies, átta
pylsur, átta ostasamlokur og
átta harðsoðin egg. Þegar
keppninni var lokið og hann
hafði fengið að vita að hann
hefði sigrað, bað hann forráða
menn keppninnar að segja ekki
konu sinni frá því, því að þá
fengi hann engan hádegisverS
heima hjá sér.
•¥■
Kvikmyndaleikarinn frægi
Marlon Brando hetja allra
kvenna víðs vegar um heim hef
ur sinn drösul að draga —
kvenfólk. Það eru hvorki fleiri
né færri en fimm konur, sem
halda því fram, að hann sé
faðir að börnum þeirra, tvær
kínverskar konur, tvær konur
frá Thahiti, og ein frá Mexikó.
Auk allra þessara harna á
hann einn son með fyrrver-
andi eiginkonu sinni Anna
Kahfsi.
-¥
Dóttir fyrrverandi forsætis-
ráðlherra Libanons kom fyrir
nokkru til Beirut. Hún er nú
prinisessa og heitir Eerial og
er tuttugu og fimm ára gömul.
Og hún hafði sannarlega sögu
að segja, sem mörgum kom á
óvart nú á atómöld.
Þegar hún var seytján ára
gömul giftist hún Kaled prinsi
syni Ibn Saud konungs. Heim
anmundur hennar voru tuttugu
og fimm milljónir franka og
þegar prinsinn sem auðvitað
var Múihameðstrúar giftist
henni skildi hann við hinar kon
urnar sínar þrjár. En hann
hafði eftir sem áður kvenna-
búr sitt með átta konum. Þegar
eftir brúðkaupið fluttu þau
hjónin í konungshiöllina og
höfðu til afnota tuttugu og tvö
herbergi. Þar var haldin veizla
í nokkra daga og þegar prins
essunni þóknaðist að fá sér
bað var helt út í baðvatnið
nokkrum flöskum af Clhanel
númer fimm iimvatni. En þeg
ar veizlunni var lokið vaknaði
Ferial upp af draumi. Veru-
leikinn var annað en að baða
sig upp úr ilmvatni. Hún var
lokuð inni í kvennabúrinu á-
samt hinum konunum átta og
í átta ár mátti hún dúsa þar
undir umsjón gamallar kerling
ar frá Núbíu. Loks kom þar að
Ferial fékk taugaáfail, og það
var ákveðið að senda hana til
Beirut til þess að heimsækja
ættingja sína. Þegar þangað
kom hefur hún reynt allf sem
hún hefur getað til þess að fá
skilmað og fór svo að eiginmað
urinn fékkst til þess að veita
henni skilnað og borgaði henni
helmingi meiri fjárhæð, en
hann hafði fengið með henni,
þegar hann giftist henni.
★
Það eru færðar fram ýmsar
ástæður fyrir hjónaskilnuðum.
Fyrir nokkru fékik kona nokk-
ur í Svíþjóð skilnað frá manni
sínum af þvi að hann hafði
neytt hana til þess að hjálpa
sér að semja ástarljlóð til einka-
ritara hans.
í Kanada fór kona nokkur
fram á skilnað við mann sinn
af því að allar vinbonuir henn-
ar höfðu fengið skilnað frá
mönnum sínum. Henni var
ekki veittur skilnaðurinn, hins
vegar var manni hennar sagt
að hann gæti fengið skilnað
við konu sína þegar í stað, þar
sem hún virti ekiki hjónabandið
meira en raun var á.
★
Fyrir nokkru voru haldnir
hátíðartónleikar í Vín til heið-
urs minningu íohanns Strauss.
Þessir tónleikar u:rðu heldur
endasleppir því að í miðjum
tónleiikuinum stökk mús út úr
sellói eins hljóðfæraleikarans,
sem var kona. Hún rak upp
skaðræðisöskur og innan
skamms tæmdist hljómileikasal
urinn. Fólkið hélt nefnilega að
óp konunnar væri brunavarna-
mierki.
★
Kona nokkur í Brazilíu eign
aðist þritugasta og annað barn
ið sitt. Hún er fjörutíu og
fimm ára, en eiginmaður
hennar er fimmtíu og tveggja
ára og hafa þau verið gift í
þrjátíu og tvö ár. Þau eiga
nú tuttugu og sex börn á lífi
og voru himinlifandi, þegar
þau eignuðust það síðasta og
sögðu, að þau væru eins ánægð
og þau væru að eignast fyrsta
barnið.
★
Um þessar mundir er verið
að sýna í Þýzkalandi kvikmynd,
sem nefnist Helga. Hún er
þýzk og er meðal annars sýnd
í henni barnsfæðing og er það
atriði tekið á fæðingarheimili
í Þýzkalandi. Sýningin á þessu
atriði hefur orsakað það, að
orðið hefur að setja upp sér
staka læknavakt í þeim borg-
um, sem myndin er sýnd þar
sem oft vill brenna við að það
líði yfir fíleflda karlmenn.
Til dæmis leið yfir þrjátíu og
tvo karlmenn í smáibæ einum
í Þýzkalandi.
*
Það hefur lengi gengið sá
orðrómur, að Jacqueline Kenne
dy og Harleoh lávarður hyggist
ganga í hjónaband. Eitt er víst,
að þau eru miklir kunningjar,
og nú fyrir skemmstu voru
þau saman í fríi í Georgíu og
í móvember sl. fóru þau saman
til Kambodíu. Þessi mynd er
•*
tekin af þeim Harleoh og
Jackie í New York, þegar þau
eru að koma inn í Plaza-hótelið.
Annars er þrálátur orðrómur
um það að þau hyggist ganga
í hjónaband í o'któber n. k.
•¥
Pierre- Beck var fyrir nokkru
sektaður um 10 þúsund krónur
fyrir rétti í Kanada. Var þetta
vegna lyftuskemmda. Pierre
hafði átta sinnum orðið þess
valdandi, að lyftan, sem hann
var í stöðvaðist milli hæða, og
hafði hann gert þetta til þess
að sjá nafn sitt í dagblöðunum.
•¥
Japanskur tannlæknir, sem
starfað hefur sem tannlæknir í
tuttugu ár, hefur alls dregið
sextíu þúsund tennur á starfs-
ferli sínum- Af þessum sextíu
þúsund tönnum hefur hann
grafið fimmtíu og fjögur þús-
und í jörðu og látið gera yfir
þær minnismerki, sem líkist
risatönn.
¥
Skíðaíiþróttin nýtur mikilla
vinsælda um þessar mundir
víðs vegar um heim. Hér á
myndinni sjáum við nokkra
skíðaáhugamenn, sem margir
kannast við. Það eru þau John
Glenn ofursti, Andy Williams,
leikari og Ethel og Bobert
Kennedy.
i