Tíminn - 03.03.1968, Side 3
15
SUNNUDAGUR 3. marz 1968.
TÍMINN
m » N0TQNDJH
Hér höfum viS þaS svart á hvítu. Forsíðufrétt The People, sem raett er ítarlega um í þættinum í dag.
Hljómplotukaupendur blekktir
í hiira vitfurkemiida brezka
vikublaði Tlhe People, 18. febr.
kl., var foxisíSugrem, sem marg
ur brezkur æskumaðurinn hef-
ur öruggíega lesið furðu lost-
inin. í þessari stórmerkilegu
grein var flett ofan af því, sem
gerist á bak við tjöldin í „pop“
heiminum í dag.
Höfundur greinarinnar, Pe't-
er Oakes, segir frá því að nú
Iiggi ljóst fyrir, að ýmsar vin-
sælar og mikiis metnar hljóm-
sveitir hafi heldur betur farið
á bak við aðdáendur sina með
því að láta aðra aðila syngja
fyrir þá inn & plötur, eða ann-
ast undirleikinn, eða jafnvel
hvort tveggja. Bkki er hægt að
segja, að þetta sé einsdæmi í
m'úsíkheiminum. Monkees hafa
t. d. viðurkennt, að þeir hafi
hvergi komið nærri undirleikn-
um í fyrstu plötum sínum, og
er „Pm a believer" ein þeirra.
Slíkt baktjaldamakk hefur
einnig náð til íslenzkrar hljóm-
plötuútgáfu. 1966 kom út fyrsta
hljómplata DÁTA; hún varð
mjög vinsæl, en brátt fór það
að kvisast út, að Dátarnir væru
ekki einir á ferð á hljómplöt-
unni. Þetta reyndist rétt og liðs
aukinn var ekki af verri end-
anum, því hér var kominn Þór-
ir Baldursson og lék hann á
orgel og söng millirödd.
Snúum oikkur að The People
aftur og gluggum nánar í áður-
nefnda grein.
Þegar ein af plötum Herma-n
Hermit's var hljóðrituð í Lon-
don, voru þeir í Bandaríkjun-
um. Útilokað, segir vafalaust
einlhver ,,Hermit‘s-aðdáandinn.
Staðreyndin er sú, að þeir fé-
Iagar sungu inn á plötuna í
þessari Bandaríkjaför, síðan
var upptakan send express til
London, þar sem staðgenglar
Herman Hermit's voru í óða
önn að flytja undirleikinn. Síð
an.var þessu sullað saman eftir
kúnstarinnar reglum. Opinber-
lega voru þau boð látin út
ganga, að Herman Hermit's
hefðu sungið og leik'ð inn á
mýja hljómplötu.
Sl. sumar komst ,,Let‘s go to
San Francisoo“ upp í annað
sæti brezka vinsældarlistans,
flutt af Flower Pot Men, en
þrír af fjórum meðlimum
hljómsveitarinnar komu hvergi
nærri upptökunni.
Fyrsta plata „New Vaude-
ville Band“, „Winehester Cat-
hedral", fór upp í þriðja sætið
í Bretlandi, en náði aftur á
móti efsta sætinu í Bandaríkj-
unum. Þeir spiluðu ekki nótu
á þessari plötu og hljómsveitin
var ekki formlega stofnuð,
fyrr en ljóst var, að platan
myndi slá í gegn.
Fyrir nokkrum árum náði
bráðskemmtilegt lag miklum
vinsældum, „It‘s a good news
week“, flutt af The Hedge-
hoppers Anonymous. Þetta var
fyrsta plata hljómsveitarinnar
og var hún fyrst kynnt hér
heima í útvarpsþættinum Á nót
um æskunnar. Enginn meðlim-
ur hljómsveitarinnar kom ná-
lægt upptöku plötunnar.
Hér áður fyrr sungu Freddie
and the Dreamers og léku sjálf
ir inn á sínar plötur. Nú láta
þeir aðra sjá um undirleikinn.
„I was Kaiser ilTs Batman“
var einkar vinsælt hér heima
og víðar sl. ár. Lagið er flaut-
að út í gegn og voru margir
hrifnir af snilli whistling Jack
Smiths. En hér var heldur bet
ur svindlað á hljómplötukaup-
endum eins og eftirfarandi orð
Jacks gefa opinsbátt til kynna:
„Ég flaulaði alls ekki neitt á
þessari plötu, en ég mun gera
það á þeirri næstu.“
Þá skulum við fara dálítið
aftur í tímann, eða til ársins
1963. Þetta ár var hinn kunni
gítarleikari Jet Harris heiðr-
aður sérstaklega fyrir flutning
sinn á „Diamonds“ og „Scarlet
0‘Hara“. Nú hefur Hr. Harris
Ijóstrað því upp við höfund
þessarar greinar, sem skrif min
eru byggð á, að hann hafi alls
ekki snert gitarinn í „Scarlet
0‘Hara“. ,,Við fengum annan,
sem var miklu betri."
Þessi grein hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi, enda
er hér um stórkostlega upp-
Ijóstrun að ræða og það af við
urkenndu fréttablaði, sem slær
ekki svona nokkru upp á for-
síðú, án þess að hafa fyrir því
óvéfengjanlegar sannanir.
Nú fara hljómplötukaupend-
ur sennilega að ígrunda það ná
kvæmlega næst, þegar þeir
kaupa plötu, t. d. með Herman
Hermit's, hve mikinn þátt þeir
eiga í raun og veru sjálfir i
plötunni.
Hljómleikunum frestað.
í síðasta þætti kom það
fram, að hljómleikar þeir, er
Óðmenn, Flowers og Hljómar
standa fyrir, yrðu 6. marz n.k.
Vegna ófyrirsjáanlegra örðug-
leika verður að fresta þessum
merkiskonsert um viku.
Benedikt Viggósson.
Trúin flytur fjoll. — Víð flyíjum allt annaS
SENPíBfLASTÖÐIN HF.
BlLSTJÓRARNIR aostoða
Fyrir aðeins kr. 68.500.oo getið þér fengið staðlaða
eldhúsinnréttingu í 2 — 4 herbergja ibúðir, meö öllu tll-
heyrandi — passa I ílcstar blokkarlbg&ir,
Innifalið i verðiftu er:
@ cldhúsinnrétting, klædd vönduðu plasti, efri
og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
0 ísskápur, hæfiiega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstaö.
^uppþvotftavéf, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavéiin þvær upp fyrir 5 manns og að auki má nota
hana tii minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
$ eldarvélasamstæða með 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur
nýtízku hjálpartæki.
@ lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu við reyk og Iykt. Enginn kanall — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Éf stöðluð innrétting hentar yður ékki gerum viö
yður fast vcrðtilboð á hlutfallslegu verði. Gerum ókeypis
verðtiiboð f éldhúsihnréttingar f ný og gömul hús.
Höfum cihnfg fataskápa, staðlaða.
- HAOKVÆMIR GREIÐSLUSKlLMÁLAR - #
KIRKJUHVOLI
REYKJAVfK
SÍMt 2 17 18
E inangrunargler
Húseigendur — Byggingameistarar!
Crtvegnm tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara. Sjáum um ísetningu og alls konar
breytingu á gluggum. tJtvegum tvöfalt gler 1 laus
fög og sjáum um máltöku.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Gerið svo vel og leitið tilboða. Sími 51139 og 52620
Saltsteinninn
ROCKIES inniheldur öll nauðsynleg steinefni
fyrir nautgripi og sauðfé.
ROCKIES þolir veður og vind og leysist ekki
ekki upp f rigningu.
ROCKIES vegur 25 ensk pund og má auðveldlega
hengja hann upp.
SEÐJIÐ 'althungur búfjárins með því að hafa
ROCKIES i húsi og i haga.
INNFLUTNINGSDEILD
„ROCKIES